Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987 Tónlist í Hallgiímskirkju Vetrarstarfið að hefjast Mörg tónlistarsamtök eru að byrja vetrarstarfið eða að kynna það þessa daga, þeirra á meðal Listvinafélag Hallgrímskirkju. Dagskrá 6. starfsársins liggur nú fyrir og byijar 29. nóvember, fyrsta sunnudag í aðventu. Um morguninn syngur skólakór Garða- bæjar við messu undir stjórn Guðfmnu Dóru Ólafsdóttur og fær auk þess málmblásara til liðs við sig. Þar verður flutt messa eftir Benjamin Britten, sjaldheyrt tón- skáld hér um slóðir. Síðdegis kl. 17 verða Aðventu- tónleikar, fluttar mótettur og messuþættir frá 16.—18. öld undir yfirskriftinni „Gjör dymar breiðar, hliðið hátt“, og tónlist fyrir blokk- flautu og lútu frá endurreisnartím- anum. Tónlistin er meðal annars eftir Palestrina, Lassus, Sweelick, Schiitz og Hassler, allt saman tón- skáld sem lifðu á síðari hluta endurreisnartímans, 16. öldinni og fram á þá 17. Flytjendur eru Mót- ettukór Hallgrímskirkju, Camilla Söderberg flautuleikari og Snorri Om Snorrason lútuleikari. Stjóm- andi er Hörður Áskelsson. Og meira af aðventu- og jólalög- um í kirkjunni. Þijá fyrstu mið- vikudagana í desember kl. 21 verða Náttsöngvar í kirkjunni, fluttir af þremur gestkomandi kórum, bamakór Kársnesskóla, Skagf- irsku söngsveitinni og Dómkóm- um. 27. desember kl. 17 verða Söngvar og lestrar á jólum. Mót- ettukór Hallgrímskirkju og ein- söngvarar flytja þekkt jólalög og lesa jólatexta ritningarinnar. Eftir jólin fer af stað orgeltón- leikaröð. Síðasta sunnudag í janúar, febrúar, mars og apríl verða orgeltónleikar undir yfir- skriftinni Norður-þýzku barokk- meistaramir. Fjórir orgelleikarar leika verk eftir tónskáld þessa svæðis og tíma, en láta ekki þar við sitja að spila, heldur kynna tónskáldin og verk þeirra. Kær- komið tækifæri til að svipast um í þessari grein tónlistarsögunnar, undir góðri leiðsögn. Vonandi að framhald verði á, eins og er gefið til kynna í dagskrá félagsins. Það er hægt að ganga í félagið, fyrir þá sem ekki hafa gert það. Meðlimir fá afslátt á þá tónleika, sem er selt inn á, en það er reynd- ar alls ekki gert á alla tónleika félagsins. Hallgrimskirkja Dúr og- moll Nú í nóvember verða að minnsta kosti 35 tónleikar í Reykjavík, eftir gleggstu manna yfirsýn. Sannar- lega glæsilegt úrval. Af þeim má nefna að sunnudaginn 15. nóvem- ber koma Hlíf Siguijónsdóttir fiðluleikari og David Tutt píanóleik- ari fram á tónleikum hjá Tónlistar- félagi Kristskirlqu kl. 16 og þann 20. nóvember verður strengjasveit Tónlistarskólans með tónleika, sem reyndar eru útskriftartónleikar eins af nemendum skólans. Það er Gunnar Kvaran sem stjómar hljóm- sveitinni. Annars væri það mjög til bóta, ef hægt væri að taka saman mánað- ardagskrá og gefa út. Hér er ekki verið að fara fram á glanspappírs- útgáfu, aðeins ómerkilegt fjölrit, sem gæti kannski legið frammi á nokkrum stöðum, eins og í stór- mörkuðum og bókabúðum. Mikið væri þetta gott plagg því þó íslend- ingar séu kannski lítt gefnir fyrir langtíma skipulagningu þá skaðar vart að glöggva sig á nánustu framtíðinni. Á næsta ári stendur til að gera kvikmynd um Giacomo Puccini. Placido Domingo á að leika aðal- hlutverkið, þá væntanlega tón- skáldið sjálft. Myndin verður tekin á Italíu og í Kína. Það hefur stundum legið í loftinu að sjónvarpið ætlaði að fara að sýna óperur oftar en á nýársdag og þær hafa að vísu sézt stöku aðra daga, síðast Don Giovanni nú í haust. Það þarf ekki að hafa mörg orð um hve heppilegt sjónvarpsefni óperur em umfram annað tónlistareftii og nóg Placido Domingo er til af