Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987 Heilbrigð sál í hraustum líkama RoboCop (Peter Weller) mætir ofjarli sínum, Ronnie Cox. Kvikmyridir Arnaldur Indriðason Riddari götunnar (RoboCop). Sýnd i Háskólabíói. Stjörnu- gjöf: ★ ★ ★ Bandarísk. Leikstjóri: Paul Verhoeven. Handrit: Edward Neumeier og Michael Miner. Framleiðandi: Arne Schmidt. Kvikmyndataka: Jost Vacano. Helstu hlutverk: Peter Weller, Nancy Allen, Daniel O’Herlihy, Ronny Cox og Kurtwood Smith. Detroit. í náinni framtíð. Risa- fyrirtækið Security Consepts hefur tekið að sér löggæslu í borg- inni og hyggst græða á gerð vélmenna sem eiga að gæta laga og réttar. Tvær tegundir eru til. Önnur er risavaxinn og klunna- legur stáljálkur sem verður stjóm- laus þegar á að prufa hann og drepur einn framkvæmdastjó- rann. „Þetta er örugglega bara smágalli," segir varaforstjórinn og ypptir öxlum. Hin tegundin er RoboCop. Uppistaðan í því er mannslíkaminn, kjami þess er löggan Murphy, sem lést á grimmilegan hátt við skyldustörf. Hann á ekki að muna neitt frá sínu fyrra lífí en tölvur geta bilað. Hollenski leikstjórinn Paul Ver- hoeven sýndi það með síðustu mynd sinni, Hold og blóð (Flesh and Blood) að hann hefur sérstakt auga fyrir grimmd og ofbeldi. Sú mynd, þrátt fyrir ljótleika sinn, var í rauninni hugljúf ástarsaga en að vísu gat Verhoeven ekki haldið aftur af sér og drekkti feg- urðinni í ljótleikanum. í nýjustu myndinni sinni, Riddari götunnar (RoboCop), sem sýnd er í Há- skólabíói, er blandan aftur full- komin. Myndin er pökkuð mannlegum sora og afar myndrænu og grimmilegu ofbeldi en uppúr því rís hin göfuga sál, hasarblaðahetj- an með alla góðmennsku veraldar í sínu rafstýrða hjarta því RoboCop er ekki um mann heldur maskínu. Myndin er toppafþrey- ing, hasarinn og skotbardagamir eins og í þriðju heimsstyijöldinni og hraðinn er ógurlegur. Þu nýtur þess að halda með og klappa fyr- ir góða gæjanum í stríðinu við þá vondu. Og þegar hann hefur lagt þá alla að velli hoppar í þér hjart- að eins og eftir þijúbíosýningam- ar í gamla daga. Áhrifin em þau sömu. Allir pant vera RoboCop. Nema hvað RoboCop er ekki þijúbíó. í gamla daga hefðir þú aldrei fengið að sjá neitt þessu líkt. Menn em ekki skotnir og svo deyja þeir eins og í löggu- og bófamyndunum hefðbundnu. Menn em skotnir og svo skotnir aðeins meira og svo skotnir í tætl- ur. Það er löggan Murphy (Peter Weller) sem m.a. fær þessa með- ferð hjá óþokkunum og það em leifamar af honum sem rísa upp frá dauðum í mynd hinnar ósi- grandi stállöggu, RoboCop. Það er lögga sem stoppar ekki til að fá sér sjeik og pulsu. Hann geng- ur fyrir góðverkum og hetjudáð- um; hin göfuga sál hreppt í nýjustu tækni og vísindum, raf- eindastýrðu, goðumlíku stállík- neski kaupmennskunnar. Hreyfíngamar, þótt klunnalegar séu, búa yfir seiðandi tign, stál- brynjan hrindir frá sér byssukúl- um eins og vel bónaður bíll hrindir af sér rigningu. Hann er sannkallaður riddari götunnar þessi nýja starfsvél lög- reglunnar í Detroit einhvem tímann í framtíðinni (ekki svo langt handan við homið). For- hertustu glæpahundar verða að gjalti en fómarlömbin fínna litla hiýju í bjargvættinum. Hann hef- ur í byijun tilfínningar á við venjulega einkatölvu. En það er áiíur en sálin hans Murphys vakn- ar til lífsins og gerir sér grein fyrir hinni nýju stöðu sem hún er í. Og sættir sig við hana. RoboCop er feikivel gerð tækni- lega og stálbúnaðurinn allur hinn raunvemlegasti. Myndatakan sýnir okkur inní dmngalega og myrka stórborg framtíðarinnar þar sem heiiu götumar em undir- lagðar skríkjandi