Morgunblaðið - 07.11.1987, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987
pltrgp Útgefandi Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jópsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Askriftargjald 600 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 55 kr. eintakið.
70ára
byltingarafmæli
ess er minnst í Sovétríkjun-
um í dag, að 70 ár eru liðin
frá því að kommúnistar náðu
völdum í Rússlandi. Þá var lagt
upp í vegferð undir forystu Vlad-
imirs Lenin á grundvelli kenn-
inga Karls Marx með það að
markmiði að breyta öllum heim-
inum. Öreigar allra landa
sameinist, var kjörorð hins al-
þjóðlega sósíalisma. Á 70 árum
hefur ekki tekist að ná þessu
markmiði. Á hinn bóginn hefur
einræðisstjóm kommúnista í
Sovétríkjunum tekist með því að
leggja þungar byrðar á þegna
landins og ofuráherslu á þunga-
iðnað að gera hið víðfeðma ríki
að einu öflugasta herveldi mann-
kynssögunar. Hafa marxistam-
ir/leninistamir í Kreml náð þeirri
stöðu, að standa andspænis full-
trúum öflugasta'ríkis hins fijálsa
heims, Bandaríkjanna, og ræða
við þá eina um þau vopn, sem
grandað getað öllu lífí á jörðu,
kjamorkuvopnin.
í stuttu máli má segja, að það
sé hemaðarmátturinn, sem gerir
Sovétríkin að stórveldi. Aðdrátt-
arafl marxismans er ekkert. Þeir
flokkar í hinum fíjálsa heimi,
sem aðhyllast hann, eiga undir
högg að sækja. í efnahagsmálum
hafa Sovétríkin beðið skipbrot.
Þegar Mikhail Gorbaehev, full-
trúi nýrrar kynslóðar, settist í
stól aðalritara sovéska kommún-
istaflokksins í mars 1985 hafði
ríkt efnahagsleg stöðnun í Sov-
étríkjunum í 20 ár. Fyrir hann
var annað hvort að staðna líka
eða beita sér fyrir breytingum.
Tillögur hans í því efni eru ein-
kenndar með tveimur orðum
perestroika og glasnost. Vísar
hið fyrra til breytinga á stjóm
framleiðslu og efíiahagsmála og
hið síðara til meiri miðlunar á
upplýsingum til fólks.
Stefna Gorbachevs á eftir að
sanna gildi sitt. Hún hefur vakið
gífurlega athygli utan Sovétríkj-
anna. Eins og lesendur Morgun-
blaðsins sjá líður varla sá
útgáfudagur blaðsins, að ekki
séu sagðar fréttir af einhveiju,
er tengist með einum eða öðrum
hætti umbrotum í Sovétríkjun-
um. Öllum ber saman um, að orð
Gorbachevs bendi til vilja til
umbóta. Á hinn bóginn fínnst
mörgum vanta töluvert á, að
þeim sé hrundið í framkvæmd —
bilið milli orða og athafna sé enn
nokkuð breitt.
Vestrænir menn velta því
stundum fyrir sér, hvort þeir,
sem stjóma Sovétríkjunum á 70
ára afrnæli þeirra, séu marxist-
ar/leninistar; hvort þeir aðhyllist
enn heimsbyltinguna ogtelji átök
milli sín og borgarastéttanna á
heimsmælikvarða enn óhjá-
kvæmileg. Marxismanum hefur
ekki verið hafnað í Sovétríkjun-
um og nú á byltingarafmælinu
er átrúnaðurinn á Lenin jafn
mikill ef ekki meiri en áður. Til
að undirstrika hollustu sína við
flokksarfínn hefur Gorbachev
einmitt gætt þess í ræðum sínum
að skírskota jafnan til Lenins,
þegar mikið er í húfí. Og hvað
sem líður tali Kremlveija um frið
og afvopnun láta þeir þess jafnan
einhvers staðar getið, að hin
hugmyndafræðilega barátta við
hin opnu og ftjálsu þjóðfélög lýð-
ræðisríkjanna sé síður en svo úr
sögunni. Hins vegar er því ekki
hampað jafn mikið og oft áður,
að óhjákvæmilega hljóti að koma
til heimsbyltingar, eða eins og
Kínveijar voru vanir að segja,
þar til fyrir fáeinum árum, að
þrifja heimsstyijöldin væri óhjá-
kvæmileg.
Á Vesturlöndum hafa menn
síður en svo alltaf verið á einu
máli um hvaða aðferðum þeir
ættu að beita í samskiptum við
Sovétríkin. Innan Atlantshafs-
bandalagsins hefur sú stefna
verið mótuð með stuðningi ís-
lendinga, að samhliða öflugum
hervömum skuli unnið að slökun
spennu. Árangur þessarar stefnu
blasir við núna: eftir að NATO-
ríkin ákváðu að svara í sömu
mynt féllust Sovétmenn á að fjar-
lægja allar meðaldrægar eld-
flaugar. Allir andófsmenn, sem
losna undan oki Sovétstjómar-
innar og fá leyfí til að setjast að
á Vesturlöndum, eru sammála
um, að einungis vegna baráttu
manna á Vesturlöndum í þágu
mannréttinda og fyrir einstaka
fanga hafí sovésk yfírvöld lyft
slagbrandi fangelsa eða opnað
dyr geðveikrahæla.
Hér á íslandi hafa löngum
verið hörð stjómmálaátök milli
borgaralegra afla og kommún-
ista, sem hafa gengið erinda
Sovétríkjanna leynt eða ljóst. ís-
landssagan geymir marga
atburði úr þeirri byltingarsögu,
sem hófst fyrir 70 ámm, at-
burði, sem ekki mega fara hátt
fremur en ódæðisverk Stalíns.