upptökum, ekki vantar það, og er alls staðar vinsælt sjón- varpsefni og ríkulega á borð borið víða í nágrannalöndunum. Sýning einu sinni í mánuði væri vel við hæfi ... eða á að bíða eftir að sam- keppnisaðilinn hafi fmmkvæði hér? Og svo er að svipast um hvað er boðið upp á á erlendum ópem- sviðum. í kvöld er verið að fmm- sýna Toscu í Miinchenarópemnni og í gær var Cosi fan tutte fmm- sýnd í ópemnni í Frankfurt, með nýjum tónlistarstjómanda sínum, ítalanum Gari Bertini. Seinna í mánuðinum verður Ífigenía í Ális, ópera eftir Gluck, fmmsýnd þar. Sömu ópemr em sýndar í Vín. Laugardaginn 21. nóvember verður Ífigenía flutt þar. Joanna Bor- owska, Gundula Janowitz og Bemd Weikl syngja aðalhlutverkin, en í Cosi fan tutte daginn eftir syngja meðal annarra Lucia Popp, Anne Howells, Reri Grist, Istvan Gati og Fermccio Furlanetto. Þessar vikumar gengur Rínar- gull Wagners í Metrópólítan-óper- unni í New York. Þar er auk þess að sjá II trovatore eftir Verdi. Joan Sutherland er þar að kveðja sviðið og með henni syngja Pavarotti og Leo Nucci. Verdi á þarna líka La Traviötu, þar sem syngja Anna Tomowa Sintow, Dano Raffanti og Sherill Milnes. Tvær Puccini-ópemr em á flölum Metrópólítan-ópemnn- ar, Tosca, þar sem Hildegard Behrens syngur, ásamt Ermanno Mauro og Comell MacNeil og La Bohéme með Robertu Alexander og José Carreras. Þessa dagana er Placido Dom- ingo að syngja Ævintýri Hoffmanns eftir Offenbach í ópemnni í San Francisco. Þeir sem hyggja á utanlands- ferðir með viðkomu í ópem- eða tónleikahúsi geta haft í huga að það er hægt að panta miða í gegn- um miðasöluskrifstofur stórborg- anna. Sum hótel geta líka tekið að sér að útvega miða. Og svo em til erlendar ferðaskrifstofur sem skipuleggja tónlistarferðir, oft stuttar ferðir, og útvega þá miða með á merkilegar uppákomur. Að læra reglur og kunna svo að brjóta þær — Rætt við Snorra Sigfús Birgisson tónskáld og píanóleikara Ein af samnorrænum menningar- nefndum er Norræna tónlistamefnd- in, NOMUS. Furir nokkm pantaði nefndin kennsluverk hjá Snorra Sigfúsi Birgissyni, tónskáldi og píanóleikara. Snorri Sigfús lék þessi verk meðal annarra verka sinna á tónleikum Tónlistarfélags Krists- kirkju fyrir viku síðan og er auk þess nýbúinn að gefa verkin út. Útgáfu sína kallar Snorri Steinabæ í höfuðið á litla húsinu, sem hann býr í á Bráðræðisholtinu og verkin Píanólög fyrir byijendur, gefin út í fjórum heftum. í fyrsta og öðmm hefti er sitt hvort lagasafnið, en í þriðja og ijórða heftinu em tvær svítur, Arstíðimar og Geimferðalög. Nótumar handskrifaði hann sjálfur og kverin em offsetprentuð. Þeir kennarar, sem trúa því að það sé til góðs að sýna nemendum sínum fljótlega fram á að nótur og nótur geti verið með ýmsu sniði, grípa bækur Snorra vísast fegins hendi. Hann kemur ögn öðmvísi að verkefni sínu, en gerist og gengur í byijendabókum, eins og hans er von og vísa. En hvað hafði hann í huga, þegar hann setti heftin saman? Það vom kannski einkum fimm atriði, sem ég vildi koma á fram- færi. í fyrsta lagi að fá nemendur til að huga að litum píanósins, láta þá sjá og heyra hvemig sami tónn- inn getur fengið mismunand lit, haft yfirtón, verið dempaður, plokkaður á streng og annað ámóta. í öðm lagi að sýna opið eða fijálst form, þannig að nemandinn geti sjálfur raðað saman eigin formum. í þriðja lagi að sýna að lengd nótna er hægt að gefa til kynna á annan hátt, en tíðkast, ekki aðeins með taktstrikum og hefðbundnum lengdarmerkjum heldur einnig á sjónrænan hátt með því að lengd nótna standi í beinu hlutfalli við fjarlægðina milli þeirra á nótnablaðinu. í fjórða lagi