Morgunblaðið - 02.10.1987, Page 19

Morgunblaðið - 02.10.1987, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987 19 Tilfinning tung- unnar og orð- anna meining eftir Gunnar Bjarnason Óttar Kjartansson, starfsmaður „Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavík- urborgar" ræðir í Mbl. í dag (30/9) um heitin „Vatnsendahæð" og „Rjúpnahæð“, sem ég fjallaði um í blaðaviðtali sl. sunnudag. Nú er það svo, að staðir eignast oft ný heiti og ömefni breytast í tímanna rás. Mér finnst Óttar allt of viðkvæmur í þess- um efnum. Nú gefur hann Vatn- sendahæð (Vat.nsendahvarfi) raunar nýtt heiti í grein sinni og kallar hæðina „Bæjarfell" Breiðholtsbúa. Mikið má vera ef Breiðhyltingar fara nú ekki að'kalla hæðina þessu nafni. Það virðist mér vera „rismeira" og nær hjarta fólksins þama í hæðunum en gömlu nöfnin. Ég hef ávallt heyrt Reykvíkinga, bæði búfjáreigendur og veðurfræðinga, nota orðin „Vatn- sendahæð" og „Rjúpnahæð“ frá því ég fyrst kom til starfa í Reykjavík árið 1940. Landið þama er stærra en hóll og minna en fell eða frjall. Það er hæð. Meining orðsins og tilfinning tung- unnar (málsins) í áratugi hefur þama fært gamalt heiti til betri vegar. Menn og húsdýr geta verið í „hvarfi" við hæð, en menn reisa ekki þing- höll í hvarfi, heldur á hæð! Vatnsendabændur til foma hafa sjálfsagt talað um að fénaður hafi farið í hvarf við þessa hæð, og þann- ig hafi þetta „rislága" rangnefni orðið að málvenju fólks, sem hafði hvorki góða tilfinningu tungunnar né skilning á orðanna meining. „Rjúpnadalshlíð" gæti verið nothæft heiti á hlíð „Rjúpnadals", ef sá dalur Gunnar Bjarnason hefur veirð til, einnig „Rjúpnahlíð", en hún er þá aðeins ein af hliðum Rjúpnahæðar. Fyrst var landið okkar kallað „Garðarshólmi" af landnámsmönn- um við Skjálfanda, en seinna komu aðrir menn til sögunnar, ámu land hér í Reykajvík og kölluðu Garðars- hólmann „ísland"! Við Þingeyingar höfum aldrei fárast um þetta við Sunnlendinga! Forfeður okkar hafa fundið, að seinna heitið var betur við hæfi! Um leið og ég sendi Óttari kveðju mína vil ég óska þess, að hann sjái áður en langt um líður Alþingis- framkvæmdir á Vatnsendahæð, sem þá mun verða kölluð „Alþingishæð". ©HUSQVARNA H AUSTTILBOÐ! 10% stadgreiðsluafsláttur fram að mánaðamótum SAUMIÐ FÖTIN SJÁLF. . . Það þarf ekki að sauma margar buxur og blússur til að borga upp Husqvarna saumavél - hægri hönd heimilisins. Gunnar Ásgeirsson hf. Suðuriandsbraut 16 sími 91 -691600 Nýkomið, allskonar fatnaður og skór. Frábært verð. Peysur á börn og fullorðna frá kr. 390,- Skólapeysur frá kr. 490,- Skólabuxur frá kr. 590,- Nærfatnaður, mikið úrval. Nærbuxur kvenna frá kr. 39,- Nærbuxur karla frá kr. 75,- Opið mánud. til fimmtud. kl. 9-18:30 föstudaga kl. 9-20:00 laugardaga kl. 10-16:00 Vatteraðar úlpur á börn og fullorðna. Fullorðinsstærðir frá kr. 1.690,- Regngallar barna frá kr. 800,- Regngallar fullorðinna frá kr. 900,- SIDRMARKAÐUR Barnastígvél frá kr. 390,- Barnagallar frá kr. 1.290,- Jogginggallar. Nylonsloppar kvenna, mjög ódýrt. Skemmuvegi 4 a ■"T*

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.