Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987 39 Hvað segja þeir um að fallið verði frá frjálsu fiskverði? TILLAGA um að lýst yrði yfir fullurn stuðningi við frjálst fis- kverð var felld á aðalfundi Landssambands íslenskra út- vegsmanna á fimmtudag. Morgunblaðið leitaði til nok- kurra manna og bað þá að segja álit sitt á þessari niðurstöðu. Fara svör þeirra hér á eftir. Jón Ingvarsson: Skýtur skökku við að LÍÚ í'alli frá fijálsu fiskverði JÓN Ingvarsson, stjórnarform- aður Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna, sagði að það skyti nokkuð skökku við að Landssam- band íslenskra útvegsmanna gengi nú fram fyrir skjöldu og vildi falla frá ftjálsu fiskverði, þar sem LÍÚ hefði sótt mjög fast á sínum tíma að fiskverð yrði gefið fijálst. „Þetta sýnir hins vegar það að menn vilja hverfa til þess kerfis sem áður gilti vegna þess að fijálst fisk- verð innan gæsalappa hefur leitt til þess að deilur um fiskverð hafa færst inn í einstök fyrirtæki og út um landsbyggðina. Aðstaða manna er mjög misjöfn til að takast á við slíkt. Sjómenn hafa beitt samtaka- mætti sínum með ólögmætum verkföllum til að knýja fram hærra fiskverð. Menn vilja því forðast það að fara í návígi um þessi mál," sagði Jón í samtali við blaðamann. Óskar Vigfússon: Veldur mér vonbrigðum „Þessi niðurstaða veldur mér miklum vonbrigðum, en segir mér um leið að það er fiskvinnsl- an sem er í raun ráðandi aðili innan Landssambands íslenskra útvegsmanna, “ sagði ÞÓskar Vigfússon formaður Sjómanna- sambands íslands. „Annars kemur þetta mér mjög á óvart. Undanfarin ár hefur maður heyrt að menn vilji dreifa valdinu út á landsbyggðina og ákvarðanir eigi að mestu leyti að vera teknar heima í héruðunum. Þarna var kjör- ið tækifæri að fá vald til að taka ákvörðun um verð. En nú segja þeir gerið svo vel og takið þetta vald aftur til Reykjavíkur." Óskar sagðist ekki sjá hvaða þýðingu þetta hefði fyrir sjómenn. „Það er staðreynd að fijálst fisk- verð hefur orðið að raunveruleika. Uppboðsmarkaðir hafa þegar verið settir á fót og aðrir í bígerð hér og þar. Ég sé ekki hvernig þeir verða reknir ef fiskverð verður bundið og ákveðið af Verðlagsráði sjávarútvegsins. Mér liggur við að segja að enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur." Óskar sagði að í sjálfu sér hefði hann ekkert út á það að setja að að verðjöfnunarsjóður sjávarút- vegsins verði lagður niður, eins og stefnt er að. Sagði hann að þarna væri greinilegt að sömu aðilamir réðu ferðinni. „Þeir hafa sótt mjög fast að leggja niður þennan sjóð. En það er bæði jákvætt og getur verið neikvætt, en þetta segir manni ýmislegt um hvað þarna var að gerast," sagði Óskar að lokum. Signrður Garðarsson: Hefur sára- lítil áhrif SIGURÐUR Garðarsson hjá frystihúsinu Vogar hf. í Vogum á Vatnsleysuströnd sagðist halda að þessi ákvörðun hefði sáralítil áhrif, en áttaði sig ekki á hvaða vanda hún ætti að leysa. „Ég tel að þetta lágmarksverð sem þeir setja verði að vera það Iágt að menn geti unnið allar teg- undir af físki," sagði hann. „Ég átta mig ekki á hvaða vanda þetta á að leysa og tel að niðurfell- ing á fijálsu fiskverði hafi einungis áhrif ef loka á fiskmörkuðunum. Á meðan þeir eru opnir skiptir ekki máli hvort lágmarksverð er eða ekki því alltaf er miðað við það sem gerist á mörkuðunum. Mér sýnist að hér sé verið að flytja vandamálið af einum stól á annan og tel að áfram verði sama stríðið á milli útgerðar og sjómanna um það hvort Verðlagsráð eða fis- markaðimir eigi að ákveða fiskverð. Þessi verðmismunur verður alltaf bitbein." Helgi Þórisson: Auðveldar samninga úti á landi HELGI Þórísson skrífstofustjóri Fiskmarkaðarins í Hafnarfirði sagðist ekki vera viss um að lág- marksverð hafi áhrif á fiskmark- aðina. Hins vegar