glæpalýðnum og upp í efstu lög þjóðfélagsins þar sem forstjóramir lifa og starfa. Sjónvarpið flytur fréttir af slysum og hörmungum; tveir fyrmrn for- setar létu lífið eftir slysaskot úr geimnum. Nýjasta fjölskylduspilið er Kjamorkuleikurinn (NUK’EM), sem líkir eftir kjamorkustyijöld. Verhoeven lýsir þessu öllu á háðskan og skemmtilegan hátt. Peter Weller tekst vel að lýsa til- finningum vélmennisins í gegnum þykkar stálbrynjur, Ronnie Cox er vemlega góður sem hinn ger- spillti yfirmaður Security Cons- epts og Kurtwood Smith er illskan uppmáluð í hlutverki erkiskúrks- ins, sem drepur Murphy og verður svo fyrir barðinu á RoboCop. Riddari götunnar er pottþétt skemmtun en það er hugsun í henni sem nær langt útfyrir ramma hreinnar afþreyingar. I kröppum leik Ellen Barkin { mynd Bíóborgarinnar, I kröppum leik. í kröppum leik (The Big Easy). Sýnd i Bíóborginni. Stjörnu- gjöf: ★ ★ ★ Bandarísk. Leikstjóri: Jim McBride. Handrit: Daniel Petrie jr. Framleiðandi: Step- hen Friedman. Tónlist: Brad Fiedel. Klipping: Mia Goldman. Helstu hlutverk: Dennis Quaid, EHen Barkin og Ned Beatty. Dennis Quaid leikur lögreglu- mann í New Orleans; smart klæddur og smartur í kjaftinum. Hann munar ekki um að þiggja mútur ásamt félögum sfnum í morðdeildinni. Þar eru allir eins og ein stór hamingjusöm fjöl- skylda. Hann nýtur þess að þurfa ekki að fara í biðraðir og borga ekki fyrir matinn á veitingahúsum af þvf hann er lögga. Ellen Bark- in leikur lögfræðing hjá ríkissak- sóknara og vinnur við að rannsaka hugsanlega spillingu innan lög- reglunnar. Hún er ákaflega hörð og óvægin. Þau lenda saman þessi tvö og það er ekki alltaf ijóma- logn f þvf sambandi. Það er hægt að segja að saka- málamyndin The Big Easy (í kröppum leik), sem sýnd er í Bíó- borginni, sé um spillta löggu í New Orleans og strangheiðarleg- an saksóknara, sem rugla saman reitunum, fást við lögregluspill- ingu og lifa hamingjusöm það sem eftir er. En það er miklu meira í henni en bara það. Góður samleik- ur þeirra Quaid og Barkin, góðir leikarar í aukahlutverkum, leik- stjóm Jim McBride, sem veit hvar á að stilla upp skuggum f kvöld- myndum af þessu tæi og skapa gott andrúmsloft á milli persón- anna stórra og smárra, plús handrit Daniel Petrie, sem virkar best í munninum á Quaid, gera The Big Easy að ansi smellinni rómantískri sögu um löggu og lagaref sem bæta hvort annað upp. Kostimir fela þó ekki flækings- legt og trauðla skiljanlegt glæpa- málið sem Quaid rannsakar þvf þótt handritið sé oft hið rennileg- asta og samtölin glettin bregst það í lýsingu sinni á glæpnum. Hann verður einfaldlega of flók- inn þegar iíða tekur á myndina til að maður nenni að hugsa hann til botns. Og það er kannski eins gott því hann truflar bara skemmtun- ina sem ástarsagan bíður uppá. Rauði þráðurinn í myndinni er samband Quaids og Barkins; hvemig þún breytir honum úr spilltri löggu, sem misnotar að- stöðu sína og nýtur þess, og hvemig hann breytir henni úr til- finningaiega bældri og lít hú- morískri konu. Hann miðlar henni af lífi og fjöri en hún bætir hann upp með heiðarleika og staðfestu. Dennis Quaid er loksins að komast á blað í Hollywood. Hann var í Innerspace í sumar og núna ieikur hann á móti Cher í annarri glæpamynd sem heitir Suspect. Við hér sáum hann síðast í Óvina- námunni (Enemy Mine). Hann er góður leikari á sinn hægláta máta, fyndinn og skemmtilegur í hlut- verki lögreglumannsins, fer vel með erfiðu tilfinningaríku atríðin og talar með hreim sem erfitt er að lýsa en hlýtur að vera mjög New Orleanískur. Ellen Barkin er ekki síðri