Morgunblaðið - 14.01.1988, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988
SPÁ VSÍ UM EFNAHAGSHORFIJR Á ÁRINU 1988:
„Heildarkaupmátt-
urinn hlýtur og
verður að minnka“
- segir Ólafur Davíðsson,
f ramk væmdastj óri FII
GENGI íslensku krónunnar er of hátt skráð við núverandi aðstæður
og miðað við framreikning á rekstarreikningum fiskiðnaðarins er
Ijóst að jafnvægi næst ekki nema við raungengi sem er allt að 10%
lægxa en nú er. Þetta kemur meðal annars fram i spá Vinnuveitenda-
sambands Islands um efnahagshorfur á árinu 1988.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, sagði á blaða-
mannafundi þar sem spá VSÍ var
kynnt að óhjákvæmilegt væri að
fjalla um gengismálin með opin-
skáum hætti. „Við leggjum áherslu
á það að þeim mun minni sem verð-
bólgan verður, því hærra raungengi
fá útflutningsgreinarnar. staðist.
Það er skoðun okkar að eftir því
sem verðbólguhraðinn er minni,
þeim mun meiri möguleiki er fyrir
fyrirtækin að bregðast við með
framleiðniaukningu og að aðlaga
sig erfiðari samkeppnisaðstöðu
hvað gengið varðar. Við leggjum
ekki mat á það hvemig gengið eigi
að verða skráð, en drögum það hins
vegar fram í þessari álitsgerð að
óbreytt raungengi fái ekki staðist,
ef markmiðið sé það að halda út-
flutningsframleiðslunni gangandi
til langframa," sagði Þórarinn.
í spánni eru dregnir upp nokkrir
möguleikar varðandi launahækkan-
Morgunblaðið/Sverrir
Talsmenn VSÍ á blaðamannafundinum í gær. Taldir frá vinstri Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmda-
stjóri VSÍ, Snorri Snorrason, hagfræðingur, Hannes G, Sigurðsson, hagfræðingur og Ólafur Davíðsson,
framkvæmdastjóri FÍI.
ir, gengisbreytingar og samsvar-
andi hækkun framfærsluvísitölu.
Miðað við að engar launahækkanir
verði og gengið verði það sama og
í ársbyijun er reiknað með 5%
hækkun framfærsluvísitölunnar á
árinu. Ólafur Davíðsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra
iðnrekenda og Hannes G. Sigurðs-
son, hagfræðingur VSÍ, sögðu að
yrðu engar hækkanir á launakostn-
aði myndi verðbólgan minnka mjög
fljótlega. Ólafur sagði að áhrifín
af launahækkunum á síðasta ári
væru að fjara út og breyting væri
að verða á efnahagsástandinu.
Þennslan væri að minnka og ef
ekki kæmu til nýir verðbólguvaldar
ætti að draga mjög fljótt úr verð-
bólgu. Minni útflutningstekjur
leiddu óhjákvæmilega til samdrátt-
Gengi íslensku krón-
unnar er of hátt skráð
Hér á eftir birtist í heild spá Vinnuveitendasambands íslands um
efnahagshorfur á þessu ári, árinu 1988. Spáin var kynnt fjölmiðlum
á blaðamannafundi í gær, en hana unnu hagfræðingar Vinnuveitenda-
sambandsins, þeir Hannes G. Sigurðsson og Snorri Snorrason.
Útf lutningsf ramleiðsla
Búist er við að verðmæti sávaraf-
urðaframleiðslu dragist saman um
tæplega 7% á árinu. Þorskafli ársins
1987 er áætlaður 380.000 tonn, sem
er tæplega 4% aukning frá 1986.
Nú er stefnt að 345.000 tonna þorsk-
afla á árinu 1988 og þegar liggur
fyrir samdráttur í aflamörkum ein-
stakra skipa. I þessu felst rúmlega
9% samdráttur frá fyrra ári. Reiknað
er með litlum breytingum á öðrum
afla, þó að búast megi við heldur
meiri loðnuafla en áður var gert ráð
fyrir, vegna óvæntrar kvótaaukning-
ar. A hinn bóginn virðist mega vænta
samdráttar í framleiðslu hörpudisks
vegna verðfalls á Bandaríkjamark-
aði.
