Morgunblaðið - 02.10.1987, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1987
51
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Ólafur Þórðaraon skoraði glæsilegt mark gegn Austur-Þjóðveijum á Laugardalsvelli í undankeppni Ólympíulei-
kanna. Liðið sem leikur gegn Portúgal á miðvikudaginn verður að mestu leiti skipað sömu leikmönnum og sigraði
Austur-Þjóðveija svo eftirminnilega.
íslenska ólympíuliðið
leikur gegn Portúgal
á miðvikudaginn
Birkir Kristinsson í hópinn fyrir Guðmund Hreiðarsson
FRJÁLSAR
Stefnt
aðsigri
gegn
Lúxem-
borg
UNGLINGALANDSLIÐ drengja
(19 ára og yngri) f f rjálsum
fþróttum keppir á morgun við
nokkur af bestu félagsliðum
Evrópu auk unglingalandsliðs
Lúxemborgar.
essi keppni var fyrst á milli
þriggja félaga frá Englandi,
Hollandi og Belgíu, en er nú opin
öllum félögum í Evrópu og auk
þess mega landslið fámennustu
Evrópuþjóða taka þátt. Eftirfarandi
félög keppa að þessu sinni:
R.F.C. Liege og Houtland frá
Belgíu, A.A.C. Amsterdam frá Holl-
andi, Shaftesburi Harriers og
Birchfíeld Harriers frá Englandi,
Stade Clermontois frá Frakklandi,
Herakles frá Grikklandi, Bruhl frá
Sviss, Bayer Uerdingen frá Vest-
ur-Þýskalandi, Karlskrona frá
Svíþjóð, landslið Lúxemborgar og
landslið íslands.
Eftirtaldir skipa íslenska liðið,
keppnisgreinar innan sviga:
Jón a. Magnússon HSK (lOOm,
4xl00m, stangarstökk), Einar Ein-
arsson Armanni (200m, 4xl00m),
Friðrik Larsen HSK (400m,
4x400m), Steinn Jóhannsson FH
(800m, 4x400m), Finnbogi Gylfa-
son FH (1500m), Bjöm Pétursson
FH (2000m), Frímann Hreinsson
FH (3000m), Ólafur Guðmundsson
HSK (HOm grind, langstökk,
4xl00m), Friðrik Steinsson UMSS
(400m grind, 4xl00m), Einar
Kristjánsson FH (hástökk), Haukur
Guðmundsson HSK (þrístökk),
Bjarki Viðarsson HSK (kúluvarp,
kringlukast), Ágúst Ándrésson
UMSS (spjótkast), Jón A. Sigur-
jónsson KR (sleggjukast), Einar
Freyr Jónsson UMSB (4x400m),
Kristinn Guðlaugsson FH
(4x400m).
íslenska liðið tók þátt í þessari
keppni í fyrra og tapaði þá fyrir
öllum liðunum, en nú er stefnt að
sigri gegn Lúxemborg.
SIGFRIED Heid landsliðsþjálf-
ari íknattspyrnu hefur valið 16
leikmenn til þátttöku f leik
Portúgals og íslands í undan-
keppni Ólympfuleikanna sem
fram fer « Leiria í Portúgal á
miðvikudagskvöld. Eina breyt-
ingin á liðinu frá þvf í leiknum
gegn Austur-Þjóverjum hér á
Laugardalsvelli er að Birkir
Kristinsson kemur inn fyrir
Guðmund Hreiðarson.
ÆT
Islendingar eru nú í 3. sæti í riðl-
inum, hafa 3 stig eftir jafn marga
leiki. Austur-Þjóðveijar eru í efsta
sæti með 6 stig eftir 5 leiki og ítalir
í öðru sæti með 5 stig eftir 3 leiki.
Hoilendingar eru í 4. sæti með 2
stig eftir 4 leiki og Portúgalar í
neðsta sæti með 2 stig eftir 3 leiki.
Portúgal hefur gert tvö jafntefli,
við Austur-Þjóðveijar og ítali á
heimavelli, en tapað fyrir Austur-
Þjóðveijum 1:0 á útivelli. Það getur
því orðið við ramman reip að draga
hjá íslendingum í leiknum gegn
Portúgöium í Leiria á miðvikudag-
inn. En íslensku strákamir hafa
sýnt að þeir eru til alls líklegir.
Eftirtaldir leikmenn skipa landsliðs-
hópinn, landsleikjafjöldi í sviga:
Markverðir:
Friðrik Friðriksson...Fram (9)
Birkir Kristinsson.......ÍA (0)
Aðrir leikmenn:
Guðmundur Steinsson ....Fram (14)
Guðmundur Torfason..............
