Morgunblaðið - 07.11.1987, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987
51
Þrjú í fullu fjöri
Kvikmyndir
Sæbjöm Vaidimarsson
REGNBOGINN:
Þijú hjól undir vagni —
Rita, Sue and Bob too! ★ ★ >/2
Leikstjóri: Alan Clarke.
Framleiðendur: Sandy Lieber-
son, Oscar Lewenstein, Patsy
Pollock.
Handrit: Andrea Dunbar, byggt
á samnefndu leikriti hennar.
Tónlist: Michael Kamen.
Kvikmyndataka: Ivan Strasburg.
Aðalleikendur: Siobhan Finner-
an, Michelle Holmes, George
Costigan, Lesley Sharp, Kulvind-
er Ghir.
Bresk. Channel 4 1987. 93 min.
Þijú hjól undir vagni hefur gjam-
an verið kynnt sem gamanmynd,
öllu nær væri að flokka hana undir
tragikómedíu því svo ömurlega er
hversdagslífi ungmenna af verka-
mannastéttum iðnaðarhéraða frú
Thatcher lýst í mjmdinni.
Tvær síflissandi stelpujússur í
fátækrahverfi í Bradford fínna sér
það helst til ánægju að gæta bama
fyrir nýrík hjón í betri hluta borgar-
innar. Og þá fyrst fer að færast
§ör í leikinn þegar húsbóndinn fer
að serða þær báðar í Rovemum
sínum eftir gæslustörfin. En þetta
makalausa ástalíf varir ekki lengi
því eiginkonan (sem reyndar hefur
boðið uppá þetta sem dæmigerð
bresk ektakvinna, en þær vilja frek-
ar, samkvæmt nýjustu skoðana-
könnunum, fá sér í sarpinn en njóta
unaðar hjónabandssælunnar!)
kemst í spilið og stormar að heim-
an. Önnur stúlkan tekur við hlut-
verki konunnar, einsog ekkert hafi
í skorist, en missir síðar fóstur. Hin
er rekin að heiman og lendir í slag-
togi með manni af austurlenskum
ættum. Allt fellur í lokin í ljúfalöð
í endumýjuðum þríkanti.
Hægt og sígandi fá stelpugreyin
alla manns samúð. Þær eru að ljúka
grunnskólanámi, hafa af litlu að
státa og vita að þeirra bíður nötur-
Ieg framtíð þar sem valkostimir eru
Þijú f fullu fjöri.
annaðhvort niðurdrepandi verk-
smiðjuvinna eða atvinnuleysi.
Allavega grámygluleg tilvera. Þær
grípa því hvert tækifæri sem gefst
til að losna frá raunveruleikanum,
jafnvel lúði á fertugsaldri er tekinn
tveim höndum sem aðgöngumiði að
ánægju. Eftir því sem líða tekur á
mjmdina, því meiri samúð fá þessi
olnbogaböm Jámfrúarinnar hjá
áhorfandanum. Og ekki sakar að
þær eru skínandi vel leiknar af
nýliðunum Finneran og Holmes.
Mjög óvenjuleg og kaldhæðnisleg
mynd sem hefur örugglega ekki
verið sýnd í Downing-stræti 10 fyr-
ir erlenda gesti.
Flísar Flísar Flísar Flísar Flísar Flísar Flísar Flísar
Glæsilegar flísar á gólf og veggi
I Dúkalandi við Grensásveg
fæst ótrúlegt úrval forkunnar fallegra flísa á gólf og
veggi. I eldhúsið, á baðherbergið, í stofuna
og á ganginn. Flísar í mörgum
stærðum, gerðum og litum
"Hjá okkur ná á ótrúlega góðu verð.
gæðin í gegn" |>ÚlralanCf
Grensásvegi 13
sími 91-83577 og 91-83430
Við styðjum
Ólympíunefnd
íslands