Morgunblaðið - 02.10.1987, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987
Forkosningar Demókrataflokksins:
Kosningaslgóri Duk-
akis sleginn siðblindu
Átti þátt í falli Bidens
Washingfton, Reuter.
MICHAEL Dukakis, einn forseta-
frambjóðenda bandaríska
Repúblikanaflokksins, hefur við-
urkennt að kosningastjóri hans
hafi skipulagt ófrægingarher-
ferð á hendur Joseph Biden, sem
nýverið neyddist til að hætta
baráttu sinni fyrir því að hljóta
útnefningu flokksins vegna ásak-
ana um að hafa stundað ritstuld.
Það orð hefur farið af Dukakis
að hann sé drengur góður og
þykir þetta mikið áfall fyrir hann
og Demókrataflokkinn.
Dukakis, sem er ríkisstjóri
Massachusetts, sagði á frétta-
mannafundi á miðvikudag að
kosningastjóri hans hefði komið
myndbandssjtólum á framfæri við
sjónvarpsstöðvar og dagblöð sem
sýndu að Biden hafði stolið heilu
köflunum úr víðfrægri ræðu sem
Neil Kinnock, leiðtogi breska
Verkamannaflokksins, flutti á
sínum tíma. Dukakis sagði að kosn-
ingastjóranum hefðu orðið á alvar-
leg mistök. Kosningastjórinn, John
Sasso, sagði af sér í gær svo og
Paul Tully, stjómmálalegur ráðu-
nautur Dukakis, sem vissi um
athæfi Sassos en laug að blaða-
mönnum er þeir spurðu hann um
málið. Sérfræðingar hafa talið Duk-
akis eiga allgóða möguleika á þvi
að hljóta útnefningu Demókrata-
flokksins og þykir sýnt að endur-
skipuleggja þurfí kosningabarátt-
una þar eð tveir helstu ráðgjafar
hans hafa nú sagt af sér.
Interpolis-skákmótið:
Timman
heldur for-
ystunni
ÞRÁTT fyrir tap í 10. umferð
gegn Sokolov er Timman enn
cfstur á Interpolis-skákmótinu í
Hollandi með 6V2 vinning. HUbner
getur þó náð Timman að vinning-
nm c‘f hann vinnur biðskák sina
gegn Kortsnoj.
Onnur úrslit í 10. umferð urðu
þau að Jusupov og Andersson gerðu
jafntefli og einnig Ljubojevic og
Nikolic. Biðskákir úr áttundu um-
ferð voru tefldar á miðvikudag og
þá vann Kortsnoj Nikolic og So-
kolov og Andersson gerðu jafntefli.
Staðan þegar fjórar umferðir eru
eftir er sú að Timman er sem fyrr
segir efstur með 6V2 vinning. í
öðru sæti er Hiibner með 5V2 vinn-
ing og biðskák. Nikolic og Jusupov
hafa 5V2 vinning. Kortsnoj hefur
4V2 og bjðskák og Andersson 4V2
vinning. í sjöunda sæti er Sokolov
með 4 vinninga og Ljubojevic verm-
ir botnsætið með 3 vinninga.
Reuter
Michael Dukakis skýrir frétta-
mönnum frá framferði kosninga-
stjórans.
Hneykslismál hafa sett svip sinn
á kosningabaráttu frambjóðenda
demókrata. Gay Hart aeyddist til
að leggja niður vopn er uppvíst
varð um samband hans og sýning-
arstúlkunnar Donnu Rice. Joseph
Biden varð einnig að draga sig í
hlé og játaði á opinberum vettvangi
að hafa stundað ritstuld og logið
til um háskólanám sitt.
Nokkrir áhrifamiklir. fylgismenn
Demókrataflokksins hafa lýst
áhyggjum sínum sökum þessa og
telja að framferði kosningastjóra
Dukakis verði síst til þess að treysta
stöðu flokksins í forsetakosningun-
um á næsta ári. „Þetta verður okkur
til tjóns," sagði ónefndur heimildar-
maður Reuíere-fréttastofunnar.
