Morgunblaðið - 02.10.1987, Page 24

Morgunblaðið - 02.10.1987, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987 Kona hleypur niður götu í Los Angeles eftir að jarðskjálfti skók borgina. Rúðan í fatabúðinni til vinstri á myndinni liggur möl- brotin á götunni. Á innfelldu myndinni sést Tom Bradley, borgarstjóri Los Angeles, hlaupa upp á hæð þegar vart varð við eftirkipp eftir jarðskjálftann, sem mældist 6,1 stig á Richter- kvarða. Borgarstjórinn var að kanna skemmdir, sem urðu á Kaliforníuháskóla í skjálftanum. Mannvirki yfir bílastæði hrundi niður með þeim afleiðingum að kona ein lést. Reuter Yfirlit yfir jarð- skjálfta í Kaliforaíu Los Angeles, Keuter. JARÐSKJÁLFTAR skutu ibúiun borgarinnar Los Angeles í Kali- forníu skelk i bringu í gær. Mældist mesti skjálftinn 6,1 stig á Richter-kvarða. Hér á eftir fer skrá yfir mestu jarðskjálfta, sem mælst hafa i Kalifomíu á þessari öld, ásamt mestu skjálftum siðasta áratugar á hnettinum. Kalifomía 18. apríl, 1906: 2.800 menn fórust í jarðskjálfta, sem mældist 6,0 stig, í Norður- Jemen. 13. október, 1983: 1.300 menn létust í jarðskjálfta í héruðunum Erzurum og Karz í austurhluta Tyrklands. Skjálftinn mældist 7,1 stig á Richter. 19. og 20. október, 1985: Miklar skemmdir urðu í tveimur jarðskjálftum í Mexikóborg. Mæld- ust þeir 8,1 og 7,3 stig. Rúmlega átta þúsund menn létu lífíð. Mesti jarðskjálfti sögunnar er talinn hafa riðið yfír Shannxi í Kína 24. janúar árið 1556. Talið er að 830 þúsund manns hafí farist í skjálftanum. Ætlaði varla aðgetastað- ið í fæturna - segir Katrín Ólafsdóttir í Los Angeles „ÉG HÉLT að ég myndi hristast fram úr rúminu þegar skjálftinn gekk yfir“ sagði Katrín Ólafsdóttir, nemi í Los Angeles, í samtali við Morgunblaðið í gær. Katrín var sofandi þegar fyrsti og snarpasti jarðskjálftakippurinn kom klukkan 7:42 að staðartíma, en vaknaði óþyrmilega, eins og nærri má geta. „Það gekk allt í bylgjum," sagði hún, „smáhlutir hrundu úr hillum, en bækur héld- ust." Hún þusti fram á gang á heimavistinni eftir skjálftann, en sagðist varla hafa getað staðið í fætuma fyrst í stað. Katrín sagðist ekki vita til þess að nein slys hefðu orðið á mönnum í Occidental Col- lege, þar sem hún stundar nám, en mikil hræðsla greip um sig meðal nemenda, og margir fóru út úr húsum. Katrín hélt sig inni við eftir fyrsta skjálftann, og fylgdist með fréttum í útvarpi. Hún sagði að það hefðu stöðugt verið smáskjálftar allan morguninn eftir fyrsta kippinn, og að margir hefðu óttast að þeir væru undanfari enn stærri skjálfta. Sum- ir þessarra smærri slq'álfta voru allsnarpir, og tveir mældust 4.4 stig á Richter-kvarða. Katrín býr mjög nálægt Ríkis- háskólanum í Kalifomíu í Los Angeles, þar sem ein kona fórst þegar veggur hmndi ofan á hana. Hún sagðist hafa heyrt í útvarpinu að kviknað hefði í Ríkisháskólanum, og að pálmatré hefðu hmnið á vegi í nágrenni við hana, og stöðvað umferð. Hún sagði að veðrið væri gott í Los Angeles, 30 stiga hiti og sól. 15 mílur San Gabriel-fjöll RoseBov.i Kalifornía Þásadena UCLA-háskóli Upptök skjálftans Los Angeles Kalífornía Franclsci Los Angeles Kyrrahaf Jardskjálftinn I Los Angeles Tíu ferkílómetrar af borginni lögðust í eyði í eldsvoðanum mikla í San Francisco þegar jarðskjálfti, sem mældist 8,6 stig á Richter- kvarða, reið yfír. Rúmlega fímm hundmð menn létu lífíð og tjón á mannvikjum var metið á 300 millj- ónir dollara (um tólf milljarða ísl.kr.). 10. mars, 1933: Sautján menn létust í jarðskjálfta á Long Beach í suðurhluta Kali- fomíu. 9. febrúar, 1971: Los Angeles. 