Morgunblaðið - 06.09.1987, Side 58

Morgunblaðið - 06.09.1987, Side 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1987 .X Mozart til New York fyrir 4 milljónir dollara Nótnahandrit með fyrstu sinfóníum Mozarts, með handskrifuð- um athugasemdum og innbundin af föður hans Leopold, seldust á uppboði Sothebys S London fyrir jafnvirði 4 milljón bandaríkja- dala. Kaupanda tókst ekki lengi að halda nafni sinu leyndu. Brátt barst það út að Pierpont-Morgan bókasafnið i New York hefði bætt enn einum dýrgripnum við sitt fræga safn. Ekki er þó vitað hvort um er að ræða bein kaup eða hvort þetta er lán frá hinum kunna listavini Fred Koch i New York. Nótnahandritið var í einkaeign f Austurríki, en hafði verið í geymslu í banka í Sviss. Þegar fréttist að handritið væri til sölu og hefði verið bætt á sölulista skömmu fyrir uppboð, brugðust Austurríkismenn fljótt við og söfnuðu bæði hjá einstaklingum og opinberum aðilum jafnvirði 3,2 milljón dala til að kaupa það. Það mun vera sú upphæð sem fengist hefði fyrir það í beinni sölu að frádregnum kostnaði. En seljandinn gerði sér vonir um hærri sölu á uppboði en með hugsanlega tafsömum samninga- umleitunum í beinni sölu, þar sem byggja þyrfti á sérfræðingaáliti en ekki allt eins líklega á óviðráð- anlegri löngun í að eignast þetta á staðnum hvað sem það kostaði. Slík áhætta varð afdrifarík á þessu tiltekna uppboði, sem lfka hafði á boðstólum innbú þýska tónskáldsins Meyerbeers eins og það lagði sig. Fram að þessu hafði innbúið verið í láni hjá Prússneska rfkisbókasafninu í Berlín, en eig- andinn hafði nú ákveðið að selja það. Tilboð safnsins í það virtist ekki duga til og hann tók þá ákvörðun að setja traust sitt á uppboðið í London. En þar sem allra augu beindust á þessu upp- boði að handriti Mozarts, seldist Mayerbeer safiiið fyrir aðeins helming þess verðs sem bókasafn- ið í Berlín hafði boðið. Og sá sem var svo heppinn að hreppa Mey- erbeersafnið var - Prússneska ríkisbókasafnið! Að því er best er vitað lét Leo- pold Mozart, faðir tónskáldsins, binda inn þrú eintök af músík- handritum sonar síns. Fyrir utan bindið með sinfóníunum, sem nú er nýfarið til New York, fór annað bindi með serenöðum hans þangað líka fyrir nokkrum árum. Kaup- andinn hefur sfðan leyst það upp og grætt á að selja hverja síðu fyrir sig, án nokkurrar tilraunar til að halda einstökum verkum saman. Annað bindi með serenöð- unum er í eigu einhvers sem ekki vill láta nafns síns getið, hugsan- lega í Munchen eða Hamborg. Fyrri eigandi bindisins með sin- foníunum er sagður búa í Hamborg. Aðrar heimildir herma að handritið hafi farið frá Aust- urríki í byijun síðustu aldar, með viðkomu í Leipzig og Hamborg, en komið aftur til Austurríkis, þá líklega til Syria. Leiðir þessa sérhæfða markað- ar eru nokkuð snúnar, ekki síst þar sem í mörgum löndum eru ströng lög er banna útflutning á þjóðardýrgripum án sérstaks leyf- is. í Austurríki getur það kostað sekt upp á heildarárstekjur við- komandi ef þessi lög eru brotin og að auki endurgreiðslu á áætl- uðu söluverðmæti ef ekki er hægt að ná gripnum til baka. -z; m t vj H>j vo t>\f rJ\ 3 ST Lokakafli fyrsta þáttar á sinfóníu nr. 22 eftir Mozart. Klara Hallgríms- dóttir - Minning t Móðir okkar, dóttir og systir, EDDA SIGRÚN BJÖRNSDÓTTIR, augnlæknir lést 5. september í Landakotsspítala. Árni Leifsson, Björn