Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987 fflSamkeppni um gerð umhverfislistaverks á torgi við Borgarleikhús Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar minnir á að skila ber tillögum í samkeppninni til trúnaðar- manns dómnefndar, Ólafs Jenssonar, Bygginga- þjónustunni, Hallveigarstíg 1, í síðasta lagi mánudaginn 16. nóv. nk. kl. 18.00. Allar nánari upplýsingar veitir trúnaðarmaður í síma 29266. Símar 35408 og 83033 Birkihlíð Lerkihlíð KOPAVOGUR Holtagerði |Wtr0i!tinlblaliííl> Gunnar Gísla- son - Minning Fæddur 28. nóvember 1983 Dáinn 27. október 1987 Hve sæl, ó, hve sæl er hver leikandi lund, en lofaðu engan dag fyrir sólarlags stund. San bam Guðs þú unir sem btómstur við sól, þótt brothætt sé sem reyrinn þitt iukkunnar hjóL Þó lukkan sé brothætt, þó ljós þitt sé tál, sá leitar þín, sem finnur og týnir engri sál. (M. Joch.) Þann 27. október sl. andaðist Gunnar Gíslason á bamadeild Landspítalans, aðeins tæpra 4ra ára, eftir baráttu við illkynja sjúk- dóm. Hann var sonur hjónanna Karólínu Gunnarsdóttur frá Akur- eyri og Gísla Sigurðar Gíslasonar frá Víðivöllum í Skagafirði. Það var um miðjan sl. vetur að ný fjölskylda flutti hingað í Furu- gerði. Sonur minn var fljótur að uppgötva sér til mikillar gleði að þar var á ferð lítill drengur á svip- uðu reki. Hann bauð honum í heimsókn til að líta á leikföngin sín. Þar með hófust kynni okkar af Gunnari litla, einstaklega skýrum og fallegum dreng. Hann var þá í erfíðri geislameðferð, sem gaf von um bata. Það voraði vel á landi voru. Þann- ig var það líka í lífí Gunnars og hann gat notið sumarsins sem í hönd fór. Þeir vinimir voru úti öllum stundum, í fótbolta, á hjólunum sínum og svo var farið í þykjustu fyallgöngu upp á næsta hól. Ymis- legt var brallað eins og best jgerist hjá rúmlega 3ja ára snáðum. I sum- ar fór hann svo norður til afa og ömmu sem hann talaði svo oft um. Hann var sannkallaður sólargeisli í lífi fjölskyldu sinnar. Skuggi sjúk- dómsins virtist horfínn með sumargeislunum. En er sumri fór að halla og sum- arblómin í garði Línu mömmu hans fóru að fölna, eins fór að daprast heilsa litla vinar míns, þrátt fyrir að allt væri reynt, sem í mannlegu valdi stóð, honum til hjálpar. Það hafa verið þung og sár sporin hjá Línu og Gísla undanfamar vikur. Vegir Guðs er órannsakanlegir. Megi algóður Guð vemda og styrkja Gísla og Línu, afa og ömm- ur og ástvini alla. Legg ég nú bæði líf og ðnd Ijúfi Jesú, í þína hðnd síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (H. Pétursson) Áslaug Sif Guðjónsdóttir Vertu sæl, vor litla, hvíta lilja, Iðgð í jörð að himnaföður vilja, leyst frá lífi nauða; ljúf og björt I dauða lézt þú eftir litla rúmið auða. Því til hans, sem bömin ungu blessar. Biðjuni hann að lesa rúnir þessar; heyrum hvað hann kenndi: „Hér þótt lífið endi, rís það upp í Drottins dýrðarhendi." Vertu sæl, vor litla ljúfan blíða, lof sé Guði, búin ertu að stríða. Upp til sælu sala saklaust bam, án dvaia. Lærðu ung við engla Guðs að tala. (Matth. Jochumsson) í dag, 7. nóvember, er kvaddur hinstu kveðju að Miklabæ í Skaga- fírði lítill drengur, Gunnar Gíslason. Þegar tæplega fjögurra ára gamall drengur er kvaddur burt úr þessum heimi er illskiljanlegur máttur þess sem öllu ræður. Um leið vaknar sú trú að slíkum sólargeisla, sem hann var, sé ætlað að lýsa á æðri slóðum. Minningin um lítinn ljúfan dreng lifír ætíð í hjörtum þeirra er urðu þess aðnjótandi að kynnast honum. Gunni litli, eins og hann var kall- aður, var einkabam hjónanna Gísla Sigurðar Gíslasonar og Karólínu Gunnarsdóttur, ættuð úr Skagafírði og frá Akureyri, nú búsett í Reykjavík. Fyrir tæpu ári kom í ljós að hann gekk ekki heill til skógar. Á þessu ári skiptust á skin og skúrir. Að- dáunarvert var að fínna hversu vel þau nutu þess að vera saman og lifa eðlilegu fjölskyldulífi allt þar til yfír lauk. t Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, JÓHANNA ÁRNADÓTTIR, Hjaltabakka 10, lóst 5. nóv. í Landspítalanum. Bryndfs Magnúsdóttir, Elísabet Magnúsdóttir, Stella Magnúsdóttir, Magnús S. Magnússon, Ingibjörg Magnúsdóttir, GuömundurJóhannsson, Baldvin Einarsson, Ragnar Svafarsson, Jóhanna F. Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Faöir okkar, ANDREAS S. J. BERGMANN, andaöist í Landakotsspítala 6. nóvember. Jón G. Bergmann, Guörún I. Schneider, Sigrún Bergmann, Carl A. Bergmann. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför HENRIKS SIGURÐSSONAR rennismiðs, Laugarásvegi 55. Kristfn Henriksdóttir, Helga Siguröardóttir, Súsanna Sigurðardóttir, Ingunn Sigurðardóttir, Egill V. Slgurðsson, Baldvin Garðarsson Sigurður Egiisson. Guttormur P. Einarsson, Matthfas Pálmason, Hafdfs Sveinsdóttlr, og systkinabörn. Við samstarfskonur Línu vorum svo heppnar að fá að njóta þess að hlusta á hversu mikla umhyggju hún bar fyrir drengnum sínum hvemig sem á stóð. Elsku Lína og Gísli, með þessum fáu orðum sendum við ykkur okkar dýpstu samúðarkveðjur og öllum þeim sem eiga um sáirt að binda — ömmur, afar og aðrir aðstandendur. Megi ykkur gefast styrkur á þessum erfíðu tímum. Bryndís og Lilja Hvítt blaðið starir á mig. Penninn neitar að hlýða. Eitthvað hefur brostið innan í mér. Hann, sem lék sér á gólfínu hjá mér, með brosið í bláu augunum sínum, er horfínn og þó vantaði hann bara mánuð til að fylla fjórða árið. Á stundum er forsjónin svo mis- kunnarlaus að manni liggur við lömun. Ungur drenghnokki, sem ekkert hafði sér til sakar unnið annað en að kíkka örlítið í kringum sig, stíga fyrstu sporin í fallvaltri veröld, vera augasteinn pabba og mömmu, varpa birtu á hversdags- lega hluti, er horfínn sjónum. Sjúkdómurinn, sem fullorðna fólkið skelfist mest, lagði þetta unga bam að velli eftir tíu mánaða þrotlaust stríð þar sem aflsmunur- inn var svo auðsær. Engum vömum var við komið, allt reynt — en árangurslaust. Eg, sem skrái þessar línur, naut þeirra forréttinda að hafa Gunna litla bróðurson minn í gæslu nokkur síðdegi í ágúst. Raunar var það kannski hann sem var eins konar barnfóstra fyrir mig. Þó að hann væri ekki nema árinu eldri en hún Ásthildur, litla dóttir mín, leyndi sér ekki að hann, karlmaðurinn, axlaði ábyrgðina og passaði litlu frænku. Saman tifuðu þau stuttum, fráum fetum á róluvöllinn. Ég, í hægðum mínum á eftir, hugsandi um hvað lífíð væri fallegt fyrir framan mig. Þegar svo heim var komið var enginn hávaði eða gaura- gangur. Hljóðlátur en brosmildur leiðbeindi hann frænku. Sérstak- lega stendur það fast í mér á hvem hátt hann umgekkst leikföng og aðra dauða hluti af mikilli natni og alúð. Hann nostraði við leikföngin, færði til stóla og annað, sem hann réð við, allt með þeirri vandvirkni sem þeim einum er gefíð sem hljóta í vöggugjöf þann sjaldgæfa eigin- leika að gæta þess að ekkert sé illa gert. Þegar hann kvaddi okkur á daginn ljómuðu bláu stjömumar og andlitið varð eitt sólskinsbros. Sólskinið var enn í stofunni hjá mér þegar hann kom aftur næsta dag. Þannig var Gunni litli. Ég á erfítt með að hugsa til for- eldranna ungu. Vonandi færir sorgin þau nær hvort öðm, herðir böndin sem tengja þau saman. Þeg- ar fram líða stundir breytist sorg þeirra í gleði og þakklæti fyrir að hafa notið þeirrar gæfu að fylgjast með frumburðinum, þó ekki væri nema i tæp fjögur ár. Fari Gunni frændi í friði. Gullý Hann kom til mín eins og Iítið ljós haustið ^ 1985, þá tæplega tveggja ára. Ég var að hefja dag- mömmustarfíð og hann var fyrsta bamið mitt. Við fengum að vera saman tvö ein fyrstu tíu dagana og það vom góðir dagar. Brosandi kom hann í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.