64 menn létust í jarðskjálfta, sem átti upptök sín í San Femando-dal. Tjón var metið á einn milljarð dollara (um 40 millj- arðar ísl.kr.). Jarðskjálftinn mæld- ist 6,5 stig á Richter-kvarða. Heimurinn 4. mars 1977: Rúmenía. Miðborg Búkarest lagðist í rúst í jarðskjálfta, sem mæidist 7,5 á Richter-kvarða. 1.541 maður lét lífíð og 11 þúsund slösuð- ust. 16. september, 1978: Talið er að 25 þúsund menn hafi látið lífíð í jarðskjálfta, sem lagði borgina Tabas í austurhluta fran í rúst. Skjálftinn mældist 7,7 stig á Richter-kvarða. 23. nóvember, 1980: 2.735 létu lífið í jarðskjálfta, sem mældist 7,2 stig á Richter-kvarða, í suðurhluta Ítalíu. 13. desember, 1982: Öðlast guWið fyrri sess á fj ármálamörkuðum? Waahington, Reuter. TILLAGA James A. Baker, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, um að gengi Bandaríkjadollars og annarra helstu gjaldmiðla verði m.a. miðað við gullverð kann að verða til þess að gull öðlist á ný fyrri sess á gjaldeyrismörkuðum heims, að sögn fjármálasér- fræðinga. Baker kynnti tillögu þessa á miðvikudag á árlegum fundi Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans i Washington. Baker lagði til að helstu iðnríki heims sameinuðust um nýja vísitölu til að unnt væri að sjá fyrir og fylgj- ast með hugsanlegum verðsveiflum í heiminum. Kvaðst Baker telja að á þennan hátt væri unnt að treysta stöðu Bandaríkjadollars og koma á stöðugleika í g]aldeyrismálum. Lagði hann til að vísitalan yrði bundin meðaltali verðbreytinga á ýmsum nauðsynjavörum svo sem hveiti og komi og góðmálmum m.a. gulli. Sjö helstu iðnríki heims hafa náð samkomulagi um leiðir til að samhæfa efnahagsaðgerðir og kvaðst Baker telja að treysta mætti samkomulagið á þennan hátt. Hagfræðingar segja að með til- lögu þessari sé Baker ekki aðeins að mælast til þess að gullverð verði notað sem mælikvarði á verðbólgu- þróun heldur feli hún í sér að gull öðlist á ný fyrri sess á fjármála- mörkuðum heims. Lengi hefur verið deilt um hvaða hlutverki gullverð eigi að gegna innan hagkerfisins. Roosevelt Bandaríkjaforseti tók Bandaríkjadollar af gullfætinum svonefnda í kreppunni miklu árið 1933 og Richard Nixon hnykkti enn frekar á þessu árið 1971 er hann ákvað að skuldabréf í eigu erlendra aðilja yrðu ekki lengur innleysanleg í gulli. Við þetta tók verð á gulli að hækka en það hafði lengi verið stöðugt. Frá þeim tíma hafa fjár- málamenn fjárfest í gulli ef þeir óttast að verbólga muni rýra verð- gildi gjaldmiðla. Þannig kostaði gullúnsan 850 dollara í janúar árið 1981 þegar óðaverðbólga geisaði og vextir hækkuðu upp í 20 pró- sent og hefur verðið aldrei orðið hærra. Bandaríski Seðlabankinn skarst í leikinn og verðið lækkaði aftur. Árið 1982 komst nefnd á vegum Bandaríkjastjómar að þeirri niður- stöðu að ekki væri rétt að innleiða gullfótinn svonefnda að nýju þar eð hann myndi ekki reynast heppi- legt tæki til að hemja verðbólgu. Um miðjan þennan áratug var verð- ið að meðaltali 260 dollarar á únsuna en það hefur farið hækk- andi upp á síðkastið sökum veikrar stöðu dollarans og kostaði únsan 453,50 dollara á miðvikudag. Tillaga Bakers kom flestum fjár- málasérfræðingum á óvart en að sögn heimildarmanna hefur hann lengi velt hugmyndum þessum fyrir sér. Robert Mundell, sem er prófess- or við Columbia-háskólann í New York og óopinber ráðgjafí banda- ríska flármálaráðuneytisins, kvaðst lengi hafa barist fyrir því að sam- bærilegt kerfí yrði tekið upp. Að sögn heimildarmanna Reuters- fréttastofunnar er líklegt að Bretar styðji hugmynd Bakers og Frakkar em einnig sagðir henni hlynntir. Hins vegar er talið að Japanir og Vestur-Þjóðveijar leggist gegn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.