Morgunblaðið - 06.09.1987, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1987
39
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Dýralæknir
Ungur dýralæknir með víðtæka starfsreynslu
óskar eftir starfi eða hlutastarfi.
Margt kemur til greina.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 20.
sept. merkt: „D — 6472“.
Fullum trúnaði heitið.
Fræðsluskrifstofa
Vestfjarðaumdæmis
ísafirði
Eftirtalin störf eru laus til umsóknar:
Ein staða skólasálfræðings.
Ein staða sérkennslufulltrúa/kennslufulltrúa.
Hálf staða ritara.
Þá vantar talkennara og bókasafnsfræðing
til sérstakra verkefna sem mætti vinna í
áföngum eftir samkomulagi.
Ein staða kennsluráðgjafa í Vestfjarðarum-
dæmi, miðað er við hlutastörf 25-50% með
búsetu hvar sem er í umdæminu. Óskað er
eftir kennurum með starfsreynslu og/eða
framhaldsnám.
Fræðsluskrifstofan býður fram góða vinnu-
aðstöðu í húsakynnum sínum á ísafirði,
starfsandi er góður meðal skólamanna á
Vestfjörðum auk þess, sem boðið er uppá
góð laun fyrir ofangreind störf.
Upplýsingar veitir fræðslustjóri, Pétur Bjarna-
son í síma 94-3855, og 94-4684 og forstöðu-
maður Ráðgjafar- og sálfræðideildar, Ingþór
Bjarnason í síma 94-3855 og 94-4434.
Heilbrigðisfulltrúi
Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðarsvæðis auglýsir
laust til umsóknar starf heilbrigðisfulltrúa.
Starfssvið er heilbrigðiseftirlit og eftirlit með
mengunarvörnum samkvæmt ákvæðum laga
um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit. Starfs-
svæðið er Bessastaðahreppur, Garðabær
og Hafnarfjörður.
Umsækjendur skulu hafa lokið námi í heil-
brigðiseftirliti eða skyldum greinum. Um laun
fer samkvæmt samningi Hafnarfjarðarbæjar
og Starfsmannafélags Hafnafjarðar.
Umsóknir skal senda til héraðslæknis Reykja-
neshéraðs, formanns svæðisnefndar um
heilbrigðiseftirlit, Strandgötu 8-10, 220 Hafnar-
firði fyrir 15. september nk.
Nánari upplýsingar um starfið veitir fram-
kvæmdastjóri heilbrigðiseftirlitsins Strandgötu
8-10, Hafnarfirði, sími 651881.
Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðarsvæðis.
Starfskraftur
Vantar nú þegar starfskrafta í afgreiðslu og
veitingasölu.
Upplýsingar í símum 687701 og 687801.
SÓLEYJAR “4
Sauðárkrókskaupstaður
Aðalbókari
Laust er til umsóknar starfa aðalbókara hjá
Sauðárkrókskaupstað. Verslunarskóla-, Sam-t
vinnuskóla- eða hliðstæð menntun æskileg
og reynsla af bókhaldsstörfum nauðsynleg.
Æskilegt væri að umsækjandi gæti hafið
störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur til 25. sept. nk. Umsóknum
skal skila á bæjarskrifstofuna á Sauðárkróki.
Allar nánari uppl. um starfið gefur bæjarrit-
ari á skrifstofunni í síma 95-5133.
Bæjarstjórinn á Sauðárkróki.
FJÚLBRAITTASKÓUNN
BREIÐHOLTI
Frá Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti
Óskum eftir að ráða starfskraft til starfa á
Prentstofu Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Um
er að ræða hlutastarf.
Upplýsingar á skrifstofu skólans kl. 8.00-
15.00 næstu daga. Sími 75600.
MBARAUST
Haustnámskeiðin hefjast 14. september. Kennaramireru betri
en nokkru sinni fyrr og aðstaðan ein sú besta.
Jassballett Klassískur ballett Nútímaballett
Byrjenda- og framhaldshópar fyrir karla og konur, stráka og
stelpur frá 7 ára aldri og upp úr.
Innritun er hafin í símum 687801 og 687701
frá kl. 10-19 alla daga nema sunnudaga.
EY JAR
Kennarar: Winifred R. Harris, Ástrós Gunnarsdóttir, Shirlene Alicia Blaker, Bryndis Einarsdóttir
i' riTi.r r'inrifT'HHT—imiramín