Morgunblaðið - 14.01.1988, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988
43
Starfsemi Hana-nú
komin í fullan gang
A vegTim Tómstundaráðs
Kópavogs starfar frístundahóp-
urinn Hana-nú sem er félag
Kópavogsbúa, 50 ára og eldri.
Upphaflega var starfsemin
bundin við stutt ferðalög og nátt-
úruskoðun en nú er eitthvað um
að vera 3 til 4 sinnum í viku
hverri.
Fimm sjálfstæðir klúbbar eru nú
starfandi á vegum Hana-nú; nátt-
úruskoðunarklúbbur, tónlistar-
klúbbur, bókmenntaklúbbur,
gönguklúbbur og ættfræðiklúbbur.
Einnig má nefna Kleinukvöld fé-
lagsins sem haldin eru síðasta
mánudag hvers mánaðar yfir vetr-
artímann.
Á dagskrá félagsins á nýbyrjuðu
ári kennir ýmissa grasa; farið verð-
ur í gönguferð hvem laugardag kl.
10 árdegis og er lagt upp frá Digra-
nesvegi 12 í Kópavogi. Fyrsta
Kleinukvöld félagsins verður mánu-
daginn 25. janúar að Fannborg 1
kl. 20. Þá má nefna fund bók-
menntaklúbbsins þann 27. janúar.
Gestur kvöldsins verður að þessu
sinni Thor Vilhjálmsson sem ræðir
um bókina „Hús andanna“ eftir
Isabel Allende. Tónlistarklúbburinn
verður með fund 3. febrúar og mun
Kristín Stefánsdóttir blokkflautu-
leikari kynna hljóðfærið. Þriðjudag-
inn 16. febrúar verður farið á
sýningu á „Vesalingunum" í Þjóð-
leikhúsið.
Engin félagsgjöld eru greidd og
er öllum Kópavogsbúum, 50 ára og
eldri, velkomið að taka þátt í starf-
semi félagsins.
Kristniboðshátíð-
á vegum KFUK
Kristniboðshátíð verður haldin
í húsi KFUM og K við Amt-
mannsstíg í Reykjavík föstudag-
inn 15. janúar og hefst hún kl.
20.30. Hátíðin er haldin á vegum
Kristniboðsflokks KFUK.
Flestir þeirra, sem starfað hafa
á vegum Kristniboðssambandsins í
Afríku og eru heima, koma fram á
hátíðinni, sumir í þjóðbúningum frá
Afríku og tala á tungu þeirra sem
þeir hafa starfað hjá. Þá syngja
telpur á Afríkumáli og eftit verður
til samskota til starfsins. í lok dag-
skrárinnar flytur Skúli Svavarsson,
formaður Kristniboðssambandsins,
hugvekju.
Um þessar mundir eru tvenn
kristniboðshjón á vegum Kristni-
boðssambandsins í Pókot-héraði í
V-Kenýu. Þau vinna þar einkum
að boðun og fræðslu. Á svæðinu
hafa risið nokkrir skólar fyrir fé frá
íslandi og á starfssvæði Islending-
anna hafa myndast fimm kristnir
söfnuðir, sá síðasti var stofnaður á
jóladag. Auk þeirra gera ung hjón
ráð fyrir að fara öðru sinni til
Eþíópíu síðar á þessu ári. Kristni-
boðið er kostað af gjafafé og er
Nýlega var fimmti kristniboðs-
söfnuðurinn stofnaður á starfs-
svæði íslendinga meðal
Pókot-manna í Vestur-Kenýu.
fjárhagsáætlun þessa árs á níundu
milljón króna.
Kristniboðshátíðin er öllum opin
og hefst eins og áður segir kl. 20.30
á föstudagskvöldið.
Morgunblaðið/Einar Falur
Ný fótaað-
gerðastofa
OPNUÐ hefur verið fótaað-
gerðastofa á 2. hæð í verslunar-
miðstöðinni Miðbæ 91 sem er á
Laugavegi 91 í Reykjavík.
Eigandi stofunnar er Guðrún
Ruth Ámason fótasérfræðingur. Á
stofunni er boðið upp á alhliða fóta-
snyrtingu og fótaaðgerðir.
Guðrún Ruth Árnason fótasér-
fræðingur á stofu sinni.
lest seldu s
hagstætt
ÚTILÍF
Glæsibæ, simi 82922.
jK T A
verðfrálVI ■ UnfWiV/vvj
Örfáum bflum óráðstafað á þessu frábæra
verði. Gréiðslukjör við allra hæfi.
VERTU SAMFERÐA CITROEN
Lágmúla 5, sími 681555