Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 38
pp 38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987 Ríkið yfirtók 8.400 milljón króna orkuskuldír: Greiðslubyrði 1.900 milljónir króna 1988 Greiðslubyrðin samsvarar 20% af tekjuskatti einstaklinga Hækka þyrfti raforkuverð um fimmt- ung til að bera uppi þessi lán Hrein yfirtaka ríkissjóðs á skuldbindingum orkufyrirtækja nemur 8.400 milljónum króna á verðlagi í september þessa árs. Greiðslubyrði ríkissjóðs af þess- um skuldbindingum nemur 1.900 milljónum króna. Allar þessar yfirtökur ríkissjóðs af orkugeir- anum fela það í sér að „raforku- verðið í landinu endurspeglar engan veginn þann kostnað sem liggur að baki þess. Með öðrum orðum: raforkuverðið i landinu er falsað, þykir þó mörgum það nógu hátt“, sagði fjármálaráð- herra í fjárlagaræðu. Yfirtaká ríkisins á skuldum_ orkufyrirtækja sl. fimm ár er að meginhluta vegna: byggðalína, Fjármala- ráðherra: Kanna þarf hvort þró- unaraðstoð okkar er á réttri braut Vonir um verk- efni hafa algjör- lega brugðist „Á sinum tíma lét ríkið smiða skip til þróunaraðstoð- ar og greiddi smfðakostnað þess. Þá bundu menn vonir við að það framtak mundi færa okkur margföld verk- efni i skipasmiðum og upp- byggingu á fiskveiðiaðstöðu í þróunarlöndum. Þetta brást algjörlega". - Þannig komst Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra að orði í fjárlagaræðu sinni. Ráðherra taldi nauðsyn á þvi að stjórn- völd „láti fara fram á því skoðun, hvort okkar þróunar- aðstoð, þótt lítil sé, sé á réttri braut“. Ráðherra sagði okkur hafa nokkra skuldbindingu við íbúa Grænhöfðaeyja og nokkurra annarra Afríkuríkju. Þrátt fyrir það væri það skoðun sín, að kanna þurfi, í ljós tiltækrar reynslu, hvort þróunaraðstoð okkar væri á réttri braut. Orð- rétt sagði fjármálaráðherra: „Sé litið til nálægra landa þá er þróunaraðstoð við fátækar þjóðir ekki aðeins syndakvittun þess, sem betur er settur í lífsbaráttunni, heldur felst einn- ig í henni markviss markaðs- setning á framleiðsluvörum og þekkingu". Samkvæmt samþykkt Alþing- is ber að stefna að því veija 0,7% landsframleiðslu í þróunarað- stoð. Fjármálaráðherra sagði að full efnd þessarar samþykktar, sem stefna hafí átt að í áföng- um, kalli á hart nær 1.700 m.kr. í fjárlagafrumvarpinu „hefur utanríkisráðherra talið að fíokka megi undir þróunaraðstoð 71 m.k.r. Þetta er athyglsivert fyrir ýmsar sakir en þó fyrst og fremst það hvað ályktanir Al- þingis geta verið erfíðar þegar að framkvæmdinni kemur“, sagði fjármálaráðherra. Kröfluvirkjunar og Rafmagnsveitna ríkisins. Einnig hafa verið yfírtekn- ar skuldir af Orkubúi Vest§arða, Hitaveitu Akraness og Borgarfjarð- ar, Hitaveitu Akureyrar og Rafveitu Siglufjarðar. Frá ársbyijun 1983 til ársloka 1986 þurfti ríkissjóður, að sögn fjármálaráðherra, að greiða um 3.000 milljónir króna í vexti og afborganir af þessum lánum. A þessu ári nema greiðslumar 1.800 m.k. A næsta ári 1.900 m.kr. „Væri greiðslubyrði ríkissjóðs 1,9 milljörð- um króna lægri", sagði ráðherra, „hefði mátt lækka tekjuskatt ein- staklinga um rúm 20%“. „Ef orkugeiranum yrði afhent skuldasúpan, 8.400 m.kr. frá næstu áramótum, vextir væru 6,5% og lánstími 20 ár, sem má ætla að sé um það bil meðaltími mannvirkj- anna, þyrti að hækka gjaldskrá almennrar raforkunotkunar um fímmtung til að bera um þessi lán“, sagði ráðherra ennfremur. Svipmyndir frá Alþin Morgunblaðið/ól.K.M. Ný andlit Nýir þingmenn hlusta grannt á fjárlagaræðu Jóns Baldvins Hannibalssonar, fjármálaráðherra: Ellert Eiríksson (S/Rn), Málm- fríður Sigurðardóttir (Kvl/Nl.e.), Pétur Bjamason (F/Al), Guðmundur G. Þórarinsson (F/Rvk) og Kristín Einarsdóttir (Kvl/ Rvk). í fremri röð: Karvel Pálmason (A/Vf). A þingpalii Meðal áheyrenda á þingpalli þegar fjármálaráðherra hélt sína fyrstu fjárlagaræðu var Bryndís Schram, eiginkona ráðherrans. Staðgreiðsla skatta: Milliþinganefnd skil- ar áliti í næstu viku Tillaga um persónuafslátt 183. þús. á ári FJÁRMÁLARAÐHERRA ráð- gerir að leggja fljótlega fyrir Alþingi frumvarp til