Kommúnistar hér eins og annars
staðar í hinum fijálsa heimi eiga
undir högg að sækja. Yfírdottn-
unarstefna þeirra sést í fram-
kvæmd í Afganistan og
fátæktarríki marxismans eru
ekki lengur nein fyrirmynd. Á
hinn bóginn svífast marxistar/
leninistar einskis og þeir sleppa
ekki þeim völdum, sem þeir hafa
einu sinni náð.
Ljósmynd/Hans U. Vollertsen
Greinarhöfundur bendir á staðinn þar sem leðuraskjan með töfiunum fimm fannst.
Fimm alda g’ömul
„rissblöð“ frá Viðey
eftir Margréti
Hallgrímsdóttur
Viðeyjar er getið í ýmsum fomum
heimildum íslendinga og má þar
nefna Guðmundar sögu Arasonar
og Þorláks sögu helga. Árið 1226
var stofnað klaustur af Ágústínus-
arreglu í Viðey og starfaði það til
siðaskipta eða fram á miðja 16.
öld. Klaustrið var auðugt og er
getið um ýmsa forstöðumenn þess
í heimildum. Munkar hafa ekki ver-
ið margir hveiju sinni. ( Klaustur-
byggingin hefur sennilega verið í
líkindum við stórbýli síns tíma hvað
varðar gerð og stærð. Ekki er
minnst á íbúa í Viðey í manntalinu
sem gert var árið 1703, en á árun-
um 1753—1755 var Viðeyjarstofa
reist.
Sumarið 1987 fór fram fomleifa-
rannsókn í Viðey undir stjóm
fomleifafræðinga Árbæjarsafns.
Gerð var rannsókn norður af Við-
eyjarstofu og kirkju, þar sem
fyrirhugaðar eru byggingarfram-
kvæmdir. Við uppgröftinn kom í
ljós margt merkilegra leifa bæði
með tilliti til mannvirkja og muna.
Má þar einna helst neftia athyglis-
verðar vaxtöflur, sem fundust efst
í þykkum mannvistarlögum frá mið-
öldum.
Vaxtöflur voru notaðar í Evrópu
fyrir siðaskipti. Þetta vom þunnar
plötur úr tré, fílabeini eða málmi,
sem á var borið vax. Á vaxið var
rist letur með svokölluðum stfl.
Orðið „stíll" er komið af latneska
orðinu „stflus", þ.e. pinni, sem er
oddmjór í annan endann og breið-
ara í hinn. Var breiðari endinn
notaður til þess að slétta út eldra
letur á vaxtöflunum. Stfllinn eða
griffíllinn gat verið úr beini eða
málmi. Letrið var hægt að þurrka
út og þar af leiðandi nota töflumar
oftar en einu sinni. Á miðöldum
hafa vaxtöflur verið notaðar í dag-
legu lífí á svipaðan hátt og rissblöð
nútímans.
Vaxtöflur með varðveittu vaxi
og letri hafa mjög sjaldan fundist
á Norðurlöndum. í Svíþjóð hafa
fundist skriftartöflur frá fyrri hluta
miðalda, þar sem allt vax var horf-
ið. Við Edæsa-kirkju í Vástergöt-
landi fundust aftur á móti fímm
beykitréplötur með vaxleifum. Á
þessum töflum var vaxið að mestu
ieyti horfíð og letrið því ólæsilegt.
í Noregi fundust við stafkirkjuna í
Hopperstad í Sogni vaxtöflur með
varðveittu letri frá því um 1300. Á
„ Að lokinni viðgerð
vaxspjaldanna verður
mjög athyglisvert að fá
úr því skorið hvort
hægt verði að ráða enn
frekar fram ór inni-
haldi þessa merku
spjalda. Vaxtöflur þess-
ar eru einstæðar í sinni
röð á Norðurlöndum og
því dýrgripir miklir
fyrir íslenska menning-
arsögu.“
þessum spjöldum mátti sjá, að rist
hefur verið ofan í eldra letur. Töfl-
ur þessar voru töluvert minni en
þær, sem fundust í Viðey.
í skriflegum heimildum frá mið-
öldum er stundum minnst á vaxtöfl-
Magnús Sigsteinsson formaður SS
ræktarstjór og fleiri gestum.
Girðing um höf-
uðborgarsvæðið
FJÁRHELDRI girðingu um höf-
uðborgarsvæðið var lokað við
athöfn í Lækjarbotnum í gær.
Umlykur nú 68 kílómetra löng
fjárheld girðing höfuðborgar-
svæðið.
Framkvæmdir við girðinguna
hófust árið 1984 eftir undirbúning
Skipulagsskrifstofu höfuðborgar-
svæðisins. Fyrir hönd Sambands
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð-
inu, SSH, hafði Birgir Ámason
bæjarverkfræðingur í Hafnarfirði
yfírumsjón með verkinu, sem var
unnið af Skógrækt ríkisins undir
stjóm Kristins Skæringssonar. Alls
vora á 4 sumram reistir 36 kfló-
metrar af girðingum og fyrri
girðingar, 32 kflómetra langar, end-
urbættar.
Fjárheld girðing um höfuðborg-
ai'svæðið hefur það meðal annars í
for með sér að svæðið innan girð-
ingar er vemdað fyrir ágangi búfjár
og þar með skapast færi á aukinni
ræktun og gróðurvemd. Einnig er
nú unnt að seija samræmdar reglur
um lausagöngu búfjár innan girð-
ingar. Á vegum SSH hafa verið
samþykkt drög að slíkri reglugerð
en samþykki félagsmálaráðherra
þarf til að hún öðlist gildi. Einnig
verður nú unnt að fjarlægja gamlar
girðingar innan svæðisins og má
ætla að þær skipti tugum, jafnvel
hundraðum kflómetra.