Morgunblaðið - 14.01.1988, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988
Fræðslumál íþrótta-
hreyfiugarinnar á íslandi
Að gefnu tilefni á íþróttasíðu
hinn 24. nóvember sl. biður und-
irritaður yður um að birta eftir-
farandi greinargerð um
fræðslukerfi íslensku íþrótta-
hreyfingarinnar.
Við teljum af þessu tilefni rétt
að gefa sem gleggst yfirlit yfir
fræðslukerfið og hvemig það
virkar í raun. Að loknum lestri
þessarar greinargerðar geta
menn svo gagnrýnt eða gefið
ábendingar um það sem betur
má fara. Ekkert er svo fullkomið
að ekki megi eitthvað bæta.
F.h. Fræðslunefndar ÍSÍ,
Karl Guðmundsson
FLESTIR þeir er nokkuð þekkja til
innviða íþróttahreyfingarinnar eru
þeirrar skoðunar að fræðslustarf
sé einn þýðingarmesti þátturinn í
öllu starifi hennar og í raun má
segja að það sé homsteinn allrar
uppbyggingar þessarar voldugu
hreyfingar sem hefur liðlega
100.000 meðlimi innan sinna vé-
banda.
Öflugt og vel skipulagt fræðslustarf
tryggir örugga og markvissa fram-
þróun hennar í senn íþróttalega og
félagslega.
Þess vegna er það grundvallaratriði
að hver aðili þekki sitt hlutverk,
þar sem árangurinn veltur á traustri
samvirkni margra fræðslunefnda
og einstaklinga, sem verða að kapþ-
kosta að koma sínum þætti starfs-
ins sem best til skila.
Eðli málsins samkvæmt er þetta
^þrotlaust starf sem stöðugt þarf að
vera í umræðu og endurskoðun.
Ládeyða eða stöðnun táknar aftur-
för, svo hröð sem framþróun er nú
á sviði fræðslumála í öllum grein-
um.
Þörfin fyrir leiðtoga, leiðbeinendur
og þjálfara knýr jafnt og þétt á,
því sífellt fjölgar í hreyfingunni,
sem betur fer.
Hlutverk Fræðslu-
nefndar ÍSÍ
ræðslunefnd ÍSÍ sér um að skipu-
leggja fræðslustarf íþróttahreyfing-
arinnar og hefur yfirumsjón með
því. Hún gefur út fræðsluefni al-
menns eðlis (kjarna) sem ætlað er
til notkunar á öllum námskeiðsstig-
um sérsambandanna samhliða því
sérnámsefni sem sérsamböndin
sjálf sjá um samningu og útgáfu
á. Fræðslurit þau er Fræðslunefnd
ÍSÍ hefur gefið út eru þessi:
— Undirbúningurundirþjálfunog
keppni
— Hraðaþjálfun
— Þolþjálfun
— Kraftþjálfun
— íþróttaslys
— Leiðbeinandi bama og unglinga
— Foreldrar og böm í íþróttafélög-
Mataræði íþróttafólks
A-stig ÍSÍ
Nokkur eldri rit sem enn em í
fullu gildi
Því má bæta hér við til frekari
upplýsinga að Bókaútgáfan Iðunn
hefur aðtilhlutan Fræðslunefndar
ÍSÍ gefið út fjögur fræðslurit um
íþróttir:
— Líffæra- og lífeðhsfræði
— Þjálffræði
— Hrejrfíngarfræði
— Þjálfunar- og keppnissálfræði
Fræðslunefnd ÍSÍ hefur með hönd-
um styrkveitingar til eftirtalinna
þátta; samkvæmt reglum þar um:
— Leiðbeinenda- og þjálfaranám-
skeið (A, B, C og D stig) sérsam-
banda.
— Samningu og útgáfu námsefnis
fyrir þessi námskeið er sérsambönd-
in sjá um.
— Endurskoðun og útgáfu alþjóð-
legra leikreglna sem notaðar em á
opinberum íþróttamótum hérlendis.
Fræðslunefnd ÍSÍ veitir sérsam-
böndum er þess óska ráðgjöf við
skipulagningu námskeiða, samn-
ingu sémámsefnis og gerð
kennsluáætlana fyrir námskeiðin.
Ennfremur veitir hún viðtöku
skýrslum um námskeiðin og þátt-
takendur er þeim ljúka. Á gmndvelli
þeirra em styrkimir veittir.
Jafnframt hefur hún eftirlit með
því að námskeiðin fari fram eftir
þeim reglum er hún setur hvað
varðar gæði og magn kennslu«og
námsefnis.
Loks ber_þess að geta að Fræðslu-
nefnd ÍSI hefur jafnan gott sam-
starf við íþróttafulltrúa ríkisins og
námsstjóra skólaíþrótta. Mennta-
málaráðuneytið hefur viðurkennt
námsefni Fræðslunefndar ISI og
er það notað á íþróttabrautum
framhaldsskóla.