í hlutverki lögfræð- ingsins sem kemst um síðir á þá skoðun að það er hvorki gaman eða æskilegt að lifa eftir lagabók- stafnum. Enginn er fullkominn. Ned Beatty er feitur og vinaleg- ur lögreglukafteinn með ekki alltof hreina samvisku og aðrir aukaleikarar standa sig allir piýð- isvel. Sérstaklega má nefna hinn stórkostlega veijanda Quaids í mútumálinu, sem gæti þess vegna verið einn af dvergunum sjö. Leikstjórinn Jim MacBride er iaginn við að skapa góðar mann- eskjulegar stemmningar eins og t.d. á lögreglustöðinni, sem er líkari Qölskyldusamkomu en vinnustað, og hann bætir sannar- lega upp misgott handrit. Stfllinn hans er hraður en persónulegur og lifandi, myndin hans er öðruví- si og ef fólk er á annað borð að leita eftir rómantfk með glæpsam- legu ívafí er The Big Easy rétta myndin. Frá keppni hjá Bridsdeild Húnvetningaféiagsins ________BrSds___________ Arnór Ragnarsson Bridsfélag Suðurnesja Mjög góð þátttaka er í JGP- sveitakeppninni sem nú hefír staðið yfir í tvö kvöld. Spilaðir eru tveir 16 spila leikir á kvöldi og trónir gamla kempan, Gestur Auðunsson, á toppnum eftir 4 umferðir. Staðan: Gestur Auðunsson 85 Birkir Jónsson 82 Jóhannes Ellertsson 71 Haraldur Brynjólfsson 66 Bjöm Blöndal 62 Næstu tvær umferðir verða spil- aðar á mánudaginn kemur kl. 20. Spilað er í Golfskálanum í Leiru. Islandsmót kvenna o g yngri spilara íslandsmót kvenna og yngri spil- ara í tvímenningskeppni verður spilað f Sigtúni 9 nk. laugardag og sunnudag. Spilamennska hefst kl. 13 á laugardag. 19 pör taka þátt í hvorum flokki og spila allir við alla með fjórum spilum milli para, alls 76 spii. Keppnisstjori er Agnar Jörgensen, en Vigfús Pálsson mun annast tölvuútreikninga. Reykjavíkurmót í tví menningi Spilarar á Reykjavíkursvæðinu eru minntir á skráninguna í Reykjavíkurmótið í tvímenningi, undanrásir, sem spilaðar verða helgina 28.-29. nóvember í Sigtúni 9. Mótið er opið öllum félögum á svæðinu. Skráning fer fram f félög- unum, á skrifstofu BSÍ og hjá Kristjáni Blöndal á kvöldin. Úrslit verða síðan spiluð helgina 12.—13. desember. Bridsfélag kvenna Eftir 5 kvöld í aðaltvímennings- keppni félagsins er staða efstu para orðin þessi: Stig Gunnþórunn Erlingsdóttir — Ingunn Bemburg 424 Steinunn Snorradóttir — Þorgerður Þórarinsdóttir 421 Ingibjörg Halldórsdóttir — Sigríður Pálsdóttir 341 Kristín Karlsdóttír — Svafa Ásgeirsdóttir 328 Halla Bergþórsdóttir — Kristjana Steingrímsdóttir 326 Esther Jakobsdóttir — ValgerðurKristjónsdóttir 252 Júlíana Isebam — Margrét Margeirsdóttir 252 Aidís Schram — Soffía Theodórsdóttir 199 Bridsfélag Akureyrar Staðan í Akureyrarmótinu í sveitakeppni eftir tvær umferðir er þessi: Stig Sveit Hellusteypunnar 50 Sveit Kristjáns Guðjónssonar 47 Sveit Grettis Frímannssonar 43 Sveit Gunnlaugs Guðmundssonar42 Sveit Ragnhildar Gunnarsdóttur 41 Sveit Stefáns Vilhjálmssonar 39 Sveit Zarich Hamadi 30 Sveit Gunnars Berg 25 Bridsfélag Tálknafjarðar Eftir tvö kvöld í einmennings- keppni félagsins er staða efstu spiiara þessi: Stig Steinberg Ríkharðsson 280 Brynjar Olgeirsson 267 Símon Viggósson 266 Jón H. Gíslason 261 Kristín Ársælsdóttir 259 Bridsdeild Húnvetn- ingafélagsins Hafin er hraðsveitakeppni hjá deildinni með þátttöku 15 sveita. Staðan eftir 1. umferð: Jón Ólafsson 635 Bjöm Kjartansson 540 Guðni Skúiason 537 Valdimar Jóhannsson 537 Lovísa Eyþórsdóttir 534 Kári Siguijónsson 525 Gísli Vfglundsson 525 HermannJónsson 525 Önnur umferð verður spiluð á miðvikudaginn í Ford-húsinu í Skeifunni, þriðju hæð kl. 19.30.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.