Morgunblaðið - 14.01.1988, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANUAR 1988
5
Gildandi
reglur um
flugelda
til endur-
skoðunar
Dómsmálaráðuneytið hyggst
taka til endurskoðunar gildandi
reglur um innflutning, sölu og
meðferð flugelda í kjölfar
tívolíbombuslysanna sem urðu um
áramótin, að sögn Þorsteins Geirs-
sonar ráðuneytisstjóra.
Ný reglugerð er nú í smíðum á
grundvelli gildandi laga og sagði
Þorsteinn að vandlega yrði kannað
hvaða gerðir flugelda og blysa sem
nú eru á markaði gætu talist hættu-
legar í meðförum og hverjar ekki.
Þorsteinn kvaðst meðal annars hafa
haldið fund með sprengjusérfræðing-
um Landhelgisgæslunnar og fengið
þeirra álit á þeim vamingi sem hér
væri á markaði. „Við ætlum að fara
nákvæmlega yflr allan pakkann og
fullvissa okkur um að ekkert það sem
talist getur hættulegt almenningi
verði hér á markaði þegar næsta
„vertíð" hefst," sagði Þorsteinn
Geirsson.
Að sögn Þorsteins eru nú teknar
að berast til ráðuneytisins yfirlits-
skýrslur frá lögregluembættum víðs
vegar um landið þar sem greint er
frá óhöppum sem hlutust af notkun
flugelda um áramótin. Þorsteinn
sagði að enn ættu eftir að berast
gögn frá mörgum stöðum en ljóst
væri að víða um land hefðu orðið
óhöpp í tengslum við flugelda. Mörg
þeirra hefðu verið minniháttar og
ekki verið greint frá þeim í flölmiðl-
um.
Dýrara að
fara í sund
HÆKKUN á aðgangseyri ( sund-
staði Reykjavíkur tók gildi ( gær.
Einstakir miðar fullorðinna
hækka úr 50 kronum ( 60, og ein-
stakir miðar barna úr 25 króntun
i 30. Jafnframt er hafin sala á
árskortum sem gilda á alla sund-
staði borgarinnar, og veita veru-
legan afslátt frá almennum
aðgangseyri að sundstöðum.
Einnig er hafln sala sérstakra fyr-
irtækjakorta sem henta vel fyrirtækj-
um og stofnunum sem hvetja vilja
starfsmenn sína til líkamsræktar og
heilsubótar. Fyrirtækjakort með 30
miðum munu kosta 1400 krónur, en
árskort fullorðinna kosta 8000 krón-
ur, og árskort bama 3000 krónur.
Af öðrum hækkunum má nefna
að einstakir miðar í gufubað hækka
úr 110 krónum í 130 krónur, leiga
á handklæði og sundfatnaði hækkar
úr 65 krónum í 80 krónur, sundæ-
fingar fullorðinna hækka úr 165
krónum í 200 krónur, og sundæfíng-
ar bama úr 110 krónum í 130 krónur.
Minna selt
af hrossa-
kjöti 1987
SALA á hrossakjöti virðist heldur
hafa dregist saman á siðasta ári,
samkvæmt bráðabirgðatölum
Framleiðsluráðs landbúnaðarins.
Komnar eru skýrslur út nóvem-
bermánuð og var salan þá orðin
657 tonn, sem er um 30 tonnum
minna en á sama tima árið áður.
Hrossakjötssalan náði hámarki í
nóvember, þegar tæp 88 tonn vom
seld, en aðra mánuði var salan á
bilinu 44 til 70 tonn. Allt árið 1986
seldust 723 tonn af hrossakjöti á
landinu.
Lhicago!
Ævintýraleg
skammdegissveifla frá kr. 21.222,-
4 eða 5 dagar í hinni óviðjafnanlegu Chicago gefa
þér sannarlega nóg til að hugsa um - hvort sem þú vilt
njóta lista- og menningarlífs, nætur- og skemmtanalífs eða
gerast viðskiptavinur einhverra hinna ævintýralegu
verslana sem hafa upp á fleira að bjóða en þig hefur nokkru
sinni dreymt um.
Líttu snöggvast á gengisskráninguna í dagblöðunum
og sjáðu hvað verðið á dollarnum er hagstætt - einmitt
núna.
Verðdæmi 1: 3 nætur - frá sunnudegi til miðvikudags.
Verð frá kr. 21.222* á mann, miðað við flug
og gistingu á 2ja manna herbergi á Days Inn.
Verðdæmi 2: 4 nætur - frá miðvikudegi til sunnudags.
Verð frá kr. 22.554** á mann, miðað við flug
og gistingu á 2ja manna herbergi á Days Inn.
Hafi þig einhverntíma dreymt um að sveifla þér
til Ameríku þá er tækifærið núna. Beint flug til BOSTON,
NEW YORK, ORLANDO og WASHINGTON auk CHICAGO.
FLUGLEIÐIR
—fyrír þíg-
* Morgunverður og flugvallarskattur eru ekki innifaldir í verði.
** Þessi verðdæmi eru í gildi til febrúadoka.
Nánari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn um allt land og ferðaskrifstofumar.
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingasími 25 100.