Morgunblaðið - 07.11.1987, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987
Er hlutverki Orku-
stofnunar að ljúka?
eftir Ásgrím
Guðmundsson
Er hlutverki Orkustofnunar að
ljúka í íslensku samfélagi?
Er íslenska þjóðin stödd á tíma-
mótum í orkumálum?
Spumingar af þessum toga vakna
nú á dðgum þegar skyndilegar breyt-
ingar eru gerðar á einni af stærstu
rannsóknar- og þjónustustofnun
þjóðarinnar undir því yfirskyni að
stofnunin hafí rannsakað meira en
góðu hófí gegnir og því sé tímabært
að staldra við. Ekki einungis á stofn-
unin að hafa sinnt rannsóknarþætti
sinum vel eða of vel heldur hefur
hún einnig unnið og grundvallað allt
það helsta sem skiptir máli fyrir
orkuöflun þjóðarinnar fram yfír alda-
mót og skal því leggjast í dvala.
Hugmyndir sem eru undirrót breyt-
inga af þessu tagi leiða hugann aftur
til miðalda og þess hugsunarháttar
er þá ríkti. Pramfarir áttu erfítt upp-
dráttar vegna afturhaldsafla, afla
sem í raun tóku fyrst og fremst mið
af því að allt sem skipti máli væri
þá þegar komið fram á sjónarsviðið
og annað skyldi tortiyggja af alefli
undir handleiðslu guðdómlegrar fyr-
irhyggju. Nú koma inn uppfærð
slagorð eins og báknið burt án nokk-
urra frekari skýringa. Báknið er
almennt skilið sem allt það sem ríkið
stendur straum af kostnaði við. Úr
röðum slíkra hugsjónamanna koma
síðan ráðamenn, sem verða að koma
á móts við skoðanir stuðningsmanna
sinna. Fullvíst má segja að nýskipuð
ríkissljóm hefli feril sinn á eftir-
minnilegan hátt. Höggvið er í
Orkustofnun og hún særð eða ef til
vill deydd, en síðar á að koma í ljós
hversu hátt var reitt til höggs. Nokk-
uð minnir þetta á aðferðir „villta
vestursins“, skjóta fyrst og spyija
svo.
Niðurskurður
Allt þetta umstang eins og niður-
skurður ríkisstofnana á flárlögum
undir kjörorðinu „bætt aðhald í ríkis-
rekstri" kemur manni til að velta því
fyrir sér hvort ríkisfyrirtæki séu ein-
faldlega baggi á þjóðfélaginu sem
losna þurfti við eða hvort þetta séu
fyrirtæki sem raka til sín fjármunum
sem einkaaðilar eru betur settir með.
Eitt er þó fullvíst að ríkisfyrirtæki
geta verið misvel rekin eins og fyrir-
tæki einkamarkaðarins. Orkustofnun
hefur hingað til ekki þurft á auka-
fjárveitingum að halda til þess að
endar næðu saman, samt hefur
stofnunin verið einkar vinsæl í allri
endurskoðun sl. 10 ár vegna stærðar
sinnar.
Lftið hefur borið á jákvæðri um-
sögn um Orkustofíiun eftir velheppn-
aðar rannsóknir og framkvæmdir í
framhaldi af þeim. Algengast hefur
verið að geta þeirra verktaka sem
vinna verkin svo sem borfyrirtækja
en þess svona getið neðanmáls að
Orkustofnun hafi verið umsjónarað-
ili. Samt hafa sem betur fer verið
undantekningar á þessu. Dæmi sem
lítið er hampað á opinberum vett-
vangi eru t.d. sá gjaldeyrisspamaður
sem innlendir orkugjafar leiða af sér
og víðast hvar hefur orðið mikill
spamaður að ógleymdum þægindum
notandans. Fjárveiting Orkustofnun-
ar í ár er 158 milljónir, en það
samsvarar innflutningsverðmæti
9.700 tonna af gasolíu. Það aftur á
móti er jafnvirði borholu sem gefur
af sér 50 1/s af 80 gráðu heitu vatni.
Allt þetta teljast léttvæg rök í ljósi
þess að landið er yfirfljótandi í orku
og því er ekki hægt að auka frekar
við spamað á þennan hátt. Þá ber
að benda á að jarðhiti er ekki ótæm-
andi orkulind og eftirlit og viðhald
jarðhitasvæða er mikilvægt ef
tryggja á notendum orku á sem hag-
kvæmastan máta.