A-stig ÍSÍ, kjarnanám-
skeið
Árið 1975 hafði Fræðslunefnd ÍSÍ
látið útbúa námsefni fyrir 70 stunda
námskeið almenns eðlis fyrir leið-
beinendur í íþróttum sem nefnt var
A-stig ISI (kjamanámskeið). Náms-
efni þetta var samið með hliðsjón
af námskeiðum sama eðlis og rekin
vom af íþróttasamböndum annarra
Norðurlandaþjóða.
Tvö námskeið þessarar tegundar
voru haldin hér í Reykjavík á vegum
ÍBR og var þátttaka í þeim all góð.
Fleiri slík námskeið voru auglýst
en nægileg þátttaka fékkst ekki og
gekk svo í tvö ár. Fræðslunefndin
ræddi þetta mál innbyrðis og við
ýmsa aðila íþróttahreyfíngarinnar
og var það samdóma álit að nám-
skeiðið væri of umfangsmikið og
tæki of langan tima eins og þá var
ástatt. Auk þess sem menn höfðu
ekki áhuga á námskeiði sem ekki
bar vissan keim af neinni ákveðinni
íþróttagrein. Var þar af leiðandi
horfið að því ráði (1977) að stytta
A-stigs námskeiðið, flytja það inn
í fræðslukerfi sérsambandanna og
blanda það þeirra sérefni, auk þess
sem kjamaefni ISI blandast náms-
efni þjálfaranámskeiða á B, C og D
stigi (sjá 1. málsgr. undir A-lið).
Þetta virðist gefa góða raun, a.m.k.
hafa sérsamböndin ekki séð ástæðu
til umkvörtunar. Því má skjóta hér
inn að önnur íþróttasambönd á
Norðurlöndum nema það fínnska
hafa horfið að sama ráði og við og
jafnvel gengið enn lengið í styttingu
námskeiða.
Stutt þemanámskeið og
fræðslufundir
Eins og getið verður um hér á eftir
er sérsamböndum alfarið ætlað að
annast fræðslu fyrir sína aðila og
þá með fjárhagslegum styrk frá
Fræðslunefnd ÍSÍ. Þrátt fyrir þetta
hefur Fræðslunefnd ÍSI gengist
fyrir þemanámskeiðum og fræðslu-
fimdum. Á þessu ári hefur Fræðslu-
nefnd t.d. gengist fyrir:
1. Námskeiði í íþróttasálfræði
8.—10. maí 1987. A undanfömum
árum hefur íþróttasálfræðin orðið
þjflLfflRHNRMSKEia
- . SERSflMBflNOfl
æ veigameiri þáttur í þjálfun og
keppni og þar af leiðandi einnig í
menntun leiðbeinenda, þjálfara,
liðsstjóra og leiðtoga innan íþrótta-
hreyfingarinnar. En sökum þess að
fagið hefur ekki hlotið þann sess í
fræðslukerfi okkar sem vert er taldi
Fræðslunefnd ÍSÍ nauðsynlegt að
gangast fyrir vönduðu námskeiði í
íþróttasálfræði.. Nefndinni tókst að
fá dr. philos A. Morgan Olsen pró-
fessor við íþróttaháskóla Noregs til
að semja námsefni og kenna á nám-
skeiðinu.
Mikill áhugi var á þessu námskeiði
og tilkynntu um 40 aðilar þátttöku.
En þegar námskeiðið hófst mætti
um helmingur þessa fjölda. Og er
það auðvitað afar slæmt. Engu að
síður tókst námskeiðið ágætlega.
Fræðslunefndin hefur látið þýða
kjama námsefnisins og er það til á
skrifstofu ÍSÍ.
2. Fræðslufundur um félagsmál
15. október 1987. Félagsmála-
fræðslu hefur ekki verið sýnd sú
rækt innan íþróttahreyfingarinnar
sem vert er. Hvað ÍSÍ og aðila þess
varðar horfír þetta til bóta þar sem
Fræðslunefnd ÍSÍ hefur nýlega
Karl Guðmundsson
fRHDSLUtf ERFI ísri.
ákveðið að gera átak á þessu sviði.
Fræðslunefnd ISI gekkst fyrir
fræðslufundi um félagsmál hinn 15.
október sl. í Reykjavík og tókst sá
fundur með ágætum. 48 íþróttaleið-
togar sóttu þennan fund og er
ætlunin að halda slíka fundi víðar
á landinu.
Vonandi verður unnt að efna til
fleiri þemanámskeiða því af nógu
er að taka.
Hlutverk sérsambanda
í fræðslukerfi ÍSÍ
Sérsambönd ÍSÍ bera höfuðábyrgð
á allri fræðslu- og útgáfustarfsemi
sem fram fer innan þeirra vébanda.
Stjóm hvers sérsambands skipar
fræðslunefnd sem hefur það megin-
hlutverk að skipuleggja og annast
um alla fræðslu- og útbreiðslustarf-
semi sambandsins.
Hlutverk fræðslunefndar getur ver-
ið eftirfarandi:
1. Sjá um skipulagningu og fram-
kvæmd fræðslunámskeiða og hafa
um það samráð við héraðssambönd-
in.
S--------------------------------------------
Funda- og veislusalur
T.iwdar
Veislu-, funda, og ráöstefnusalur
fyrir allt aö 100 manns,
Allar veitingar.