Winterslag (9)
Guðni Bergsson..........Val (15)
Halldór Áskelsson......Þór (13)
Heimir Guðmundsson.......ÍA (1)
Ingvar Guðmundsson......Val (3)
Njáll Eiðsson..........Val (7)
Pétur Amþórsson.......Fram (10)
Ólafur Þórðarson........ÍA (13)
Ormarr Örlygsson......Fram (3)
Sveinbjöm Hákonarson....ÍA (8)
ValurVálsson...........Val (2)
Viðar Þorkelsson......Fram (11)
Þorsteinn Þorsteinsson...Fram (5)
Liðið heldur utan á morgun, laugar-
dag, til London. Þaðan verður
haldið á sunnudaginn til Lissabon,
þar sem dvalið verður til þriðju-
dags. Þá verður haldið til Leiria og
dvalið þar fram yfír leik.
KNATTSPYRNA
Lélthjá
Feyenoord ^
ÞRÍR leikir fóru fram í Evrópu-
keppni félagsliða í knattspyrnu
í gœrkvöldi.
Beveren frá Belgíu tapaði 1:0 á
útivelli gegn Bohemians Prag
og skoraði Pavel Chaloupka eina
mark leiksins á 11. mínútu. Það
dugði samt skammt því Beveren
vann fyrri leikinn 2:0 og fer áfram
í 2. umferð.
Katowice, sem slí Fram út úr Evr-
ópukeppninni f fyrra, tapaði 2:1 á |fl|
heimavelli gegn Sportul Búkarest.
Tirlea og Cristea skoruðu fyrir gest-
ina, en Koniarek minnkaði muninn
á 30. mínútu.
Þá vann Feyenoord Spora 5:2 f
Lúxemborg, en Hollendingamir
unnu fyrri leikinn 5:0. Elstrup skor-
aði fyrst fyrir gestina, en Di
Domenico og Jeitz komu heima-
mönnum jrfir fyrir hlé. Hockestra,
Wijnsteckers og Hausch skoruðu
sfðan þijú mörk á fímm mínútum
eftir klukkutíma leik.
ENGLAND
Fer
Liverpool
á toppinn
á morgun?
LIVERPOOL hefur byrjað
keppnistímabillð mjög vel M.
deild ensku knattspyrnunnar
og þó liðið eigl tvo leiki til góða
er Ifklegt að meistararnir fyrr-
verandi skjótist á toppinn í
deildinni á morgun.
Liverpool lék sér að Derby í
vikunni og aðeins Peter Shilton
í marki Derby kom í veg fyrir að
sigurinn varð ekki stærri en 4:0. í
fyrri viku sýndi Liverpool stórleik
gegn Newcastle og er almennt talið
að nýliðar Portsmouth sæki eklri
stig á Anfíeld á morgun.
QPR er enn í efsta sæti, en leikur
á útivelli gegn Wimbledon. QPR
hefur leikið gegn fímm Lúndúnar-
liðum í deildinni f haust og ávallt
sigrað, en Wimbledon hefur enn
ekki tapað heima.
Chelsea fær Newcastle í heimsókn
og verður það fyrsti leikur Mirand-
hina í London. Everton fer til
Southampton og Sheffield Wednes-
day mætir Spurs í London. Totten-
ham hefur sigrað í síðustu 13
heimaleikjum í deildinni og liðið er
sigurstranglegt á morgun. West
Ham fær Derby í heimsókn, en
hvorugt liðið hefur skorað í síðustu
þremur leikjum.
KNATTSPYRNA / 1.DEILD
Morgunblaöiö/Gunnlaugur
Hðrður Halgason og Sigurður Már, sonur hans, eftir 6:0-sigurleik gegn Vfði
á Akureyri f sumar.
Hörður Helgason
hættur hjá KA
HÖRÐUR Helgason, sem tók
við nýliðum KA frá Akureyri í
vor og hélt þeim f 1. deild, verð-
ur ekki áfram þjálfari liðsina.
Hörður sagði við Morgunblaðið
í gær að hann hefði tilkynnt
stíóm KA þetta með mikilli eftirsjá.
„Eg hafði mikinn áhuga á að vera
áfram, en vegna persónulegra
ástæðna sá ég mér það ekki fært.
Ég er hins vegar ekki hættur að
þjálfa og er að hugsa framhaldið,"
bætti hann við.
Hörður náði frábærum árangri með
Skagaliðið og KA náði settu marki
undir hans stjóm f sumar. Víst er
að mörg félög hafa áhuga á að fá
þennan snjalla þjálfara, en hann fer
ekki langt frá Akranesi, þar sem
hann starfar sem kennari. ,
Slgurður einnig suður?
Sigurður Már Harðarson, sonur
Harðar, sem kom inn f KA-liðið
sfðari hluta sumars, og blómstraði
þar, fer að öllum líkindum einnig
suður á ný — búast má við að hann
verði í herbúðum Skagamanna
næsta sumar, en með þeim lék hann
auðvitað upp alla yngri flokka.