Morgunblaðið - 10.11.1987, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987
MEGRUN
ÁN MÆÐU
Þúsundir íslendinga og milljónir um allan heim
hafa nú sannreynt gildi FIRMALOSS grenningar-
duftsins í baráttunni við aukakílóin.
FIRMALOSS GRENNINGARDUFTIÐ
- eðlileg leið til megrunar -
Með FIRMALOSS getur þú haldið þér grannri/
grönnum án gremju. Spyrjir þú þá sem reynt hafa,
færðu staðfestingu. Og haldgóða sögu gefur FIRMA-
LOSS grenningarfæðið sjálft þegar þú reynir það.
FÆST í APÓTEKINU 0G BETRISTÓRMÖRKUÐUM
Nóatúni 17 -Sími 19900
Póstverslun - Sími 30001
Styrjöldin 1812
Bandaríkin og Kanada eru
venjulega talin ríki sem hafa með
sér mjðg vinsamleg samskipti.
Þetta er rétt, en hinsvegar geymir
sagan einnig djúpstæðar deilur
milli þessara granna. Evrópumenn
virðast einnig hafa gleymt að lönd-
in hafa átt í styijöld. Það var árið
1812 og voru þá háðar sjóorustur
á Vötnunum miklu.
Þjóðimar byggja einnig á nokk-
uð ólíkum merg hugmyndalega.
Kanadamenn hafa lagt áherslu á
tryggð við hefðir og stjómsýslu-
kerfí Evrópu og gert minna en
Bandaríkjamenn úr frelsi einstakl-
ingsins.
Sérkenni Kanada
Kanadamönnum er ekki eins illa
við neitt og að þeim sé ruglað sam-
an við Bandaríkjamenn. Þeir halda
því fram að landið hafí ýmislegt
að bjóða borgurum sínum fram
yfír það sem gerist í Bandaríkjun-
um. Félagslega tryggingakerfíð er
víðtækara en í Bandaríkjunum.
Ýmsum félagslegum viðfangsefn-
um er einnig meira sinnt í Kanada.
Þannig eru kanadískar borgjr oft
snyrtilegri en bandarískar, minna
um niðumfdd fátækrahverfí. Þá eru
FYRIR ALLAR
SNEIÐAR
Fullkomin brauörist með stillingu
fyrir þykkt sneiðanna.
Einangraðar hliðar sem hitna
ekki. Stílhreint og fallegt tæki frá
Morphy Richards.
Fæst í næstu raftækjaverslun.
morphu richards
Snæfellsnes:
Stafræn sím-
stöð í Gröf
Borg, Miklaholtshreppi.
BÚIÐ er að endurbæta verulega
tækjabúnað sfmans hér. Sett hef-
ur verið upp ný stafræn símstöð
í húsi sfmans f Gröf, en það var
byggt þegar sjálfvirki sfminn
kom hingað.
Við þessa breytingu margfaldast
flutningsgeta símakerfísins, rásun-
um fjölgar úr 10 í 60, og hin nýja
símstöð verður margfalt fljótvirk-
ari. Einnig getur hún gefíð símnot-
endum kost á ýmsum þjónustu-
möguleikum, svo sem að færa
upphringingu úr sfnu númeri í ann-
að númer hvenær sem er. Notendur
símans fagna þessum framförum,
því oft á tíðum hefur tekið langan
tíma að ná sambandi við Reykjavík
og fleiri staði vegna mikils álags.
Þessa framkvæmd, sem mun veit
íbúum hér mikið öryggi, ber að
þakka. Pall
glæpir mun færri í kanadískum
borgum en bandarískum.
Þjóðemissinnaðir Kanadamenn
óttast að þjóðfélag þeirra missi
sérkenni sín við of nána efnahags-
samvinnu við Bandaríkin. Almennt
er viðurkennt að hræringar í við-
skiptalífí hafa áhrif á fleiri sviðum
en efnahagssviðinu. Ef Norður-
Ameríka verður að einum markaði,
með fáum hindrunum á viðskiptum
landanna, óttast ýmsir Kanada-
menn að sérkenni þjóðar þeirra
muni smátt og smátt þurrkast út.
