Morgunblaðið - 07.11.1987, Side 1

Morgunblaðið - 07.11.1987, Side 1
72 SIÐUR LESBOK STOFNAÐ 1913 253. tbl. 75. árg. LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Bandaríkin: Tólf manna áhöfn haldið í gíslingu San Francisco, Reuter. MAÐUR vopnaður öxi tók seint í gær 12 manna áhöfn Air-Canada flufrvélar í gislingu. Flugvélin af gerðinni Boeing 767 var á flugvell- inum í San Francisco þegar maðurinn krafðist þess að henni yrði flogið til Lundúna. Samkvæmt áætlun átti hún að fljúga til Toronto og Montreal. Engir farþegar voru í vélinni og er ekki vitað hvemig maðurinn komst um borð. Talsmaður flugvall- arstjómar sagði að árásarmaðurinn væri inni í flugstjórnarklefanum og héldi öxinni reiddri til höggs yfir höfði flugstjórans. Hann sagði enn- fremur að maðurinn vildi ná tali af starfsmönnum FBI, bandarísku leyniþjónustunnar. Þegar síðast fréttist var flugvélin enn við flug- stöðvarbygginguna og embættis- menn reyndu að tala um fyrir manninum. Svíþjóð: Lögreglumenn þjálf- aðir í Suður-Afríku Reuter Byltingar- afmælis minnst í dag er rússneska byltingin 70 ára. Á myndinni má sjá sovéska hermenn í Vestur-Berlín, borginni sem sýnir hugmyndafræði- lega skiptingu þessa heims hvað átakanlegast, marséra fyrir framan einn af T-34 skriðdrekun- um, sem fóru í fylkingarbijósti Rauða hersins er hann kom til Berlínar undir lok seinni heimsstyij- aldarinnar árið 1945. Hermennirn- ir lögðu í gær blómsveig að minnisvarðanum í tilefni byltingaraf- mælisins. Sjá leiðara á miðopnu. Stokkhólmi, frá Erík Liden, fréttarítara KOMIÐ hefur á daginn, að sænskir lögreglumenn hafa gért nokkuð af því að sækja fram- haldsnám og frekari þjálfun til Morgunblaðsins. Suður-Afríku. Hafa lögreglu- yfirvöld í Stokkhólmi vitað af þessu en þó látið það óátalið. Lögreglan í Suður-Afríku hefur staðfest, að sænskir lögreglumenn hafi verið tíðir gestir í landinu um margra ára skeið og notið þar margvíslegrar þjálfunar. Þykir þetta skjóta skökku við, því heita má, að allt samneyti við Suður- Afríkumenn sé bannað í Svíþjóð. Afstaða sænskra stjórnvalda til Suður-Afríku veldur einnig skipu- leggjendum tennismótsins „Stokk- holm Open“ nokkrum áhyggjum. Bandaríkjamaðurinn Matt Anger tekur þátt í mótinu og hefur geng- ið vel til þessa en hann hefur margsinnis tekið þátt í mótum í Suður-Afríku. Ætlar hann að fara þangað frá Stokkhólmi og lætur ályktanir Sameinuðu þjóðanna sem vind um eyru þjóta. Þetta veldur hins vegar því, að komist hann í undanúrslit eða úrslitin sjálf má sænska sjónvarpið ekki sýna leiki hans. Skipuleggjendur mótsins og sænskir sjónvarpsáhorfendur vona nú bara, að Sviamir fimm, sem eru meðal keppenda, verði til að stöðva sigurgöngu hans fljótlega. Reuter Árás á Persaflóa Áhöfn olíuskipsins „Great Wisdom“ frá Panama tekur lífinu með ró á þilfarinu í glampandi sól, þrátt fyrir að rúmum tveimur metrum fyrir neðan þá sé óhugnanleg áminning um hættur Persa- flóa. Gatið í byrðingnum er eftir íranskt flugskeyti, sem skotið var á þá í gær. Fyrsti frestur friðaráætlunar í Mið-Ameríku útrunninn: Líkur á vopnahléi í Nicarasfua litlar Managua, Tegucigalpa, Hondúras, Reuter. FORSETI Nicaragua, Daniel Ortega, sagði í fyrrakvöld að hann væri reiðubúinn til óbeinna viðræðna við kontra-skæruliða um vopna- hlé í landinu með hjálp málamiðlara. Ennfremur tilkynnti hann að 1.000 pólitiskir fangar í landinu yrðu látnir Iausir. Þá var að renna út sá frestur sem stríðandi aðilum hafði verið settur með friðarsam- komulaginu í Mið-Ameríku til að hefja samningaviðræður. Samkomu- lagið var undirritað af leiðtogum