Kjörinn staöur við öll tækifæri.
Þægilegt, persónulegt og rólegt
yfirbragö.
^__________________________
ou
tækifæri:
• FUNDIR
• RÁÐSTEFNUR
• VEISLUR
• ERFIDRYKKJUR
• AFMÆLI
----------------\
Góðar
aðstæður:
• Myndbandstæki
• Skyggnusýningavél
• Myndvarpi
• Tjald
• Tússtöflur
• Flettitöflur
• Ljósritun
• Telex
HÖTEL LIHP
RAUÐARÁRSTÍG 18 - 105 REYKJAVÍK
SÍMI 623350
2. Semja námsskrár fyrir nám-
skeiðin og annast öflun og gerð
námsgagna í samráði við Fræðslu-
nefnd ÍSÍ.
3. Ráða kennara á námskeðin.
4. Halda skrá yfir alla þá sem
ljúka námskeiðunum.
5. Veita þjálfararéttindi í sér-
greininni.
6. Viðurkenna kennara til kennslu
á námskeiðum sambandsins.
7. Stuðla að því, ef unnt er, að
þeir sem lokið hafa námskeiðum
komi til starfa að námi loknu.
8. Hafa milligöngu um ráðningu
þjálfara/kennara, sé þess óskað
9. Fylgjast með öllum nýjungum
í sérgreininni á sviði kennslu og
þjálfunar og koma upplýsingum þar
um á framfæri á námskeiðum,
fræðslufundum og/eða í frétta- og
fræðslubréfi sérsambandsins.
10. Stuðla að námsferðum virkra
þjálfara til útlanda.
11. Hafa gott samband og sam-
vinnu við Fræðslunefnd ÍSf annars
vegar og héraðssambönd og íþrótta-
bandalög hins vegar.
12. Sjá um kynningu á íþrótta-
greininni í skólum og víðar.
Þjálfaranámskeið
sérsambanda ISI
Á myndinni sem hér fylgir er sýnt
hvemig heildarskipulagi þjálfara-
menntunar sérsambandanna er
háttað. Öll sérsambönd ÍSÍ, sem á
annað borð hafa komið upp náms-
efni, en þau eru 10, reka þjálfara-
námskeið sín á þessum nótum. Níu
sérsambönd hafa enn ekki megnað
að koma sér upp námsefni annað
hvort sökum smæðar eða féleysis
nema hvort tveggja sé.
Námskeiðin em eins og sjá má
byggð hvert ofan á annað með
síauknum kröfum um kennslu- og
tímamagn og hafa sérsamböndin
samband um þau atriði við Fræðslu-
nefnd ÍSÍ.
Nokkur sérsambönd hafa mjög
hæfu kennaraliði á að skipa en hjá
þeim samböndum sem skóinn hefur
kreppt að í þessu efni hefur
Fræðslunefnd hjálpað til við útveg-
un kennara.
Hvort framangreint fræðslukerfi er
nógu gott eða ekki er að sjálfsögðu
opin spuming, enda eru engin
mannanna verk svo fullkomin að
ekki megi um bæta. Því er Fræðslu-
nefnd ÍSÍ jafnan reiðubúin til að
skoða jákvæða gagnrýni og tillögur
sem stuðlað geta að úrbótum í
fræðslukerfí íþróttahreyfingarinn-
ar.
Hvað varðar samræmingu stigs-
námskeiða hinna ýmsu sérsam-
banda þá er hún ekki möguleg nema
að vissu marki. Hver íþróttagrein
hefur sína séreiginleiká sem óhjá-
kvæmilega verður að taka tillit til
í grunnþjálfun, tækni og leikað-
ferðum (taktik) og því fremur sem
ofar dregur í námsskeiðsstigann.
Fræðslunefndin hefur lagt öllum
sérsamböndum til samræmda áætl-
un um A-stigið.
í greinargerð um fræðslumál sem
Fræðslunefnd ÍSÍ lagði fyrir sam-
bandsráðsfund ÍSÍ 1978 er tekið
fram að hvert sérsamband fyrir sig
skuli ákveða námsefni á B, C og D
stigi og þau áhersluatriði sem þörf
kunna að teljast.
Þessi mál þurfa auðvitað að vera í
stöðugri endurskoðun, eins og áður
er getið, svo að þeim verði haldið
í takt við þau viðhorf til fræðslu-
mála sem gilda á hverjum tíma.
Eftir því sem best verður séð eru
fræðslunefndir þeirra sérsambanda
sem komið hafa námskeiðsstiga
sínum upp á B-stig vel vakandi
fyrir öllum nýjungum, en það eru
því miður aðeins 5 sérsambönd.
Hlutverk héraðssam-
banda og íþróttabanda-
laga
Hvert héraðssamband og íþrótta-
bandalag ætti að skipa fræðslu-
nefnd/fræðslustjóra sem hafí
eftirfarandi hlutverk:
1. Að gera reglulegar kannanir til
öflunar vitneskju um þarfir félag-
anna á hveijum tíma fyrir mennt-
aða leiðbeinendur, þjálfara og
íþróttaleiðtoga.