Hlutverk
Veit almenningur hvað Oikustofn-
un er og hvert hlutverk hennar er.
Almennt er nokkur mglingur á
starfssviði Orkustofnunar, Lands-
virkjunar, Rafmagnsveitna ríkisins
o.fl. enda ekki óeðlilegt, þar sem
nöfn stofnananna gefa til kynna svip-
að starfssvið. Hvað Orkustofnun
varðar er nærtækast að skýra starfs-
svið hennar með tilvitnun í landslög.
Þar eru sérstök „Orkulög" í 11 köfl-
um og á níunda tug greina. Þau tóku
gildi 1967 og gilda enn með áorðnum
breytingum. I fyrsta kafla laganna
í 2. gr. segir orðrétt:
„Hlutverk Orkustofnunar er:
1. Að vera ríkisstjóminni til ráðu-
neytis um orkumál.
2. Að annast:
Yfírlitsrannsóknir á orkulindum
landsins, eðli þeirra og skilyrðum
til hagnýtingar þeirra; yfírlits-
rannsóknir í orkubúskap þjóðar-
innar, er miði að því, að unnt sé
að tryggja, að orkuþörf þjóðarinn-
ar sé fullnægt og orkulindir
landsins hagnýttar á sem hag-
kvæmastan hátt á hveijum tíma;
aðrar rannsóknir á sviði orku-
mála, eftir því sem tilefni gefast,
og ef við á gegn greiðslu; (hagnýt-
Ásgrímur Guðmundsson
ar jarðfræðilegar kannanir, m.a.
vegna neysluvatnsleitar og, ef við
á gegn greiðslu).
3. Að halda skrá um orkulindir
landsins. Skulu tilgreindar í
skránni allar þær upplýsingar,
sem máli skipta, eins og þær eru
best vitaðar á hveijum tíma.
4. Að vinna að áætlanagerð til langs
tíma um orkubúskap þjóðarinnar
og hagnýtingu orkulinda landsins.
Um þetta skal Orkustofnun hafa
samvinnu við aðrar ríkisstofnanir
og aðila, sem vinna að áætlana-
gerð til langs tíma.
5. Að safna skýrslum um orku-
vinnslu, orkuinnflutning og út-
flutning og um orkunotkun
þjóðarinnar, vinna úr þeim og
gefa út. Að semja ár hvert og
gefa út yfírlit um rekstur orku-
mannvirkja og um orkumál
landsins í heild.
6. Að fylgjast í umboði ráðherra með
rekstri rafmagnsveitna, hita-
veitna, orkuvera, jarðhitasvæða
og annarra meiri háttar orku-
mannvirkja.
7. Að stuðla að samvinnu allra aðila,
sem að orkumálum starfa, og
vinna að samræmingu í rannsókn-
um, framkvæmdum og rekstri á
sviði orkumála.
8. Að hafa af hálfu ríkisins yfírum-
sjón með eftirliti með raforku-
virkjum og jarðhitavirkjum til
vamar hættu og tjóni af þeim.
9. Að hafa umsjón með öllum
fallvötnum og jarðhitasvæðum í
eigu ríkisins, halda skrá yfir þau
með greinargerð fyrir skilyrðum
til hagnýtingar þeirra, eins og
best er vitað á hveijum tíma, og
láta ríkisstjóminni í té vitneskju
um þetta.
Ráðherra kveður með reglugerð
nánar á um hlutverk og starfs-
hætti Orkustofnunar, þar á meðal
skiptingu hennar í deildir, að
fengnum tillögum stofnunarinn-
ar.“
Hér er hlutverk stofnunarinnar
tíundað en ekki getið frekar um aðr-
ar skuldbindingar, sem nánar er
kveðið á um í lagabákninu.
Að ofansögðu er hlutverk Orku-
stofnunar greinilega stórt, en hefur
hún sinnt því fram til þessa eins og
kveðið er á um í lögunum? Ömggt
er að fullyrða að svo er ekki, enda
hefur stofíiunin ekki verið fjármögn-
uð né mönnuð til að svo megi vera.
