Morgunblaðið - 07.11.1987, Qupperneq 71
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987
71
FráÁgústi
IngaJónssyni
í Danmörku
HANDBOLTI
Matareitr-
uníherbúð-
um Kolding
Þrír leikmenn Kolding, mót-
iietja Víkings í Evrópu-
keppninni {handknattleik fengu
matareitrun í íslandsferðinni um
síðustu helgi og
léku ekki með
liðinu í 1. deild-
inni gegn GOG í
fyrrakvöld. Enn
er óvíst hvort þeir verða með
gegn Vikingum á morgun. Tveir
þeirra eru bestu menn liðsins,
Karsten Holm, markvörður og
stórskyttan Kim G. Jacobsen.
Báðir eru þeir landsliðsmenn.
Kolding sigraði GOG i fyrra-
kvöld, 21:20, eftir að GOG hafði
haft yfír í leikhléi, 10:6. GOG-
liðið er ungt og efnilegt, það
kom upp úr 2. deild í fyrra og
hefur leikið vel það sem af er
vetri. Þetta var fyrsti tapleikur
liðsins í vetur. Um tíma í seinni
hálfleik var staðan 15:10 fyrir
GOG, en leikmenn Kolding neit-
uðu að gefast upp og sigruðu.
Sigurmarkið var gert 10 sek.
fyrir leikslok.
Rútuferðir
Mikill áhugi er á leikn Kolding
og Víkings meðal íslendinga í
Danmörku. íslendingur einn
hefur lánað Víkingum rútubif-
reið í eigu sinni og er ætlunin
að aka henni til Árósa á sunnu-
daginn og fylla hana af ísiend-
ingum. Aka þeim síðan til og
frá leiknum. Uppseit er á leikinn
og sögðu forráðamenn Kolding
að mjög margir íslendingar
hefðu hringt alls staðar að af
landinu til að panta miða. Það
má því búast við þvi að Vtking-
ar fái góðan stuðning áhorfenda.
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Skapti
Guðmundur Ólafsson hampar 2.
deildarbikamum á sínum tíma er hann
þjálfaði Völsung.
KNATTSPYRNA
Óli Olsen
til Wales
ÆT
Oli Olsen, milliríkjadómari í
knattspymu, er á förum til
Wales.Óli mun þar dæma Evrópu-
leik leikmanna 18 ára og yngri
milli Wales og Skotlands 24. nóv-
ember. Línuverðir verða frá Wales.
Aðalfundur IK
Aðalfundur ÍK verður haldinn i
húsnæði félagsins í íþrótta-
húsinu í Digranesi, laugardaginn
14. nóvember og hefst klukkan
17.00. Venjuleg aðalfundarstörf.
KNATTSPYRNA / NOREGUR
Gautaborg og Brann
„beijast" um Bjama
- Brann bauð Bjarna nýjan samning í gær. Þjálfari IFK vill
fá Bjarna til viðræðna í Gautaborg
Bjarnl Slgurðsson
„Gunter Bengtson, þjálfari
IFK Gautaborg, hafði sam-
bandi við mig og óskaði eftir
að ég kæmi til Gautaborgar
til að ræða við hann. Ég fer
ekki til Gautaborgar fyrr en
eftir viku. Bengtson fór í gær
til Astralíu til að skipuleggja
æfinga- og keppnisferð
Gautaborgarliðsins þangað
eftir áramót,** sagði Bjarni
Sigurðsson, landsliðmark-
vörður í knattspyrnu, sem
hefur leikið með norska liðinu
Brann undanfarin ár, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Bjarni sagðist vera spenntur
fyrir að fara til Gautaborgar.
„Gautarborgarliðið er núverandi
UEFA-meistari. Það er mjög
gott."
Forráðamenn Brann kölluðu á
Bjama á sinn fund í gær. „Eg
fékk mjög gott tilboð frá Brann,
sem ég hef upp á vasann þegar
ég fer að ræða við forráðamenn
Gautaborgar," sagði Bjarni, sem
sagði að það væri ömggt að hann
kæmi ekki heim til íslands næsta
sumar til að leika.
„Ef ég fer ekki til Gautaborgar,
þá verð ég áfram hjá Brann. Eg
mun fara til þess félags, sem ég
mun hafa það sem best hjá —
bæði íþrótta- og peningalega séð,“
sagði Bjarni í spjalli við Morgun-
blaðið í gærkvöldi.
KARATE
Þriggfa
landa
keppni
Þriggja landa keppni í karate
verður haldin í Laugardals-
höllinni um halgina, auk íslands
keppa lið Skotlands og Irlands.
Sveitakeppnin fer fram í dag milli
klukkan 19.00 og 21.00, en ein-
staklingskeppnin fer fram á
morgun og keppa sex frá hverju
landi. Verður keppt frá klukkan
14.00 til 16.00.
Guðmund-
ur Ólafs-
son þjálfar
Aftur-
eldingu
Guðmundur Ólafsson hefur
verið ráðinn þjálfari Aftureld-
ingu úr Mosfellssveit. Liðið
leikur í 3. deild næsta sumar.
Guðmundur var við stjómvölinn
hjá Völsungi frá Húsavík
síðastliðin tvö ár. Hann stýrði liðinu
til sigurs í 2. deild í fyrrasumar, og
í sumar hélt liðið sæti sinu í 1.
deildinni. Guðmundur hefur unnið
mikið að fræðslumálum og starfar
í tækninefnd KSÍ.
KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILDIN
Létftur Njarðvík-.
ursigur gegn Þór
Njarðvíkingar unnið alla leiki sína
Njarðvík vann öruggan sigur
gegn Þór í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í íþróttahöllinni
á Akureyri í gærkvöldi eins og
ástæða var til að ætla.
Lokatölumar vom 111-80 og
segja tölumar öll þau orð sem
segja þarf um gang leiksins. Frum-
kvæði UMFN frá byijun til enda
og enn verða Þórs-
arar að bíða eftir
sínum fyrstu stig-
um.
Einn var sá maður
sem óvænt stal senunni í leiknum,
„gamli“ maðurinn Eiríkur Sigurðs-
Frá
Antoni
Benjaminssyni
áAkureyri
son hjá Þór, en hann var þeirra
stigahæstur með 25 stig. Þar af
skoraði hann 20 stig á fyrstu 10
mínútum seinni hálfleiks og gekk
þá berserksgang — lék stórvel.
Guðmundur Bjömsson var og sterk-
ur í vöm og sókn hjá Þór, en í jöfnu
liði UMFN bar mest á Teiti Örlygs-
syni, Jóhannesi Kristbjömssyni og
Val Ingimundarsyni, þjálfara og
leikmanni liðsins, að venju. Allir
leikmenn UMFN komust á blað að
þessu sinni og er sýnt að liðið verð-
ur ekki auðunnið í vetur, en til þessa
hafa allir leikir þess unnist og þessi
síðasti sigur var aldrei í hættu.
Þór
80
UMFN
111
íþróttahúsið Akureyri, úrvalsdeildin í
körfuknattleik. 6. nóvember, 1987.
Gangur leiksins:Allar tölur óþarfar,
forysta náðist strax hjá UMFN og var
mismikil, alltaf mikil eða vaxandi.
Stig Þórs:Eiríkur Sigurðason 25, Guð-
mundur Bjömsson 21, Bjöm Sveinsson
10, Bjami Össurarson 10, Konráð
Óskarsson 9, Jóhann Sigurðsson 5 stig.
Stig UMFN:Valur Ingimundarson 23,
Jóhannes Kristbjömsson 22, ísak Tóm-
asson 22, Teitur Örlygsson 14, Helgi
Rafnsson 10, Sturla Örlygsson 6,
Hreiðar Hreiðarsson 6, Ámi Lárusson
3, Ellert Magnússon 2 og Friðrik Ragn-
arsson 2 stig.
Dómarar:Bræðumir Gunnar og Sig-
urður Galgeirssynir og áttu engan
stórleik.
Áhorfendur.Um það bil 200 talsins.
HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNIN
Stjörnumenn sólarhring til Noregs
Stjömumenn fóm engan
skottúr til Noregs þar sem
þeir mæta Urædd í síðari leik 2.
umferðar í Evrópukeppni bikar-
hafa í handknattleik í dag. Ferðin
til Urædd tók heilan sólarhring
og vom örþreyttir leikmenn ekki
gengnir til náða fyrr en klukkan
03.30 aðfaramótt föstudagsins.
Ballið byijaði á því að þoka haml-
aði lendingu i Osló og var þvi
flogið með handboltakappana til
Stokkhólms og þar beið þeirra
margra klukkustunda bið uns
flogið var svo rakleiðis til Gauta-
borgar. Eftir nokkuð japl, jaml
og fuður á þeirri flugstöð, var
leigð rúta undir hjörðina og ekið
á sjö klukkustundum á leiðarenda.
Engu að síður em Stjömumenn
vel hvíldir og upplagðir. Mikill
áhugi er fyrir leiknum í Noregi
og verður honum t.d. sjónvarpað
beint. Ætla Norðmenn sínum
mönnum sigur og það nokkuð
ömggan. Mun lið Urædd leika í
minni af tveimur höllum sínum
og er það stómm erfiðari biti fyr-
ir Stjömuna.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Páll Ólafsson er
mættur í slaginn
- Þorbergur kemst ekki í leikina gegn Pólverjum
Páll Ólafsson, landsliðsmaður í
handknattleik, sem leikur með
Dusseldorf f V-Þýskalandi, kom til
landsins í gær. Páll er í landsliðs-
hópi íslands sem leikur gegn
Pólveijum í Laugardalshöllinni 18.
og 19. nóvember og keppir síðan á
móti á Akureyri 21. og 22. nóvem-
ber ásamt Pólveijum, Israelsmönn-
um og Portugölum.
Það er enn ekki ljóst hvemig lands-
liðshópurinn verði skipaður. Þor-
bergur Aðalsteinsson kemst ekki
ffá Svíþjóð. Hann er að leika með
Saab á sama tima. Enn er óvíst
hvort að Alfreð Gíslason, Essen og
Bjami Guðmundsson, Wanne-
Eiken, koma í leikina. Miklar líklur
em á því. Kristján Arason, Gum-
mersbach og Sigurður Sveinsson,
Lemgo, hafa tilkynnt að þeir mæti
í slaginn.
Páll Ólafsson
KNATTSPYRNA
Danskurinn
svindlaði
Danska knattspymusam-
bandið hefur viðurkennt að
hafa notað ólöglegan leikmann
er Olympíulið Danmerkur sigr-
aði Pólveija 2-0 í Szczecin í
síðustu viku. Það kann að kosta
liðið stigin tvö sem öfluðust, en
aganefnd FIFA mun dæma i
málinu 12. nóvember.
Það var Anderlecht-leikmaður-
inn Per Frimann sem lék ólög-
legur, en hann hafði áður leikið
þijá leiki með A-liði Danmerkur
í undankeppni heimsmeistara-
keppninnar.