Morgunblaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988
Taiwan:
Chiang* Ching-Kuo allur
Lee Teng-Hui varaforseti tekinn við
Taipei, Reuter.
FORSETI Taiwans, Chiang Ching-Kuo, lést af völdum hjartaáfalls
í gær. Chiang, sem var sonur stríðskempunnar Chiang Kai-Shek,
var 77 ára gamall. Varaforseti landsins, Lee Teng-Hui, hefur þegar
tekið við forsaetaembætti.
Chiang Ching-Kuo.
Chiang var vinsæll meðal þjóðar
sinnar og einn aðalhugmyndasmið-
ur efnahagsundursins á Taiwan.
Hann stjórnaði landi sínu með
styrkri hendi, en lét undirmönnum
sínum þó eftir daglegt amstur
stjórnarinnar.
Á síðastliðnu ári aflétti hann
herlögum, sem verið höfðu í gildi
frá því að kínverskir þjóðemissinnar
flúðu meginland Kína undan her7
sveitum kommúnista fyrir 38 árurh
og hóf að færa stjórn alla og skipu-
lag í lýðræðislegra horf.
Chiang menntaðist í Sovétríkjun-
um á þriðja og fjórða tug aldarinnar
og hafði í raun lítil kynni af vest-
rænum hugmyndum um lýðræði og
frjálslyndi. Vestrænir stjómmála-
skýrendur telja að með hrakandi
heilsu hafi hann gert sér grein fyr-
ir nauðsyn lýðræðislegri stjómar-
hátta og þess að nýtt blóð kæmi í
forystusveit landsins.
Chiang naut mikillar lýðhylli og
ber mönnum sama að hann hafi
verið andlega vel á sig kominn und-
ir hið síðasta og var sérstaklega til
þess tekið hvað hann þótti hafa
góða kímnigáfu. Hins vegar gekk
hann ekki heill til skógar líkamlega
og þjáðist af sykursýki og augn-
sjúkdómi nokkmm.
HÆKKUN
ÐGJALDA Tll LÍFEYRISS
Breyttar reglur um iðgjaldagreiðslur til lífeyrissjóða SAL.
Samkvæmt kjarasamningi ASÍ og VSÍ frá 26. febrúar 1986 aukast iðgjöid til
lífeyrissjóða í áföngum, þar til 1. janúar 1990 að starfsmenn greiða 4% af öllum
launum til lífeyrissjóða og atvinnurekendur með sama hætti 6%. Til iðgjalda-
skyldra launa telst m.a. yfirvinna, ákvæðisvinna og bónus. Sérstakar reglur
gilda þó um iðgjaldagreiöslur sjómanna.
Umsamið hlutfall iðgjalda af öllum launum er sem hér segir:
Árin 1987-1989:
a) Starfsmenn: 4% iðgjald skal greiða af öllum tekjum starfsmanna á
mánuði hverjum, hverju nafni sem nefnast, þó skal
ekki greiða 4% iðgjald af hærri fjárhæð, en sem
svarar til iðgjalds fyrir 1731/3 klst. miðað við tíma-
kaup hlutaðeigandi starfsmanns í dagvinnu, að við-
bættu orlofi.
Atvinnurekendur: 6% iðgjald af sömu fjárhæð.
b) Ef launatekjur eru hærri, en sem nemur tekjum fyrir 173 1/3 klst. að
viðbættu orlofi, sbr. a-lið, skal greiða til viðbótar sem hér segir:
1987
1988
1989
Hluti
starfsmanna:
1,0%
2,0%
3,0%
Hluti
atvinnurekenda:
1,5%
3,0%
4,5%
Frá 1. janúar 1990 greiða starfsmenn 4% af öllum launum og atvinnurekendur
með sama hætti 6%.
SAMBAND ALMENNRA LÍFEYRISSJÓÐA
Samræmd lífeyrisheild
Lsj. byggingamanna •
Lsj. Dagsbrúnar og Framsóknar •
Lsj. Félags garðyrkjumanna •
Lsj. framreiðslumanna •
Lsj. málm- og skipasmiða •
Lsj. matreiðslumanna •
Lsj. rafiðnaðarmanna •
Lsj. Sóknar •
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
Lsj
verksmiðjufólks
Vesturlands
Bolungarvíkur
Vestfirðinga
verkamanna, Hvammstanga
stéttarfélaga i Skagafirði
Iðju á Akureyri
Sameining, Akureyri
trésmiða á Akureyri
Lsj. Björg, Húsavík
Lsj. Austurlands
Lsj. Vestmanneyinga
Lsj. Rangæinga
Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurlandi
Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurnesjum
Lsj. verkafólks í Grindavík
Lsj. Hlífar og Framtíðarinnar
Lee Tang-Hui.
Kosningarnar
1 í Haiti:
Erlendum
fulltrúm
boðið að
fylgjast
með kjöri
Port-au-Prince, Reuter.
HERSHÖFÐINGJAR Haiti, sem
reyna að koma í veg fyrir að
ofbeldi endurtaki sig í tengslum
við forsetakosningarnar á sunnu-
dag, greindu frá því á þriðjudag
að eriendum eftirlitsmönnum og
fréttamönnum verði leyft að
fylgjast með kosningunum. Að
sögn sendimanna er þetta svar
herstjórnarinnar við þeim gagn-
rýnisröddum sem halda því fram
að hún sé líklega til að „hag-
ræða“ kosningunum. Andstæð-
ingar herstjórnarinnar segjast
ætla að hunsa kosningarnar, þar
sem þeir teija að hershöfðingj-
arnir ætli að koma því til leiðar
að einhver þeim hliðhollur verði
forseti landsins.
í yfirlýsingu herstjómarinnar
segir að eftirlitsmönnum frá Sam-
einuðu þjóðunum, Samtökum
Ameríkuríkja, Evrópubandalagsins
og Einingarsamtökum Afríku verði
boðið að fylgjast með kosningunum.
Sú staðreynd að hægrisinnuðum
stuðningsmönnum Duvaliers, fyrr-
um einræðisherra landsins, var
bannað að bjóða sig fram hefur
vakið ugg um að ofbeldi endurtaki
sig. Sex þeirra sem var bannað að
bjóða sig fram hafa áfrýjað til
hæstaréttar landsins, en fréttaskýr-
endur telja að dæmt verði þeim í
óhag.
Margir íbúa höfuðborgarinnar,
Port-au-Prince, eru sagðir hafa
yfírgefíð borgina af ótta við of-
beldi. Nokkrir sendimenn hafa sagt
að 6 manns hafi verið drepnir
síðustu vikur. Mikil spenna er sögð
í borginni Jeremie, en hún er ein
af fáum borgum Haiti þar sem vit-
að er að andstæðingar hersins séu
vopnaðir. Hersveitir eru sagðar
hafa eftirlit með borgarbúum vegna
orðróms um að andstæðingar hers-
ins þar ætli að mótmæla kosningun-
um.
Willy Romulus, biskup í Jeremie,
og fleiri kaþólskir leiðtogar hafa
hvatt Haitibúa til að kjósa ekki,
þrátt fyrir að slíkt sé bannað með
lögum. Útvarpsstöð í höfuðborginni
hefur greint frá því að herinn hafi
í það minnsta handtekið tvo menn
í Jeremie fyrir að hvetja fólk til að
kjósa ekki. Sumir Haitibúar spá því
að einungis lítill hluti þjóðarinnar,
aðallega skyldmenni og stuðnings-
menn frambjóðendanna ellefu, auk
hermanna og ríkisstarfsmanna,
komi til með að kjósa.