að leyfa nemandum að bregða á leik í tónlist- inni og að síðustu að kynna hvemig er hægt að nota segulband. Þessar æfingar mínar em ekki hugsaðar í staðinn fyrir annað hefð- bundið efni, heldur sem viðbót og þannig hefur það verið notað, það íitla sem það hefur verið notað, því verkin hafa aðeins verið til í ljósriti.' Ég hef spurt píanókennara, hvort nótnaskriftin, sem er frábmgðin venjulegri skrift, mgli nemendur, en þeir segja ekki. Þeir sjái strax, að þetta er annað, setja það í aðra skúffu, svo það virðist ekki tmfla." — Nú hefurðu nasasjón af píanó- kennslu, þú hefur kennt hljómfræði og það er ekki ýkja langt síðan þú laukst píanónámi sjálfur, svo þú hefur vísast hugsað sitthvað um tón- listarkennslu. „Eiginlega heilmikið og ég reyndi vissulega að setja mig í spor píanó- kennara, þegar ég samdi Píanólög fyrir byijendur. Aðkoman fer eitthvað eftir á hvaða stigi er verið að kenna, en það er bæði mikilvægt að örva hug- myndaflugið og að leggja gmnninn að tæknikunnáttu. Sumir segja að annars vegar sé tæknin, hins vegar tónlistin. Þetta fínnst mér takmark- andi sjónarhom, þetta þarf helzt að koma hvað með öðm. Það er engin tónlist án aga. Byijendalögin í heftunum fjómm höfða til ímyndunaraflsins, en það er samt ekki hægt að gera hvað sem er í þeim. í hveiju lagi er einhver rammi, einhveijar skorður, en mis- munandi í hveiju lagi fyrir sig. Það er verið að leita eftir ákveðnu jafn- vægi, ákveðnum litum, en ekki bara einhveiju jafnvægi, einhveijum lit- um. Það em til kennarar og reyndar líka tónlistarmenn, sem em með skiptingu milli tækni og tónlistar alveg á hreinu, líkt og sumir þykjast kunna að greina að efni og anda. I samræmi við þetta þá hafa sumir kennarar ákveðnar kenningar um að það eigi að kenna tækniatriði eingöngu, láta tónlistarhliðina eiga sig. Það er vafamál, hvort þetta er öfundsverð skarpskyggni. Mér finnst Snorri Sigfús Birgisson þetta vera tvær hliðar á því sama og er til efs, að það gangi að skilja þarna á milli. í kennslu er mikilvægast að hver kennari finni sína leið, sem hentar hans manngerð, skapferli. Ég hef haft kennara, sem komu sínu til skila á mjög tilfinningalegan hátt. Þeim hentaði það vel, því þeir vom þannig gerðir. Aðrir fóm öðmvísi að, því þeir vom öðmvísi í sér. Þess vegna em allar allsheijar samræm- ingar vafasamar í tónlist, bæði hvað varðar val á verkum, aðferðum og kennsluefni. Þar með er ekki sagt, að það eigi að sleppa öllu lausu, heldur að hver vinni eftir eigin takti, sé heill í því sem hann geri. Þannig hafa beztu kennaramir mínir verið. Hluti af því að ganga heill til verks er að vita hveiju á að koma til skila og reyna að miðla því. Það er hægt á marga vegu. Tilhneigingin til að steypa allt í sama far liggur í loftinu. Samræm- ingar- og framleiðsluskólaspekin er einn helsti veikleiki skólakerfisins. Það hafa verið skrifaðar margar lærðar bækur um hvemig menntun- in sjálf hefur orðið undir, en skóla- kerfið lent ofan á. — Þú kennir hljómfræði. Hvað er hljómfræði? Sú grein kennir hvernig eigi að setja margar raddir saman, svo þær hljómi „rétt“ og hún á sér langa hefð. Það er erfitt að kenna hana með afdráttarlausum boðum og bönnum, því tónskáldin hafa farið svo fijálslega með allar reglur. Hvert tónskáld hefur eiginlega haft sína hljómfræði, sem er ekki endilega eins og hljómfræði þess næsta á undan. Þess vegna ríkja þar engin algild boð og bönn. Eina færa leiðin er að kenna eitt og eitt atriði í einu, reyna að þroska tilfinningu nemandans fyrir þessum reglum, svo þeir læri að nota þær,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.