Margt bendir til að verðlag á fiska-
furðum hafi náð hámarki og er búist
við óbreyttu verði á fiskafurðum á
þessu ári, en þó einhverri hækkun á
rækju og loðnuafurðum.
Samtals felur þetta í sér tæplega
7% samdrátt í verðmæti sjávaraf-
urðaframleiðslu, en í þjóðhagsáætlun
er gert ráð fyrir óbreyttu framleiðslu-
verðmæti miðað við síðasta ár.
Búist er við, að verðmæti annars
útflutnings breytist lítið, nema hvað
reiknað er með nokkurri verðmæta-
aukningu á áli og jámblendi.
Samkvæmt ofangreindu má búast
við að verðmæti vöruútflutnings
dragist saman um rúmlega 4%, en í
þjóðhagsáætlun er gert ráð fyrir
0,5% aukningu.
Þetta eru mikil umskipti, þar sem
verðmæti vöruútflutnings hefur auk-
ist að meðaltali um tæp 6% á ári,
undanfarin þijú ár.
Viðskiptakjör
Samkvæmt spá Efnahags- og
framfarastofnunar Evrópu má búast
við 3,5—4% hækkun almenns verð-
lags á Vesturlöndum. Eins og áður
er getið er í meginatriðum búist við
óbreyttu verði á fiskafurðum þó að
vænta megi nokkurrar hækkunar á
rækju og loðnuafurðum. í þessum
forsendum kann að gæta nokkurrar
bjartsýni, því að ýmis teikn benda
fremur til lækkandi verðs á fiska-
furðum. Litlar horfur eru taldar á
þvi, að aðrar útflutningsvörur okkar
taki öðrum verðbreytingum en al-
mennum verðhækkunum í viðskiptal-
öndum okkar.
í kjölfar lækkandi gengis dollars
hefur útflutningur til Evrópu og Jap-
ans aukist hlutfallslega og er nú svo
komið að um helmingur útflutnings-
tekna fíksvinnslunnar er í Banda-
ríkjadollurum, en þetta hlutfall var
áður nær 60%. Breytingar á dollara-
gengi hafa því ekki jafnmikil áhrif
og áður á útflutningstekjur lands-
manna. Innflutningur er hins vegar
að miklum meiri hluta í öðrum mynt-
um en dollar og eru því áhrif
lækkandi dollars og tilsvarandi
hækkunar annarra gjaldmiðla meiri
á innflutningsverðlag en útflutnings-
tekjur. Lækkun dollars hefur því
rýrt viðskiptakjör þjóðarbúsins.
Samkvæmt ofangreindu er gert
ráð fyrir 1—1,5% lakari viðskipta-
kjörum á árinu, m.a. vegna stöðu
dollarans. í álitsgerð, sem VSÍ sendi
frá sér í nóvember á síðastliðnu ári
var gert ráð fyrir 2% rýmun við-
skiptakjara. Ástæður þessarar
breytingar má rekja til þriggja þátta:
hækkunar á verði rækju og loðnuaf-
urða, lægra olíuverðs en gert var ráð
fyrr og minna vægis dollars í út-
flutningi en áður hefur verið reiknað
með.
í þessu felast einnig nokkur um-
skipti, þar sem viðskiptakjörin hafa
verið okkur hagstæð frá árinu 1986.
í þjóðhagsáætlun er reiknað með
óbreyttum viðskiptakjörum.
Gengfisþróun
Meðalgengi íslensku krónunnar
var stöðugt á árinu 1987, en sama
verður ekki sagt um gengið gagn-
vart einstökum myntum. Þannig
lækkaði verð Bandaríkjadollars um
rúmlega 10% á árinu, en flestar aðr-
ar myntir hækkuðu og japanska
yenið mest, eða um meira en fjórð-
ung. Þessi þróun hefur verið þjóðar-
búinu óhagstæð og ein sér valdið
lakari viðskiptakjörum en ella hefði
orðið.
Raungengi er mælikvarði á kostn-
aðarbreytingar hér á landi miðað við
önnur lönd og er annað hvort miðað
við breytingar verðlags eða launa.
