Morgunblaðið - 07.11.1987, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987
37
Ein af vaxtöflunum fimm. Greina má letur í vaxinu.
Leðuraskjan, sem vaxtöflumar fundust í. Sjá má laufamunstur á lokinu.
ur og skriffæri, m.a. í sænskum
erfðaskrám frá 14. öld. í biskupa-
sögum kemur fram að íslenski
biskupinn Laurentius Kálfsson, sem
uppi var um aldamótin 1300, hafi
notað vaxspjöld.
Vaxtöflumar sem fundust í Viðey
vom fímm talsins. Þær fundust í
leðurhylki með laufamunstri og em
um 9x5 sm á stærð. Á vaxið var
ristur texti með stfl. Að sögn sér-
fræðinga, sem hafa umsjón með
viðgerð vaxspjaldanna, var áfastur
jámkökkur á leðurhylkinu, sem
mögulega em leifar af stfl. Undir
letrinu, sem varðveitt var á vaxtöfl-
unum, mátti greina leifar af eldra
letri. Handritafræðingar við Áma-
stofnun hafa athugað letrið og
hefur þeim tekist út frá stafsetn-
ingu og leturgerð að tímasetja það
til tímabilsins 1450—1600. Þar sem
viðgerð á töflunum er skammt á
veg komin, hefur aðeins verið ráðið
í hluta af letrinu sem varðveitt var.
Tekist hefur að lesa einstök orð,
en ekki hefur fengist samhengi í
textann enn. Út frá þeim orðum
sem greind hafa verið á einni töfl-
unni er hugsanlegt að þar sé um
að ræða uppkast af sendibréfi og
er líklegasti ritunartími fyrri hluta
16. aldar. Þetta þýðir að á töflum-
ar hefur verið rist fyrir siðaskipti,
eða þegar klaustrið í Viðey var enn
við lýði.
í íslenskum heimildum er getið
um vax eða vaxspjöld á nokkmm
stöðum, m.a. í Sturlunga sögu. At-
hyglisvert er að í Guðmundar sögu
Arasonar er minnst á vax í frásögn-
inni um dauða Ingimundar prests.
Svo bar til að Ingimundur prestur
var á leið frá Noregi til íslands er
skip hans hraktist til Grænlands
og segir svo: „En þat varð svá víst,
að átján vetmm síðar þá fannst
skip þeira í óbyggðum, ok þá fund-
ust menn sjau í einum hellisskúta.
Þar var Ingimundur prestr. Hann
var heill ok ófúinn ok svá klæði
hans, en sex manna bein vám þar
hjá honum ok vax ok rúnar þær,
er sögðu atburð lífláts þeira."
Að lokinni viðgerð vaxspjaldanna
verður mjög athyglisvert að fá úr
því skorið hvort hægt verði að ráða
enn frekar fram úr innihaldi þessa
merku spjalda. Vaxtöflur þessar em
einstæðar í sinni röð á Norðurlönd-
um og því dýrgripir miklir fyrir
íslenska menningarsögu.
Höfundur er fomJeifafræðingur
og safn vörður við Árbæjarsafn.
Morgunblaflið/Ámi Sæberg
H lokar girðingunni i gær að viðstöddum stjóraarmönnum í SSH, skóg-
AF ERLENDUM VETTVANGI
EFTIR VLADIMIR BUKOVSKY
Gorbachev dylur lyg-
arnar með „glasnost“
ÞAÐ nægir ekki að bjóða sov-
ésku fólki „perestroika" (upp-
stokkun) og „glasnost“ til að
það fái aftur traust á leiðtogun-
um. Gagnstætt því sem margir
í vestri halda var það ekki
Gorbachev sem fann upp „glas-
nost“ - hann fékk það lánað hjá
mannréttindahreyfingum í
Sovétríkjunum. Við vorum send
i fangelsi og á geðveikrahæli
fyrir að vera opinská eða krefj-
ast „glasnost*1.
Ég var settur í fangelsi árið
1971 fyrir að stunda „glasnost"
með því að afhjúpa að andlega
heilbrigt fólk væri sett á geð-
veikrahæli. Það fylgir því undar-
leg tilfinning að sjá gömlu
fangaverðina látast vera miklir
frumkvöðlar „glasnost“; jafnvel
enn undarlegra að heyra hvemig
vestrænir leiðtogar lofa hugrekki
þeirra.