Einföld regla gildir í úthlutun §ár-
muna til ríkisfyrirtækja, þ.e. fjárlög
eru öllum öðrum lagaskuldbinding-
um ríkisfyrirtækja fremri. Það segir
með öðrum orðum að stjómmála-
menn eru gjörsamlega ábyrgðarlaus-
ir í öllum samþykktum um
lögbundnar flárveitingar til handa
opinbemm stofnunum sem og öðmm.
Það era í raun tillögur fjárlaga- og
hagsýslustofnunar að undirlagi fjár-
málaráðherra sem skammta ríkis-
fyrirtækjum lífsviðurværi. Því er út
í hött að búast við að áætlunargerð
geti orðið virk, ef skerðingar á fjár-
lögum til stofnana geti verið árvissir
atburðir og háðar tilviljunarkenndum
mannabretingum á æðstu stöðum.
Áætlanir geta náð til eins árs í senn
með sæmilegu öryggi, annað er ósk-
hyggja. Enda er ekki út í hött þegar
ný ríkisstjóm tekur við völdum að
spurt sé. Hver er hugur nýja ráð-
herrans til okkar?
Orkuveisla
Því hefur verið haldið fram að
mikill samdráttur í orkuöflunarrann-
sóknum sé höfuðorsök þess að draga
þurfi úr starfsemi Orkustofnunar og
bent á um leið að orkuöflun hafí
verið óhófleg og ómarkviss. Ekki
aðeins að vatnsaflsvirlqanir hafí
óvart verið fleiri og stærri en gott
þykir heldur tók „löggilt" vandræða-
bam þjóðarinnar, Kröfluvirkjun, að
framleiða rafmagn með fullum af-
köstum mörgum til ama. Neikvæðar
umsagnir „eftir vitringa" hljómuðu
gjaman í þeim dúr að orkuveislunni
miklu væri lokið og þjóðin sæti nu
eftir með timburmennina. Ef orku-
veislunni miklu er lokið, þá ber að
skoða hver efndi til hennar og hver
var veislustjóri. Lengi má leita, enda
vandfundið. Veislan endaði í sukki
og enginn man neitt. Þrátt fyrir það
hljóta að vera ábyrgðarmenn og
þægilegast er að vísa til einhvers
fyrrverandi ráðherra í einhverri fyrr-
verandi ríkisstjóm. Fyrrverandi
ráðhermm verður ekki skotaskuld
úr að losa sig út úr vandræðum sem
þessum. Þeir einfaldlega treystu
sínum ráðgjöfum í blindni og létu
þá leiða sig á villigötur og vegurinn
til baka reyndist vandrataður. En var
orkuveislan í öllu falli neikvæð? Alls
ekki. Rannsóknarstarfsemin leiddi
af sér marga hæfa aðila í vatnsafls-
og jarðhitafræðum. Þegar kom að
framkvæmdaþættinum í beinu fram-
haldi af rannsóknunum var fyrst og
fremst leitað eftir þeirri sérþekkingu
sem áunnist hafði í tengslum við
rannsóknarvinnuna. Það leiddi af sér
þær vafasömu breytingar innan
Orkustofnunar að útseld vinna jókst
til muna og dró að sama skapi úr
viðhaldi og þróun fagþekkingar.
Fljótlega áttuðu fjárlagasmiðir fyrr-
verandi ríkisstjóma sig á auknum
sértekjum stoftiunarinnar og gátu
því glaðbeittir minnkað fjárveitingn
Orkustofnunar á fjárlögum í hlut-
falli við það. Þegar núverandi ríkis-
stjóm tekur við þá er leiknum haldið
áfram, fjárveiting minnkar enn og
það sem verra er, sértekjur em áætl-
aðar þó enginn fótur sé fyrir hluta
þeirra.
Uppsagnir
Ekki er beinlínis hægt að ætlast
til að stjómendur stofnunarinnar
hafí séð þessa þróun fyrir við fall
síðustu ríkisstjómar. En það andaði
greinilega köldu í garð Orkustofnun-
ar og henni líklega ætluð þau mistök,
sem urðu hjá stjómendum í sölu og
framleiðslumálum raforkunnar fyrst
og fremst. Framhaldið er nú vel
þekkt. Hvort kenna megi um fyrir-
hyggjuleysi stjómenda stofnunarinn-
ar eða langvarandi undirróðri
gagnvart Orkustofnun skal látið
kyrrt liggja, en afleiðingin af skyndi-
legum niðurskurði kemur fram í
uppsögnum 20—30 starfsmanna.
