Morgunblaðið - 10.11.1987, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 10.11.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987 47 Verkamannasamband Islands; Breytíngar á sambandsstíóm „Þingið gerir þá meginkröfu til Aiþingis að við endanlega samþykkt nýrra laga um fisk- veiðistefnu verði komið verulega á móts við kröfur um samdrátt i útflutningi á óunnum fiski. Verði ekki umtalsverð stefnu- breyting þar á áskilur VMSÍ sér rétt til að setja þá kröfu á dag- skrá kjaraviðræðna," segir meðal annars í ályktun 13. þings Verkamannasambands íslands um fiskveiðistefnu. Þar segir ennfremur að við mótun nýrrar fiskveiðistefnu sé nauðsyn- legt að þess sé gætt að sem best jafnræði sé milli allra þeirra sem starfa við veiðar og vinnslu. Þá telur þingið lífsnauðsynlegt að farið verði að tillögum fiskifræðinga um um takmörkun heildarafla og að dregið verði úr sókn enn frekar en orðið er. Nokkrar breytingar urðu á sam- bandsstjóm VMSÍ, en sambands- stjómina skipa 25 manns alls staðar af að landinu, auk níu varamanna. Tíu nýir aðilar komu inn í stjóm og varastjóm í stað annarra, sem hurfu frá störfum. Þessir voru kjömir nýjir í sam- bandsstjóm: Bjöm Snæbjömsson, Akureyri, Bjöm Grétar Sveinsson, Höfn, Ingibjörg Sigtryggsdóttir, Selfossi, Sigurbjöm Bjömsson, Keflavík, Sigurður T. Sigurðsson, Hafnarfirði, Vilborg Þorsteinsdótt- ir, Vestmannaeyjum og varamenn Ema Magnúsdóttir, Akureyri, Gyða Vigfúsdóttir, Egilsstöðum og Leifur Guðjónsson, Reykjavík. Þá var Karvel Pálmason Iq'örinn varaform- aður í stað Karls Steinars Guðna- sonar, sem gaf ekki kost á sér í embættið. Auk þessara skipa sambands- stjómina: Einar Karlsson, Stykkis- hólmi, Elína Hallgrímsdóttir, Reykjavík, Guðríður Elíasdóttir, Hafnarfirði, Guðrún E. Ólafsdóttir, Keflavík, Hafþór Rósmundsson, Siglufirði, Halldór G. Bjömsson, Reykjavík, Hrafnkell A. Jónsson, Eskifirði, Jón Karlsson, Sauðár- króki, Kristján Ásgeirsson, Húsavík, Páll Jónsson, Vík, Pétur Sigurðsson, ísafirði, Sigrún Claus- en, Akranesi, Sigrún D. Elíasdóttir, Borgamesi, Sigurður Óskarsson, Hellu, Sævar Frímannsson, Akur- eyri. Varamenn: Bárður Jensson, Olafsvík, Hallsteinn Friðþjófsson, Seyðisfirði, Jóhann G. Möller, Siglu- firði, Karitas Pálsdóttir, ísafirði, Matthildur Siguijónsdóttir, Hrísey, Þorbjörg Samúelsdóttir, Hafnar- firði. Þeir sem hurfu úr sambands- stjóm vom: Aðalheiður Þorleifs- dóttir, Akureyri, Dagbjört Sigurðardóttir, Stokkseyri, Guð- mundur J. Hallvarðsson, Reykjavík, Hallgrímur Pétursson, Hafnarfirði, Jóhanna Friðriksdóttir, Vest- mannaeyjum, Sigfínnur Karlsson, Neskaupsstað, Anna María Haf- steinsdóttir, Sauðárkróki, Garðar Steingrímsson, Reykjavík og Helga Jóhannesdóttir, Stöðvarfirði. Formaður Verkamannasam- bandsins var kjörinn Guðmundur J. Guðmundsson, Reykjavík og auk Karvel Pálmasonar var Ragna Bergmann, Reykjavík, kjörin ritari og Jón Kjartansson, Vestmannaeyj- um, gjaldkeri. Aðrir í framkvæmda- stjóm vom kjömir Bjöm Grétar Sveinsson, Höfn, í stað Sigfinns Karlssonar, Guðríður Elíasdóttir, Jón Karlsson, Sævar Frímannsson og Halldór G. Bjömsson. Auk ályktana um kjaramál og skipulagsmál og fískveiðistefnu, ályktaði þingið um atvinnumál, fiskveiðistefnu og fræðslumál. I ályktun um atvinnumál er beint ákveðnum tilmælum til ríkisvalds- ins um að gera ráðstafanir til þess að auðvelda sveitarfélögum í landinu að auka fjölbreytni í at- vinnulífi þeirra. Þá telur þingið að vinna verði að því að sjávar- og landbúnaðarafurðir séu fullunnar sem mest heima í héraði. Lýst er yfir ánægju með það átak sem gert hefur verið í menntunarmálum verkafólks og lögð áhersla á komið verði á námsskeiðum fyrir fleiri starfsgreinar og framhaldsnáms- skeiðum fyrir þær sem byijað er á. Þá er mótmælt áformum um stórfelldan innflutning á erlendu vinnuafli, þar sem í reynd sé verið að koma á vinnubúðum fyrir fá- tæklinga og lýst yfir áhyggjum af því ástandi sem er að skapast vegna þenslu í þjóðfélaginu. Þingið árétt- aði fyrir samþykktir varðandi styttan vinnutíma og þær kröfur verkalýðshreyfíngarinnar að verka- fólki sé gert kleift að lifa mannsæm- andi lífi af dagvinnulaunum sínum. Síðan segir „13. þing VMSÍ bendir á að húsnæðisskortur stend- ur fjölmörgum byggðarlögum fyrir þrifum varðandi atvinnuuppbygg- ingu. Því skorar á þingið á Alþingi og ríkisstjóm að efla uppbyggingu verkamannabústaða og byggingu kaupleiguíbúða sem í dag er ein af þeim lausnum sem leyst geta vanda landsbyggðar varðandi vinnuafls- skort. 