Morgunblaðið - 10.11.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.11.1987, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 255. tbl. 75. árg. ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Gíslataka á Miðjarðarhafi: Segja fólkið vera njósnara Israela Beírút, Brlissel, Tel Aviv, Reuter. HRYÐJUVERKASAMTÖK Palestínumanna, sem kenna sig við leið- toga sinn Abu Nidal kveðast hafa náð sex ísraelskum njósnurum og tveimur hebreskumælandi börnum á sitt vald. Að sögn talsmanns samtakanna var fólkið handtekið á sunnudag er það var á siglingu á snekkju á Miðjarðarhafi skammt undan Gaza-svæðinu umdeilda, sem ísraelar ráða. Talsmaður belgíska utanríkisráðuneytisins sagði í gær að fimm gislanna væru Belgar búsettir í Frakklandi og væru þeir kaþólskrar trúar en ekki gyðingar. ísraels, sagði í gær að svo virtist sem snekkjan hefði ekki komið frá ísrael heldur hefði hún siglt undir fána Belgíu. ísraelskir ráðamenn létu einnig í ljós efasemdir um að liðsmenn Abu Nidal hefðu stöðvað snekkjuna skammt undan_ Gaza- svæðinu sökum þess hve ísraelar héldu uppi ströngu eftirliti á þessum slóðum. Talsmaður belgíska utanríkis- ráðuneytisins sagði í gær að fimm gíslanna væru skráðir belgískir ríkisborgarar sem sest hefðu að í Frakklandi. Nöfn bamanna tveggja hefðu einnig fundist í opinberum skrám. Sagði talsmaðurinn það með öllu óskiljanlegt að hryðjuverka- mennimir skyldu hafa tekið betgíska ríkisborgara sem gisla og kvaðst ekki geta sagt til um hvað vakti fyrir liðsmönnum Abu Nidal. Aðspurður neitaði hann að láta uppi til hvaða aðgerða stjómvöld í Belgíu hefðu gripið til að fá fólkið leyst úr haldi. Samtökin hafa birt nöfn gíslanna og segja þá hafa bæði ísraelskan og belgískan ríkisborgararétt. Tals- maður samtakanna sagði í gær að enn væri verið að yfírheyra fólkið. Shimon Peres, utanríkisráðherra Sri Lanka: Hryðjuverk í Colombo Colombo, Reutcr. SPRENGJA sprakk í Colombo, höfuðborg Sri Lanka, í gær og létust 32 þegar i stað. 106 manns að auki særðust alvarlega og er óttast að tala látinna verði um 50 áður en yfir lýkur. Talið er að kommúnistasamtök nokkur standi að baki tilræðinu, en þau hafa lagst gegn friðarf rumkvæði Jayewardenes forsætisráðherra. BLÓÐUGUR SUNNUDAGUR írski lýðveldisherinn, IRA, hefur viðurkennt að hafa staðið að baki sprengingunni, sem varð á sunnudag í bænum Enniskillen á Norður-írlandi. Létu 11 manns lífið, jafnt kaþólskir menn sem mótmælend- ur, og 65 síösuðust. Sprakk sprengjan þar sem fólk hafði komið saman til að minnast þeirra, sem hafa látið lífið í ófriði og styijöldum. íbúar í Enniskillen eru yfír sig komnir af harmi vegna þessa grimmi- lega hiyðjuverks enda eiga margir um sárt að binda. Einn þeirra kom að deyjandi dóttur sinni og voru þetta hennar síðustu orð þegar hann kraup við hlið henni: „Pabbi, mér þykir svo vænt um þig.“ Myndin sýnir hvemig umhorfs var eftir ódæðisverkið. Sjá nánar á bls. 34 Sprengjan sprakk nærri lög- reglustöð í verkamannahverfinu Maradana, en á sama tíma var Jay- ewardene staddur á skrifstofu sinni í þriggja km fjarlægð. Ríkissjónvarpið skýrði frá því að rannsóknaraðilar hölluðust að því að Þjóðfrelsisfylking marxista (JVP) sé ábyrg fyrir sprenging- unni. í JVP eru m.a. þjóðemissinn- aðir sinhalesar, sem lagst hafa gegn friðarsamningum Jayewardenes hinn 29. júlí sl. Lögreglan í Colombo telur að í sprengjunni hafí verið um 50 kg af öflugu sprengiefni og að hún hafi verið í bíl. Þrátt fyrir að mikl- ar varúðarráðstafanir hafi verið gerðar í Colombo að undanförnu, vegna hryðjuverkahótana