Spumingin verður æ áleitnari: Hvers
vegna núna? Af hveiju ekki gera
þetta skipulega eins og sæmir innan
vel rekinna fyrirtækja og þá leggja
niður einhvem hluta af starfsemi
frekar en að lama stóran hluta?
Orkustofnun á eftir að súpa seyð-
ið af þessum ráðstöfunum í náinni
framtíð ef ekki næst til þeirrar sér-
þekkingar sem fer með þeim brott-
reknu. Tíðrætt er í þjóðfélagsum-
ræðu hve gífurlegur kostnaður fer í
menntakerfið. Svarið við því er ein-
falt og sígilt. Lagt hefur verið út í
dýra flárfestingu sem kemur ömgg-
iega til með að skila arði þegar
viðkomandi koma út í atvinnulífið.
Þegar út í atvinnulífíð er komið byij-
ar sérhæfíng á því sviði er menntunin
náði til. Þegar hér er komið sögu er
ljóst að fjárfestingin er mikil og því
þarf að leggja fram vel gmndaðar
hugmyndir áður en ákvarðanir eins
og hópuppsagnir á Orkustofnun em
teknar. Uppsagnir mjög sérhæfðs
vinnuafls jafngilda afskriftum á fjár-
festingu sem hefur misfarist. Starfs-
mennimir em flestir hveijir tilbúnir
að gegna öðmm störfum úti í þjóð-
félaginu, en þykir samt sem áður
sárt að sjá að sú vinna sem þeir
hafa innt af hendi á bestu starfsámm
ævi sinnar er ekki virt meira en
þetta. Ennfremur er það umhugsun-
arefni fyrir ríkið hvort það geti talið
siðferðislega réttlætanlegt að sparka
fólki sem hefur látið af hendi rakna
áratuga vinnu, þ.e. besta hluta starf-
sævinnar, og er komið á efri ár og
á ekki greiða leið inn vinnumarkað-
inn á ný.
Hvað svo? Við höldum áfram og
menntum einhveija aðra og sér-
hæfum þá og síðan endurtekur sagan
sig. Ekki mátt þú, lesandi góður,
gleyma því sem er mikilvægast hjá
hveiju fýrirtæki, hvort það er ríkis-
rekið eður ei, að enginn er ómissandi,
ekki einu sinni þú.
Höfundur erjarðfræðingur &
Orkuatofnun.
ULTRA
GLOSS
\ Ekkert venjulegt bílabón
uTT^|heldurglerhörð lakkbrynja!
VEIST
ÞÚ
MUNINN?
„Glerungur“, ekki vax.
ULTRA GLOSS er hvorki vax, harp-
is né silikon. Það flokkast undir
bóngljáa, sem á ensku kallast
„paint sealant". í bókstaflegri þýð-
ingu merkir orðið „lakk þéttiT',
sem við höfum islenskaö I „lakk-
brynju". Yfirborð lakksins er hrein-
lega innsiglað gegn utanaðkom-
andi veðrunaráhrifum og óþrifum.
Þó tilgangurinn sé augljós, þá er
þetta meira spurning um endingu.
Til eru 3 tegundir af „paint seal-
ants“, þ.e. grunnefnið getur verið:
plast, teflon eða gler. í ULTRA
GLOSS er glergrunnur, sem trygg-
ir bæði styrkleika og endingu.
Sterkasta handbónið
á markaðnum.
Grunnefnið (ULTRA GLOSS heitir
„Siloxine", en það eru örþunnar
glerflögur (micro-chips), sem að-
eins verðagreindarí smásjá. Meö
flókinni aðferð, sem byggist á
blöndunarröð og breytilegu hita-
stigi, er siloxini blapdað saman
öörum efnum, sem tryggja sterka
bindingu gljáans við allar geröir
lakks. Eftir að blll hefur verið bón-
aður með ULTRA GLOSS, veröur
efnahvarf, svipað þvi þegar
tveggja þátta viðgerðarefnum er
blandaö saman. Samruninn við
lakkið tekur 12-36 tima, allt eftir
umhverfishita. Þannig • myndar
ULTRA GLOSS niðsterkan „gler-
ung“ I yfirboröi lakksins, sem ver
það fyrir salti, tjöru, útblásturs
sóti og öðrum óhreinindum.
