Morgunblaðið - 02.10.1987, Síða 37

Morgunblaðið - 02.10.1987, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987 37 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir SHYAM BHATIA Iran: Eiginkona Khomeini slas- aðist í óeirðunum í Mekku Eiginkona Ayatollah Khomeini, trúarleiðtoga írans, meiddist nokkuð þegar grjóti var kastað í enni hennar í óeirðunum i Mekku á nýliðnu sumri. Frá þessu skýrði læknir einn í Egypta- landi, sem starfaði við sjúkrahús í Mekku þegar frúin var flutt þangað. A Iranskir byltingarverðir sem voru með hópi pílagríma í Mekku gengu berserksgang þegar þeir fréttu um meiðslin. Saudi arabískur lögregluþjónn var háls- höggvinn og margir fleiri urðu fyrir ár^sum áður en öryggissveit- um tókst að ná yfirhöndinni. Staðfest hefur verið í íran að frú Batoul Khomeini hafi orðið fyrir meiðslum, og fylgir það sög- unni að hún hafi leitt hóp kvenna í fjöldagöngu írana að moskunni miklu í Mekku. Mekka er sem kunnugt er helgasta vé múham- eðstrúarmanna. Yfirvöld, bæði í íran og Saudi Arabíu, hafa haft hljótt um meiðsli frú Khomeini af ótta við að fréttin gæti enn aukið á þá miklu spennu sem ríkir milli þess- ara nágrannaríkja við Persaflóa. En þar sem Khomeini og kona hans eru mjög samrýmd eru meiðsli hennar á vissan hátt skýr- ing á þeirri grimmd sem fram kemur í stöðugum ádeilum Irana á Saudi Arabíu. í göngunni í Mekku var frú Khomeini rétt fyr- ir aftan hóp íranskra öryrkja, þar á meðal særðra hermanna í hjóla- stólum, sem fóru fremstir í hópgöngu pílagrímanna. Saudi arabískir áhorfendur köstuðu grjóti að göngumönnum þegar Iranirnir hófu að hrópa vígorð gegn Bandaríkjunum og Saudi Arabíu. Reiddust áhorfendur ekki sízt þegar göngumenn hvöttu til þess í hrópum sínum að beitt yrði þeim trúarsið að höggva hendurn- ar af Fahd konungi landsins. Þegar gijótkastið hófst lenti einn steinninn á enni frú Kho- meini. Tengdadóttir hennar og eiginkonur tveggja annarra íran- skra klerka hjálpuðu henni að komast til nálægs sjúkrahúss þar sem hún fékk aðhlynningu vegna taugaáfalls og gert var að meiðsl- unum. Síðar var hún flutt flugleið- is heim til Teheran. íranskar heimildir herma að meiðsli hennar hafí ekki verið alvarleg og að hún hafí náð sér að fuilu. Óeirðirnar geisuðu áfram löngu eftir að frú Khomeini hafði verið flutt í sjúkrahús. írönsk yfirvöld halda því fram að saudi arabískir öryggisverðir hafí síðar skotið úr hríðskotabyssum á göngumenn- ina, en innanríkisráðherra Saudi Arabíu, Nayef prins, aftekur það með öllu. Khomeini æfur Sagt er að Khomeini hafí orðið ofsareiður yfir árásinni á eigin- konuna þótt tilviljun ein hafi ráðið því að hún varð skotmark gijót- kastaranna. Ummæli hans í ávarpi til írönsku þjóðarinnar fyr- ir nokkru lýsa vel bræði hans í garð Saudi Araba: „Ég gæti hugs- anlega fyrirgefið þessum mikla bandaríska Satan,“ sagði Kho- meini. „Ég gæti jafnvel fyrjrgefið Saddam Hussein [forseta Iraks], en ég get aldrei fyrirgefið trúvill- ingunum í Saudi Arabíu." Iranir segja að Khomeini hafí mikið dálæti á Batoul. Hún er móðir fimm bama hans, þar á meðal Ahmeds, eina eftirlifandi