JVP, tókst ekki að koma í veg fyrir ódæð- ið. Gengi dollarans lægra en nokkru sinni: Aðgerða Bandaríkjastjórnar beðið með vaxandi óþreyju London, New York, Reuter. ÁHYGGJUR manna af fjárlaga- og viðskiptahallanum í Bandaríkjun- um og af því hve það ætlar að dragast, að stjórnin grípi til einhverra aðgerða, réðu mestu um, að gengi dollarans var í gær lægra en nokkru sinni fyrr og hlutabréf féllu enn í verði. Þegar gengisskráningu lauk í gær fengust 1,65 vestur-þýsk mörk fyrir dollarann og 1,79 dollarar fyr- ir enskt pund. í kauphöllinni í Wall Hundruðum Júgóslava vísað á brott úr Noregi Stjórnvöld reyna að stemma stigu við fólksstraumnum Ósló, Reuter. NORSK stjórnvöld skýrðu frá því í gær, að 300 Júgóslavar af albönskum ættum yrðu sendir til síns heima og að verið væri að athuga mál annarra 600. Hafði fólkið komið til Noregs i at- vinnuleit og einnig sótt þar um pólitískt hæli. Tanjug-fréttastofan júgóslav- Fólkið er frá héraðinu Kosovo í neska sagði í gær, að hinir 600 Júgóslavíu en þar hefur verið ófriðlegt og grunnt á því góða milli meirihluta íbúanna, sem eru af albönsku bergi brotnir, og ann- arra þjóðarbrota. Hefur það verið að koma til Noregs sl. tvö ár og yrðu einnig sendir heim en Kjell Solem, talsmaður norska dóms- málaráðuneytisins, sagði, að ekkert hefði enn verið ákveðið hvað gert yrði í málum þeirra. sótt fyrst um atvinnuleyfi og þeg- ar það gekk ekki um pólitískt hæli. Norðmenn eru nú að spyma við fótum og reyna að draga úr fólksstraumnum til landsins en á þessu ári aðeins hafa komið þang- að 5000 manns, aðallega frá íran, Suður-Ameríku og Sri Lanka. Sagði Solem, að langflest væri þetta fólk skilríkjalaust og ekki raunverulegir flóttamenn. Street féll verð hlutabréfa allnokk- uð og sömu sögu er að segja af verðbréfamörkuðum annars staðar. Eru kauphallarstarfsmenn og efna- hagsmálasérfræðingar sammála um, að stefnan verði niður á við þar til Bandaríkjastjóm veit til hvaða ráða hún ætlar að grípa við að lækka fjárlaga- og viðskiptahall- ann. Bandaríska dagblaðið The New York Times sagði á sunnudag, að James Baker fjármálaráðherra hefði boðist til að fallast á veruleg- ar skattahækkanir gegn því, að demókratar samþykktu ýmsar nið- urskurðartillögur repúblikana. Sagði blaðið, að þetta væri til marks um, að menn væru famir að ókyrr- ast og því tilbúnir til að teygja sig langt til samkomulags. Repúblikan- ar hafa lagt fram sínar tillögur og felast þær í því að lækka fjárlaga- hallann um 30 milljarða dollara á næsta ári og um 45,5 milljarða árið 1989. Seðlabankastjórar tíu iðnríkja héldu í gær fund í Basel í Sviss og í ályktun, sem þeir létu frá sér fara, skora þeir á ríkisstjómir að koma á jöfnuði í viðskiptum sín í milli og annarra. Kváðust þeir tilbúnir til að beita sér fyrir ráðstöfunum í peningamálum til að styðja við slíkar aðgerðir. Túnis; Vill viðræður um kosningar Túnisborg, Reuter. HIN nýja stjórn Túnis hefur leyst helstu pólitísku fanga úr haldi og boðið stjómarandstöðunni til við- ræðna um fijálsar kosningar. Talið er að nýir valdhafar vi(ji með þessu sýna viija sinn til þess að brjóta landið úr pólitískum viðjum Habib Bourguiba, fyrrver- andi forseta. Zine al-Abidine Ben Ali, forsætis- ráðherra, setti Bourguiba af á laugardag eftir að læknar höfðu úrskurðað að hann væri orðinn elliær og tók sjálfur við forsetaembættinu. Nýr forsætisráðherra, Hedi Bacco- uche, sagði í gær, að stjómin hygðist ræða við stjómarandstöðuna um nýjar þingkosningar. Sjá Erlendan vettvang á bls. 28.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.