Morgunblaðið - 10.11.1987, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987
35
Lögreglunni er ætlað að hafa eftirlit með því
hvemig við ökum og að við fylgjum settum reglum
um lögíegan ökuhráða. Þú getur með FOX Impulse
radarsKynjaranum fylgst vel með lögreglunni úr
öllum attum þegar nun framkvæmir þetta sjálf-
sagða og eðlilega eftirlit. Með gagnkvæmu eftirliti
og góðu samstarfi er hægt að stjóma aksturs-
hraðanum og tryggja að ávallt er ekið á löglegum
hraða. Þannig verða samskipti þín og lögreglunnar
byggð á gagnkvæmu trausti og vinsemd.
Enginn veit fyir
en allt í einu
Þó að brekkur, hæðir, hvöss húshom, tré og
mnnar skilji þig og lögregluna að gætir FOX
Impulse raaarsKynjarinn pess að þið komið ekki
hvor öðmm á óvart og úr verði kostnaðarsöm
uppákoma. Ef þú notarFOX Impulse þarftu ekki að
óttast það að purfa að ganga neim!
Eins og sést á myndinni hér að ofan er FOX
Impulse snoturt tæki sem staðsett er við fram-
rúouna, á mælaborðinu eða neðan á sólskyggninu
í bifreiðinni. FOX Impulse radarskynjarinn er fyrir-
ferðarlítill, málin em; 9.5 x 82 x 3.5 cm, þyngd
340 gr. og kostar aðeins kr. 14.958,-
j V/SA
J ■■■■■
IMPULSE SPECIFICATONS
Dual cpnversion, superheterodyne using galium arsenide (GaAs) diodes, Incorporates Fox
RSR (Random Siónal Reiect anti-false alarm circuitty.
Sensitivity (dBm/cifr X Band, typ.) -105 (dBm/cm"K Band, tvp.) -100.
Maximum Acquisition Time’ 21 milliseconds, unaffected by City/Highway settings. Pulse
Lock Time 1 millisecond. Bandwidth" (X and K Bands, typ.) 250 MHz for X andK Bands.
Temperature Range -40° to +185°F ÖDerating; -50" to +200°F Storage.
Deterctor Dimensions 3% x Vk x Ö'A". Detecfor Weight 12 ounces.
ÖPallas
PALLAS HF. UMBOÐS OG HEILDVERSLUN
PÓSTHÓLF 17 220 HAFNARFJÖRÐUR
REYKJAVlKURVEGUR 72 SÍMI: 91-652211
-
Reuter
Douglas Ginsburg tilkynnir í
Hvita húsinu að hann hafi ákveð-
ið að draga sig í hlé.
að hann hefði gerst sekur um eigin-
hagsmunagæslu í sínum fyrri störf-
um auk þess sem leitt var í ljós að
eiginkona hans, sem er læknir að
mennt, hafði framkvæmt fóstureyð-
ingar áður en þau gengu í hjónaband.
Ginsburg lýsti því síðan yfir í
siðustu viku, er orðrómur í þá veru
komst á kreik, að hann hefði neytt
marijuana nokkrum sinnum á sjö-
unda og áttunda áratugnum. Sagði
hann þetta hafa verið mistök sem
hann kvaðst iðrast. Reagan forseti
lagði þá áherslu á að Ginsburg hefði
aldrei verið þræll eitursins heldur
hefði hann freistast til að prófa fikni-
efni eins og svo margir Bandarfkja-
menn á þessum árum.
Samkvæmt skoðanakönnunum
hafa 62 milljónir Bandaríkjamanna
neytt mariiuana að minnsta kosti
einu sinni. I nýlegri könnun kváðust
70 prósent aðspurðra ekki telja það
hafa áhrif á hæfni forsetaframbjóð-
anda í Bandaríkjunum þótt viðkom-
andi hefði neytt marijuana, sem
yfirleitt er reykt, á skólaárum sinum.
Leiðtogafundur Arababandalagsins:
Reynt að ná samstöðu
um Persaflóastríðið
Amman, Jórdaníu, Reuter.
HUSSEIN Jórdaníukonungur
afstýrði þvi í gær að Saddam
Hussein, forseti íraks, gengi
af leiðtogafundi Arababanda-
lagsins, sem hófst í höfuðborg
Jórdaníu á sunnudag. Reynt
verður að ná samstöðu um af-
stöðu bandalagsins til Persaf-
lóastríðsins.
Samkvæmt heimildamönnum,
sem ekki vildu láta nafn síns get-
ið, tókst Hussein með aðstoð
forseta Sameinuðu furstadæ-
manna, Sheik Zaid bin Sultan
al-Nahayan, að fá Saddam Hus-
sein ofan af því að snúa strax
heim þegar honum sýndist sem
ekki yrði tekið heilshugar undir
kröfur íraka varðandi Persafló-
astríðið.
íranir skutu eldflaug á Bagdað,
höfuðborg íraks, meðan á setning-
arathöfn leiðtogafundarins stóð,
og biðu 11 manns bana. Lýstu
íranir síðan yfir því að það væri
heimska að halda að Arabar gætu
dregið máttinn úr þeim.
Að sögn sjónvarvotta átti Hus-
sein konungur einarðar viðræður
við Hussein íraksforseta annars
vegar og Hafez al-Assad, forseta
Sýrlands hins vegar, á göngum
Plaza-hótelsins í gærmorgun um
Persaflóastríðið. Sýrlendingar eru
vinveittir írönum og skilur
pólitískt og hugmyndafræðilegt
hyldýpi þá Assad og Hussein for-
seta að. Hussein konungur hefur
margsinnis reynt að fá þá til að
ýta ágreiningi til hliðar. Litlar
líkur voru taldar á sættum að
þessu sinni. Assad lagðist gegn
því að Arabaríkin sameinuðust um
harðar ráðstafanir til þess að knýja
írani til að fallast á vopnahléssam-
þykkt Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna.
írakar vilja að Arabaríkin slíti
öllu sambandi við íran, að þeim
verði veitt vemd samkvæmt sér-
stökum vamarsamningi Ara-
baríkja, að Egyptar verði teknir
að nýju inn í Arababandalagið og
að fjárstuðningi bandaiagsins við
Sýrlendinga verði hætt.
Hugsanlegt var talið að Egyptar
yrðu teknir í sátt að nýju á leið-
togafundinum. Leiðtogar íhalds-
samra Arabaríkja við Persaflóa
em því fylgjandi þar sem þeir ótt-
ast að stríð írana og íraka kunni
að breiðast út. Margir leiðtoganna
vom sagðir reiðubúnir að end-
umýja sambandið við Egypta, þótt
leiðtogafundurinn byði þá ekki
aftur velkomna í Arababandalag-
ið. Sýrlendingar og Líbýumenn
hafa lagst harðlega gegn því að
Egyptum verði á ný veitt aðild að
bandalaginu.
Reuter
SaílHam Hussein, forseti íraks, til hægrí, ræðir við Yasser Arafat,
leiðtoga Frelsisfylkingar Palestinumanna (PLO). Myndin var tekin
í Amman í Jórdaníu, þar sem nú stendur yfir leiðtogafundur Araba-
bandalagsins.
Logreglan fylgist vel með þér
og þú fyfgist vel með lögregkmni