sonar hans, sem er pólitískur ráð- gjafí föður síns. Sú saga er sögð Moskan mikla i Mekku, en miðpunktur hennar er Kaaba — helgidómur múslima. mesti rani heldur á lofti Kóraninum og mynd af Fahd Arabíukon- ungi, en á henni er búið að stinga úr konungi augun og skera úr tunguna. í íran að hjónaband Khomeinis hafi hlotið guðlega blessun. Spámaðurinn Múhameð á að hafa birzt Batoul í draumi og varað hana við vanþóknun sinni ef hún ekki tæki bónorði Kho- meinis. Eftir að þau giftust hefur hún verið dyggur stuðningsmaður eiginmanns síns. Eftir byltinguna sæmdi Kho- meini eiginkonu sína heiðursnafn- bótinni Fakhr Iran, eða Stolt írans. Hún er nú á sjötugsaldri, og ákvörðun hennar um að fara til Mekku er gott dæmi um það að hún lætur engan segja sér fyr- ir verkum. Átti að steypa stjórninni? Saudi Arabar telja nú að óeirð- irnar í Mekku hafí átt að vera upphafið að skipulögðum aðgerð- um í tveimur áföngum er áttu að færa írönum yfírráð konungsrík- isins. í fyrsta áfanga átti að leggja undir sig • Kaaba helgiskrínið í musterinu mikla í Mekku, helg- asta trúartákn múhameðstrúar- manna, og þar að lesa upp ávarp frá Khomeini til pílagrímanna ut- an dyra. í síðari áfanga átti að kynda undir uppreisn í olíuhéruðunum í austurhluta landsins, þar sem íbú- amir eru flestir shítar. Hersveit er hlotið hafði sérþjálfun í íran átti að ræna Mohammed príns, landstjóra austurhéraðanna sem er sonur Fahd konungs, og lýsa síðan yfír sjálfstæðu íslömsku lýð- veldi í austurhéruðunum. Þegar til kastanna kom tókst þetta ráðabrugg ekki vegna þess að öryggissveitir Saudi Arabíu brugðust við af meiri festu en reiknað hafði verið með í Mekku, og ekkert varð úr fyrirhugaðri uppreisn í austurhéruðunum. Starfsmaður leyniþjónustu Saudi Arabíu í sendiráði landsins í Te- heran hafði sent yfírboðurum sínum í Riyadh greinargerð um fyrirætlanir Irana í austurhéruð- unum. Þessi starfsmaður var Mo- hammed Ghamdi. Þegar upp komst um aðgerðir hans réðust íranskir byltingarverðir inn í skrif- stofu hans í Teheran og köstuðu honum út um gluggann. Lézt Ghamdi stuttu seinna af sárum sínum. Hefur Fahd konungur fyr- irskipað að ekkju Ghamdis skuli greidd sérstök eftirlaun til ævi- loka. Stúdentar kallaðir heim Til að draga úr frekari árekstr- um í framtíðinni vilja yfírvöld í Saudi Arabíu að um 100 Saudi Arabar, sem nú eru við nám í íran, komi heim fyrir lok þessa árs. Þessir stúdentar eru shitar og yfirvöld óttast að þeir verði þvingaðir til að gerast félagar í lítt þekktum félagsskap er nefnist „íslömsk samtök fyrir frelsun Arabíu“ og lýtur stjóm yfírklerks- ins Mohammeds Tabi al Mudarris. Það eru þessi samtök, undir vemdarvæng ríkisstjómar írans, sem senda áskoranir um útvarpið í Teheran til shíta í austurhémð- um Saudi Arabíu um að gera byltingu gegn „kúgurunum“ í Riyadh. Saudi Arabar telja að einn forustumanna samtakanna hafi komið á laun til austurhéraðanna í júlí s.l., en honum hafí ekki tekizt að tryggja þann stuðning sem hann reiknaði með hjá for- svarsmönnum shíta þar. Höfundur er fréttaritari brezka blaðsins The Observer. Norræna húsið: Sonur Knut