Morgunblaðið - 02.10.1987, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 02.10.1987, Qupperneq 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987 AKSTURSÍÞRÓTTIR Morgunblaöiö/Gunnlaugur Rögnvaldsson Sigur eða ekkert, verður hugarfar margra ökumanna í Norðdekk-rallinu á laugardaginn, sem er síðasta tækifæri rallöku- manna til að sanna eigin getu. Porsche 911 Jóns S. Halldórssonar og Guðbergs Guðbergssonar verður meðal keppnisbíla og sjálfsagt verða þeir manna grimmastir eftir ófarir í Ljómarallinu. „Sigur er mark- miðid ad venju“ - segirJón Ragnarsson rallökumaður „ÉG ER ofboðslega rolegur yfir þessu ralli. Ég hef allt að vinna og engu að tapa og sigur er markmiðið að venju. Oryggið verður þó í fyrirrúmi, enda geta leiðirnar verið kolómögulegar, það fer eftir veðri,“ sagði ís- íandsmeistarinn Jón Ragnars- son, en hann verður meðal keppenda í Norðdekk-rallinu, sem fram fer á laugardaginn. Það leggur 31 bfll af stað í keppnina, sem liggur að mestu um fjallvegina Kaldadal og Uxa- hryggi. Islandsmeistarakeppnin er ráðin, þannig að margir ökumenn munu sleppa sér lausum á sérleið- unum, með sigur í huga. „Ég ætla að gera það sama Gunnlaugur og allir hinir, allir Rögnvaldsson ætla að vinna, og skrifar nilla hver öðrum upp. Ég geri mitt ýtrasta til þess að það verði erfítt fyrir hina að vinna,“ sagði Birgir Bragason, sem ekur Talbot Lotus. Orð hans lýsa hugarfari toppöku- manna vel. Meðal þeirra verða Jón S. Halldórsson og Guðbergur Guð- bergsson á Porsche 911, sem veltu illa í Ljómarallinu. Bíllinn hefur verið sleginn í samt horf og er klár í baráttuna. Þeir félagar fengu þó slakt rásnúmer sem gæti háð þeim eitthvað. Margir toppbílar hafa lent í tæknilegum ógöngum í sumar og þessi síðasta keppni er mönnum mikilvæg til að sýna og sanna get- una. Steingrímur Ingason og Ægir Armannsson á Datsun 510, Hjör- leifur Hilmarsson og Sigurður Jensson á Talbot og Ásgeir Sigurðs- son og Bragi Guðmundsson á Toyota eiga allir harma að hefna og verða skæðir. Flokkur óbreyttra bíla verður stór, en þar hefur oftast ráðið ríkjum Birgir Viðar Halldórsson á Mazda 323 4x4, sem hann ekur ásamt Indriða Þorsteinssyni. „Ég ætla að vinna óbreytta flokkinn, steikja hina kappana, eða grilla þá öllu heldur ...“ sagði Birgir sem er alvanur kokkur. Keppninni lýkur við húsnæði Norðdekk kl. 16.00 á laugardag. HANDBOLTI Stúdentar leika í 3. deild í vetur NÚ í haust mun handknatt- ' leiksdeild ÍS hefja annað starfsár sitt. Þá munu setu- þreyttir stúdentar draga fram skóna og undirbúa sig að kost- gæfni fyrir 3. deildarkeppnina í vetur. Síðasta vetur var frumraun stúdenta og setti það strik í reikninginn, hversu æfíngaaðstaða ri>5 ■íjíl tlt qcL íalvEtt var bágborin. Enginn íþróttasalur var þá fyrirligglandi sem var nægi- lega góður til handboltaiðkunnar. Aftur á móti hefur liðsmönnum áskotnast æfíngaaðsta sem þeir hyggjst nota af fullum krafti í vetur. Þjálfari liðsins verður hinn gamal- kunni handknattleiksmaður og menntaskólakennari, Sigurður Sva- varsson. Líklegt er að fleiri hand- kattleiksmenn leynist innan veggja I r 11.: • j < ,1‘t I. .:; iir.tl 31 ‘ háskólans sem hafa áður leikið handbolta en orðið að leggja skóna á hilluna vegna náms. Allir liðtækir handknattleiksmenn eru boðnir velkomnir í hópinn. Ef áhugi er fyrir hendi er hægt að hafa samband við Bjöm Rúnar í síma 656103 eða Einar í síma 15841. Fréttatilkynning jnj.elii&m ••ar-jjf i> iisíj. HAFNARBOLTI Bandarískar íþróttir UM þessar mundir er mikið um sviptingar ívinsæiustu liðs- íþróttum í