„Almenningur tekur að hallast að
því að frambjóðendur flokksins
standi ekki undir grundvallar sið-
ferðiskröfum," bætti hann við.
Reuter
Frangois Mitterrand, Frakklandsforseti, býður Bush velkominn til
Elysée-hallar í gær.
Bush í Frakklandi um afvopnunar samninga:
Oryggishagsmunir Vestur-
Evrópu hafðir í fyrrirúmi
Þykir hafa styrkt stöðu sína til forsetaframboðs
Paris, Reuter.
GEORGE Bush, varaforseti Bandaríkjanna, kom í gær til Frakk-
lands og átti m.a. viðræður við FranQois Mitterrand, forseta
Frakklands, og Jacques Chirac, forsætisráðherra. í viðræðum sinum
við Chirac tjáði Bush honum það að við gerð afvopnunarsamkomu-
lags við Sovétríkin yrðu öryggishagsmunir Evrópu ávallt hafðir í
fyrirrúmi og ítrekaði skuldbindingar Bandaríkjamanna gagnvart
Evrópubúum. „Ég sannfærði hann um það að í afvopnunarviðræðun-
um væri hvers konar aðskilnaður sameiginlegra hagsmuna Banda-
ríkjanna og Evrópu ekki til umræðu,“ sagði Bush fréttamönnum
eftir klukkustundarlangan fund þeirra Chiracs.
Bush er hæstsetti embættismað- á síðastliðnu ári. Varaforsetinn
ur Bandaríkjanna sem heimsækir skýrði Chirac frá viðræðum risa-
Frakkland eftir að samsteypustjóm veldanna og samkomulagi um
hægrimanna tók við völdum í mars upprætingu meðaldrægra flauga.
en
^ SIGUErTU-MMILlfl
Áður hafði Chirac látið í ljós nokkr-
ar efasemdir um samninginn,
eftir viðræðumar við Bush sagði
hann samninginn vera „góðan sem
fyrsta skrefíð í rétta átt,“ en bætti
við að „einn og sér væri þetta slæm-
ur samningur."
Bush heldur til Lundúna í dag,
en áður hafði hann farið til Ítalíu,
Póllands og Vestur-Þýskalands.
Hinni tíu daga löngu ferð Bush um
Evrópu lýkur á morgun.
Forsetafram-
bjóðandinn Bush
Fréttaskýrendur em á einu máli um
að Bush hafí vaxið mjög í áliti við
ferðalag hans um Evrópu undan-
fama daga. Bush hefur ferðast um
í þotu forsetaembættisins og við-
tökur þær, er hann hefur fengið,
hafa verið forseta sæmandi. Mikill
höfðingjabragur hefur þótt vera á
Bush þessa daga, en til þessa hafa
gagnrýnendur gjaman fundið að
litleysi hans og dregið leiðtogahæfi-
leika hans í efa. Telja menn því að
Bush hafí mjög styrkt stöðu sína í
ferðinni.
Starfsmenn varaforsetans eru á
einum máli um að förin hafí tekist
eins vel og kostur var. Blaðafulltrúi
hans, Stephen Hart, benti á að alls
staðar hefðu þjóðhöfðingjar og for-
sætisráðherrar umgengist Bush
sem jafningja sinn, bæði hvað varð-
aði opinberar móttökur sem í
einkasamtölum. „Varaforsetinn er
virtur ráðgjafí bæði vegna þess að
hann hefur víðtæka reynslu og er
orðvar." Bush var m.a. sendiherra
Bandaríkjanna við Sameinuðu þjóð-
imar, sérstakur sendifulltrúi forset-
ans í Kína og yfirmaður CIA,
leyniþjónustu Bandaríkjanna, áður
en hann var kjörinn varaforseti
Ronalds Reagan árið 1980.
