Morgunblaðið - 14.01.1988, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988
Fiskmarkaður Suðumesja:
Þorlákshöfn að bæt-
ast við markaðssvæðið
Grindavik.
FYRSTA uppboðið á fiski í Þor-
lákshöfn hjá Fiskmarkaði
Suðurnesja verður í þessari viku
en unnið er við að yfirstiga ýmis
tæknileg vandamál sem komu
upp vegna samtengingu tölvu-
búnaðarins.
Fyrir skömmu var haldinn í fé-
lagsheimilinu Festi fundur þar sem
Ólafur Jóhannsson framkvæmda-
stjóri Fiskmarkaðar Suðurnesja
kynnti starfsemina frá því markað-
urinn hóf göngu áina í haust og
fyrirhugaðar nýjungar sem væri
verið að brydda upp á. Á fundinum
kom fram hjá Ólafi að alls hafa
verið seld 3.400 tonn á fyrstu þrem
mánuðum fyrirtækisins fyrir sam-
tals 126,7 milljónir króna. Meðal-
verðið á tímabilinu er því 37,21
króna. Þetta er 37% af þvf magni
sem veiddist sömu mánuði á Suður-
nesjum árið á undan.
„Ein fisktegund hefur talsverða
sérstöðu en það er langa. Af henni
voru seld 110 tonn sem er þriðjungi
meira en á sömu mánuðum árið á
undan borið saman við aflaskýrsl-
ur. Rennir þetta stoðum undir að
langa hefur áður slæðst með öðrum
fisktegundum. Ein af fyrirhuguðum
nýjungum sem eru á döfinni er að
tengja prentara við hafnarvogimar
svo vigtarmennimir þar geti fylgst
með sölum og hvaða kaupandi
kaupir úr hvaða bát. Þá er verið
að bjóða upp á karaleigu fyrir bát-
ana. Við reyndum þetta lítillega
fyrir jól og var mikil ásókn í körin.
Markaðurinn á nú um 1.000 kör
og stefnt er að frekari karakaupum
ef þessi þróun heldur áfram. Þann-
ig viijum við hjálpa mönnum að
bæta meðferð aflans til vinnslunn-
ar,“ sagði Ólafur og bætti við, „ég
legg áherslu á að okkar þjónusta
sé að verðleggja fisk fyrir menn.
Mönnum er frjálst að velja á milli
þessarar þjónustu hjá okkur eða
Saurbær:
MorgunblaÆð/Krístinn Benediktsson
Talið frá vinstri: Gunnlaugur Dan ólafsson stöðvarstjóri i Grindavík,
Katrín Stefánsdóttir stöðvarstjóri f Þorlákshöfn, Ólafur Jóhannsson
framkvæmdastjóri, Logi Þormóðsson stjómarformaður og Birgir
Runólfsson skrifstofustjóri.
gera fasta samninga. Ég kætist leiðunum því þær verða alltaf bom-
hins vegar yfír því ef sem flestir ar saman og sá samanburður verður
velji þessa þjónustu. Ljóst er að til þess að valda misklíð.“
erfitt verður að viðhalda báðum _ Kr.Ben.
Frá kynningarfundi Fiskmarkaðs Suðumesja.
Náttúruverndarráð:
Túlkun Sigurðar
önnur en okkar
- segir Eyþór Einarsson formaður
Náttúruverndarráð hefur fjallað um álitsgerð Sigurðar Líndal
lagaprófssors þar sem fram kemur að ráðið hafi ekki rétt til af-
skipta af byggingu ráðhúss við Tjömina í Reykjavík. Hefur lögfræð-
ingi ráðsins, Páli Sigurðssyni, verið falið að skila áliti um málið
fyrir næsta fund Náttúmvemdnarráðs um miðjan febrúar.
Eyþór Einarsson formaður Nátt- ins á lögunum og það fyrirkomulag
úruvemdarráðs sagði í samtali við
Morgunblaðið, að almenn niður-
staða Sigurðar Líndal um túlkun á
greinum í náttúmvemdarlögunum
sem fjalla um áhrif mannvirkja-
gerðar á landslag og náttúmminjar
sé ekki í samræmi við túikun ráðs-
sem notað hefur verið.
