Morgunblaðið - 12.07.1987, Page 54

Morgunblaðið - 12.07.1987, Page 54
 TfiOtJK ^ 54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987 Morgunblaðið/Sverrir Það voru fulltrúar frá Félagi Tamningamanna sem riðu á vaðið með sýningu í Reiðhöllinni Langþráður draumur að rætast Áhugi boðsgesta á sýningunni leynir sér ekki. Vonandi verður það ekki hlutskipti kúasmala hérlendis að vera dregnir á sama hátt og kúrekinn sem rakst inn í Reiðhöllina meðan á sýningunni stóð. Hátt er tíl lofts og vítt til veggja í Reiðhöllinni og mun hún rúma eitt þúsund manns í sæti. Konuraar létu sitt ekki eftir liggja og sýndu þær sex glæsta gæðinga Mörg kunn andiit úr heimi hestamennskunnar sáust og hér er Jón á Reykjum að segja þeim Sigurbirai á Stóra-Hofi og Gunnari Dungal á Dallandi sögu og væntanlega af hestum. ÞÁ er runnin upp sú stund að hestamenn geti átt þess kost að halda hestasýningar án þess að þurfa að leita á náðir veðurguð- anna og vera háðir duttlungum þeirra. A hátíðarstund þegar ReiðhöUin var tekin í notkun á föstudagskvöldið var að sjálf- sögðu haldin sýning að loknum ávörpum. Var þetta jafnframt fyrsta skrautsýningin ef svo má að orði komast sem haldin er hér á Landi innanhúss. Félag tamningamanna reið á vaðið og sagði kynnir kvöldsins Hjalti Jón Sveinsson það vel við hæfi því félagið hefði átt stóran þátt í hinum öru framförum í reið- mennskunni á undanfömum ára- tug. Nemendur reiðskólans í Vestra-Geldingaholti sýndu einnig við góðar undirtektir. Reiðskólinn hefur starfað með miklum blóma á annan áratug og þar hafa margir krakkar stigið sín fyrstu skref í hestamennskunni. Þótti vel viðeig- andi að fulltrúar þessa skóla kæmu fram á fyrstu sýningunni í húsnæði þvi sem kemur til með að hýsa Reiðskóla Islands. En það voru fleiri unglingar sem komu fram því flórir krakkar þau Edda Sólveig Gísladóttir, Gísli Geir Gylfason, Edda Rún Ragnarsdóttir og Róbert Petersen úr Fáki sýndu þama en þess má geta að þau stóðu mjög framarlega á landsmótinu á síðasta ári. Fjórir stóðhestar frá Stóðhesta- stöð Búnaðarfélags Islands vom sýndir þeir Geisli 1045 frá Meðal- felli í Kjós, Sikill 1041 frá Stóra- Hofi, Pá frá Laugarvatni og Töggur frá Eyjólfsstöðum. Það voru starfs- menn stóðhestastöðvarinnar bæði núverandi og fyrrverandi þau Rúna Einarsdóttir, Eiríkur Guðmundsson, Helgi Eggertsson og Þorkell Bjamason hrossaræktarráðunaut- ur. Það kom fram í máli Hjalta Jóns að hestamir hafi verið sóttir í hagana daginn áður þar sem þeir voru að sinna hlutverki sínu. Pá og Töggur eru aðeins flögra vetra en hinir tveir ári eldri og allir vom þeir sýndir við góðan orðstír á sýn- ingu stóðhestastöðvarinnar í vor. Var mesta furða hvað hestamir komu vel fyrir en ekki var laust við að þeim óaði þó við þessum nýju og ókunnugu aðstæðum. Var það einkum klappið og fagnaðarlæti áhorfenda sem settu þá stöku sinn- um út af laginu. Kom þama vel í ljós geðprýði þessara ungu kyn- bótahesta því langur vegur er milli hinnar frjálsu náttúm þaðan sem þeir vom teknir á fimmtudaginn og Reiðhallarinnar í Reykjavík því ætla má folamir hafi þurft meiri aðlögunartíma. Margir velta því fyrir sér hvaða áhrif Reiðhöllin geti haft á reið- mennskuna og telja margir að meðal annars muni vinsældir hind- mnarstökksins aukast vemlega og að sjálfsögðu var boðið upp á slíka sýningu á föstudagskvöldið. Sigur- bjöm Bárðarson og Barbara Mever sýndu saman hindmnarstökk við mjög góðar undirtektir boðsgesta og ef það er vísbending um það sem koma skal má búast við að menn leggi meiri rækt við þessa grein hestamennskunnar sem hefur fram að þessu verið hálfgerð homreka. En það var líka bryddað upp á nýjungum og var sá liður kallaður glæfrafreið. Vom þar ferðinni skylmingarkappar sem háðu þama smá ormstu sem lyktaði með því að annar þeirra yfírgaf reiðskjótann á skjótan hátt. Seinna