13. þing VMSÍ lýsir furðu á áformum ríkisstjómarinnar á stór- auknum álögum á fiskvinnslu í formi launaskatts og frystingar á uppsöfnuðum söluskatti. Nái þessar álögur fram að ganga eykur það enn á tilflutning fjármagns af landsbyggðinni og stuðlar að byggðaröskun". Roger Larsson Vakninga- samkomur í Neskirkju SAMKOMUR með sænska vakn- ingaprédikaranum Roger Lars- son verða haldnar í Neskirkju dagana 10.-15. nóvember. I fréttatilkynningu frá undirbún- ingsnefnd samkomanna segir að Roger Larsson sé þekktur víða og þá sérstaklega fyrir þau kraftaverk og lækningar sem sagt er að eigi sér stað á samkomum hans. Einnig að hann prédiki Guðs orð á einfald- an og skýran hátt og fylgi því eftir með fyrirbænum fyrir þeim sem sjúkir em. Samkomumar í Neskirkju byija kl. 20 öll kvöldin. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar 0|£S> vélskóli ISLANDS Innritun á vorönn 1988 Innritun nýrra nemenda á vorönn 1988 er hafin. Umsóknir ásamt gögnum um fyrra nám verður að hafa borist skrifstofu skólans fyrir 1. des. nk., pósthólf 5134, 125 Reykjavík. Kennsla fer fram eftir áfangakerfi. Nemend- ur, sem hafa stundað nám við aðra skóla, fá nám sitt metið að svo miklu leyti sem það fellur að námi í Vélskólanum. Inntökuskilyrði: Umsækjandi hafi lokið grunnskólaprófi með tilskildum árangri eða hlotið hliðstæða menntun. Vélavörður. Samkvæmt nýjum lögum um vélstjóranám býður skólinn upp á vélavarðarnám er tek- ur eina námsönn (4 mánuði) og veitir vélavarðarréttindi samkvæmt ísl. lögum. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans í Sjómannaskóla- húsinu kl. 08.00-16.00 alla daga. Sími 19755. Skólameistari. Skóga- og Seljahverfi Aðalfundur verður haldinn þriðjudaginn 10. nóvember kl. 20.00 í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Gestur fundarins Magnús L. Sveinsson- ar, forseti borgarstjórnar og formaður VR, ræðir um borgarmálefnin. 3. önnur mál. Hafnfirðingar Landsmálafélagið Fram Aðalfundur Aðalfundur veröur haldinn þriðjudaginn 10. nóvember kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Erindi iðnaðarróðherra: Nýiðnaður í og við Hafnarfjörð. 3. Önnur mál. Stjórnin. Ungt sjálfstæðisfólk á Austurlandi Fundur verður haldinn þriðjudaginn 10. nóvember 1987 kl. 20.00 i Samkvæmispáfanum. Dagskrá: 1. Starfið í vetur. 2. Sagt frá Færeyjarferð. 3. Samgöngumál. 4. Önnur mál. Mætum öll. Óðinn FUS. Hafnfirðingar Stefnir, félag ungra sjálfstæðismanna, í Hafnarfirði, fer I heimsókn í forsætisráöu- neytið til þess að hitta Þorstein Pálsson formann Sjálfstæöisflokksins og forsætis- ráðherra fimmtudaginn 12. nóvember. Lagt af stað frá Sjálfstæöishúsinu við Strand- götu í Hafnarfirði kl. 15.30. Mæting kl. 15.00. Þeir sem ætla að fara í feröina til- kynni sig i sima 651158 eftir kl. 18.00 þriðjudaginn 10. og miövikudaginn 11. nóv- ember. Allir velkomnir. Stefnir. - Vestlendingar Almennur stjómmálafundur með Friðrik Sophussyni, iðnaðarráðherra, verður hald- inn miðvikudaginn 11. nóvember í Hótel Borgamesi og hefst kl. 20.30. Allir velkomnir. Sjálfstæðisfélögin. Sjálfstæðiskvennafélagið Vorboðinn, Hafnarfirði Hádegisverðarfund- ur veröur í Sjálf- staeöishúsinu við Strandgötu iaugar- daginn 14. nóvem- ber nk. kl. 13.00. Fundur þessi er haldinn i framhaldi af stjómarfundi Landssambands sjálfstæðiskvenna sem haldinn verður á sama staö kl. 10.00 f.l runn Gestsdóttir, formaöur Landssambands sjálfstæöiskvenna og Sólveig Pétursdóttir, lögfræöingur. Vorboðakonur og allar sjólfstæðiskonur í Reykjaneskjördæmi eru hvattar til að mæta og taka með sér gesti. Stjómin. Kópavogur Sjálfstæðismenn í Kópavogi Aðalfundur Sjálf- stæöisfélags Kópa- vogs verður haldinn í sjálfstæðishúsinu Hamraborg 1, 3. hæð. fimmtudaginn 19. nóv. 1987. Dagskrá: 1. Venjuleg aðal- fundarstörf. 2. Ræðumaður kvöldsins: Eyjólfur Konráð Jónsson alþingismaður. 3. Kaffiveitingar. 4. Umraeður. 5. Önnur mál. Metsölublað ú hverjum degi! Stjórnin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.