Hamsuntalar um föður sínn NORSKI málarinn Tore Hamsun, sonur rithöfundarins Knut Hamsun, talar um föður sinn í Norræna húsinu sunnu- daginn 4. október kl. 16.00. Tore Hamsun er málari og teiknari, sem haldið hefur Qölda sýninga í Noregi. Hann hefur einn- ig sent frá sér nokkrar bækur, sem fjalla að mestu um föður hans. Fyrsti fundur FÍD FÉLAG íslenskra djammara, FÍD, heldur sinn fyrsta fund i veitingahúsinu Útópíu að Suður- Iandsbraut 26 föstudaginn 2. október. Markmið félagsins er að leitast við að hlúa að djammtauginni og láta hana titra um helgar, eins og segir í frétt frá félaginu. Fundurinn í Utópíu hefst kl. 23.30. Knut Hamsun Tore Hamsun átti upphaflega að koma á Knut Hamsun-dagskrá Norræna hússins í vor, en af því gat ekki orðið. Knut Hamsun hefur verið þekktur hér á landi síðan þýðingar á bókum hans byijuðu að koma út. Húsfyllir var á Hamsun-dag- skránni í vor og er ekki að efa að fengur er að því að heyra son hans spjalla um hann segir í frétt frá Norræna húsinu. Aðalfundur Bátatryggingar Breiðafjarðar: 91 skip í skyldutryggingu Stykkishólmi. AÐALFUNDUR Bátatryggingar Breiðafjarðar fyrir árið 1986 var haldinn í húsakynnum félagsins 18. september síðastliðinn. Soff- anias Cesilsson formaður Báta- tryggingarinnar setti fundinn og fundarstjóri var Finnur Jónsson, en Arni Helgason ritaði fundar- gerð. Gissur Tryggvason, framkvæmda- stjóri Bátatryggingarinnar, las skýrslu stjómar og gerði grein fyrir starfsemi sl. árs sem var 48. starfsár félagsins, en það var stofnað 22. júlí 1938. Á árinu voru í skyldutryggingu hjá félaginu 91 skip og bátar, þar af 28 opnir bátar og 7 fískiskip yfir 100 tonn. Bókfærð frumtrygginga- riðgjöld voru um 28 milljónir og þar af iðgjöld til endurtrygginga um 26 milljónir. Bókfærð endurgreidd frumtryggingariðgjöld vegna hafn- arlegu o.fl. námu 4,3 milljónum og þar af hluti endurtryggjenda 4 millj- ónir. Nettó frumtryggingargjöld bókfærð á árinu voru rúm milljón króna. 42 tjón voru tilkynnt á árinu; skrúfutjón 19, tjón við bryggju 8, árekstrar 5 og önnur tjón 8. Bókfærð iðgjöld hringtrygginga voru á árinu tæpar 9 milljónir. Ið- gjöld vegna topptrygginga voru um 1 milljón. Tjón hringtrygginga voru 4.5 milljónir og hlutur topptrygginga 500 þúsund. Eigin tjón vegna hring- trygginga voru því um 4 milljónir. Félagið hefír eins og áður umboð fyrir Samábyrgð íslands á slysa- og ábyrgðartryggingum skipshafna. Starfsemi félagsins var með hefð- bundnum hætti. Ogreidd iðgjöld voru vaxtareiknuð eins og árið áður og var viðskiptabátum gert að greiða 1.5 milljónir í vexti. Tjón ársins voru rúmar 20 milljón- ir og af 42 tjónum sem urðu á árinu voru 33 gerð upp í árslok. Einn starfsmaður er hjá félaginu, þ.e. framkvæmdastjóri. Varasjóður Bátatryggingarinnar er nú um 3 milljónir og bótasjóður 8 milljónir. Afkoman má teljast góð. Morgunblaðið/Ámi Helgason Gissur Tryggvason fram- kvæmdastjóri Bátatrygginga Breiðafjarðar. Stjómina skipa nú Soffanias Ces- ilsson, Grundarfirði, Kristján Guðmundsson, Rifí, og Kristján Lár- entinusson, Stykkishólmi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.