Morgunblaðið - 02.10.1987, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.10.1987, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987 Ein af uppáhaldslæðunum, enda hænd að Lúðvik og fjölskyldu hans. Hún var tekin inn á heimilið sem yrðlingur og vináttan hefur haldist óslitið síðan. Lúðvík Björnsson að gefa ameríska þurrfóðrið. Hann telur það aðeins nægjanlegt til viðhalds. Gefur refunum amerískt þurrfóður: „Hagkvæmara en innlent fóður“ Afmælishátíð SÁÁ í Háskólabíói SAMTÖK áhugafólks um áfeng- isvandamálið, SÁÁ, voru stofnuð 1. október 1977 og eru þau því tíu ára gömul um þessar mundir. Af því tilefni efna SÁÁ til há- tíðarsamkomu í Háskólabíói laugar- daginn 3. október, sem öllum verður heimill ókeypis aðgangur að, að því er segir í fréttatilkynningu frá sam- tökunum. Jónas Jónasson, útvarpsmaður, verður stjórnandi og kynnir á sam- komunni sem hefst klukkan 14 á stuttu yfírliti Pjeturs Þ. Maack, formanns SÁÁ, um sögu samtak- anna. Því næst flytur Jón Baldvin Hannibalsson, íjármálaráðherra, ræðu og Ólafur Ólafsson, landlækn- ir, ávarpar síðan samkomuna. Á eftir ávarpi landlæknis skemmta Egill Ólafsson og félagar samkomugestum með tónlistar- flutningi, Flosi Ólafsson flytur SÁÁ kveðju sína og Bjami Arason „þen- ur látúnsbarkann“. Næst á dagskránni er ræða Magnúsar Péturssonar og þar næst syngur Ólaf Kolbrún Harðardóttir við undirleik Jóns Stefánssonar. Sigurður Guðmundsson, settur biskup, slítur síðan samkomunni. SÁA verða einnig með kaffísam- sæti í húsakynnum samtakanna að Síðumúla 3-5, á annarri hæð, sunnudaginn 4. október á milli klukkan 14 og 16. Allir vinir og velunnarar SÁÁ eru velkomnir í samsætið. Stjóm SÁÁ telur tilefni til há- tíðarhalda ærið, segir ennfremur í tilkynningunni, því mikið hafí áunn- ist í meðferðarmálum áfengis- og fíkniefnaneytenda hér á landi frá því að samtökin vom sett á laggim- ar. Allir íslenskir áfengissjúklingar geti nú farið í meðferð hér á landi, auk þess sem mikil hugarfarsbreyt- ing hafi orðið hjá allri þjóðinni í garð áfengissjúklinga og annarra vímuefnaneytenda. Þessi vakning hafí vakið athygli víða um heim og árlega sæki tugir útlendinga þekk- ingu til SÁÁ. Þar sé þess skemmst að minnast er sænsku konungs- hjónin sóttu SÁÁ heim í júní síðastliðnum, segir að lokum í til- kynningunni. - segir Lúðvík Björnsson refabóndi á Suðurnesjum. Keflavík. „FÓÐURKOSTNAÐUR hjá mér er ekki minni en 4 þúsund krón- ur á dag og það er hagkvæmara hjá mér að gefa innflutt þurrfóð- ur frá Ameríku en að kaupa fóður hjá öðrum eins og ég gerði i fyrstu,“ sagði Lúðvik Björnsson refabóndi á Ásgarði III á Garð- skaga í samtali við Morgunblað- ið. Lúðvík hefur stundað refarækt í 2 ár og í fyrstu keypti hann fóður frá öðm refabúi sem hafði yfír að ráða fóðurblöndunarstöð. „Kílóið þar kostaði 15 krónur og er það sama verð og á þurrfóðrinu fyrir utan flutningskostnað. Ég tel mig geta framleitt mitt eigið fóður fyrir 4 krónur með eigin fóðurblöndunar- stöð. Gallinn er sá að enga fyrir- greiðslu er að hafa. Ekkert er lánað til nýrra stöðva, en eldri stöðvar virðast hinsvegar hafa nægjanlegt lánsfé." Lúðvík sagðist geta fengið allt það hráefni sem hann þyrfti á að halda á Suðumesjum og rúmlega það. „Gotið í vor misfórst hjá mér eins og mörgum öðmm og ljóst er að búið stendur varla undir fóður- kostnaði. Því er þetta ákaflega mikið hagsmunamál að geta gert sitt fóður sjálfur," sagði Lúðvík. í refabúinu í Ásgarði III em 130 læður og 70 högnar. Læðumar gáfu af sér 280 yrðlinga sem telst ekki mikið. Algengt er að hver læða eignist 8 yrðlinga. Lúðvík sagði að margar af læðunum hefðu verið á fyrsta ári og flestar geldar. Þetta hefði verið útkoman hjá fleirum og menn verið með margar skýringar. Helst dytti honum í hug að einstak- Lánsfjáráætlun: Fjárveitingar til Leifs- stöðvar skornar niður Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Nýja stálgrindarhúsið, Lúðvík hefur smíðað grindina sjálfur. í bak- grunninum er refabúið. iega mildur vetur hefði mglað refína í ríminu. Lúðvík sagði að refaræktin væri ekki arðbær hjá sér enn sem komið væri og hann yrði að vinna fulla vinnu með búskapnum. Hann er þó ekki á því að gefast upp og tímann eftir venjulegan vinnutíma notar han til að reisa nýtt stálgrindarhús. Þar ætlar hann að vera með mink og sagðist Lúðvík eiga von á 200 minkum seinna í haus. - BB ENGU fé er veitt til nýrra fram- kvæmda við Flugstöð Leifs Eirikssonar á lánsfjáráætlun næsta árs. í frumvarpi því sem ríkisstjórnin leggur fyrir Alþingi er gert ráð fjrir að veija erlend- um lánum vegna flugstöðvarinn- ar til greiðslu skulda frá þessu fjárlagaári. Á lánsfjárlögum 1987 var gert ráð fyrir 520 milljóna króna lántöku vegna flugstöðvarinnar. Kostnaður fór hinsvegar 680 milljónir króna fram úr áætlun. Samkvæmt heim- ildum blaðsins gerir ríkisstjómin ráð fyrir að veita erlend lán sem nema þessari upphæð til stöðvar- innar og verður því ekkert fé afgangs til að ljúka frágangi i vet- ur. Byggingamefnd flugstöðvarinn- ar mun hafa farið fram á 250 milljóna króna fjárveitingu til þess. Það fé sem ríkisstjómin vill taka að láni til flugstöðvarinnar er rúm- ur helmingur af erlendum lánum ríkisins á lánsijáráætlun. Sam- ÞRIR GOÐIR FRA WRIGLEYS kvæmt þeim upplýsingum er byggingamefnd Leifsstöðvar birti Qölmiðlum nam heildarkostnaður mannvirkisins um 2,6 milljörðum króna í sumar. Hjól og grafa saman VÉLHJÓL og skurðgrafa skullu saman í Garðabænum síðastlið- inn miðvikudag. Piltur, sem ók hjólinu, var fluttur á slysadeild og reyndist fótbrotinn. Slysið varð um kl. 8 á miðviku- dagsmorgun á mótum Hafnarfjarð- arvegar og Lækjarfítjar. - . : 0] Electrol ux Ryksugu- D-720 1100 WÖTT. D-740 ELECTRONIK. Z-165 750 WÖTT. Aðeins 1 .500 kr. út og eftirstöðvar til allt að 6 mánaða. Vörumarkaöurinn hí. KRINGLUNNI, SÍMI 685440.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.