Skoðanakannanir í Bandaríkjun-
um benda til þess að þarlendir
kjósendur leggi ríka áherslu á að
næsti forseti þeirra sé vel heima í
utanríkismálum. Að Alexander
Haig, hershöfðingja og fyrrverandi
utanríkisráðherra, undanskildum
ætti Bush því að hafa forskot á
aðra tilvonandi forsetaframbjóð-
endur á þessu sviði.
Reuter
Stjórnarhermenn í Nicaragua með borða þar sem skorað er á
Kontra-skæruliða að leggja niður vopn og njóta sakaruppgjafar
--------------- sandínista.
Sljórnin í Nicaragna til-
kynnir vikulangt vopnahlé
Bandaríska alríkislögreglan:
Virtir rithöfundar
voru undir eftirliti
Managua, Reuter.
DANIEL Ortega forseti Nic-
aragua tilkynnti á miðvikudag
að hermenn stjórnarinnar myndu
leggja niður vopn í eina viku,
fram til 7. október. Hermenn, á
þrem svæðum þar sem átök hafa
átt sér stað milli Kontra-skæru-
liða og stjómarhers, munu ekki
grípa tíl vopna nema í sjálfsvöm,
sagði Ortega í útvarpsávarpi.
Vopnahléð er liður í áætlun sem
samið var um milli fimm ríkja í
Mið-Ameríku 7. ágúst síðastliðinn.
í samningnum er gert ráð fyrir að
ríkin þijú sem eiga í stríði við
skæruliða semji við þá um frið fyr-
ir 7. nóvember. Einnig skulu ríkin
fímm auka frelsi og lýðræði. Ortega
forseti Nicaragua hefur þegar stig-
ið stór skref í átt til aukins frelsis
með því að leyfa útgáfu dagblaðsins
La Prenza og útvarpsstöð kaþólskra
í landinu.
Ortega sagði að ef vopnahléð
yrði virt myndi stjómarherinn á
fleiri svæðum leggja niður vopn og
vopnahléð yrði framlengt til 7. nóv-
ember. Kontra-skæruliðar segjast
ekki munu virða vopnahléð.
Wa8hington, Reuter.
STJÓRNENDUR bandarísku
alríkislögreglunnar (FBI) viður-
kenndu á miðvikudag að stofnun-
in hefði á sinum tíma safnað
upplýsingum um fjölmarga virta
bandaríska rithöfunda og fylgst
með ferðum þeirra og athöfnum.
Sagði í tilkynningu stofnunarinn-
ar að þessu hefði verið hætt fyrir
11 árum.
Nýlega voru gerð opinber trúnað-
arskjöl sem sýna að FBI fylgdist
um 50 ára skeið með virtum rithöf-
undum svo sem John Steinbeck,
Emest Hemingway og William
Faulkner. Voru skjölin birt sam-
kvæmt lögum um upplýsingaskyldu
stjómvalda. Elstu skjölin eru frá
því á þriðja áratug aldarinnar og
kemur fram að upplýsingum var
safnað um 134 rithöfunda vegna
grunsemda um að þeir tengdust
pólitískum öfgahópum, hefðu and-
þjóðfélagslegar skoðanir eða styddu
niðurrifstarfsemi. í flestum tilfell-
um var þó ekki tiltekið nákvæmlega
hvetjar grunsemdimar væru.
Lengi hefur verið vitað að FBI
fylgdist grannt með athöfnum
virtra bandarískra rithöfunda og
hafa nöfn þeirra Steinbecks, Carls
Sandburg og Johns Dos Passos
verið nefnd í því sambandi. Hins
vegar varð mönnum ekki ljóst
hversu umsvifamikil starfsemi hafði
verið rekin í þessu skyni fyrr en
skjölin voru gerð opinber. I þeim
er einnig að fínna nöfn þekktra
höfunda svo sem Thomas Wolfe,
Williams Faulkner og Normans
Mailer.