Fram til þessa hefur Gorbachev
ekki sýnt þeim félögum okkar sem
nú sitja í fangelsi mikið þakklæti
fyrir að hvetja til „glasnost" í
sovésku samfélagi.
Kannski hefur hann rétt fyrir
sér að einu leyti: það „glasnost"
sem við boðuðum á lítið sameigin-
legt með hans „glasnost". Við
vildum afhjúpa lygar; hann vill
dylja þær.
Ándófsmennimir 170 sem hann
„náðaði" fyrr á þessu ári vom
aðeins brot þess fjölda sem sat
inni og þeir fengu felsið eftir langt
þref og þrýsting.
Gorbachev lítur á þetta sem
makk við Vesturlönd. Hann er
búinn að afhenda vömna og býst
nú við að fá sitt tii baka.
Sannleikurinn er sá að
Gorbachev hefur ekki áhuga á
breytingum á kerfínu; hann vill
bjarga því ásamt með eigin skinni.
I Sovétríkjunum er þetta ekki
kallað hugrekki.
Gorbachev skilgreindi aðsteðj-
andi vanda í Sovétríkjunum í
jómfrúrræðu sinni á miðstjómar-
fundi í apríl árið 1985. Þar kom
fram að það var ekki umhyggja
fyrir velferð fólksins sem gerði
„róttækar breytingar" nauðsyn-
legar heldur „örlög landsins," eins
og hann orðaði það. „Staða sósíal-
ismans í heiminum mun að miklu
leyti ráðast af stefnunni sem við
tökum nú ... Það er einfaldlega
engin önnur leið“ (Pravda, 24.
aprfl, 1985).
„Glasnost" er örvænt-
ingarfull tilraun
Með öðmm orðum, minni fram-
leiðni og almenn slæm staða
sovésks efnahags ógnaði stöðu
sósíalismans. Sovétríkin geta
hreinlega ekki haldið áfram hem-
aðarlegri samkeppni við Vesturl-
önd og varið landamæri sín hvað
þá fært þau út.
Ef hnignunin heldur áfram þá
verður innan fárra ára ómögulegt
að veita Kúbu, Víetnam, Angólu
og Nicaragua fjárhagslegan
stuðning. Nokkur ár enn og Sov-
étríkin gætu glatað stöðu sinni
sem risaveldi og hemaðarlegt
stórveldi.
„Perestroika" og „glasnost"
Gorbachevs em örvæntingarfullar
tilraunir til að fylkja þjóðinni bak
Sovéski andófsmaðurinn Vlad-
imir Bukovsky.
við sósíalismann en hún er treg
til. En hann veit líka að enginn
árangur mun nást án umfangs-
mikillar aðstoðar vestrænna ríkja.
Þess vegna er „glasnost" fyrst og
fremst hugsað til útflutnings og
þess vegna em flestir nánustu
ráðgjafar hans sérfræðingar í
samskiptum við Vesturlönd.
Forgangsatriði er að viðhalda
hemaðarlegri stöðu Sovétríkjanna
jafnvel þótt kostnaðurinn við um-
bætur í innanríkismálum geri
samkeppnina við Bandaríkin erf-
iðari. Samt er hægt að treysta á
að Bandaríkin muni viðhalda
vígbúnaðarkapphlaupinu þó innan
ramma Jafnvægis og eftirlits" í
afvopnunarmálum sé.
Einnig verður að viðhalda só-
síalismanum í Kúbu, Nicaragua,
Víetnam, Kamputcheu, Angólu og
Eþíópíu. Röðin er nú komin að
þeim því Sovétmenn leggja
áherslu á að þessi ríki bæti ímynd
sína með því að semja um slökun
við nágranna sína. Og enginn
skortur er á viðhlæjendum á þessu
sviði. Bandaríkjamenn og Bretar
sjá um Mozambique („fæla landið
burt frá Sovétblokkinni" eins og
embættismenn orða það), og bre-
skir herforingjar sjá meira að
segja um að þjálfa her kommún-
ista til að hann geti séð við
andspymu andkommúnista.