breytinga á lögum um staðgreiðslukerfi skatta. Milliþinganefnd hefur undanfarið starfað að athugun á lögunum og mun hún væntanlega skila áliti sínu í næstu viku. Að sögn Kjartans Jóhannssonar, formanns nefndarinnar, þarf persónuafsláttur að vera 183. þús. ári, samkvæmt útreikning- um nefndarinnar, ef skattbyrði á ekki að hækka. í milliþinganefndinni eiga sæti fulltrúar allra þingflokka og ASÍ ogVSÍ. Annarsvegar mun hún gera tillögur um tæknilegar breytingar á frumvarpinu en einnig mat á því hvemig þetta kerfí þarf að líta út til að uppfyllt séu fyrirheit um að kerfisbreytingin leiði ekki til skatta- hækkana. „Að því er varðar tæknilegar breytingar eru þær af margvíslegu tagi," sagði Kjartan Jóhannsson, formaður nefndarinnar í samtali við Morgunblaðið. „Við gerum ráð fyrir að barnabætur verði fyrirfram- greiddar ársfjórðungslega og í fyrsta skitpi í janúar. Einnig að námsmenn fái sérstök námsmanna- kort sem gefí þeim rúmlega tvöfald- an persónuafslátt á mánuði yfir þriggja mánaða tímabil. Skólafólk sleppur því við að borga skatta ef miðað er við að þau hafi einungis sumartekjur. Heimildir varðandi millifærslu persónufrádráttar milli hjóna eru líka rýmkaðar þannig að hann nýtist betur ef annað hjón- anna vinnur fyrir litlum tekjum. Svo má nefna að tillaga er um að sjó- mannaafsláttur nýtist á móti staðgreiðslu þannig að hann lækki staðgreiðslu jafnóðum. Þessi og margvísleg önnur smærri atriði mun nefndin leggja til.. Við höfum einnig reynt að fóta okkur á því hver skattstiginn eigi að vera, miðað við áform um að skattbyrði aukist ekki. Eins og stað- an er nú og miðað er við sömu prósentutölur og í frumvarpinu gæti persónuafsláttur verið í kring- um 183 þús. á ári. Það þýðir að einhleypingur verður með 44 þús. kronur á mánuði skattlausar. Hjón sem bæði afla fullra tekna verða með 88. þús. krónur samatals á mánuði í persónuafslátt. Einnig reiknast okkur til að barnabætur fyrir fyrsta bam verði 15.525 krón- ur og fyrir annað bam 23.250 krónur." Hert útlánastýring: Fjármálaráðheira boðar ráðstafanir Viðskiptaráðherra: reglur um lausafjárstöðu og samn- ingar um skuldabréfakaup af ríkinu Innlán minnkuðu nokkuð en útlán jukust mikið í október „Áætlanir benda til þess að lausafjárstaða bankakerfísins muni batna í upphafi næsta árs“, sagði Jón Baldvin Hannibalsson í fjár- lagaræðu, „og verða gerðar ráðstaf- anir fyrir þann tíma til að tryggja hóflega þróun í útlánastarfsemi bankanna á því ári“. Jón Sigurðsson, ráðherra banka- mála, var spurður í framhaldi af framangreindum ummælum fjár- málaráðherra, hverskonar ráðstaf- anir væri fyrirhugaðar. Hann svaraði efnislega: Þetta er Seðlabankans svið, þó að við fylgjumst grannt með, sem erum á ríkisstjómarvettvangi. Það sem menn sjá fyrir eru breytingar nánast tæknilegs eðlis þegar bundið fé og vextir losna í byijun næsta árs. Nauðsynlegt er að búa sig undir það fyrir fram að hamla gegn aukningu lána, sem kynni að fylgja í kjölfarið. Seðlabankinn lítur og þennan veg á málið. Þetta er að sjálfsögðu háð þvf sem er að öðru leyti að gerast í útlánum bankanna. Niðurstöðutölur innlána og út- lána síðast liðinn mánuð vekja þó óneitanlega nokkum ugg. Heildar- innlán í innlánsstofnanir lækkuðu í októbermánuði um 0,5%, en útlán þeirra jukust um 3,5%. Lausafjár- staða bankanna hefur versnað ört að undanförnu. Við því var búizt, m.a. vegna þess, að ríkissjóður hef- ur verið að bæta sína stöðu með sölu skuldabréfa á kostnað innlána. Þetta gerðist síðar en sneggra en vonir stóðu til. en verður væntan- lega til þess að draga úr útlána- starfsemi bankanna, vegna reglna sem gilda um lausafjárstöðu þeirra. Varðandi ráðstafanir, sem drepið er á í Ijárlagaræðu, er fyrst að geta reglna um launsafjárhlutfall, sem Seðlabankinn ákveður, og þá samkomulag, sem leitað verður eft- ir við lánastofnanir um að kaupa ríkisskuldabréf af ýmsu tagi. Ef fijálst samkomulag hér um gefur ekki tilætlaða raun verður Seðla- bankinn að hugleiða, hvaða öðmm ráðum hann beitir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.