„Ef lögfræðingur okkar kemst
að þeirri niðurstöðu að álit Sigurðar
sé rétt þurfum við að fara fram á
að það við ráðuneytið að þessum
ákvæðum í lögunum verði breytt
og þau gerð skýrari," sagði Eyþór.
Hæstiréttur vísar
kæru Ragnars frá
HÆSTIRÉTTUR vísaði í gær frá dómi kærumáli Ragnars Aðalsteins-
sonar, hrl., en áður hafði Sakadómur Reykjavíkur hafnað kröfu
lögmannsins um að hann mætti kynna • skjólstæðingi sinum tiltekin
gögn um rannsókn vegna gruns um brot hans sem tengist láti manns
í Reykjavík í nóvember. Hæstiréttur taldi að sakadómsúrskurður
um kynningu sakargagna yrði ekki kærður til Hæstaréttar og var
málinu því vísað frá.
Fyrir Hæstarétti kom frani, að
Ragnar taldi kæruheimild vera 172.
grein lö.tl. laga um meðferð opin-
berra mála. Ríkissaksóknari taldi
hins vegar að málinu ætti að vísa
frá dómi og vísaði til 170. gr. 4.tl
sömu laga. Þar segir, að ekki verði
skotið til æðra dóms synjun um
skoðun skjala og kynningu annarra
sakargagna. Ragnar kvað þá grein
ekki eiga við, enda væri ekki um
að ræða skoðun skjala eða kynn-
ingu gagna héldur það, hvort
iögmaður megi ræða við skjólstæð-
ing sinn um efni gagna, sem
sakadómur afhenti lögmanninum.
Hæstaréttardómaramir Magnús
Thoroddsen, Guðmundur Jónsson
og Þór Vilhjálmsson komust að
þeirri niðurstöðu, að telja yrði að
Ragnar Aðalsteinsson hefði fengið
frá sakadómi öll gögn sem lágu
fyrir um rannsókn vegna manns-
látsins. Málið fyalli um hvort
lögmanni sé heimilt að ræða efni
gagnanna við skjólstæðing sinn.
Þetta sé, eins og á standi, kynning
sakargagna, en sakadómsúrskurð-
ur um það efni verði ekki kærður
til Hæstaréttar, sbr. 170. gr. 4. tl.
laga um meðferð opinberra mála.
172. gr. 10. tl. sömu laga, sem
Ragnar hafi vitnað til, breyti ekki
þessari niðurstöðu, enda sé það
ákvæði almennara að efni til en 4.
tl. 170 greinar.
Stjarnan 70 ára
HvolL
UNGMENNAFÉLAGIÐ Stjarnan í Saurbæ minntist 70 ára starfsaf-
mælis síns með glæsilegri afmælishátíð í félagsheimilinu Tjaraar-
lundi nokkru fyrir jólin, en félagið var stofnað 1. desember 1917.
Voru stofnfélagar 24 en fyrsti formaður félagsins var Markús Torfa-
son frá Ólafsdal.
I lögum félagsins segir m.a. um
tilgang þess að reynt skuli af alefli
að vekja löngun hjá æskulýðnum
til þess að starfa fyrir sig, land sitt
og þjóð, að reyna af fremsta megni
að styðja allt það sem þjóðlegt er
og horfir hinni íslensku þjóð til
gagns og sóma, og leggja stund á
að fegra og hreinsa móðurmálið.
Þama endurspeglast m.a. vel sú
þjóðemisvakning, sem átti sér stað
meðal landsmanna á þessum tíma
og ungmennafélögin í landinu áttu
svo stóran þátt í að efla. Og ekki
vantaði áhugann á því að vinna að
framgangi ýmissa mála hjá félags-
mönnum Stjömunnar og á fyrsta
ári var til að mynda hafin útgáfa
á blaði á vegum félagsins, er nefnd-
ist „Leiftur". Voru gefín út nokkur
blöð á ári og þau lesin á fundum
félagsins. í árslok var svo fenginn
maður til að ritdæma blöðin og
völdust til þess ekki ómerkari menn
en skáldin Stefán frá Hvítadal og
Jóhannes úr Kötlum, en þeir vom
báðir búsettir í sveitinni á þessum
ámm og einnig Steinn Steinarr, sem
ólst upp í Saurbænum.
