Morgunblaðið - 12.07.1987, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 12.07.1987, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987 53 skarst úr leik. Eftir næsta fund herráðsins skipaði Amin fjórtán- menningunum að koma fram á veröndina, þar sem þeir voru umkringdir öllum hershöfðingjun- um og ofurstunum úr ráðinu. Hann lýsti því yfir að þeir væru úgandískir borgarar. Stórar blek- byttur voru sóttar og fingraför tekin af hvítu mönnunum. „Nú er komið að eiðnum," sagði Amin. ..Krjúpið og sverjið." Hvitu mennirnir urðu öskureið- ■r, en hann hafði leikið á þá. Þeir höfðu fengið það sem þeir vildu. Nú áttu þeir ekki annarra kosta völ en að fara að vilja hans. Það sveið þeim sárast." brytjuðíspað Bob Astles sagði frá því hvernig Kay, voldugust hinna fimm eigin- kvenna Amins, lézt undir hnífi læknis, sem framkvæmdi á henni ólöglega fóstureyðingu. Maðurinn var svo hræddur að hann brytjaði hana í spað, svo að auðveldara yrði að losna við líkið. Hann hafði tvær ástæður til að vera hræddur. Hann var elskhugi eiginkonu forsetans. Hún hafði verið í ónáð í nokkurn tíma og harðstjórinn hlaut að komast að því hver hefði gert hana barns- hafandi. Læknirinn setti líkiö í poka, en 8ob Astles ræðir við fréttamann Daily Telegraph í Luzira-fangelsinu skammt frá Kampala. manna sem nokkurs konar ævin- týri og seinna sýndi hann oft hermönnum sínum Hollywood- kvikmynd um atburðinn með mik- illi ánægju. Astles telur að Amin hafi undir- búið aðra tilraunina til að ráða sig af dögum. Dag nokkurn kom ein- ræðisherrann í heimsókn, skoðaði svefnherbergi hans og baðherbergi gaumgæfilega og tautaði eitthvað um að málningin væri léleg. Seinna lokúðu vopnaðir menn Astles inni í baðherberginu, enda hafði Amin gengið úr skugga um að ekki væri hægt að opna gluggann. Astles hafði hins vegar sagað hjarirnar til vonar og vara svo að hann kæmist út. Astles lét lítið fara fyrir sér, en þegar hann hélt að Amin væri kominn í betra skap steig hann fram í dagsljósið og tilkynnti að kaffismyglarar hefðu rænt sér og brennimerkt sig samkvæmt heiðn- um trúarsiðum. Hann segir að þriðja tilraunin hafi verið gerð 1978 þegar sér hafi verið veitt fyrirsát á veginum frá Entebbe. Þetta var víðtæk og vel- skipulögð árás og Amin var svo viss um að hún mundi heppnast að hann hringdi í frú Astles til að votta henni samúð og segja henni að sækja mætti líkið i borg- arlíkhúsið. Raunar hafði Astles leitað hælis í herstöð og yfirmaður hennar villti um fyrir þeim sem eltu hann. Fjórða tilraunin var einnig fyr- irsát, en Astles komst undan í bifreið, þótt einn lífvarða hans hefði verið myrtur. Þegar Amin hrökklaðist loks frá völdum 1979 var Astles við öllu búinn og þegar Tanzaníuher sótti inn í landið flýði hann til Kenýa í vélbát. Þar var hann strax hand- tekinn og nýja stjórnin í Uganda fékk hann framseldan. Hann var sex ár í fangelsi og í klefa hans var ekkert rúm og aðeins tvö teppi. Hann kveðst hafa notað tímann í fangelsinu til að safna upplýsing- um um glæpi Amin-stjórnarinnar og smyglað vitnisburði margra fanga til lögfræðinga í Lundúnum ! með íyrirmælum um að birta i upplýsingarnar, ef hann iétist. Þrálátasta spurningin, sem Ást- ; ies verður að svara, er: Hvers vegna kaus hann að halda áfram pegar hann kom að dyrum jkurð- stofunnar sá hann að starfsmenn „Ríkisrannsóknaskrifstofunnar", sem höfðu fylgzt neð íerðum conunnar, höfðu umkringt húsið. : :niklu 'iðagoti byrlaði 'æknirinn tpnu r.inni, fimm börnum og sér •’jálfum oitur. Hann var látinn begar ’eynilögreglumennimir komu inn. Amin varð bálvondur, ekki út morðinu, heldur vegna þess að oann hafði verið sviptur mögu- 'eika ú því að hefna sín á mannin- hm fyrir bá ósvífni að kokkála 'orseta íandsins. Hann gaf skipun hm að Hkið yrði saumað saman og Jagt á rúmið eins og múmía. Amin kallaði fyrir sig hinar eiginkonur sínar og börn þeirra, um 50 að tölu, og iét þau virða fyrir sér hryllilegt líkið. „Þarna sjáið þið,“ sagði hann sigri hrósandi. „Þetta er dómur Allah yfir kristinni konu.““ Amin hrökklaöist frá völdum þegar Tanzaníumenn geröu innrás í Uganda. Myndin var tekin þegar Tanzaníumenn sóttu yfir Nfl og tóku Jinja, næst stærstu borg Uganda. STRÍÐ Árið 1978 ákvað Amin að fara með stríði á hendur Tanzaniu. »Þetta var alröng ákvörðun og þegar hann var kominn í algerar ógöngur neyddi hann araba til að koma til hjálpar. Fá ríki voru eins tfeg til að hjálpa og Líbýa, en Amin sagði Khadafy ofursta að ef hann veitti ekki aðstoð mundi Uganda snúa sér til ísraelsmanna. Khadafy sendi hermenn, þótt honum væri það þvert um geð.