Leifsson, Helga Leifsdóttir, Una Jóhannesdóttir, Sigurður Björnsson, Jóhannes Björnsson. Fróöleikur og skemmtun fyrirháa semlága! Fædd 26. nóvember 1916 Dáin 29. ágúst 1987 Þann 29. ágúst sl. lést tengda- móðir mín, Klara Hallgrímsdóttir, og langar mig að minnast hennar hér með fáeinum þakkar- og kveðjuorðum. Hún fæddist þann 26. nóvember 1916 á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal og voru foreldrar hennar hjónin Rósalind Jóhannsdóttir og Hall- grímur Friðriksson. Hún átti sín bemskuár í sveit en fluttist til Reykjavíkur ásamt fjöl- skyldu sinni árið 1927. Hún var því af þeirri kynslóð, sem fæddist í baðstofu, lifði þrengingar kreppuár- anna og vaxandi velmegun síðustu áratuga. Henni lærðist að búa að sínu og deila því með öðrum en tókst aldrei að tileinka sér bruðl og sóun. Árið 1932 veiktist Klara af löm- unarveiki og hlaut af fötlun, sem upp frá því hafði mikil áhrif á allt hennar líf, en hún átti mikinn dug og seiglu og lét ekki bugast heldur sigraðist á fötlun sinni eins og kost- ur var. Klara giftist árið 1942 Þórarni Vigfússyni frá Heiðarseli á Síðu, sem fæddur var 25. júlí 1902. Þór- arinn var sérstakur öðlingur, kærleiksríkur og góður eiginmaður, faðir og afi. Þau voru í farsælu hjónabandi í nær 43 ár en Þórarinn lést 2. janúar 1985. Böm þeirra em þijú, Ragnhildur Rósa, gift ívari H. Jónssyni; Jóhann Hafþór, kvæntur Ásdísi Jónsdóttur og Þórarinn Viðar, en hann tóku þau til fósturs frá fæðingu og ólu upp sem sinn eigin son. Hann er kvæntur þeirri, er þetta ritar. Bamabömin em 7 og eitt langömmubam. Þegar ég kom fyrst í Borgarholt árið 1976 var Klara nærri sextug og tóku þau Þórarinn mér af sér- stakri alúð frá fyrstu stundu. Þau vom þá þijú í heimili á neðri hæð- inni en uppi bjuggu Rósa, ívar og þeirra böm. Það sem mér er minnisstæðast frá þessum ámm er hve heimilið var stórt og hafði alltaf verið, því örlæti þeirra Klöm og Þórarins og sterkur vilji til að liðsinna öðmm setti svo mjög mark sitt á heimilis- + Eiginmaöur minn, SVEINN V. ÓLAFSSON, hljóðfæraleikari, andaðist í Landakotsspítala 4. september. Útför auglýst síðar. F.h. barna, tengdabarna og barnabarna, Hanna Sigurbjörnsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur og afa, ÍSLEIFS ÞORKELSSONAR, Sörlaskjóli 28, Jóhanna Alexandersdóttir, Minný ísleifsdóttir, Ólafur I. Sveinsson, Guðrún ísleifsdóttir, Haukur V. Guðmundsson Jóhanna Linda Hauksdóttir, Ingibjörg Ragnheiður Hauksdóttir, ísleifur Ólafsson. + Utför móður okkar, KLÖRU HALLGRÍMSDÓTTUR, Frostaskjóli 9, Reykjavfk, verður gerð frá Fossvogskirkju kl. 13.30 mánudaginn 7. septem- ber. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Sjálfsbjörg, félag fatlaðra. Ragnhildur Rósa Þórarinsdóttir, Jóhann H. Þórarinsson, Þórarinn V. Þórarinsson. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KRISTÓFERS KRISTÓFERSSONAR, Sörlaskjóli 11. Guðbjörg Kristjánsdóttir, Kristrún Kristófersdóttir, Styrmir Gunnarsson, Oddrún Kristófersdóttir, Guðmundur Magnússon, Smári Kristófersson, Þóra Valentínusdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Faðir minn og vinur okkar, VIGFÚS BRYNJÓLFSSON, Dalbraut 27, sem lést á heimili sínu 31. ágúst, verður jarðsunginn frá Bústaða- kirkju mánudaginn 7. september kl. 15.00. Þóra Vigfúsdóttir, Gunnar Sigurðsson og fjölskylda. Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf ______um gerð og val legsteina._ 1SS.HELGAS0NHF ISTEINSHIIOJA H I SKEMMUÆGI48 SIMI76677 hald þeirra. Klara var höfðingi í lund og hafði til að bera næman skilning, umburðarlyndi og samúð með þeim, sem minna máttu sín og þessir eðlisþættir einkenndu allt hennar líf. Ófáir leituðu skjóls hjá henni og Þórami þegar á bjátaði og mörg bömin nutu hlýju þeirra og gæsku. Henni þótti það ekkert tiltökumál að taka bam tíma og tíma, eins og hún orðaði það sjálf og gat það verið svo vikum og mánuðum skipti. Hún var þó ekki þeirrar gerðar að halda því á hólunum, sem hún hafði öðmm gott gert, svo að sjálfsagt veit ég fæst af því. Enn voru að berast í tal dæmi þess að hún hafði opnað hús sitt fyrir þeim sem að- stoðar þörfnuðust. „Hún fæddist í rúminu mínu," sagði hún í fyrra um unga konu, sem hún hafði hitt og ég nefndi það þá við hana að slíkt húshald sem hennar var, þekktist ekki lengur. Henni þótti ekki mikið til koma, því allt hafði þetta verið sjálfsagt og eðlilegt, þegar erfiðleikar börðu að dyrum hjá náunganum. Vinahópurinn var stór og sam- band haft við marga og vegna fötlunar sinnar notaði hún símann mikið til að rækta vináttu og halda tengslum. En Klara var ekki einungis vinur í raun, hún var listamaður í höndun- um. Það lék allt í hennar fimu fingrum. Hún lærði ung að sauma og starfaði við saumaskap þar til hún giftist og alla tíð var hún að sauma og voru öll hennar verk unn- in af vandvirkni, iðni og smekkvísi. En það var ekki bara saumað í Borgarholti. Þau ár sem ég hef þekkt til var líka pijónað, ofið og bróderað. Öll fengum við að njóta verka hennar, ekki síst bamabömin sem aldrei fóm bónleið til búðar. Klara tók virkan þátt í félagsmál- um einkum á vettvangi Sjálfsbjarg- ar, og það var táknrænt að hún skyldi vera við vinnu í Sjálfsbjargar- húsinu í þágu Hjálparstofnunar kirkjunnar, þegar kallið kom, þótt kveðja fengi hún heima. Þar bíða 75 svuntur sem hún ætlaði á fjáröfl- unarbasar Sjálfsbjargar nú í desember. Þó að hjálpsemi við aðra hafi verið ríkur þáttur í fari Klöru skip- aði fjölskyldan ótvírætt öndvegi. Við nutum öll umhyggju hennar og alúðar og þó einkum bömin, sem alltaf vom aufúsugestir. Heimili þeirra Þórarins var menningar- heimili því bæði vom þau bókhneigð og trúhneigð og vom þeim íslenskar bókmenntir einkar kærar. Einlæg trú á framhaldslífíð vék aldrei frá henni og auðveldaði henni lífið eftir fráfall Þórarins. Að leiðarlokum vil ég þakka sam- fylgdina og allar ánægjustundimar sem hún veitti mér og dætmm okk- ar. Heimur þeirra er snauðari þegar ömmu Klöm nýtur ekki lengur við. Þá vil ég flytja sérstakar þakkir fjölskyldu minnar fyrir vináttu, tryggð og örlæti. Blessuð sé minning hennar. Ásdís Guðmundsdóttir Á morgun, mánudaginn 7. sept- ember, verður gerð útfor Klöm Hallgrímsdóttur. Þegar ég hitti Klöm fyrir rúmum hálfum mánuði á heimili sonar hennar og tengda- dóttur, óraði mig ekki fyrir því, að ég væri að kveðja hana í síðasta sinn. Hún var hress í bragði og við skröfuðum margt eins og jafnan áður. Klara var austfirskrar ættar en fluttist bam að aldri með foreldmm sínum til Reykjavíkur. Hún lærði saumaskap og starfaði við þá iðn um skeið og síðan á heimili sínu þar sem ég hygg að hún hafi verið sísaumandi, oft á tíðum endur- gjaldslaust fyrir þurfandi fólk. Eiginmaður Klöm var Þórarinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.