Morgunblaðið - 07.11.1987, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987
Verðstríð ríkir á
Mor^unblaðiðGSV
Jarðborinn sem hefur verið í Hrísey i um fimm vikur.A innfelldu
myndinni eru Friðfinnur K. Danielsson, framkvæmdastjóri ísbors
hf., og Einar Schiöth, borstjóri.
Helmingslækkun
borkostnaðar
Friðfinnur sagði að hérlendis yrði
að vera rými fyrir bæði fyrirtækin
svo samkeppnin héldist. „Hinsvegar
er ljóst að við gætum annað öllum
markaðnum með okkar bor. Vissu-
lega er markaðurinn lítill og varla
fyrir tvö fyrirtæki. Það hefur þó
sýnt sig að bæði fyrirtækin geta
lifað ef verðstríðið fer ekki út í vit-
leysu. Þetta er harður bardagi og
ég viðurkenni það fúslega að verð-
stríð ríkir á milli ísbors hf. og
Jarðborana hf. Borkostnaður hefur
lækkað um 40-60% frá því sem
hann var áður en til samkeppni
kom. Heldur erfitt er að negla niður
eina tölu, þar sem breyting hefur
orðið á viðskiptaháttum. Áður fyrr
gekk þetta þannig fyrir sig að Jarð-
boranir hf. leigðu út tæki sín fyrir
ákveðið daggjald. Nú er hinsvegar
meira farið að miða við metraverð
og því áhætta lögð á borverktak-
ana. Segja má að þetta séu ef til
vill eðlileg viðbrögð þegar sam-
keppni kemur allt í einu inn í landið
eftir 30 ára einokun, en trúlega
verður verðlag á borkostnaði aldrei
eins og það var áður. Talað er um
að holur, sem boraðar hafi verið,
til dæmis við Kröflu, Svartsengi og
Nesjavöllum, hafi kostað hver um
sig milljón dollara, eða um 40 millj-
ónir króna. Þar af er auðvitað stór
hluti efniskostnaður, rannsókna-
kostnaður og annað þess háttar.
Samt sem áður eru hér á ferðinni
gífurlegar upphæðir. Það var aldrei
meiningin hjá okkur að koma inn
á markaðinn, eingöngu til að pína
verðlag niður. Hinsvegar ætluðum
við að vera nýr valkostur, með verð-
lag rétt fyrir neðan keppinautana,
en ég get nefnt dæmi þess að við
vorum beinlínis slegnir út með vit-
leysisboðum," sagði Friðfinnur.
„Uppinn“ opnar
á Akureyri
UPPINN, nýr veitingastaður, var
opnaður á Akureyri sl. fimmtu-
dagskvöld á Ráðhústorgi 9.
Eigendur Uppans eru þau Þráinn
Lárusson og Ingibjörg Baldurs-
dóttir. Þau keyptu staðinn af
Bárði Halldórssyni, sem rak Cafe
Torg.
Aðaluppistaða Uppans verða
pizzur og var til pizzugerðarinnar
keyptur sérstakur ofn frá Ítalíu.
Auk þess verður lítill sérréttaseðill
og matseðill dagsins. „Við ætlum
að leggja sérstaka áherslu á ferskt
hráefni, enda ekki til svo mikið sem
frystikista í eldhúsinu. Það hefur
vantað svona stað lengi á Akureyri
enda á hann að vera einskonar
millistig á milli þeirra veitingasfyða
sem hér eru nú þegar. Þetta á að
vera einskonar „Gaukur á Stöng“
Akureyringa. Ég ætlaði að láta
staðinn heita Jón á Loftinu, en þeg-
ar ég frétti af manni, sem ber þetta
viðumefni, hætti ég snarlega við
það,“ sagði Þráinn.
Þráinn hefur fengið Ólaf Hvann-
dal frá Eldsmiðjunni í Reykjavík til
að þjálfa upp starfsfólk í pizzugerð-
ina. Þráinn sagði að miklar vanga-
veltur hefðu verið um gott nafn á
staðinn, en ljóst hefði verið að
íslenskt skyldi það vera. Uppinn
tekur hátt í 50 manns í sæti og
tekur auk þess að sér veisluhöld í
heimahúsum. Stefnt er að heim-
sendingarþjónustu síðar meir, en
að sögn Þráins hefur sú þjónusta
hingað til aldrei gengið á Akureyri,
þó að Akureyringar hringdu ævin-
lega í Næturgrillið er þeir færu til
Reykjavíkur. Opið er á Uppanum
frá kl. 11 á morgnana til kl. 1 eft-
ir miðnætti og til kl. 3 um helgar.
sviði jarðborana
Kópaskerskirkja
Morgunblaðið/GSV
Kópaskerskirkja:
Hálf milljón í
viðgerðarkostnað
VIÐGERÐ á kirkjunni á Kópa-
skeri er nú lokið að mestu og
nemur kostnaður við verkið tæp-
lega hálfri milljón króna. Fram
hafa komið steypuskemmdir á
undanförnum árum og nauðsyn-
legt var orðið að gera við kirki-
una, að sögn Tryggva Aðalsteins-
sonar, sóknarnefndarmanns á
Kópaskeri.
„Segja má að ellimörk hafí kom-
ið fram á kirkjunni, en hún ætti
að duga vel næstu áratugina," sagði
Tryggvi. Tuni kirkjunnar hefur ver-
ið málaður, en ekki verður hægt
að mála veggi hennar fyrr en næsta
sumar vegna raka í veggjum. Þá
hefur viðgerð einnig faríð fram inn-
andyra og er fyrirhugað að þar
verði málað næstu daga.