Bandaríkjunum. Þjóðaríþrótt Bandaríkjamanna og aðal sumaríþróttin, hafnar- bolti (baseball), er nú að enda keppnistímabilið. Aðeins er eftir ein vika af keppni at- Gunnar vinnumanna og Valgeirsson úrslitakeppnin, sem skrifar þarlendir kalla „heimsseríuna", er stutt. Aðeins fjögur lið, sigurvegar- ar í riðlunum fjórum f aðaldeildinni, komast í úrslit. Eins og staðan er eftir leiki sl. þriðjudags, er næsta víst að lið Minnesota, St. Louis, San Francisco og annaðhvort Detroit eða Toronto komast í úrslit. Ekkert þeirra liða sem komst í úrslit í fyrra, kemst í úrslit að þessu sinni. Flestir spekingar vestra veðja á lið St. Louis í úrslitakeppninni. Liðið leikur mjög skemmtilegan bolta og mun að öllum líkingum sigra í erfið- asta riðlinum. Lið St. Louis og San Francisco leika næsta örugglega til úrslita í „National“-deildinni, en lið Minnesota og Detroit eða Toronto í „Amerísku“-deildinni. Þess má geta að liðin í homabolta leika 162 leiki yfir sumarið áður en úrslitakeppnin hefst! Fyrir utan æfingaleiki áður en keppnistímabil- ið hefst. Þrjár vinsælustu vetraríþróttimar standa misjafnlega þessa dagana. Körfuknattleiksmenn og leikmenn í íshokkídeildinni (NHL) æfa nú á fullu fyrir veturinn. Keppnistímabil þeirra beggja hefst í október og eru liðin í þessum íþróttagreinum að þreifa fyrir sér með kaup og sölur á leikmönnum þessa dagana. Á þessu stigi er mest um nýliða að ræða og engar stórsviptingar vænt- anlegar í NBA-deildinni fyrir keppnistímabilið. Báðar þessar at- vinnudeildir áttu gott keppnistíma- bil í fyrra og koma vel undirbúnar fyrir veturinn. Þriðja vetraríþróttin, bandarísk knattspyrna (football), stendur nú á tímamótum. Leikmenn í NFL- atvinnudeildinni eru í verkfalli, en leikmenn í háskóladeildinni eru komnir á fulla ferð. Ekkert var leikið um sl. helgi í NFL-deildinni og talið er mjög ólík- legt að verkfallið leysist fyrir næstu helgi. Samningaviðræður leik- manna og eigenda liðanna em komnar í strand og hefjast ekki aftur fyrr en seint í þessari viku. Á meðan þetta ástand varir hafa eigendur liðanna reynt að „skrapa“ saman í lið fyrir nk. sunnudag. Hafa þeir reynt að ná í nýliða sem ekki vom boðnir samningar af fé- lögunum nú í haust. Þá hafa nokkrir eldri leikmenn sem hættir vom að spila verið kallaðir aftur til starfa. Knattspymuáhugamenn vestra velta nú fyrir sér hversu lengi þetta ástand muni vara og hversu góðir leikimir verði með þessum vara- mönnum. Þetta er í annað sinn sem banda- rískir knattspymumenn fara í verkfall. Árið 1982 vom þeir í verk- falli í 57 daga, en þá reyndu eigendur ekki að ná í varamenn og ekkert var leikið á meðan á verk- fallinu stóð. Samningaviðræður nú hafa strand- að á kröfum um hærri byijunarlaun nýliða og „frelsi" leikmanna sem uppfyllt hafa samninga við félögin. Leikmenn vilja vera frjálsir til að semja við hvaða lið sem er eftir að samningar þeirra renna út, en eig- endur vilja ekki heyra á það minnst. Vilja eigendur halda núverandi kerfí sem gefur þeim allan rétt yfir leik- mönnum sem uppfyllt hafa samn- inga. Leikmenn hafa sýnt mikla einingu í verkfallinu fram að þessu. Hefur enginn leikmaður enn snúið aftur til æfínga eða keppni. Þetta ástand kemur varla til með að standa til langframa. Þrýstingur á leikmenn verður meiri og meiri með hverri vikunni sem líður um að snúa aftur til starfa. Hvar er boltinn? Nú fer að draga til tíðinda í hafnarboltanum (baseball) í Bandaríkjunum. Úrslitaleikimir fara að he§ast. . illJl 1 ,l{n 3 jl j

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.