En saga félagsins verður ekki
frekar rakin hér, en hún er merk
og margbreytileg og félagið hefur
stuðlað að margvíslegum framfara-
og menningarmálum í sveit og hér-
aði og verið lyftistöng í félagslegri
starfsemi allri svo og íþrótta- og
tómstundastarfí á meðal unga
fólksins og hefur sá þáttur starf-
seminnar verið fyrirferðarmestur
mörg hin síðari ár. En annars hefur
félagið látið sig varða hin margvís-
legustu mál í gegnum tíðina,
húsnæðismálin vom ofarlega á
baugi og félagsheimilið Tjamar-
, Morgunblaðid/Ingiberg J. Hannesson
Þær sáu um veitingarnar: Svanhvít Gísladóttir, Bryndís Karlsdóttir,
Hugrún Reynisdóttir, Elsa Biraa Björasdóttir, Margrét Krístjáns-
dóttir og Helga Kristjánsdóttir.
lundur er í eigu ungmennafélagsins
ásamt kvenfélagi sveitarinnar og
hreppsfélagsins og hefur farið
stækkandi með ámnum. í dag
standa yfir breytingar og stækkun
á félagsheimilinu, sem verða til
mikilla hagsbóta fyrir alla félags-
starfsemi.
Þá hefur félagið komið sér upp
góðum íþróttaveili og skógrækt
hefur verið ofarlega á verkefnalist-
anum og er skógarreitur félagsins
í Þverfellshlíð gott dæmi um þýð-
ingu slíks framtaks og þar hafa
raunar verið höggvin jólatré síðustu
árin vegna grisjunar skógarins.
Leikstarfsemi var mikil á vegum
félagsins og sjónleikir settir á svið
nær því árlega um langt árabil,
heimiíisiðnaður var eitt af verkefn-
um félagsins og var m.a. keyptur
vefstóll í samvinnu við kvenfélagið
til að sinna því starfi, skóla- og
fræðslumál vom einnig hugleikin
félagsmönnum — og þannig mætti
lengi áfram telja.
Afmælisfagnaður félagsins fór
hið bezta fram og var til mikils
sóma þeim aðilum, sem að stóðu.
Gestir sátu veizlu og skemmtiatriði
fóm fram í umsjá nokkurra ung-
mennafélaga og var í tali og tónum
rakin saga félagsins og bmgðið á
gamanmálum og varð þetta í heild
hin ágætasta skemmtun og var
stiginn dans að lokum.
Margar góðar gjafir bámst félag-
inu í tilefni afmælisins, m.a. frá
Saurbæjarhreppi, Kaupfélagi
Saurbæinga, Ungmennasambandi
Dalamanna og Norður-Breiðfirð-
inga, UMF Ólafi Pá og UMF Dögun,
leikfélaginu „Lítið eitt“ og fleiri
aðilum og margir stigu í ræðustól
og ámuðu félaginu heilla og færðu
góðar gjafír. Núverandi formaður
félagsins, Þórólfur Sigurðsson,
stjómaði samkomunni.
- IJH
Námskeið
1 innhverfri
íhugun
ÍSLENSKA í hugunarf élagið
heldur kynningarfund um inn-
hverfa íhugun í kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 14. janúar klukkan
20.30. í Norræna húsinu. Fyrir-
komulag námskeiða í íhugun
verður kynnt og geta þeir skráð
sig á námskeið sem vilja. Kenn-
ari er Ari Halldórsson
í frétt frá félaginu segir að inn-
hverf íhugun sé auðlærð og stuðli
að auknu heilbrigði og íhugunin
veiti líkamanum dýpri hvíld en
svefn.
Þessir ungmennafélagar báru hitann og þungann af skemmtiatriðum
og dagskrá hátíðarinnar: Bragi J. Ingibergsson, Ingimar Sigurðs-
son, Skafti Steinólfsson, Karl Sigurðsson og Þórólfur Sigurðsson
formaður félagsins.