Friðfínnur sagði að þeir aðilar,
sem skiptu við ísbor, væru úr hinum
ýmsu geirum þjóðfélagsins. Um
væri að ræða einkaaðila, sem aðal-
lega væru að huga að fiskeldi. Þó
nokkuð væri um það núorðið að
bændur hefðu tekið sig saman, jafn-
vel langt frá sjó, og komið á fót
fiskeldi í stað hinna hefðbundm
búgreina. Nokkrir bændur í Eyja-
firði eru til dæmis mikið að velta
því fyrir sér að bora eftir vatni, því
nú er vitað að gnótt vatns leynist
þar í iðrum jarðar, um 60 gráðu
heitt, og kæmi því vel til greina að
þeir nýttu sér það til húsahitunar
í stað rafmagnshitunar. Friðfínnur
sagði að því miður hefði holan, sem
ísbor hefði borað í Eyjafirði, verið
þurr. Hann sagði að Eyjafjörðurinn
væri mjög erfiður landfræðilega
séð, en það þyrfti aðeins að finna
réttu æðina og þá væri takmarkinu
náð. Orkustofnun staðsetti holuna,
eins og allar hinar, og hefur mjög
góður árangur náðst í öllum öðrum
borunum.
Einokunaraðstaða ríkis
„Reynt hefur verið að halda öll-
um rekstrar- og skrifstofukostnaði
niðri. Friðfinnur hefur skrifstofuað-
stöðu hjá Vélum og þjónustu í
Reykjavík, en hann býr sjálfur á
Akureyri. „Þetta fyrirkomulag er
ekki svo slæmt. Borinn er hvort sem
er alltaf á þeytingi um landið og
þarf ég alltaf að vera í námunda
við hann, þar sem ég sé einnig um
verklegu hliðina.“ Friðfinnur er
menntaður verkfræðingur frá Edin-
borg og var viðloðandi Jarðboranir
ríkisins, sem síðar breyttust í Jarð-
boranir hf., frá 1976 til 1981. Hann
sagði að fyrirtækið hefði fengið
borinn á mjög góðu verði frá Banda-
ríkjunum og hefði lágt olíuverð þá
spilað inn í samninga. Fjárfestingin
væri þó upp á tugi milljóna króna.
Slíkir borar væru framleiddir fyrir
olíuiðnað vestra og með lækkandi
olíuverði hefði eftirspurn eftir bor-
um farið minnkandi. Því hefði
verðið fallið. „Með þessum bor ráð-
um við við öll tilfallandi verkefni í
landinu á sviði borana. Svona stór
bor er ekki ýkja mikið notaður til
vatnsborunar vestra, en þegar við
erum komnir út í jarðhitann og
uppbyggingu á fiskeldi, þarf öflugt
tæki. Til eru stærri og öflugri tæki
í Iandinu hjá Jarðborunum hf., en
ekkert er fyrir þau að gera eins og
sakir standa. Jarðboranir ríkisins,
nú Jarðboranir hf. í eigu ríkis og
Reykjavíkurborgar, hafa verið í ein-
okunaraðstöðu á sviði jarðborana
hingað til, eða í rúmlega 30 ár.“
— segir FriðfinnurK. Daníelsson
framkvæmdastjóri Isbor hf
NÝLEGA urðu miklar fram-
farir í hitaveitumálum Hrísey-
inga. Jarðbor frá ísbor hf.
hafði veríð við boranir í eynni
frá 20. september sl. og svo fór
að borínn kom niður á 80 gráðu
heitt vatn á 330 metra dýpi.
Hríseyingar hafa hingað til
haft 59 gráðu heitt vatn. Ekki
var óalgengt að Hríseyingar
þyrftu að glíma við stífluð inn-
tök og lagnir og mun árlegur
kostnaður vegna þess hafa
numið einni milljón króna, sem
bæði kom niður á hitaveitunni
og íbúum. Kostnaður við bor-
unina nemur rúmlega fjórum
milljónum króna og er vatnið
nægilegt til að hita upp um
5.000 manna byggð, að sögn
Fríðfinns K. Daníelssonar,
framkvæmdastjóra Isbors hf.
Næsta verkefni ísbors hf. er
að fara í Oxarfjörð, þar sem
nokkrir bændur hafa stofnað
fyrirtækið Seljalax hf.
Isbor hf. var stofnað haustið
1986 af Vélum og þjónustu í
Reykjavík, Gunnari og Guðmundi
í Reykjavík, Þórhalli Olafssyni og
Ólafi Snorrasyni á Selfossi auk
Friðfínns. Starfsmenn eru alls
fjórir. Keyptur var bor frá Banda-
ríkjunum, sem getur borað allt
niður í 1.400 metra dýpi og að
minnsta kosti 17V2 tommu víða.
Borinn er af gerðinni Ingersoll-
Rand og var fluttur inn af Heklu
hf. Fyrsta holan var boruð fyrir
um ári á Kalmannstjöm á Reykja-
nesi fyrir Silfurlax hf. Síðan hefur
fyrirtækið borað 35 holur víða um
land til að ná í ferskvatn, heitt
vatn eða sjó. „Okkur var vitanlega
spáð norður og niður í upphafí og
því borið við að við hefðum hvorki
tæki né þekkingu til.“
Fiskeldi í sveit