Samkvæmt útreikningum Seðla-
banka íslands hækkaði raungengi á
mælikvarða verðlags um 9% milli
áranna 1986 og 1987 en um 19%
sé miðað við launakostnað. Þetta eru
þær hækkanir sem orðið hafa hér-
lendis á verðlagi og launum umfram
hækkanir í helstu viðskiptalöndum
íslands. Á tímabilinu frá 1. ársfjórð-
ungi 1986 til 4. ársfjórðungs 1987
hækkaði raungengið um 18% sam-
kvæmt verðmælikvarðanum og 31%
sé miðað við launakostnað.
Þessi þróun hefur valdið því, að
fiskiðnaður er um þessar mundir rek-
inn með miklum halla, þrátt fyrir
hátt verð á mörkuðum erlendis.
Staða vefjariðnaðar er enn verri og
samkeppnisgreinar á innanlands-
markaði eiga í vaxandi erfiðleikum.
Einnig hefur þessi þróun leitt til
vaxandi viðskiptahalla og horfur í
þeim efnum eru afar dökkar á þessu
ári.
Við þessar aðstæður er ljóst, að
gengi íslensku krónunnar er of hátt
skráð. Framreikningar á rekstrar-
reikningum fískiðnaðarins benda til
þess, að viðunandi jafnvægi náist
ekki nema við raungengi, sem er
allt að 10% lægra en nú er.
Launa- og kaupmáttar-
þróun
Talið er að taun hafi hækkað um
40% að meðaltali á milli áranna 1986
og 1987, en framfærsluvísitalan um
19% og jókst því kaupmáttur launa
um 17% milli áranna. Landsmenn
heíja nýbyijað ár með laun, sem eru
að meðaltali a.m.k. 10% hærri en
ársmeðaltalið og verðlag, sem er um
13% hærra. Sé horft á tímabilið frá
1. ársfjórðungi 1986 til 4. ársfjórð-
ungs 1987 kemur í ljós hækkun launa
um 73%, verðlagshækkun um 34%
og því aukning kaupmáttar um 29%.
Á síðustu tveimur árum hefur inn-
flutningsverðlag hækkað til muna
minna en innlendur kostnaður. Inn-
flutningsverð almennrar neysluvöru
er talið vera um 10% hærra um þess-
ar mundir en það var að meðaltali
árið 1986, en á sama tímabili hefur
vísitala framfærslukostnaðar hækk-
að um rúmlega 30%. Þannig er
. kaupmáttur á mælikvarða innflutn-
ingsverðs til muna hærri en á
mælikvarða framfærsluvísitölu.
Þessar aðstæður gefa einnig sterk-
lega til kynna, að gengi krónunnar
sé of hátt skráð um þessar mundir.
Launakostnaður mældur í erlendri
mynt hefur hækkað að sama skapi
margfalt meira en hjá þeim þjóðum
sem við keppum við á mörkuðum
erlendis sem innanlands. Þannig hef-
ur launakostnaður hækkað u.þ.b.
þriðjungi meira hérlendis en í Dan-
mörku og Noregi á föstu gengi á
síðustu tveimur árum. Sé litið til
Kanada er gert ráð fyrir að laun þar
í landi hafi hækkað um 2% frá árs-
byijun 1986 fram á mitt ár 1987,
en á sama tima lækkaði gengi
Kanadadollars gagnvart íslenskri
krónu um 2,8% þannig að laun í
Kanada lækkuðu í íslenskum krón-
um. Ofannefnd þijú lönd eru þau
lönd, sem eru í hvað harðastri sam-
keppni við Islendinga á fiskmörkuð-
um erlendis.
Þjóðarútgjöld
Einkaneyslan er stærsti hluti þjóð-
arútgjalda, tæplega 65%, og ræðst
hún fyrst og fremst af ráðstöfunar-
tekjum, eignum og vöxtum. Vegna
samdráttar útflutningstekna mun
kaupmáttur tekna dragast saman á
árinu og er hér gert ráð fyrir 5%
samdrætti ráðstöfunartekna, því að
búist er við minni atvinnuþátttöku,
aukinni skattbyrði og minni umsvif-
um, auk þess sem kaupmáttur launa
hlýtur að dragast saman.
í samræmi við ofangreindar for-
sendur má ætla, að einkaneysla
dragist saman um 3% á árinu.
I nóvemberálitsgerð VSÍ var búist
við 1% aukningu einkaneyslu, enda
var ein af forsendum hennar, að
kaupmáttur yrði svipaður á þessu
ári og í árslok ársins 1987. í þjóð-
hagsáætlun er gert ráð fyrir 0,5%
aukningu einkaneyslu og er þetta
því mikið frávik frá þeirri spá.
