Morgunblaðið - 06.09.1987, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1987
53
Frá íslensku menningardögunum í Rochefort-sur-Mer.
Skandinavar + Kelt-
*
ar = Islendingar
„Skandinavar plús Keltar = ís-
lendingar" er yfirskriftin á
grein eftir M. Jean Renaud, sem
birtist í 25.-26. hefti franska
tímaritsins ARTUS. Er greinin
fyrirlestur sem M. Renaud flutti
sl. haust á íslenskum menning-
ardögum í Rochefort-sur-Mer í
Frakklandi. En þar var einn
þáttur ráðstefnunnar fyrirlestr-
ar og umræður um menningu
þá sem þróast hefur fyrr og
síðar hér á þessari norrænu
eyju. Voru boðin skáld af íslandi
til að fjalla um nútímabók-
menntir íslendinga, en um
fornan bókmenntaarf íslend-
inga fluttu erindi Jónas Krisij-
ánsson, forstöðumaður
Handritastofnunar, M. Regis
Boyer, prófessor við Sorbonne-
háskóla í París og M. Jean
Renaud, sem er sérfræðingur
um norrænar fornbókmenntum
og kennir við háskólann í Caen
í Normadí.
í frásögn í Mbl. af umræðunum
í Rochefort, sem urðu mjög lífleg-
ar, þar sem fyrirlesarar höfðu að
ýmsu leyti öndverðar skoðanir,
sagði:„M J. Renaud telur keltnesku
áhrifín frá upphafí miklu meiri á
íslendinga en menn vilja vera láta,
þau hafí m.a. orð ið til þess að
íslendingar tóku að skrifa Sögum-
ar á íslensku en ekki latínu og
gæti keltneskra áhrifa mikið í ís-
lendingasögunum" En í fyrirlestr-
inum, sem nú hefur verið birtur,
færir M. Renaud margvísleg rök
fyrir þessari skoðun.
M. Renaud hefur lengi haft
áhuga á og lagt sitt til rannsókna
á norrænum bókmenntum. Hann
hefur til dæmis þýtt á frönsku
Færeyingasögu, sem kom út 1983
hjá Aubier Montaigne útgáfufyrir-
tækinu. Svo og Orkneyingasögu
með ítarlegum formála og grein-
ingu á sögunni og er hún væntan-
leg innan skamms hjá sama
útgáfufyrirtæki. Auk fyrirlestra-
halds við Caen-háskóla kennir M.
Renaud íslenskar og danskar bók-
menntir, ásamt tungumálunum
báðum við Institut Scandinave.
Áður dvaldi hann í Danmörku og
kenndi þar frönsku og í Lerwick á
Hjaltlandseyjum þar sem hann
kenndi norsku. Doktorsritgerð
hans var um skosku eyjamar í
norrænum bókmenntum. Hann
hefur ritað fjölda greina um Ork-
neyjar, Hjaltlandseyjar og Suðu-
reyjar, en þær eyjar eru lítt kunnar
Frökkum. Hefur hann lagt áherslu
á að sýna fram á tengsl norrænna
manna og keltneskra á þessum
eyjum.
Að ferðast um í hafínu
Nýtt Cousteausafn í París
Cousteau leiðangursstjóri um borð i bátnum sínum „Alcyone**,
sem gengur fyrir sólarorku.
I París er að rísa sérstætt
sjávarsafn, sem kennt er við
haffræðinginn fræga Cousteau
og ætlunin að opna það á næsta
ári. Þessi „miðstöð hafsins"
verður i Halleshverfinu,
skammt frá Pompidousafninu
og reiknað með að um milljón
gestir mimi koma þar árlega.
Aætlaður kostnaður er 110
milljón frankar og er miðstöðin
fjármögnuð af Cousteausjóðn-
um, Parísarborg og einum af
sparisjóðunum í Frakklandi.