auðveldar það samninga á fiskverði úti á landi. „Á meðan þensla er í þjóðfélag- inu er eftirspum eftir sjómönnum á skip alveg eins og í önnur störf. Ef útgerðarmenn eða verkendur ætla að hafa lágt verð á sínum skipum geta sjómenn auðveldlega fengið starf á skipum sem fá hátt verð fyrir fiskinn. „Ég er ekkert hræddur um að þetta verði fjötur um fót fyrir físk- markaðina. Én með þessu em menn frekar að samhæfa lágmarksverð úti á landsbyggðinni. Helgi sagðist halda að menn hefðu almennt þá trú að fiskmark- aðirnir verði reknir áfram. „Reynsl- an af því hefur verið það góð að okkar mati. Þó trúi ég því að þetta auðveldi mönnum að gera samninga um fiskverð úti á landi," sagði Helgi. Halldór Ásgrímsson: Hefur sína kosti og galla ÞAÐ ER eins með ftjálst fiskverð og annað. Það hefur sína kosti og sína galla", sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráð- herra um niðurfellingu á frjálsu fiskverði. „Hvort sem verðið er fijálst eða ekki þurfa menn að semja um það.“ „Frjálst fískverð hefur skapað alls konar vandamál," sagði Hall- dór. „Menn vilja greinilega gera hlé á þessu. Ég vil hins vegar benda á að lágmarksverð sem ákveðið hefur verið á undanförnum ámm hefur aldrei komið í veg fyrir að menn geti samið um annað verð. Mín skoðun er sú að menn innan grein- arinnar eigi að koma sér saman um leikreglur. Það kemur nokkuð á óvart að útvegsmennimir skuli taka þessa afstöðu. Hinsvegar hafa fulltrúar fískvinnslunnar haldið þessu sjónar- miði á lofti. Ef til vill bendir það til þess að meiri samstaða er að skapast á þessum vettvangi en ver- ið hefur að undanförnu. Ég býst við að mörgum fínnist að þær deil- ur sem komið hafa upp milli veiða og vinnslu eigi upptök sín í þessu máli og ég skil þessa samþykkt þannig að menn vilji gjarnan fá meiri ró í þessum málum. Ekki ságðist Halldór telja að þetta hefði áhrif á fiskmarkaðina. „Sérstök lög voru sett um fiskmark- aðina svo að þeir eru undanþegnir lágmarksverði. En aldrei hefur ver- ið bannað í þessu landi að semja um hærra verð en ákveðið hefur verið í Verðlagsráði. Það hefur oft gerst. Hvemig sem verðlagningunni er hátta er samkeppni milli fískkau- penda hér og fiskmarkaða erlendis alltaf til staðar." Halldór sagði að hann væri ekki þeirrar skoðunar að leggja ætti verðjöfnunarsjóð niður og sagðist telja að hann hafi oft gert mikið gagn. „Ég vil minna á að þegar verðið var sem hæst í rækjunni var borgað mikið fé í sjóðinn. Ef svo hefði ekki verið hefðu enn fleiri faríð til rækjuveiða. Sú góða af- koma sem þá hefði orðið í greininni hefði skapað falskt öryggi. Nú hef- ur verðið lækkað mjög og byijað er að greiða úr sjóðnum til að jafna UPPBOÐ verður á fundi hjá Myntsafnarafélaginu i Templ- arahöllinni klukkan 14.30 sunnudag. Á uppboðinu verða boðnir upp margir góðir silfurpeningar þ.á m. peningar frá Haiti, Miðbaugs- Gíneu, Kambódíu, Muskat og Leiðrétting RANGT var farið með nafn í frétt um lyfjafræðinga í Kaup- kjör þeirra sem í greininni starfa, sjómanna og annarra. Ég tel mjög varasamt að leggja sjóðinn niður. Hitt er annað mál að það þarf að endurskoða lög og reglur um hann og nokkuð starf hefur verið unnið í því. En þetta er eitt af mörgum - verkefnum sem bíða úrlausnar í sjávarútveginum og ekki vinnst tími til fyrr en við losnum við fiskveiði- stjórnunarmálið af borðinu. En eins og ég hef oft sagt áður fer allt of mikill tími í það.