fimm ríkja á svæðinu þann 7. ágúst síðastliðinn. Leiðtogar kontra-skæruliða, sem njóta stuðnings Bandaríkjastjórnar, kölluðu í gær tilboð Ortegas herbragð sem ekki væri unnt að fallast á. Almennt var litið svo á að með tilboði Ortegas væri síðustu hindr- uninni fyrir vopnahléi rutt úr vegi en svo virðist ekki vera. Talsmenn skæruliða segja að Ortega hafi ekki gengið nógu langt. Ortega sagðist ekki ætla að aflétta neyðarlögum og gefa öllum pólitískum föngum frelsi fyrr en Bandaríkjastjóm hætti stuðningi við kontra-skæruliða. Á fimmtudag samþykkti fulltrúadeild Bandaríkjaþings 3,2 milljóna dala stuðning við kontra-skæruliða. Ron- ald Reagan Bandaríkjaforseti hyggst fara fram á 270 milljóna dala hemaðaraðstoð við skæmliða á næstu 18 mánuðum. Stjórn Sandinista hefur lýst yfir einhliða vopnahléi á afmörkuðum svæðum í landinu en kontra-skæm- Bandaríkin: Repúblikanar með tillög- ur um minni fjárlagahalla Washington, London, Rcuter. Gengi Bandaríkjadals réttist nokkuð við í Wall Street i gær þegar fréttir bárust um að repú- blikanar á Bandaríkjaþingi legðu til að fjárlagahallinn yrði skorinn niður um 75,5 milljarða dala á næstu tveimur árum. Talið er að hallinn muni nema 163 mil^jörð- um dala á næsta ári. Fréttin barst þó ekki í tæka tíð til að hafa áhrif á gengi gjaldmiðla á mörk- uðum austan Atlantshafs. Gengi Bandaríkjadals á helstu fjármálamörkuðum í Evrópu var í gær nærri lágmarkinu frá deginum áður og verð hlutabréfa er enn óstöðugt. Kaupsýslumenn segjast ekki sjá neinn greiðan veg út úr þeirri kreppu sem alþjóðafjármála- markaður á nú við að etja. Mestri óvissu veldur nú hvort Bandaríkjamönnum tekst að fínna leiðir til að draga úr fjárlagahallan- um. Aðgerðir seðlabanka helstu iðnríkja undanfama daga hafa ekki megnað að hindra gengislækkun Bandaríkjadals. Um helgina koma saman seðla- bankastjórar ýmissa ríkja til að ræða stöðu mála eftir „mánudaginn svarta" þann 19. október. Búist er við að þeir geti lítið að gert til að styrkja stöðu dalsins, ekki síst þeg- ar haft er í huga að Bandaríkja- menn leggja sjálfir ekki ofurkapp á að halda genginu stöðugu. liðar hafa hert árásir á öðrum vígstöðvum. Adolfo Calero, einn af sex helstu leiðtogum kontra-skæru- liða, hafði þetta um tilboð Ortegas að segja: „Ræða hans var árásar- kennd og innantóm orðin endur- spegluðu einræðiskenndar tilhneig- ingar.“ Azucena Ferrey annar leiðtogi kontra-skæruliða sagði tillögur Ort- egas mikinn sigur fyrir menn sína. En hann bætti við að sú staðreynd, að Ortega hefði ekki nefnt hugsan- legan málamiðlara á nafn benti til þess að hann hefði einhvem í huga sem skæruliðar gætu ekki sætt sig við. Hann sagði þá ákvörðun Orteg- as að láta 1000 pólitíska fanga lausa veigalitla þegar haft væri í huga, að nú sætu 15.000 manns inni í Nicaragua vegna sannfæringar sinnar. Einnig hafa skæruliðar gagnrýnt að Ortega skyldi lýsa því yfír að stríðsöxin yrði grafín upp að nýju á þeim svæðum þar sem stjómarherinn lagði niður vopn fyrir skemmstu. Ortega sagði, að sú að- gerð hefði ekki náð tilætluðum árangri. Oscar Arias, forseti Costa Rica, og handhafí friðarverðlauna Nóbels hefur lýst yfír bjartsýni um fram- gang friðaráætlunarinnar sem hann er höfundur að. Á fimmtudag lýsti Jose Napoleon Duarte, forseti E1 Salvador, yfir einhliða vopnahléi í stríðinu við vinstrisinnaða skæru- liða. „E1 Salvador hefur breyst. Við verðum að fyrirgefa og gleyma. Þið ættuð ekki að óttast það að leggja niður vopn,“ sagði hann og hvatti skæruliða til að leggja sitt af mörk-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.