Morgunblaðið - 14.01.1988, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988
15
Símtöl sem greiðast af
þeim sem hringt er til
Fótaaðgerðastofa
Guðrúnar
Hef opnað fótaaðgerðastofu á Laugavegi 91 á
2. hæð.
Tímapantanir í síma 14192.
Kynningarafsláttur út janúar.
Guðrún Ruth,
fótasérfræðingur.
Hraðlestrarnámskeið
Vilt þú margfalda lestrarhraða þinn, hvort
heldur er við lestur námsbóka eða fagur-
bókmennta?
Nemendur HRAÐLESTRARSKÓLANS þrefalda að
meðaltali lestrarhraða sinn, jafnvel með meiri eftir-
tekt á innihald textans, en þeir hafa áður vanist.
Næsta námskeið hefst miðvikudaginn 27. janúar.
Skráningöllkvöldkl. 20.00-22.00ísima 611096.
i m (X)
H R AÐLESTR ARSKÓLIN N
eftir Jóhann
Hjálmarsson
HÓTEL UND nýtt hótel
með flestum þeim þægmdum sem
hótel bjóða upp á.
Þægileg og þjört herbergi með
wc, og baði, sjónvarpi, útvarpi
og síma.
Veitmgasaluriiuibýður upp á
girnilegar veitingar og
barnamatseðil.
Þægilegt, persónulegt og
rólegt yfírbragð.
Þægilegt hótel í miðri borg
RAUÐARÁRSTÍG 18 - BEYKJAVÍK SÍMI 91-623350
Símtöl sem greiðast af þeim sem
hringt er til, oftast nefnd kollekt-
símtöl eftir enska orðinu collect, en
líka kölluð mótgreidd, eru töluverð-
ur hluti símaþjónustu. Þó bjóða
ekki öll lönd upp á hana.
Kollekt-símtöl eru nú leyfð til
eftirfarandi landa: Ástralíu, Banda-
ríkjanna, Belgíu, Bretlands,
Danmerkur, Finnlands, Frakklands,
Færeyja^ Grikklands, Hollands, ír-
lands, Israel, Ítalíu, Júgóslavíu,
Kanada, Kýpur, Lúxemborgar,
Noregs, Nýja-Sjálands, Portúgal,
Sviss, Svíþjóðar og Tékkóslóvakíu.
Þegar óskað er eftir því að sím-
talið sé greitt af þeim sem hringt
er til verður það því aðeins afgreitt
að viðtakandi samþykki að símtalið
sé skráð á hans símanúmer. Símtöl-
in eru afgreidd um símstöð og á
þau leggst aukagjald, 9,18 gull-
frankar eða 174 krónur i Vestur-
Evrópu og Bandaríkjunum. Til
annarra landa samsvarar auka-
gjaldið einnar mínútu símtali.
Þegar beiðni kemur erlendis frá
um kollekt-símtal við íslenskan
símnotanda er mikilvægt að sá sem
svarar geri sér grein fýrir um hvað
er beðið. Beiðnin er oftast borin
fram á ensku nema þegar um Norð-
urlandaþjóðir er að ræða. Svari
símnotandi beiðni játandi er hann
þar með búinn að taka á sig
greiðsluskyldu, kostnaður viðkom-
andi símtals verður þá samkvæmt
upplýsingum erlendu símastjómar-
innar um lengd þess.
Ýmsar þjóðir hafa hætt að leyfa
kollekt-símtöl vegna óþæginda af
þeirra völdum. Gildir það ekki síst
um innheimtu símtalanna. Síma-
stjómir hafa miliigöngu um inn-
heimtu, að sjálfsögðu eftir
símatöxtum þess lands sem hringt
er til, og senda símnotendum reikn-
ing, en símnotandinn sjálfur er
ábyrgur fyrir greiðslunni. Berist
greiðsla ekki er yfirleitt við símnot-
andann að sakast.
Alltaf koma upp dæmi þar sem
símnotandi neitar að greiða fyrir
kollekt-símtal, segist ekki hafa
samþykkt það og telur jafnvel að
um misnotkun síma hans hafi verið
að ræða.
Símastjómir taka sjálfar, hver
fyrir sig, ákvarðanir um kollekt-
viðskipti. ^leðal þjóða sem hætt
hafa afgreiðslu kollekt-símtala em
Vestur-Þjóðveijar. Kollekt-símtöl
hafa ekki verð leyfð í Vestur-
Þýskalandi síðan 1. maí 1981 nema
til Bandaríkjanna.
íslendingur staddur erlendis
býsnaðist yfir því nýlega að hann
fékk ekki að hringja kollekt frá
Vestur-Þýskalandi til íslands. (Sjá
Hér og nú. Einar Guðmundsson
skrifar frá Munchen. Morgunblaðið
8.11. sl.) Hann skrifar m.a.: „Þjóð-
verjar em búnir að taka fyrir að
hægt sé að hafa kollekt-samband
við Island. Fylgdi sögunni að Póstur
og sími hefði aldrei borgað fyrir
þessa þjónustu, og því verið afskrif-
aður! — Ekki beint fallegt til
afspumar þetta.“
Frá afgreiðslu Talsambandsins við útiönd i Múlastöð í Reykjavík.
Símtöl milli landa em nú tiltölu-
lega ódýr, þrátt fyrir nýlega
hækkun. Sem dæmi má nefna að í
sjálfvirku vali kostar mínútan 45
krónur til Norðurlanda, að frátöldu
Finnlandi, 49 krónur, til Bretlands
51 krónu og til Bandaríkjanna 92
krónur.
Höfundur er blaðafuiitrúi Póat-
og símamálastofnunar.
Hér er málflutningur orðum auk-
inn, eins og ljóst má vera, firra
hlaupin í penna. Ekki hefur staðið
á Pósti og síma að greiða Vestur-
Þjóðveijum, enda gera símastjómir
Evrópubandalags Pósts og síma
upp sín á milli með jöfnunarreikn-
ingi (clearing).
Alltaf ber að greiða fyrir kollekt-
símtöl í því landi sem hringt er til
og miðast gjöld við gjaldskrá i við-
komandi landi, eins og fyrr segir.
Mörgum, ekki síst námsmönnum
og ferðamönnum, hefur þótt þægi-
legt að geta' notfært sér þessa
þjónustu, en eftir því sem sjálf-
virknin verður meiri í símakerfinu
fækkar kollekt-símtölum.
Fundar-
°í veislusalur:
Vistlegur veislu-, funda-,
og ráðstefnusalur fyTir állt
að 100 manns, með öllum tækjum
auk telex og ljósritunaraðstöðu.