Ný vopn og gömul
Andstæðingar samkomulagsins
um fríverslun nota bæði ný vopn
og gömul í baráttunni. Alið er á
gamalli tortryggni gagnvart grann-
anum volduga í suðri og sagt að
samkomulagið „selji" Kanada, rýri
sjálfstæði þjóðarinnar. Kanada
verði að „fímmtugasta og fyrsta
fylki Bandaríkjanna". Þeir lesa
þetta út úr þeim ákvæðum sam-
komulagsdraganna sem minnka
eftirlitshlutverk Kanadamanna
með erlendri fjárfestingu og lyfta
hömlum af útflutningi orku til
Bandaríkjanna.
Refsitollar á kanad-
ískar vörur
Ollu málefnalegri er hinsvegar
gagnrýni á samkomulagið í þá veru
að það nái í raun ekki takmarki
sínu. Fríverslunarsamkomulagið á
að koma á hindrunarlausum við-
skiptum milli landanna. Afnema á
tolla og stöðva viðskiptahætti sem
takmarka innflutning á vörum. Á
sama tíma og verið er að vinna að
þessu samkomulagi eru Banda-
rílq'amenn hinsvegar í óða önn að
takmarka innflutning á kanadísk-
um vörum. Þessa dagana eru
Bandaríkjamenn að setja refsitolla
á ýmsar kanadískar afurðir. í fyrra
var 35% tollur settur á kanadískar
byggingavörur til þakgerðar.
Kanadískur sjávarútvegur óttast
mjög aukna vemdarstefnu í Banda-
ríkjunum. Tæplega 6% tollur var
lagður á botnfísk, en ekki er talið
að miklu hafí munað að sá tollur
yrði mun hærri. Hinn mikilvægi
trjávöruiðnaður Vestur-Kanada
fékk skell er úrskurðað var að
leggja skyldi 15% toll á vissar af-
urðir (softwood lumber).
Það liggur fyrir að selja banda-
ríska refsitolla á fjöldann allan af
kanadískum vömm. Ástæðan fyrir
Frá nemendasýningu Listdansskóla Þjóðleikhússins 1987.
Ný sljórn listdansara kosin
Aðalfundur FÍLD, Félags
íslenskra listdansara, var haldinn
laugardaginn 24. október og var
þar minnst 40 ára afmælis félags-
ins. í frétt félagsins kemur fram
að mikill áhugi er á eflingu fé-
lagsins, en markmið þess er að
gæta hagsmuna íslenskra list-
dansara, jafnframt þvi að efla
dansmennt á íslandi.
Átta nýir meðlimir gengu í félag-
ið á fundinum, sjö listdansarar og
einn listdanskennari í nýstofnaða
kennaradeild félagsins. Þá var kos-
in ný stjóm, en hana skipa nú:
Guðbjörg Björgvinsdóttir formaður,
Edda Schevinggjaldkeri, Lára Stef-
ánsdóttir ritari, Ingibjörg Bjöms-
dóttir og Hlíf Svavarsdóttir
meðstjómendur.
eftir Sigmar Þormar
og Halldór Pétur
Pálsson
Frá því drög að fríverslunarsam-
komulagi Bandaríkjanna og
Kanada voru birt í byijun október-
mánaðar hefur verið mikil umræða
um þessi málefni í Kanada. Fólk
virðist skiptast í tvo mjög andstæða
hópa, þá sem vilja vinna að því að
samkomulagið verði að vemleika
og þá sem fínna því allt til foráttu.
Andstæðingar samkomulagsins
vísa til ótta manna um að of náin
efnahagssamvinna þessara landa
þurrki út sérkenni og sjálfstæði
Kanada. Þá vísa þeir einnig til þess
að í samkomulagsdrögum þeim sem
birt hafa verið hefur mjög lítið
verið gengið til móts við Kanada-
menn varðandi eina helstu kröfu
þeirra um að komið verði á gerðar-
dómi beggja landanna til að
úrskurða í deilum um tollamál.
Fríverslunarsainkomulagið:
I Kauada efl-
ist andstaðan