“ Oman, Mexíkó og fleiri löndum. Seðlar af fyrstu og annarri útgáfu Landsbankans. Ríkissjóðs seðlar 5 og 10 krónur en rúsínan í pylsuend- anum er Kúrant-seðill danskur frá 1792 en á bakhlið seðilsins er íslenskur texti. Er þetta afar sjald- gæfur seðill og langt síðan svona seðill hefur komið á uppboð. mannahöfn í gær. Var Petra Mogensen sögð heita Petrea. Morgunblaðið biðst velvirð- ingar á þessum mistökum. Húsmæðrafélagið með basar á Hallveigarstöðum Húsmæðrafélag Reykjavíkur heldur sinn árlega basar á morgun, sunnudaginn 8. nóv- ember, á Hallveigarstöðum við Túngötu. Á basarnum verður úrval alls- kyns handavinnu, s.s. sokkar, vettlingar, peysur, húfur, jóladúk- ar, jólasvuntur, púðar o.fl. Einnig verða lukkupokar fyrir börnin. Allur ágóði af sölu munanna rennur til líknarmála. Uppboð á mynt- safnarafundi Ur umferðinni í Reykjavík fimmtudaginn 5. nóvember 1987 Árekstrar bifreiða: 19. Samtals 50 kærur fyrir brot á umferðarlögum. Kl. 16.10 var ökumaður kærður fyrir að aka með 103 km/klst hraða um Kringlumýrarbraut samkvæmt radarmælingu. Radarmæling leiddi til þriggja kæra í Ártúnsbrekku, hraði 92 km/klst. Kranabifreið Ijarlægði 20 ökutæki vegna ólöglegrar stöðu. Klippt voru númer af 10 bifreiðum fyrir vanrækslu á að færa til aðal- skoðunar. I fímmtudagsumferðinni fannst einn réttindalaus ökumaður og laust eftir miðnætti leiddi óöruggur akstur til gruns um ofneyslu lyfja. Frétt frá lögreglunni í Reykjavík. Karpov og Kasparov hvíldu sig Skák Margeir Pétursson Þeir Gary Kasparov, heims- meistari, og Anatoly Karpov, heimsmeistarí, fengu lang- þráða hvíld í gær eftir gífurleg átök í undanförnum einvígis- skákum. Það tók sér þó hvorugur frí, en tíunda skákin var svo tilþrífalítil að það var eins og þeir hefðu sammælst um að slappa af, án þess að annar þyrfti að eyða dýrmætrí frestun. Staðan i þessu æsi- spennandi einvígi er því ennþá jöfn, báðir hafa hlotið fimm vinninga. Ellefta skákin verður tefld á mánudaginn. Þá hefur Karpov hvítt. Keppendur mega aðeins fresta skák þrisvar í einvíginu og báðir hafa þegar frestað einu sinni. Vönum einvígismönnum þykir nauðsynlegt að eiga frestanimar til góða þegar líða tekur að lokum og spennan færist í aukana. Eftir er að tefla fjórtán skákir og eru likur á að úrslit fáist ekki fyrr en um jólaleytið. Heimsmeistarinn leitaði á ný mið í byijun tíundu skákarinnar í gær er hann hóf taflið með kóngspeðsbyijun í fyrsta sinn í einvíginu. Hingað til hefur hann beitt enska leiknum með hvítu, sem kom mjög á óvart í upphafí. Eins og vænta mátti svaraði Karpov þessu með bytjun sem er tiltölulega ný í vopnabúri hans, Caro-Kann-vöm, sem þykir af- skaplega traust. Karpov vegnaði mjög vel með henni í áskorenda- einvíginu við Sokolov í febrúar. Fljótlega kom í ljós að heims- meistarinn var í engum baráttu- ham. Hann reyndi ekki að hindra uppskipti og skákin tók því fljót- lega stefnu í jafnteflishöfn. 10. einvígisskákin: Hvítt: Gary Kasparov Svart: Anatoly Karpov Caro-Kann-vörn 1. e4 - c6 2. d4 - d5 3. Rd2 - dxe4 4. Rxe4 — Rd7 5. Rf3 — Rgf6 6. Rxf6+ - Rxf6 7. c3 Þessi rólegi leikur lýsir ekki miklum baráttuvilja. Mun algeng- ara er 7. Re5 eins og Sokolov lék tvivegis gegn Karpov. Þeim skák- um lauk báðum með jafntefli án mikilla sviptinga. 7. - Bg4 8. h3 - Bxf3 9. Dxf3 - e6 10. Bc4 - Be7 11, 0-0 - Rd5 12. Be3 Nokkuð dæmigerður leikur fyr- ir Kasparov, hann er tilbúinn til að láta biskupaparið af hendi, fyrir sóknarfæri eftir f línunni. 12. - Db6 13. De2 - 0-0 14. Hadl - Bd6 15. Bb3 - Rxe3 16. fxe3 Keppendur hafa verið duglegir við að skipta upp á léttu mönnun- um og nú er komin upp staða með mislitum biskupum. Slíkt eykur yfirleitt mjög líkumar á jafntefli, nema þegar annar tef- lenda er veikur fyrir á reitum sem biskup andstæðingsins hefur að- gang að. Um slíkt er ekki að ræða í þessari skák, Kasparov getur auðveldlega hrundið sókn eftir svörtu skálínunni b8-h2 og að sama skapi á Karpov auðvelt með að veija hvítu reitina f7 og h7. 16. - c5 17. Hf3 - Hae8 18. Hdfl - He7 19. Df2 - Dc7 20. Dh4 í þessari stöðu var samið jafn- tefli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.