Morgunblaðið - 10.11.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987
23
CANADA
*
does not belong to these two men.
EversinceBrianMulroneywaselected.he'sclaimeda
"special relationship" with Ronald Reagan and the United States.
What did this “special relationship” mean
for Canada before free trade?
► j T0% L‘.S. uríffagainst Canadian ► dismantlingaf the ForcignImrstment
potash Revicw Agcncv
► j ?5% i-iriff ugainst shakes and shinglcs ► at U.S. insistencc. Canadian dnn»
What did Canada give up?
Wehavegiven upoursovereignty.
Togetthisvery.veryshakyfreetradedeal.Mulroneyhasyielded:
► Canada 's right to control our energy ► Canada 's abiliry to design national
supplv economic strategies
► Canada's right to control forcign ► Canada’s ability to formulate indcpcn-
invcstment denttradepolicicswithothercountries
► Canada 's right to dcsign cultural policies ► Canada's nght to detcrmine an
without concern about American irvfcwnHew #«n
„Þessir menn eiga ekki Kanada," segir í þessari heilsíðuauglýsingu í kanadísku daghlaði, en mörgum
er illa við þann kærleika sem verið hefur með þeim Ronald Reagan Bandaríkjaforseta og Brian Mul-
roney forsætisráðherra Kanada.
þessum tollum eru að mati Banda-
ríkjamanna óeðlilegir ríkisstyrkir
við vöruframleiðslu í Kanada.
Kanadamenn segja hinsvegar að
pólitískar ástæður og aukin vemd-
arstefna ráði þessum tollaálögum.
Bandaríska þingið er þessa dagana
í miklum vemdarstefnuhug. Þingið
telur að minnka verði hinn mikla
viðskiptahalla landsins og þrengja
þurfí að vörum m.a. frá Kanada
sem fíæða inn á bandaríska mark-
aðinn.
Samningurinn óvirkur?
Mörgum í Kanada fínnst lítið til
fríverslunarsamkomulags koma ef
ekki sé tryggt að í því felist vöm
gegn gerræðislegum tollaálögum á
kanadískar framleiðsluvörur. Ef
aðal uppskeran úr fríverslunarsam-
komulagi á að vera hindrunarlaus
aðgangur að Bandaríkjamarkaði
ætti samkomulagið að tryggja að
ekki sé hægt að leggja skyndilega
tolla á kanadískar vörur.
Til lausnar þessu vildu Kanada-
menn að til sögunnar kæmi
gerðardómur beggja þjóðanna.
Þangað yrði málum sem fælu í sér
kröfur um tolla á kanadískar vörur
skotið. í fríverslunardrögunum er
að vísu gert ráð fyrir úrskurðar-
nefnd þar sem eiga sæti fulltrúar
beggja þjóðanna. Nefnd þessi á að
úrskurða hvort óheiðarlega hafí
verið staðið að málum er banda-
rískir refsitollar vom lagðir á
kanadískar vörur. Mörgum fínnst
hinsvegar að nefnd þessi muni hafa
allt of lítil völd og ekki ná að standa
á móti vemdarstefnu bandaríska
þingsins.
Auglýsing-aherf erð
Andstaðan við samkomulagið
birtist um daginn í flennistórum
fyrirsögnum í kanadískum dág-
blöðum. Þessir menn eiga ekki
Kanada segir með mynd af þeim
Ronald Reagan og Brian Mulroney
(sjá mynd). Verkalýðsfélag bif-
reiðaverkamanna (CAW) setti
tveggja síðna auglýsingu í 42 dag-
blöð um allt Kanada og kostaði
herferð þessi um tólf milljónir
íslenskra króna. í auglýsingunni
er óskað eftir því að þingkosningar
fari fram því Brian Mulroney for-
sætisráðherra hafí ekki umboð
þjóðarinnar til að semja um
fríverslun við Bandaríkin.
Framtíð samkomu-
lagsins
Það verður því fróðlegt að sjá
hvaða meðferð fríverslunardrögin
fá á næstu vikum og mánuðum í
kanadíska og bandaríska stjóm-
kerfínu. Lögð skal áhersla á að
aðeins hafa verið birt samkomu-
lagsdrög en ekki fullmótaður
samningur. Hinsvegar er ætlunin
að ganga endanlega frá samningn-
um á næsta ári eftir að bandaríska
og kanadíska þingið hafa haft hann
til umræðu.
Þó hér hafí verið greint frá and-
stæðingum fríverslunarsamkomu-
lagsins í Kanada má minna á að
þar í landi eru einnjg ákveðnir
stuðningsmenn þess. í atvinnulífi
Kanada hugsa margir sér gott til
glóðarinnar ef þeir geta selt hindr-
unarlaust inn á hinn geysistóra
Bandaríkjamarkað.
Sigmar Þormar stundaði nám í
þjóðfélagsfræðum í Ottawa, en
starfarnú hjá Verzlunarráðiís-
lands. - Halldór Pétur Pálsson er
að Ijúka doktorsnámi íhagfræði
við Carleton-háskóla í Ottawa.
HAFARoyol
HVÍTAR
BADINNRÉTTINGAR
OPIÐ LAUGARDAGA
'mm
SUÐURLANDSBRAUT10 - SÍMI 686499.