Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987
15
Skólaslj óraskipti
á Reyðarfirði
Reyðarfirði.
Skólastjóraskipti urðu við
Grunnskóla Reyðarfjarðar í
haust. Kristinn Einarsson sem
verið hefur skólastjóri síðan 1971
sagði starfi sínu lausu um mitt
sumar og við tekur Þóroddur
Helgason.
Kristinn hóf kennslu við skólann
hér 1953 að loknu kennaraprófí við
Kennaraskóla íslands. Ekki er
Kristinn hættur að starfa við skól-
ann því hann kennir í hlutastarfi.
Nýr skólastjóri er Þóroddur Helga-
son, borinn og bamfæddur Reyð-
firðingur. Þóroddur lauk prófi ^ á
sínum tíma frá Kennaraháskóla ís-
lands og hefur verið við kennslu í
5 ár. Kennarar hófu starf við skól-
ann 1. september í haust, en sjálfur
skólinn hóf kennslustarfið 9. sept-
ember.
í Grunnskóla Reyðarfjarðar eru
nú 122 nemendur og 13 kennarar
í heilu eða hálfu starfi. Af starf-
andi kennurum eru 9 með full
kennsluréttindi og leiðbeinendumir
hafa allir annaðhvort mikla reynslu
ellegar mikla menntun að baki.
Grunnskóli Reyðarfjarðar er nú átta
og hálfs mánaða skóli. Tekin var
ákvörðun um lengingu skólans á
starfstíma síðastliðið vor.
Skólahúsið er löngu orðið of lítið
fyrir starfsemi grunnskólans. Kennt
hefur verið á þremur stöðum í bæn-
um og öll skúmaskot í kjallara
skólans nýtt til kennslu. En nú er
ákveðið að byggja við skólann,
teikningar af viðbyggingunni em
að verða tilbúnar og gert ráð fyrir
því að framkvæmdir hefjist næsta
vor.
Byggingartími er áætlaður 6—8
ár. Skólahúsnæðið mun þá verða
Grunnskóli Reyðarfjarðar og
íþróttahúsið.
u.þ.b. tvöfalt meira en það er nú og
í nýja hlutanum er gert ráð fyrir
bæði héraðsbókasafni og skóla-
bókasafni undir sama þaki.
— Gréta
Þóroddur Helgason
Kristinn Einarsson
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Fáni sameinuðu þjóðanna blakti
við barnaskólann á degi Samein-
uðu þjóðanna.
Stykkishólmur:
Lionsklúbbur-
inn gefur fána
Sameinuðu
þjóðanna
^ Stykkishólmi.
Á DEGI Sameinuðu þjóðanna, 24.
október, var fáni þeirra í fyrsta
sinn við hún í Stykkishólmi. Li-
onsklúbbur Stykkishólms gaf
bæjarfélaginu fánann.
A fundi klúbbsins fyrir skömmu
afhenti formaðurinn, Daði Þór Ein-
arsson, fánann og við honum tóku
bæjarfulltrúamir Einar Karlsson og
Gunnar Svanlaugsson. Fáninn var
dreginn að hún við barnaskólann
og blakti þar í mildu veðri allan
daginn og vakti athygli.
______ ________Árni
Kirkjudagur
Bessastaða-
sóknar
á morgun
HINN árlegi kirkjudagur Bessa-
staðasóknar verður i Álftanes-
skóla, þar sem Bessastaðakirkja
er í viðgerð, á morgun, sunnudag-
inn 8. nóvember og hefst kl. 14.00.
í helgisamkomunni flytur Margrét
Sveinsdóttir ávarp, Álftaneskórinn
syngur undir stjóm John Speight
með aðstoð Þorvaldar Bjömssonar
orgelleikara auk flautuleikaranna
Gunnars Gunnarssonar og Kára
Þormar. Ræðumaður er Birgir
Thomsen.
Kaffíveitingar verða seldar að
heljisamkomu lokinni á vegum
Kve.ifélags Bessastaðahrepps og
rennur ágóðinn í líknarsjóð.
3JA KYNSLÓDIN SLÆR ÖLL SÖLUMET
Eftirspurnin eftir þessum glæsilegu og skemmtilegu bílum frá DAIHATSU hefur nú slegið öll met og
síðasta sendingin, um 80 bílar, seldist upp nær samdægurs.
í fyrradag fengum vlö nýja sendlngu og elgum óráðstafaö nokkrum bílum á frábæru werðl,
enda er hækkunin á CHARADE sáralítil.
Aldrei glæsilegra úrval af notuðum DAIHATSU til sölu.
Vegna mikillar sölu á nýjum bílum fáum við daglega inn sér-
lega góða, notaða bíla í skiptum.
BÍLASÝNING í DAG KL. 13 -17
DAIHATSUUMBOÐIÐ, Ármúla23, s. 685870-681733.
DAIHATSU CHARADE
hefur síðastliðinn áratug verið fyrirmynd annarra bifreiðaframleiðenda í hönnun
sparneytinna, öflugra og hagnýtra fjölskyldubifreiða.
DAIHATSU CHARADE
er í fremstu röð hátæknibifreiða af minni gerð
og á einstaklega hagstæðu verði:
DAIHATSU CHARADE:
ÚRVALS VARAHLUTA- OG VERKSTÆÐISÞJÓNUSTA
GULLTRYGGIR HAGSTÆÐA FJÁRFESTINGU.