Ending iangt umfram
hefðbundnar bóntegundir.
Erlendis ábyrgist framleiðandi, aö
ULTRA GLOSS veiti 18 mánaða
veörunarvörn. Hérlendis hafa ver-
iögeröarmargartilraunirvaröandi
þetta atriði. Niðurstöður sýna, að
I rigningu perlar vel á vélarhllf og
þaki, 8 mánuöum eftir aö bónað
var. Einnig eráberandi hve auðvelt
er að þrlfa bllinn, sem einnig er
sönnun.þess, að varnarlagiö er
enn fyrir hendi.
Þetta er I rauninni afar eðlilegt
þegar haft er I huga hvernig vörn
ULTRA GLOSS er. Ef yfirborö
lakks er skoðað I smásjá, þá er
áferö þess sviþuð hraunhellu.
Hugsum okkurað við hellum eftir-
farandi efnum — I fljótandi formi,
á3 sllkarhellur Vaxi, plasti og
gleri. Við storknun fá yfirboröin á
sig sléttaog fallegaáferð. En hvað
með endingu? Við hita bráðnar
vaxið og gufar upp, rétt eins og öll
vaxbón I sólskini. Vaxið þvæst
auk þess auðveldlega af með ollu-
eyöi. Plastió þolir hitann mun bet-
ur, en þvæst af með ollueyöi auk
þess að plast sem slfkt er ekki slit-
sterkt efni. Gleriö (ULTRA GLOSS)
þolir hitann fulikomlega, auk þess
sem það endurkastar útfjólublá-
um sólargeislum, en þeireru meg-
in orsök þess að lakk uþplitast.
Tjörueyðir vinnur ekki á glerinu,
enda er ULTRA GLOSS eini bón-
gljáinn, fáanlegur á islenskum
bensinsölum, sem þolir þvott
með tjörueyði. Þar með rætist
draumur bónara, um að glans og
glæsilegt útlit geti enst mánuð-
um saman.
Létt í notkun.
I Islenskum leiðbeiningum með
bóninu kemur fram hve létt er að
bóna með ULTRA GLOSS. Bónið
er einfaldlega borið á, látiö þorna
og slðan þurrkaó af með hreinum
klút. Hinsvegareru tvö atriði, sem
hafa ber I huga þegar bónað er. í
fyrsta lagi að hitastig sé ekki und-
ir 5 gráðum. Bónið myndi hrein:
lega ekki þorna við þann hita. í
öðru lagi, að ekki hellirigni á bll-
inn næstu 6-12 tlma. Tlminn mið-
ast viö hitastig milli 15-5 stig. Mik-
ill vatnsagi þennan tlma hefur
áhrif áendinguna. Hinsvegarskal
bent á, að hægt er að bóna með
ULTRA GLOSS, t.d. með stuttu
millibili þegar aðstæður eru hag-
stæðar, og byggja þannig upp
sterka varnarskel, sem auk þess
styrkirlakkið verulegagegn stein-
kasti. Nýtt lag bætist ofan á gam-
alt, e_f bóninu er nuddað létt á bll-
inn. í þessu sambandi skal aftur
vakin athygli á, aö bónlagið sem
fyrirerþvæst ekki af þótt bllinn sé
þveginn áður með tjörueyði. Þetta
er ekki mögulegt með neinu öðru
handbóni, og gagnast þeim vel,
sem nýta sér þjónustu þvotta-
stöðva reglulega.
Reynsla.
Eftir 3ja ára reynslu af ULTRA
GLOSS hérlendis er Ijóst, að þeir
sem notað hafa bónið, kaupa það
aftur og aftur. Þeir sem til þekkja,
vita að helsti ókostur vaxbóns er
að tjara sest auðveldlega I vaxið.
Og til að ná tjörunni af þarf siðan
tjörueyði, sem jafnframt þvær vax-
ið af. í vetrarakstri eráberandi hve
lltil tjara sest IULTRA GLOSS, auk
þess sem mjög auövelt er að ná
henni af.
Miðað við endingu er ULTRA
GLOSS með ódýrustu bílabónum
á markaðnum.
Útsölustaðir:
£sso) stöövarnar.