Þarna í miðri Parisarborg á að
gera eftirlíkingu af hafsbotnin-
um, nægilega nákvæma til að
nýta við kennslu og til almennr-
ar fræðslu. „Fólk vill vernda
það sem því þykir vænt um“,
segir Cousteau og bætir við að
áhrifin i þessu safni muni veita
gestum næga ástæðu til að-
dáunar og til betri skilnings á
plánetunni okkar og vatninu
sem okkur er í mun að varð-
veita.“
Hann er blár, 25 metrar á lengd
og ginið er á stærð við ffl. Eftir
1988 verður hægt að fara innan
í hann og skoða alla leyndardóma
innyflanna. Þessi risahvalur verð-
ur eflaust eitt helsta aðdráttarafl-
ið í Cousteausafninu í framtíðinni.
Cousteau-safnið fellur vel að
markmiðum samnefnds sjóðs.
Þetta er áhugamannafélagsskap-
ur með 250 þúsund styrktarfélög-
um og hefur þann tilgang að flytja
almenningi fræðslu í sjónvarpi,
bókum og með sýningum. Má því
búast við að fleira fylgi í kjölfar
safnsins í Halles hverfínu.
Á 7.800 fermetra tjaldi og
þremur hæðum verður gestum
safnsins boðið í klukkutíma ferða-
lag, byggt á mörgþúsund klukku-
tima ferðum og hafrannsóknum
rannsóknaskipsins Calypso. Nýj-
ustu tækni er beitt og ótal
tæknibrellur láta gestinum
fínnast hann vera á ferðalagi neð-
ansjávar. Til að gera þetta sem
best úr garði varð að fá sérfræð-
inga víðs vegar að úr heiminum.
Ferðin byijar á báti og er gest-
urinn fluttur allt niður í hafdjúpin.
Þá heldur ferðin áfram fótgang-
andi. Ur því er um mismunandi
leiðir að velja. Má til dæmis leggja
leið sína í hvalinn, láta fara vel
um sig innan um risaþörunga eða
spássera um sjávarker með kóral-
rifjum og sjávargróðri. Síðan
tekur við kvikmynd, framleidd
með tökuvél sem Sjóðurinn hefur
sjálfur þróað og bregður upp 24
myndum á sekúndu. Þá er komið
á tvær sýningar. Önnur er helguð
„Æfíntýrum Cousteaus". Einn af
áhöfninni svarar hvers kyns
spumingum um rannsóknaleið-
anga Calypsos og annar lýsir
helstu uppgötvunum leiðangurs-
stjórans og starfsemi Cousteau-
sjóðsins. Aður en horfíð er á
braut, gefst færi á alls kyns upp-
lýsingaleikjum um hafíð og það
sem í í því er.
Nú þegar siglt er inn í upplýs-
ingaöld þykir mikill fengur að fá
þetta safn til að fræða um hafíð.
(Oliver Lord)
V
LENGI BÝR AÐ FYRSTU GERÐ.
Dagvist barna í Reykjavík rekur 61 dagvistarheimili
víðs vegar um borgina fyrir um 4000 börn á aldrinum
6 mán — 10 ára.
Megin viðfangsefni Dagvista er að búa hinum ungu
Reykvíkingum þroskavænleg uppeldisskilyrði í öruggu
og ástríku umhverfi í leik og starfi með jafnokum.
Við erum nú þegar um 600 manns sem önnumst þessa
yngstu borgara, en til að ná ofangreindum markmiðum
þurfum við liðstyrk áhugasamra einstaklinga.
Við óskum eftir: Fóstrum, þroskaþjálfum, uppeldis
fræðingum (BA-próf eða sambærilegt), einstaklingum
sem hafa öðlast reynslu við uppeldi eigin barna,
einstaklingum sem vilja öðlast reynslu í dagvistaruppeldi
fyrir væntanlegt nám.
Allar nánari upplýsingar um störfin gefur Fanny Jónsdóttir, deildarstióri í síma 2 72 77 alla virka daga
frá kl. 9.00 — 16.00 og í síma 2 14 96 laugardag og sunnudag frá kl. 11.00 — 15.00