birtist svo galvaskur kúasmali eða „cowboy" sem hleypti fram og til baka augsjá- anlega að leita að beljum sem engar vom þama. Ekki leið á löngu þar til að tveir indíánar komu inn á völlinn að sjálfsögðu til að lumbra á kúasmalanum sem varðist hetju- lega en enginn má sín við margnum og urðu lyktir mála þær að annar indíáninn hleypti fáki sínum út af vellinum með kúasmalann bundinn kyrfilega á höndum í eftirdragi. Heldur sneypuleg útreið fyrir aum- ingja kúasmalann sem vafalítið hyggur á hefndi á næstu sýningu í Reiðhöllinni. Konur áttu sína fulltrúa í sýning- unni og vom þær á svörtum og hvítum gæðingum, þrír af hvomm litum. Sagði Hjalti Jón það reyndar furðu sæta hvað konur blönduðu sér lítið í toppbaráttuna í keppni á hestum hérlendis og nefndi í því tilviki að víða erlendis hefðu þær gjaman yfírhöndina yfír karlana . Og þeir höfðu þarna sitt lið sem er reyndar landslið Islands í hestaí- þróttum sem nýlega var valið og vom liðsmenn kynntir þama. Þegar að er gáð virðist sem hestamennsk- an sé eina íþróttagreinin sem karlar og konur keppa saman í en ekki í sérstökum karla og kvennaflokk- um. Hér em upptalin atriði sem boðið var upp á á fyrstu sýning- unni innanhúss og virðist sem mörgum hestamanninum létti við það að sjá að gamall og langþráður draumur sé að verða að veruleika. Stemmingin var góð og ekki að efa að þama eigi menn eftir að eiga góðar stundir í leik og starfí. Nú bíða hestamenn þess spenntir að fylgjast með og upplifa nýtt fram- faratímabil í íslenskri hesta- mennsku því búast má við að reiðhöllin hafí áhrif á flesta þætti hennar. Texti: Valdimar Kristinsson Er stoltur yfir því sem hér fór fram -segir séra Signrður Haukur Guðjónsson Reiðhöllin opnar dyr í ýmsar áttir -segir Þorvaldur Þorvaldsson „AÐ mínu mati tókst vel til á þessari fyrstu sýningu í Reið- höllinni en þess er þó að geta að ég hef ekki séð sambærilegar sýningar erlendis þannig að ég hef ekki samanburð,** sagði Þor- valdur Þorvaldsson endurskoð- andi í Reykjavík og hestamaður. „Eg held að þessi bygging eigi eftir að opna dyr í ýmsar átta í þróun íslenskrar reiðmennsku og þá sem viðbót en ekki þannig að einhver þáttur hestamennskunnar detti út og reiðhallarreiðmennska komi í staðinn. Við höldum áfram Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson Þorvaldur Þorvaldsson: Sýning- ar verða fágaðri með tilkomu reiðhallarinnarog sennilega reið- mennskan almennt um leið. að ríða hestum okkar úti í náttú- runni en Reiðhöllin verður viðbót," sagði Þorvaldur sem virtist ánægð- ur með þennan stóra og langþráða áfanga. „ÉG HEF allt gott um þessa Reiðhöll að segja og er sjálfur þátttakandi í því að hún komst upp. Ég er líka ógurlega stoltur yfir því sem hér fór fram áðan,“ sagði séra Sigurður Haukur Guðjónsson, er hann var spurð- ur álits á nýju Reiðhöllinni að opnunarhátíðinni lokinni. Sigurður Haukur sagði að það væri aðeins eitt sem hann sæi eft- ir og það væru hestamir sem taka þátt í heimsmeistaramótinu sem fram fer í Austurríki í ágúst. „Keppnishestamir voru svo falleg- ir og ég á eftir að sjá eftir þeim er þeir fara úr landi. Áberandi var hvað ungur krakkamir komu vel fyrir. Ég er sannfærður um að þessi höll á eftir að vera þeim til góðs“. Sigurður var spurður hvort hann, sem venjulegur hestamaður, myndi nota höllina. „Það efast ég um,“ sagði hann. „Ekki nema til þess að horfa á aðra. Ég held áfram að ríða út fýrir utan. En mikilvægasta hlutverk Reið- hallarinnar er að kveikja þrá þeirra sem yngri eru til þess að kynnast náttúrunni og landinu og það held ég að hún geri. Borgarbúanum er nauðsynlegt að hafa tómstunda- Morgunblaðið/Sverrir Séra Sigurður Haukur Guðjóns- son taldi líklegt að hann héldi áfram að ríða út fyrir utan Reið- höllina gaman og hestamennskan er eitt þeirra".

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.