“ Amin var svo tortrygginn að hann hélt að allir í námunda við sig væru að ofsækja sig, sagði Astles. „Nokkrum sinnum sakaði hann mig um að reyna að drepa sig. Að lokum varð þetta hlægilegt. Stund- úm var ég eins og vinur Amins, stundum vildi hann aðeins hafa mig nálægt sér eins og hund — ég var nokkurs konar hirðfífl. Sam- band okkar varð æ stirðara." BANATILRÆÐI Astles telur að Amin hafi staðið fyrir a.m.k. fjórum banatilræðum gegn sér, fyrst 1976: „Þá var ég yfirmaður gagnspill- ingarsveitarinnar og 30 stórmál voru rannsökuð í því skyni að ná aftur peningum. En við eignuð- umst volduga óvini og þeir ólu á tortryggni Amins gagnvart mér.“ Astles var handtekinn, skrif- stofu hans var lokað og 12 bindi af skjölum innsigluð. Um líkt leyti og hann var látinn laus, þremur vikum síðar, var reynt að ráða Amin af dögum. Þegar leynilögreglumenn komu til að handtaka Astles flýði hann til Kenýa í litlum bát. Leynilög- reglan vildi ekki viðurkenna mis- tök og hélt því fram að hann hefði drukknað og Amin tilkynnti lát hans. Hann flýði til Englands og um sama leyti gerðu ísraelsmenn árás sína á Entebbe-flugvöll til að bjarga löndum sínum úr klóm flugvélarræningja. Astles sneri aftur til Uganda og Amin sakaði hann um að hafa veitt ísraels- mönnum gagnlegar upplýsingar. í ljós kom að engin alvara bjó á bak við þessa ásökun. Amin virðist hafa litið á árás ísraels- störfum fyrir Amin-stjórnina, þegar hann hafði gert sér grein fyrir eðli hennar? Svar hans er á þá leið að hann hafi sogazt inn í hringiðu atburða og háskalegt hefði verið að neita að hlýða skipunum forsetans. „Slíkt er ekki gert í Afríku," sagði hann. Flótti hefði borið vott um hugleysi og slíkt fyrirgefa Afríkumenn aldrei. „Ég var ekki að vernda mig, heldur konu mína og tvö börn og þá sem unnu fyrir mig. Þau hefðu verið fangelsuð, pyntuð eða myrt, ef ég hefði verið lengi í burtu. Auk þess taldi ég í einlægni að ég gæti dregið úr hermdarverkunum með því að vera kyrr.“ GH Pennavinir * Frá Finnlandi skrifar 26 ára stúlka, viðskiptafræðingur, með áhuga á bókmenntum, listum, tón- list, tungumálum, íþróttum o.fl.: Teija Rantala, Kujatie 22Al, 92130 Raahe, Finland. Ítali um tvítugt með áhuga á 5>róttum vill eignast pennavini á Islandi: Conio Gianni, V. Rivilta 43, 15100 Alessandria, Italia. Sextán ára enskur pultur, sem á heima í nágrenni Nottingham, og hefur áhuga á tónlist, dansi, íþrótt- um o.fl.: Michael Tracey, 5 Brickyard Lane, East Bridgford, Nottinghamshire, England. Sextán ára japönsk stúlka með áhuga á tónlist, bókalestri og handavinnu: Junko Takai, 785 Miyahara-cho 1-chome, Omiya-shi, Saitama-ken, 330 Japan. Frá Frakklandi skrifar 28 ára karlmaður með áhuga á íþróttum. Kveðst hafa mikinn áhuga á íslandi og vill skrifast á við íslenzkar stúlk- ur. Skrifar á ensku auk frönsku: Marc Santrain, 61 rue du Buisson, 59800 Lille, France. Sautján ára finnsk stúlka með áhuga á tónlist og frímerkjum. Vill skrifast á við 15-19 ára stúlkur Minna Lahdenperá, Niittypolku 1, 04600 Mántsalá, Finland. Þrítug sovézk kennslukona, sem safnar póstkortum, vill skrifast á við íslendinga: Svetlana Tomakh, USSR, 290008 Lvov, P.O.BOx 2676, Soviet Union. Srá Ghana ; Afríku skrifar 26 ira námsmaður með áhuga á ferða- .ögum, dýralífi o.fl.: ■ Richard Xwadey Hotchway, i/o Itfiss Itf. 0. Yebuah, Accountant General TbepL, tfachine Room, Accra, Ghana. Nítján ára japönsk stúlka með áhuga á tónlist, 'þróttum og kvik- myndum. Helztu átrúnaðargoðin eru Madonna, Cutting Crew, Ðuran Duran, U2, A-Ha, Cyndi LAuper, Europe o.fl.. Vill ólm eignast íslenzka pennavini: Akemi Kabe, 31-17 Kamiaoki 6-chome, Kawaguchi-shi, Saitama, 333 Japan. Frá Noregi skrifar 16 ára stúlka, sem á hesta og hefur mikinn áhuga á siglingum: Yngvild Brynildsen, Tue, 1820 Spydeberg, Noregi. Frá Sri Lanka skrifar karlmaður sem vill eignast íslenzka pennavini. Hann getur hvorki um aldur né áhugamál: Jaya Nawaratne, Gayani Snack Shop, No. 12 Trinco Street, Matale, Sri Lanka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.