Morgunblaðið - 07.11.1987, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987
/
Reuter
Aðeins stefni ferjunnar stendur upp úr og sjórinn gusast meðan það
sígur í hafið. Efst á kinnungnum má sjá einn skipveija í þann mund
að stökkva í sjóinn og annar er syndir burt frá skipinu.
Bílfeijan Haram tekur inn sjó
við eyna Smala undan Mæri í
Noregi á miðvikudag. Einn skip-
veija tók myndina skömmu áður
feijan sökk. Áhöfnin og farþegar
urðu að kasta sér til sunds þegar
feijan sökk. Þyrla bjargaði þeim
öllum úr sjónum stuttu seinna.
Ferjuslys undan Mæri;
Urðu að kasta sér til
sunds þegar ferjan sökk
Osló. frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsinfl í Noregi.
NÍU manns var bjargað þegar
feijan Haram sökk á miðviku-
dagskvöld við eyna Smala undan
Mæri í Noregi. Verið var að
draga feijuna ofan af skeri.
Ekki tókst betur til en svo að hún
fylltist af sjó og sökk á skammri
stundu.
skipveijar og farþegar feijunnar
urðu að stökkva í hafið og bjarga
sér á sundi. „Við áttum ekki ann-
arra kosta völ en stökkva í ískaldan
Brazilía:
sjóinn. Ég hélt við myndum öll
drukkna og ég varð að taka á af
öllum mætti á sundinu til að sogast
ekki niður með skipinu," sagði Hák-
an Lie, skipstjóri.
Skömmu eftir að feijan sökk kom
þyrla á vettvang og bjargaði mönn-
unum níu úr sjónum.
Samkomulag við lánardrottnana
Feijan strandaði árla dags á skeri
við Smola. Tveir dráttarbátar voru
kvaddir á vettvang og drógu þeir
feijuna niður af skerinu síðdegis,
eftir að sjó hafði verið dælt úr henni.
Þegar feijan komst á flot kom (
ljós að stærðar gat var á skrokknum
því sjór fossaði inn með þeim afleið-
ingum að hún seig á hliðina og
sökk á nokkrum mínútum.
Allt gerðist þetta svo hratt að
New York, Reuter.
Brazilíustjórn og ýmsir lánar-
drottnar hennar hafa komist að
bráðabirgðasamkomulagi um að
hún taki aftur til við að greiða
vexti af lánum, sem fallin eru í
gjalddaga.
Femao Bracher, fulltrúi Brazilíu-
stjómar, og William Rhodes, fulltrúi
14 banka, sem Brazilíumenn skulda
mikið fé, segja í sameiginlegri yfir-
lýsingu, að seðlabanki Brazilíu
muni láta af hendi hálfan annan
milljarð dollara, sem vom frystir í
bankanum, gegn því, að bankamir
greiði fyrir þriggja milljarða dollara
skammtímaláni til Brazilíu. Verður
féð notað að hluta til að greiða
gjaldfallna vexti en vaxtagreiðslun-
um var hætt 20. febrúar sl.
Brazilíumenn skulda nú við-
skiptabönkum víða um heim 70
milljarða dollara.
Dublin:
Einn ræn-
ingja tann- -
læknisins
tekinn
Dublin, Reuter.
MANNRÆNINGJAR írska
tannlæknisins, John O’Brady
skáru af honum tvo köggla
á litlu fingrum beggja handa,
meðan þeir höfðu hann í
haldi, að því er tengdafaðir
læknisins dr. Austin Darragh
skýrði blaðamönnum frá í
gærmorgun. Lögreglumönn-
um tókst að frelsa O’Brady
á fimmtudaginn. Skutu lög-
reglumenn sér leið inn í húsið
eftir að hafzt hafði upp á
staðnum, þar sem tannlækn-
irinn var.
í gær tókst svo að handsama
einn af mannræningjunum fjór-
um. Hafði hann vakið grun-
semdir með atferli sínu og er
lögregla ætlaði að ná honum,
hljóp hann að nærstöddum bíl
og ruddist upp í hann. Bílstjóri
var ung hjúkrunarkona og hót-
aði ræninginn að drepa hana.
í eltingarleiknum missti svo
mannræninginn stjórn á
bílnum, svo að hann valt og
voru lögregluþjónamir þá nógu
snarir í snúningum að góma
hann.
Að sögn áðumefnds tengda-
föður Johns O’Brady, var
tannlæknirinn hafður í hand-
jámum meðan ræningjar höfðu
hann á valdi sínu. Þeir höfðu
krafizt að fá í lausnargjald fyr-
ir hann 1.5 milljón sterlings-
punda ( um 97 millj. ísl. kr.)
og fannst þeim afgreiðsla máls-
ins ekki ganga nógu greiðlega.
Því ákváðu þeir að sneiða af
fingrum hans og reyndi tann-
læknirinn að stöðva blóðrásina
með því að þrýsta hnífi að
stubbunum.
Óvíst er hvort læknirinn get-
ur nokkum tíma aftur stundað
tannlæknastörf .
■ ■I '
ERLENT .
LENGI BÝR AÐ FYRSTU GERÐ.
Dagvist barna í Reykjavík rekur 61 dagvistarheimili
víðs vegar um borgina fyrir um 4000 börn á aldrinum
6 mán — 10 ára.
Megin viðfangsefni Dagvista er að búa hinum ungu
Reykvíkingum þroskavænleg uppeldisskilyrði í öruggu
og ástríku umhverfi í leik og starfi með jafnokum.
Við erum nú þegar um 600 manns sem önnumst þessa
yngstu borgara, en til að ná ofangreindum markmiðum
þurfum við liðstyrk áhugasamra einstaklinga.
Við óskum eftir: Fóstrum, þroskaþjálfum, uppeldis
fræðingum (BA —próf eða sambærilegt), einstaklingum
sem hafa öðlast reynslu við uppeldi eigin barna,
einstaklingum sem vilja öðlast reynslu í dagvistaruppeldi
fyrir væntanlegt nám.
Allar nánari upplýsingar um störfin gefur Fanny Jónsdóttir, deildarstjóri í síma 2 72 77 alla virka daga
írá kl. 9.00 — 16.00 og í síma 2 14 96 laugardag og sunnudag frá kl. 11.00 — 15.00