Morgunblaðið - 07.11.1987, Síða 72
^uglýsinga-
síminn er 2 24 80
Framtíð
ER VIÐ SKEIFUNA
aaaa
$ SUZUKI
LAUGARDAGUR 7. NOVEMBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Þyrla varnarliðsins nauðlenti á Hellu:
Bilun í vökvakerfii gat
valdið íkveikju
Selfossi.
ÞYRLÁ frá varnarliðinu á
Keflavíkurflugvelli nauðlenti
á flugvellinum á Hellu um
hádegisbilið í gær. Vélin var
á leið til Stokksness í sjúkra-
flugi. Vökvakerfi vélarinnar
bilaði og hún var Iöðrandi í
olíu þegar hún lenti. Fjögurra
manna áhöfn var á þyrlunni,
auk læknis og tveggja björg-
unarmanna.
Ahöfn vélarinnar varð vör við
lekann þegar hún var stödd yfir
ströndinni suður af Hellu. Um smá-
vægilega bilun var að ræða en
þrýstingur fór af vökvakerfinu og
hætta var á íkveikju þar sem aftur-
hluti vélarinnar var löðrandi í olíu.
Bill Schaefer flugstjóri sagði þá
ekki hafa verið í neinni hættu og
þeir hefðu lent örugglega á Hellu.
Ónnur þyrla var kölluð til og kom
hún með nauðsynlega varahluti og
vökva í kerfið. Hún tók síðan lækni
og björgunarmenn um borð og hélt
áfram til Stokksness.
Það tók áhöfn þyrlunnar sem
nauðlenti um tvo tíma að gera við
bilunina og gera vélina klára til
brottfarar.
— Sig.Jóns
Gert við bilunina á Helluflugvelli. Á innfelldu myndinni gefu
að líta þyrluna við Hellu.
Grásleppuhrogn:
Slæmar
söluhorfur
Húsavík.
SLÆMAR söluhorfur eru á grá-
sleppuhrognum á næstu vertíð
að vori. Telur Guðmundur G.
Halldórsson á Húsavík að sölu-
horfurnar séu lakari nú en
nokkru sinni fyrr, en Guðmund-
ur hefur keypt grásleppuhrogn
og flutt út í fjölda ára.
í samtali við Morgunblaðið taldi
Guðmundur söluhorfumar lakari nú
en nokkru sinni fyrr. Hann sagði að
á yfírstandandi ári hefðu verið flutt-
ar út 8.234 tunnur af hrognum og
á innanlandsmarkað fóru rúmlega
14.000 tunnur. En ársframleiðsla
Kanadamanna hafí verið um 27.000
tunnur og bjóði þeir nú hrognin á
Evrópumarkaði á mun lægra verði
en selt var á síðastliðið vor. Fram-
leiðsla Grænlendinga er um 4.000
tunnur en framleiðsla Norðmanna
hefur verið lítil. í Danmörku eru svo
óseldar 800 tunnur frá Kanada.
„Ég tel því,“ sagði Guðmundur,
„að stórfelld verðlækkun verði á
grásleppuhrognum á næsta ári og
óvarlegt sé að framleiða meira eða
7-9.000 tunnur hér á landi, nema ís
hamli veiðum við Kanada, sem hefur
komið fyrir. “ sagði Guðmundur G.
Halldórsson að lokum.
— Fréttaritari
Dollarínní
37 krónur
Hollensk yfirvöld:
Leigja vélar um ísland
til að sleppa við skatta
Leigt á þennan hátt fyrir 2 milljarða króna fyrstu 6 mánuði ársins
Frá Eggerti Kjartanssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins í Hollandi.
Fjármálaráðuneytið í Hollandi hefur notfært sér að á íslandi
er enginn virðisaukaskattur, með þeim hætti að leigja vélar og
tæki til opinberra fyrirtækja í Hollandi um ísland og losnað
þannig við að greiða virðisaukaskatt af tækjunum. Fyrstu sex
mánuði þessa árs hafa ýmis ríkisfyrirtæki í Hollandi leigt vélar
og tæki fyrir um 100 milljónir gyllina, eða 2 milljarða króna, á
þennan hátt í gegnum það sem þau kalla „The Iceland Con-
struction". Þessi viðskipti þýða, að hollenski skatturinn tapar
um 20 milljónum gyllina eða um 400 milljónum króna. Gert er
ráð fyrir að innan skamms verði gengið frá samningum við íslensk
fyrirtæki fyrir nokkur hundruð milljónir gyllina.
