Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987 41 -f- Akranes: Hvað verður um Kirkjuhvol ? Akranesi. MIKLAR umræður hafa farið fram á Akranesi um framtíð nokkurra bygginga í eigu bæjar- ins í framhaldi af tillögum húsnýtingarnefndar bæjarins sem fram komu nú í haust. Eink- um eru deilur um fyrrverandi prestsetur staðarins Kirkjuhvol. í skýrslu sem húsnýtingamefnd gerði og lagði fyrir bæjarstjóm kemst nefndin að þeirri niðurstöðu að selja beri húsið í núverandi ástandi sem íbúðarhús. Nefndin telur of kostnaðarsamt að láta gera húsið upp. Er talið að kostnaður Kristín Kristjánsdóttir píanóleik- ari. Píanótónleik- ar í Garðabæ TÓNLEIKAR verða í safnaðar- heimilinu Kirkjuhvoli á vegum Tónlistarskóla Garðabæjar á morgun, sunnudaginn 8. nóvem- ber. Kristín Kristjánsdóttir leikur á píanó verk eftir Bach, Mozart, Skriabin, Debussy og Rachmanin- við slíkar breytingar geti numið allt að tveim milljónum króna. Húsfriðunamefnd Akraness er á öndverðum meiði. Hún telur að varðveita eigi húsið og leggur til að húsið verði nýtt á vegum bæjar- ins og nefnir nokkra möguleika þar um. Bæjarstjóm er þessu ekki sam- mála og hefur nú samþykkt að fela tæknídeild bæjarins að útbúa út- boðsskilmála vegna sölu hússins. Nú þegar hafa einkaaðilar falast eftir kaupum á húsinu ogjiyggjast þeir ætla að nýta það sem íbúðar- hús. Einhugur er þó ekki um þessa afgreiðslu í bæjarstjóm. Einn bæj- arfulltrúi hefur lýst andstöðu við þessa samþykkt og vísar í staðfest aðalskipulag, því sá reitur sem hús- ið stendur á er ætlaður fyrir opinbera þjónustu. Af þeim sökum beri að hafna hugmyndum um sölu eignarinnar. Kirkjuhvoll var til langs tíma prestsetur Akumesinga eða fram til 1975 er séra Jón M. Guðjónsson prófastur lét af störfum. Húsið hef- ur nú síðustu árin verið notað sem heimavist fyrir Fjölbrautaskóla Vesturlands og óhætt er að segja að það megi muna fífil sinn fegri. Það hefur verið í niðumíðslu og því er full ástæða til að taka ákvörðun um framtíð þessa merka húss. Gísli Gíslason bæjarstjóri á Akranesi, sagði í samtali við Morgunblaðið að nú á næstu dögum yrðu hafnar viðræður við stjórn sjúkrahúss Akraness um framtíð hússins en húsið er í næsta nágrenni sjúkra- Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson Kirkjuhvoll fyrrum prestsetur Akurnesinga. hússins og því er möguleiki á að það geti nýtt húsið eða lóð þess. Gísli sagði að á meðan þessar við- ræður fæm fram yrði væntanlegir útboðsskilmálar látnir bíða. - JG Það er ekkert erfitt að stíga fyrstu skrefin. . . off. Kristín hefur stundað nám við Tónlistarskóla Garðabæjar frá 10 ára aldri og hafa kennarar hennar verið Unnur Amórsdóttir og Gísli Magnússon. Tónleikamir em jafnframt loka- próf Kristínar. Tónleikamir í Kirkjuhvoli hefjast kl. 16.00. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Hafnarfjarðarkirkja: Fræðsluerindi um list og trú DR. GUNNAR Krístjánsson sókn- arprestur Reynivöllum I Kjós flytur fræðsluerindi um list og trú í Hafnarfjarðarkirkju og sýn- ir litskyggnur af listaverkum í dag, 7. nóvember, og næstu tvo laugardaga, 14. og 21. nóvember, og hefjast erindin ld. 10.30. í framhaldi af erindaflutningum verður boðið upp á umræður í Dvergasteini yfír kaffíbolla og stefnt að því að öllu sé lokið fyrir hádegi. SJÓÐSBRÉF VIB báru 11,9 % ávöxtun umfram verðbólgu fyrstu sex mánuðina. Sjóðsbréf VIB er hægt að kaupa fyrir hvaða fjárhæð sem er og selja aftur á auglýstu kaupgengi hjá Verðbréfamarkaði Iðnaðarbankans hf. SJÓÐSBRÉF 1 SJÓÐSBRÉF 2 Sjóðsbréf 1 eru kjörin fyrir þá sem vilja leggja Sjóðsbréf 2 eru ætluð þeim sem eiga nokkurn fyrir og fá háa ávöxtun. Kostir Sjóðsbréfa 1 eru sparnað og þurfa að lifa af eignunum og láta þær m.a. að jafnframt ávaxtast sem best. Kostir Sjóðsbréfa 2 eru m .a. að • þau er hægt að kaupa fyrir hvaða fjárhæð sem er • vextir umfram verðbólgu eru greiddir eigendum á þriggja mánaða fresti • áhætta er minni en þegar keypt eru einstök skuldabréf með jafnhárri ávöxtun vegna • kostnaður við ávöxtun er hlutfallslega lítill áhættudreifingar sjóðsins og fé liggur ekki bundið á lágum vöxtum • ekki þarf að hafa áhyggjur af endurfjárfest- • þau er hægt að selja aftur á auglýstu ingu afborgana vaxta. Starfsfólk VIB sér um kaupengi hjá Verðbréfamarkaði Iðnaðar- að ávaxta sjóðina og hefur áralanga reynslu bankans. að baki. Heiðdís, Ingibjörg, Sigurður B., Vilborg og Þórólfur munu leitast við að veita nánari upplýsingar um sparnað og ávöxtun. Verið velkomin í afgreiðslu VIB að Ármúla 7 eða hringið í síma 91-68 15 30. VIB VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF Ármúla 7, 108 Reykjavík. Sími68 1530 + — Gunnþór Ingason m
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.