Morgunblaðið - 07.11.1987, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987
11
GAMLI MIÐRÆRINN
VELKOMIN TIL VIÐSKIPTA
IMIÐBÆNUM
GLERAUGNAVERSLANIR
AUSTURSTRÆTI 20
Gleraugnamiðstöðin
LAUGAVEGI 24
LINSAN
AÐALSTRÆTI 9
OPTIKsf.
LÆKJARTORGI
FÓKUS
LÆKJARGÖTU 6B
LJÓSMYNDAVÖRUR-FRAMKÖLLUN
FRAMKÖLLUN
m iiwiimi
■ w* wm
LÆKJARGÖTU 2
HANS PETEKSEN HF
fyli
AUSTURSTRÆTI 3
OPIÐ
í DAG
GAMLI
MIÐBÆRINN
Fyrir skömmu flutti einn af kaupmönnunum í miðborginni
erindi í útvarp þar sem hann gerði m.a. að umræðuefni
stöðu miðborgarinnar. Hann sagði í erindi sínu:
„Hér láta sumir sem svo, að miðborg sé á fleiri en einum
stað í sama borgarsamfélagi. Ég vil fullyrða, að sú kenn-
ing stenst ekki í raun. Miðborg er einskonar hjarta
borgarinnar. Hún á að vera svo úr garði gerð, að þegnar
í landinu líti með stolti til þess, sem þar fer fram svo og
bygginga, mannvirkja og annars sem þar er til nytsemda
og prýði.
Mér hefur orðið tíðrætt um miðborgina okkar. Ég er þess
fullviss, að það er mörgum metnaðarmál að vörn verði
snúið í sókn til að efla og styrkja hvaðeina, sem þar horfir
til framfara. Þess sjást nú merki svo sem með endur-
byggingu Laugavegarins. Þótt menn byggi hús í mýrum
og móum i borgarlandinu, flytja þeir ekki miðborgina á
þá staði. Hún er og verður á sínum stað. Guði sé lof
mætti kannski bæta við.“
Undir þessi orð má taka. Samtökin Gamli miðbærinn hafa
unnið ötullega að hag og reisn miðborgarinnar. Nokkur
árangur hefur náðst en áfram skal haldið og ástæða er
til að hvetja menn til þess að standa saman. Baráttan er
rétt hafin.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur samtakanna Gamli miðbærinn verður haldinn
fimmtudaginn 12. nóv. kl. 20.30 á Hótel Borg. Félagar eru
hvattir til að fjölmenna og taka fullan þátt í starfi félagsins.
UPPL ÝSINGAMIÐS TÖÐ
GULU LÍNUNNAR
Á LÆKJARTORGI
Undanfarnar vikur hefur Turninn á Lækjartorgi verið til
hálfgerðra vandræða. Frá því að upplýsingamiðstöð ferða-
mála flutti í Ingólfsstræti hefurTurninn staðið auður að
mestu. Það er því mikið ánægjuefni að frétta, að hann
hefur fengið nýtt hlutverk — hlutverk, sem hæfir honum
ágætlega. Þann 13. nóvemberopnar íTurninum upplýs-
ingamiðstöð fyrirvöru og þjónustu í miðbænum.
Það er Gula línan sem verður þarna með útibú, en Gula
línan er upplýsingasími sem opnaði í sumar. Þangað getur
almenningur hringt og fengið upplýsingar um vörur og
þjónustu án þess að borga neitt fyrir. Útibúið á Lækjart-
orgi verður rekið með svipuðum hætti. Þangað getur fólk
hringt í síma 623388 og fengið upplýsingar eða litið við í
Turninum og fengið lista yfir fyrirtæki, sem selja tilteknar
vörur eða veita þjónustu í Gamla miðbænum. Þannig geta
þeir, sem ekki þekkja vel til, fengið upplýsingar um fas-
teignasölur, bílaleigur, sólbaðsstofur í miðbænum eða
upplýsingar um hverjir selji regnhlífar, mótorhjólahjálma
eða hljómplötur.
Það er vonandi að sem flestir skrái vörur sínar og þjón-
ustu hjá Gulu línunni, þannig að Turninn á Lækjartorgi
geti orðið að miðstöð og tákni fyrir þá fjölbreyttu þjón-
ustu og það ótrúlega vöruúrval, sem er að finna hjá
fyrirtækjum í miðbænum.
BANKASTRÆTI4