Áætlað er að samneysla hafi auk-
ist að raunvirði um 4% á síðasta ári.
í þjóðhagsáætlun fyrir 1988 er gert
ráð fyrir 2% aukningu milli ára og
er hér gert ráð fyrir sömu aukningu,
þótt þegar liggi fyrir upplýsingar,
sem gefa til kynna, að aukningin
verði í reynd nokkru meiri.
Fjármunamyndun er talin hafa
aukist um 8% að raunvirði á árinu
1987. í þjóðhagsáætlun er gert ráð
fyrir 1,5% aukningu fjármunamynd-
unar. Hér er gert ráð fyrir 2,5%
aukningu, þar sem búast má við að
aukning fjármunamyndunar hjaðni
ekki jafnfljótt og gert er ráð fyrir í
þjóðhagsáætlun.
Samkvæmt ofangreindu er hér
áætlað að þjóðarútgjöld dragist sam-
an um 1%. Þetta er frávik frá
þjóðhagsáætlun, þar sem gert er ráð
fyrir aukningu þjóðarútgjalda um 1%
og mikil umskipti frá síðasta ári, en
þá er áætlað að þjóðarútgjöld hafi
vaxið um 11,2%.
Utanríkisviðskipti
Eins og fyrr greinir er hér áætlað
að verðmæti vöruútflutnings dragist
saman um 4%. Einnig má búast við
einhveijum samdrætti í verðmæti
vöruinnflutnings og ræður þar mestu
samdráttur í einkaneyslu.
Hár er gert ráð fyrir 0,5% sam-
drætti í verðmæti vöruinnflutnings,
en í fyrri álitsgerð var gert ráð fyrir
5% aukningu, enda var þá byjggt á
öðrum kaupmáttarforsendum. I þjóð-
hagsáætlun er gert ráð fyrir að
verðmæti innflutnings aukist að
raunvirði um 3,1%
Afgangur á þjónustuviðskiptum,
án vaxta, á síðastliðnu ári er áætlað-
ur um 1.800 milljónir króna. Búast
má við að þessi afgangur verði ekki
jafn mikill á þessu ári vegna gengis-
þróunar og óhagstæðari viðskiptakj-
ara og er því hér reiknað með nokkru
minni afgangi á þjónustujöfnuði.
Vaxtagreiðslur tit útlanda (nettó)
námu um 5.800 milljónum á árinu
1987 og í þjóðhagsáætlun fyrir þetta
ár er reiknað með 6.300 milljónum.
Nú má búast við að þessi ijárhæð
verði eitthvað lægri en þjóðhagsáætl-
un segir til um, vegna þeirrar
vaxtalækkunar, sem orðin er erlend-
is.
Samkvæmt ofangreindu er búist
við að viðskiptajöfnuður verði óhag-
stæður um tæpar 9.000 m. kr. á
árinu 1988, en áætlað er að við-
skiptajöfnuðurinn hafi verið óhag-
stæður um allt að 6.000 m. kr. á
síðastliðnu ári. Þetta þýðir að hallinn
yrði 4,2% af vergri landsframleiðslu
samanborið við 3% á síðasta ári. í
þjóðhagsáætlun er gert ráð fyrir
4.400 m. kr. halla eða 1,8% af vergri
landsframleiðslu.
Landsframleiðsla
Niðurstöður framangreindra út-
reikninga eru þær helstar, að lands-
framleiðsla dragist saman um 2,1%
á árinu, en þjóðartekjur heldur meira
vegna versnandi viðskiptakjara eða
um 2,6%, sem þýðir um 4% á mann.
Þær niðurstöður sem hér birtast
eru háðar óvissu um aflaforsendur
og verð á útflutningsmörkuðum. Afli
kann að verða meiri en hér er reikn-
að með, en verð kann á hinn bóginn
að verða lægra, þannig að óvissu-
þættirnir vinna hvor gegn öðrum.
Spá um viðskiptahalla byggir á því
að einkaneysla dragist saman og er
byggt á reynslu fyrri samdráttar-
skeiða í því efni. Bregðist þessi
forsenda hefur það óhjákvæmilega
áhrif á viðskiptahallann. Ekki er