Umbætur veikja stöðu
flokksins
Gorbachev veit fullvel að jafn-
vel veigaminnstu breytingar geta
orðið að stóru vandamáli ef þær
ná fram að ganga. Gorbachev er
kunnugt um dæmi frá austantj-
aldslöndum sem sýna að minnsti
vottur af frjálsum markaði leiðir
til verðbólgu og óróa í iðnaðinum
auk þess að veikja stöðu kom-
múnistaflokksins.
Hver hefur líka áhuga á að
ganga í flokkinn eða hlusta á
hann þegar fólk fær stöðuhækk-
anir í samræmi við getu eða laun
í hlutfalli við framlag? Og ef fólk
fær ekki það sem þvi ber þá eyk-
ur það heldur ekki afköst sín.
Samt sem áður standa Gorbachev
ekki aðrar leiðir til boða til að
stjóma landinu og ef hann hyggst
minnka völd flokksins þá dregur
hann úr eigin völdum um leið.
Á sama tíma er ný kynslóð að
spretta úr grasi í andrúmslofti
„glasnost" og hún mun örugglega
ganga skrefi lengra og krefjast
frelsis. Alls kyns þjóðarbrot og
trúarflokkar í minnihluta munu
auka baráttuna fyrir viðurkenn-
ingu réttinda sinna. Nýleg
mótmæli Tartara á Krímskaga og
íbúa Eystrasaltslandanna em ein-
ungis vísir að því sem verður.
Þegar við bætist órói í hagkerfinu
þá munu þessi öfl verða banabiti
sovéska kerfisins.
Svo má búast við að eins og
ætíð fylgi önnur austantjaldsríki
dæmi Moskvu. Þá er spumingin
hvenær sovéski herinn verður að
leiðrétta þróunina með „bróður-
legri aðstoð".
Því má ljóst vera að Sovétleið-
togamir geta ekki leikið sér með
róttækar umbætur og byltingar-
kenndar breytingar lengur en
fimm til sjö ár ef þróunin á ekki
að verða óafturkallanleg.
Eftir fimm til sjö ár mun flokk-
urinn, með eða án Gorbachevs,
setja í bakkgír og heimta það sem
honum ber. Aftur mun SS-20-
flaugum eða þeirra líkum verða
beint að skotmörkum í vestri.
Aftur munu öflugar friðarhreyf-
ingar flykkjast út á stræti höfuð-
borga í Vestur-Evrópu. Og hver
veit? Kannski verður þá pólitískur
vilji í vestri fyrir því að setja að
nýju upp Pershing-flaugamar?
Umbótunum verður
snúið við
Fimm til sjö árum síðar mun
öll sósíalíska hjörðin, stríðalin af
hirðum sínum úr vestri, snúa baki
við kapítalísku beitilandi. Hún
mun tvíefld halda áfram að þjóna
málstaðnum sem henni var áskap-
aður. Því næst kemur röðin að
Mexíkó, Suður-Afríku, Persaf-
lóaríkjunum...
Eftir fímm til sjö ár verða vest-
rænir banka- og kaupsýslumenn
að afskrifa skuldimar eins og
þeir þurfa nú að afskrifa skuldir
Þriðja heimsins. Vitanlega mun
mikill reiðilestur og harðorðar
hótanir dynja yfír en skattborgar-
ar og hluthafar munu súpa seyðið
af öllu saman. Vesturlönd er svo
rík, Rússar eru ætíð svo áreiðan-
legir í viðskiptum.
Ég veit að hvorki bækur né
blaðagreinar geta afstýrt þessu.
Hvorki skynsamleg rök né ákall
til tilfinninga megnar að breyta
sjálfseyðingarkenndri heimsku
þessa heims. En þegar allt þetta
kemur á daginn þá bið ég ykkur
að skella ekki skuldinni á tvískinn-
ung og torræði Rússa. Ekki halda
því fram að þið hafið ekki getað
séð atburðina fyrir.
Höfundur satmörg ár í fangels-
um og& geðveikrahælum i
Sovétríkjunum fyrirmótmæli
viðkúgunum stjómvalda. Hann
kom til íslands i október árið
1979. Hann hefur verið búsettur
í Englandi frá árinu 1976.