Morgunblaðið - 06.09.1987, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1987
9
HUGVEKJA
ORÐIÐ
eftir sr. HALLDÓR GUNNARSSON
„í upphafí var orðið" þannig
hefst Jóhannesarguðspjall og seg-
ir með því frá sköpuninni. Þegar
við tölum framkvæmum við brot
af þessari miklu sköpun, að breyta
hinu ósýnilega til hins sýnilega,
breyta hugsun okkar, sem við ein
þekkjum, til orða, sem aðrir nema
og heyra. Af orðum okkar erum
við dæmd, réttlætt eða sakfelld,
því orðin geta verið sönn eða
ósönn. Sköpun okkar frá hugsun-
inni getur verið sett fram á svo
margvíslegan hátt, f fljótfæmi eða
af varúð, í reiði eða í gleði, af
klókindum eða í hreinskilni, upp-
hugsuð lygi eða sannleikur.
Eg ræð einn yfír hugsun minni
og hvemig ég breyti henni til orða,
sem eru af öðmm heyrð eða lesin.
Eins er með þig sem þessar línur
lest. Þú einn ræður yfír hugsun
þinni og þeirri miklu sköpun, þeg-
ar þú breytir hugsuninni í orð.
Ég orða þetta svona sterkt vegna
þess að það skiptir svo miklu
máli hvemig við orðum hugsun
okkar, hvemig við komum fram
við þann sem næst okkur stendur
með orðum okkar og eins er um
þann sem fjær er. Lífíð heima,
sem er okkur svo mikilvægt,
byggist svo mikið á þessu í ein-
faldleik sínum. Að orða hugsun
sína. Segja frá kærleikanum, sem
býr manni í bijósti setja frá ást-
inni, sem ræður svo miklu, er svo
sterkt afl og mótar dagfar, segja
frá þakklæti, tala um gleðina og
sorgina. Heimilislíf okkar byggist
á þessum tjáskiptum. Við megum
ekki álykta að maki eða böm eða
náinn vinur þekki eða lesi hugsun
okkar og við megum ekki heldur
halda að keyptar gjafír komi í
stað þessara orða. Ekkert getur
komið í stað þeirra. Hlý og sönn
orð sem höfða til vináttu, um-
hyggju, kærleika eða ástar, eru
alltaf eins og vökvun. Þau næra
og byggja upp það sem okkur er
svo mikilvægt, að eiga aðra að
og verða ekki ein í svo stórum
og köldum heimi efnishyggjunnar.
Einar Benediktsson orðar þetta
á svo áhrifamikinn hátt í kvæði
sínu: Einræður Starkaðar, eink-
um í þessu erindi:
„Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leyndist strengur í bijósti, sem brast
við biturt andsvar, gefið án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka.“
Þetta reynum við öll með einum
eða öðmm hætti. Þó eigum við
alltaf þann möguleika að byggja
okkur brú á ný með sönnum og
wm 12. sd. e. Trin.
Mt. 12; 31.-37.
hlýjum orðum. Biðja fyrirgefning-
ar ef við finnum til þess svíða og
sársauka sem samvizkubiti fylgir,
þegar við fínnum og vitum að við
höfum sagt of mikið, ásakað að
ósekju eða sagt ósatt, strítt eða
ýkt og vakið reiði, sársauka eða
afbiýðisemi.
í orðum Heilagrar ritningar
segir: „Því að af gnægð hjartans
mælir munnurinn. Góður maður
ber gott fram úr góðum sjóði, og
vondur maður ber vont fram úr
vondum sjóði. En ég segi yður:
Sérhvert ónytjuorð, það er menn-
imir mæla, fyrir það skulu þeir á
dómsdegi reikning lúka; því af
orðum þínum muntu verða rétt-
lættur, og af orðum þínum muntu
verða sakfelldur."
Það er hann, Drottinn, Jesús
Kristur, sem svo mælir. Hann sem
var sköpun Guðs, orð Guðs. Hann
sem kemur alltaf til okkar ef við
gefum honum hugsun okkar og
orð, ef við leyfum honum að vera
með í bæn okkar, fyrirbæn fyrir
öðmm og bæninni að leiða til
betri vegar, mýkja sársaukann og
sorgina sem á vegi okkar alira
verður.
Það er hann, Drottinn Jesús
Kristur, sem getur komið inn í líf
okkar þannig að við reynum að
tala af gnægð hans, reynum að
koma fram við aðra eins og við
óskum eftir að komið sé fram við
okkur og reynum að elska náung-
ann. Þetta að reyna er lífíð sjálft
f sínum margbreytilegustu mynd-
um og ef við ræktum með okkur
þessa viðleitni, þá emm við aldrei
ein. Hann er hjá okkur og við fínn-
um gnægð af hans nálægð, og
þá reynum við að bera gott fram
úr góðum sjóði.
Þetta er hin mikla alvara hverr-
ar stundar sem okkur er gefín,
því af orðum þfnum muntu verða
réttlættur og af orðum þínum
muntu verða sakfelldur.
Gengi: 4. september 1987: Kjarabréf 2,272 - Tekjubréf 1,235 - Markbréf 1,135 - Fjölþjóðabréf 1,060
NÝJUNG í PENINGAMÁLUM
Nú getur þú einnig ávaxtað fé þitt í KRINGLUNNI.
Um leið og þú gerir innkaup þín í Kringlunni getum við aðstoð-
að þig við að ávaxta fé þitt á hagkvæman hátt.
Við leggjum áherslu á persónulega ráðgjöf. Allir geta verið með.
Pú getur byrjað með smáar upphæðir jafnt sem stórar. Mögu-
leikarnir eru margir s.s. Kjarabréf, Tekjubréf, Markbréf, Fjölþjóða-
bréf, Fjármálareikningur og Frjálsi lífeyrissjóðurinn.
Hjá okkur færð þú einnig alla Eurocard kreditkortaþjónustu,
sem þú óskar.
Við starfsfólk Fjárfestingarfélagsins í Kringlunni erum ávallt
reiðubúin að aðstoða þig.
Lína G. Atladóttir
FJÁRFESriNCARFÉlAGIÐ
Kringlunni 123 Reykjavík Sími 689700
Sigrún Ólafsdóttir Stefán Jóhannsson
Símsvari ALLAN SÓLARHRINGINN í síma 28506. Upplýsingar um daglegt gengi Kjarabréfa, Markbréfa, Fjölþjóðabréfa og Tekjubréfa