Morgunblaðið - 06.09.1987, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1987
Trölli sökk
TRÖLLI, sem er dýpkunarskip
Búrfellsvirkjunar, sökk í Þóris-
vatn aðfaranótt síðastliðins
þriðjudags. Mjög hvasst var þá
^við vatnið og fengu menn í landi
ekki við neitt ráðið. Enginn var
um borð i skipinu þegar óhappið
varð.
Skipið hefur undanfarið unnið
í Þórisvatn
að dýpkun á skurði milli Þórisvatns
og niður að lokum Búrfellsvirkjun-
ar. Síðari hluta mánudags gerði
slæmt veður og fór það versnandi
um nóttina. Hvöss norð-austanátt
var, sem síðan snerist í norðanátt.
Þá blés eftir vatninu endilöngu og
risu háar öldur. „Það mældust um
8-9 vindstig við Búrfellsvirkjun, en
þama upp frá er líklegt að hafi
verið enn hvassara, en Þórisvatn er
í um 580 metra hæð yfir sjávar-
máli," sagði Helgi Arason, fulltrúi
stöðvarstjóra Búrfellsvirkjunar.
„Við sáum lítið út á vatnið um nótt-
ina, en gerðum okkur þó grein fyrir
að skipið væri að sökkva. Þegar
rofaði aðeins til að milli verstu vind-
hviðanna sáum við móta fyrir
skipinu og virtist þá helst sem það
hefði reist sig. Síðan fóru öll ljós
af skipinu og hefur það þá verið
að fara niður."
Lítið hefur lygnt við Þórisvatn
síðan skipið sökk og því hefur ekki
verið hægt að gera tilraunir til að
ná Trölla upp. „Við erum með lítið
hjálparskip, Nökkva, en það er ekki
ráðlegt að fara á því út á vatnið á
meðan ekki lægir,“sagði Helgi.
„Utan á Trölla eru tankar, sem eru
boltaðir við skipið og eru þeir oft-
ast hálffullir af sjó til að haldá
m
sr
Z'
s^#s(l
Njótið lífsins og reynið splunkunýjan og ferskan sérrétta-
seðil auk fjölda annarra úrvals málsverða.
Víkingaskipið er á sínum stað hlaðið alskyns grænmeti og
brauðum.
Rómantískt og huggulegt kvöld í Blómasal - ánægjunnar
vegna. m
HOTEL
LOFTLEIÐIR
FLUGLEIDA
HÓTEL
ballans á skipinu. Við ætlum að
reyna að dæla lofti í tankana og
fá skipið til að lyfta sér aðeins. Þá
gætum við hugsanlega dregið það
á grynnra vatn. Þetta óhapp breyt-
ir engu um framkvæmdir, því skipið
var sem næst búið að gera það sem
gera átti í haust. Vonandi verður
Trölli kominn í notkun aftur næsta
sumar, þegar við ætlum að halda
áfram."
Dýpkunarskipið Trölli hefur verið
notað við Búrfellsvirkjun síðastliðin
13 ár. Fyrst var skipið með díselvél-
ar, en hefur undanfarin ár gengið
fyrir rafmagni úr landi. Helgi Ara-
son sagðist ekki vita hvað slíkt skip
kostaði núna, en það er bókað hjá
virkjuninni á 20 milljónir.
Útvarpsf élagið
Rót hf
Hlutafjár-
útboð á
hlustunar-
svæðinu
STJÓRN Útvarpsfélagsins Rót
hf. hefur ákeðið að efna til hluta-
fjárútboðs að andvirði 3,5 til 4,5
milljónir króna. Leitað verður til
sem flestra einstaklinga og fé-
lagasamtaka á fyrirhuguðu
útsendingarsvæði um hlutafjár-
kaup. Hafa um 250 félagasam-
tökum verið send fundarboð á
kynningarfund sem haldinn
verður í samkomusal Sóknarr
Skipholti 50A, miðvikudaginn 9.
september kl. 20:30.
I júlímánuði síðastliðnum stofn-
uðu 30 manns, sem starfað hafa í
hinum ýmsu áhuga- og hagsmuna-
samtökum, með sér Útvarpsfélagið
Rót hf. Tilgangurinn er að koma á
fót grasrótarútvarpi, sem senda á
út á Faxaflóasvæðinu. Markmiðið
er ekki að afla hagnaðar heldur
skapa vettvang fyrir þjóðfélagslega
og menningarlega umræðu. Mun
útvarpið leggja sérstaka rækt við
umræðu um: Mannréttindamál,
þjóðfrelsismál, velferðarmál, verka-
lýðsmál, umhverfismál, menningar-
mál, friðarmál, kvenfrelsismál, og
uppeldis- og menntamál.
Meginhluti dagskrárgerðar hjá
útvarpsstöðinni verður í höndum
þeirra einstaklinga og samtaka,
sem áhuga hafa á að notfæra sér
þá aðstöðu sem hún hefur upp á
að bjóða. Þegar stöðinni vex fiskur
um hiygg, verða einnig dagskrárlið-
ir í hennar nafni, svo sem frétta-
þjónusta í tengslum við óháðar
erlendar fréttastofur.
(Úr fréttatilkjmningu.)
JL/esió af
meginþorra
þjóðarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er224 80