Árlega leigja ríkisfyrirtæki,
sýslur og borgarstjórnir í Hollandi
tæki og vörur fyrir fleiri milljónir
gyllina án þess að borga 20% virð-
isaukaskatt af leigunni. Leiðin sem
notuð er kom í ljós í úttekt sem
Innkaupastofnun ríkisins, sem er
r deild í ijármálaráðuneytinu, lét
gera á því hvemig hægt væri að
losna við að greiða virðisauka-
skattinn, og heitir þetta opinber-
lega að Ieigja vörumar þar sem
hlutfallslega minnsta skattlagn-
ingin er. Ef tekið er dæmi af
ríkisfyrirtæki sem vili leigja sér
nýjar tölvur þarf það að borga
ákveðinn 20% virðisaukaskatt á
hverjum mánuði sé tölvan leigð
af hollensku fyrirtæki. Ef tölvan
er aftur á móti leigð af íslensku
fyrirtæki þarf engan virðisauka-
skatt að greiða af því engin
virðisaukaskattur er á Islandi.
Innkaupastofnunin fór fram á
það við hollensk fyrirtæki að þau
hefðu samband við íslensk fyrir-
tæki. Fyrirtæki eins og „Ec-
onocom" og „Dataserv" hafa leigt
tæki á þennan hátt. Þessi fyrir-
tæki kaupa tölvur til dæmis í
Noregi og leigja íslenskum fyrir-
tækjum, sem endurleigja þau síðan
til Hollands til ríkisfyrirtækjanna.
Einnig em dæmi um að hollensk
fyrirtæki kaupi vömr í Hollandi
og flytji þær til íslands á pappím-
um og fá síðan vömmar leigðar
til baka, og við það fá þau endur-
greiddan 20% virðisaukaskatt.
Á þennan hátt em bílar og tölv-
ur og önnur stór tæki leigð af
erlendum fyrirtækjum í löndum,
þar sem ekki þarf að greiða virðis-
aukaskatt. Dæmi um það em lönd
eins og ísland, Finnland, Sviss og
Ameríka.
Blaðafulltrúi skattayfirvalda
sagði að ef þetta væri rétt þyrftu
yfirvöld og Efnahagsbandalagið
að setja ný lög til að koma í veg
fyrir svona lagað.
GENGI Bandaríkjadollars var í
gær skráð á 37 krónur og hafði
þá lækkað um 20 aura frá degin-
um áður. Að sögn Jóhannesar
Nordal seðlabankastjóra hækk-
aði dollarinn aðeins um miðjan
dag í gær, en var síðan kominn
aftur að 37 króna markinu þegar
skáningu var hætt.
Jóhannes sagði, að þessi gengis-
þróun breyttist varla fyrr en
Bandaríkjastjóm hefði ákveðið til
hvaða aðgerða ætti að grípa í ríkis-
fjármálum og markaðurinn muni
ekki róast aftur fyrr en það lægi
fyrir. Og hve jákvæð áhrifin af því
verða færi eftir hvað langt væri
gengið til að draga úr fjárlagahall-
anum.
Þegar Jóhannes var spurður
hvort hann byggist við að dollarinn
yrði kominn niður fyrir 37 krónur
á mánudag sagði hann, að um það
væri ekki gott að spá eftir tölunum
frá í gær. Gengið hefði þá verið
tiltölulega stöðugt, þótt það hefði
sveiflast aðeins upp og niður.
Faðir fær fjögurra ára fang-
elsi fyrir kynmök við dóttur
FAÐIR unglingsstúlku var í
gær dæmdur í fjögurra ára
fangelsi fyrir að hafa misnotað
hana kynferðislega í átta ár,
frá því að hún var 5 ára gömuí
og þar til hún var 13 ára.
Maðurinn, sem er 45 ára gam-
all, var ákærður í lok ágúst fyrir
sifskapar- og skírlífisbrot gagn-
vart dóttur sinni. Fyrstu árin, sem
misnotkun hans á henni átti sér
stað, var um annars konar kynmök
að ræða en samræði, en síðustu
árin hafði hann einnig við hana
samfarir. í sakadómi Kópavogs
var maðurinn í gær dæmdur í fjög-
urra ára fangelsi, en gæsluvarð-
hald hans í 155 daga dregst frá
refsingunni. Þá var honum einnig
gert að greiða allan sakarkostnað.
Maðurinn hefur tekið sér frest
til að ákveða hvort hann áfrýjar
dóminum. Þar sem ekki er um 5
ára fangelsi eða þar yfir að ræða
fer málið ekki sjálfkrafa til Hæsta-
réttar. Óvíst er hvort ákæruvaldið
áfrýjar dóminum fyrir sitt leyti,
en þó þykir það ólíklegt.
Dóminn kvað upp Þorgerður
Erlendsdóttir, sakadómari, en
meðdómsmaður var Páll Eiríksson,
geðlæknir.