Morgunblaðið - 06.09.1987, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1987
5
Edda S. Björnsdótt-
ir augnlæknir látin
EDDA Sigrún Björnsdóttir,
augnlæknir, andaðist á Landa-
kotsspitala í gær, 5. september.
Hún var fimmtiu ára gömul,
fædd 1.12. 1936.
Edda lauk stúdentsprófí frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1955, þá 18 ára gömul. Hún hóf
nám í læknisfræði við Háskóla ís-
lands, en hvarf frá námi um tima
og flutti með eiginmanni sínum,
Leifi Bjömssjmi lækni, til Banda-
ríkjanna. Þau skildu. Edda hóf aftur
nám í læknisfræði við Háskóla ís-
lands árið 1964 og lauk því árið
1970. Síðan stundaði hún fram-
haldsnám í augnlækningum í
Bretlandi. Eftir að hún lauk námi
hefur hún starfað sem augnlæknir
á Landakotsspítala og rak jafn-
framt eigin læknastofu fram á
síðasta dag.
Edda Sigrún Bjömsdóttir lætur
eftir sig þijú böm, Áma, Bjöm og
Helgu Leifsböm, sem öll em búsett
í Reykjavík.
VSÍ og VMSÍ:
Fyrsti fundurinn
á þriðjudaginn
FYRSTI samningafundur Vinnu-
veitendasambands íslands og
Verkamannasambands íslands
um nýja kjarasamninga hefur
verið ákveðinn á þriðjudaginn
kemur. Formannaráðstefna
Verkamannasambandsins verður
haldin i dag, sunnudag og verður
þar lögð síðasta hönd á endan-
lega kröfugerð sambandsins í
þessum samningum.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Verkamánnasambands
Islands, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að lagt yrði fyrir formanna-
ráðstefnuna, sameiginlegt álit
nefndar, sem unnið hefði að undir-
búningi kröfugerðarinnar. Hann
sagði kröfumar allnokkrar, enda
gæti mikillar óánægju með kjörin,
sérstaklega á meðal fiskvinnslu-
fólks.
\/CDHI niM’Q7
Á sýningunni VERÖLDIN ‘87
hefur Hólmfríður Karlsdóttir
innréttað 200 fermetra draumaíbúð
að eigin smekk. Valið innréttingar,
húsmuni, liti og efni.
Þetta erforvitnileg og falleg íbúð
smekklegrarnútímakonu. Hérer
allt sem tilheyrir einu heimili.
- Jafnvel bíllinn á sínum stað í
bílskýlinu.
SJÁIÐ DRAUMAÍBÚÐ
HÓFÍAR
Hún verður sjálf á staðnum á
virkum dögum milli klukkan 18
og 20. Um helgar milli 15 og 17
og aftur milli 20 og21.
| STÓRSÝNING
S FYRIRALLA FJÖLSKYLDUNA
Opið: Virka daga frá kl. 16-23. Um helgar frá kl. 13-23. Aðgöngumiðasölu hætt alla daga kl. 22.