Morgunblaðið - 14.01.1988, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988
57
KNATTSPYRNA / ENSKI BIKARINN
Aftur jafnt hjá
Everton og Sheff. Wed.
^Ljpk^^up.
''■
FOI_K
■ LUTON seldi í gær Micky
Weir til Hibs í Skotlandi á 200
þús. sterlingspund. Það eru aðeins
^órir mánuðir síðan Luton keypti
Weir frá Hibs. Hann náði aldrei
að festa rætur í Hattaborginni
frægu - fékk heimþrá.
■ GEYSILEGUR áhugi er fyrir
leik Brighton og Arsenal í ensku
bikarkeppninni, sem fer fram í
Brighton 30. janúar. Uppselt er á
leikinn - 29. áhorfendur. Einnig
er mikill áhugi fyrir leik Aston
Villa og Liverpool, sem fer fram
á Villa Park sunnudaginn 31. jan-
úar. Þrátt fyrir að leiknum verði
sjónvarpað beint, er uppselt- -
48.000 áhorfendur. Félögin eru nú
í efstu sætunum í 1. og 2. deild.
■ JAN Mölby er ekki á leið frá
Liverpool þrátt fyrir mikinn áhuga
Uli Höness, framkvæmstjóra Bay-
em MUnchen. Mölby hefur ekki
fengið tækifæri hjá Liverpool á
þessu keppnistímabili, en Kenny
Dalglish framkvæmdastjóri Li-
verpool sagði í gær, að hann ætlaði
ekki að selja Mölby. Sepp Piontek
þjálfari danska landsliðsins er ekki
hrifinn af því, enda á Mölby að
leika stórt hlutverk með danska
landsliðinu i Evrópukeppninni
sem hefst í júní.
■ JUVENTUS á Ítalíu vill fá
Frans Beckenbauer, landsliðs-
þjálfara V-Þýskalands, sem
tæknilegan ráðgjafa félagsins. í
gær sagði einn af forráðamönnum
félagsins, að Juventus vildi aðeins
það besta og því væri Beckenbauer 1
efstur á blaði. Beckenbauer sagði
að hann væri samningsbundinn sem
þjálfari v-þýska landsliðsins til
1990. „En það er hægt að ræða
öll mál,“ sagði hann. Ef þessi snjalli
þjálfari fer til Juventus, þá fær
hann enga smápeningaupphæð í
vasann.
Olaf Thon til Sampdoria á Ítalíu.
■ ÍTALSKT blað sagði frá því
í gær að Sampdoría væri búið að
ganga frá kaupum á Olaf Thon frá
Schalke. Félagið borgaði kr. 154
millj. fyrir þennan snjalla leikmann,
sem fær sjálfur kr. 45 millj. í árs-
laun.
■ GARY Lineker er á leið til
Inter Milanó á Ítalíu, ef marka
má grein f Daily Mirror í gær. Þar
segir að Inter Milanó hafi sýnt
mikinn áhuga á að fá Lineker.
Verðið stendur þó í forráðamönnum
Inter því Barcelona hefur sett upp
rúmar fimm milljónir punda, eða
sem svarar 330 milljónir ísl. kr.
■ BORIS Angelov var í gær
ráðinn þjálfari landsliðs Búlgaríu
í knattspymu. Hann hefur þjálfað
U-21 árs landsliðið, en tekur við
af Hristo Mladenov sem var sagt
upp vegna slakrar frammistöðu
landsliðsins í Evrópukeppninni.
Búlgaría tapaði fyrir Skotum í
síðasta leik riðlakeppninnar og það
voru því Irar sem komust áfram í
lokakeppnina.
■ OLGA Nazarova frá Sov-
étríkjunum náði í gær besta árangri
sem náðst hefur í 500 metra hlaupi
í heiminum, innanhúss. Hún hljóp
500 metrana á 1:7.67 mínútu og
bætti gamla metið um rúma sek-
úndu. Metið setti hún á móti í
Moskvu, en gamla metið átti Mar-
ina Kharlamovo.
Everton og Sheffíeld Wednesday
skildu jöfn, 1:1, eftir framleng-
inu í ensku bikarkeppninni á
Goodison Park í gærkvöldi. Liðin
■^■■B skildu einnig jöfn á
Frá Hillsborough á laug-
BobHennessy ardaginn og verða
lEnglandi því að leika að nýju.
Þriðji leikurinn fer
fram 25. janúar og dregið verður
um hvort leikurinn fari fram á Goo-
dison Park eða Hillsborough.
Lee Chapman kom Sheffíeld yfír í
fyrri hálfíeik en Graeme Sharp jafn-
aði fyrir Everton með glæsilegu
skoti, marki ársins, á 75. mínútu
og þannig var staðan eftir venjuleg-
an leiktíma. í framlengingunni
tókst hvorugu liðinu að skora.
Lið Sheffíeld og Everton voru skip-
uð sömu leikmönnum og léku á
laugardaginn nema að fyrirliði
Everton, Kevin Ratcliffe, gat ekki
leikið vegna meðsla sem hann hlaut
í fyrri leiknum. Hann verður frá í
þtjár vikur.
Swindon Town, sem leikur í 2.
deild, sigraði Norwich með tveimur
mörkum gegn engu og skoraði
Dave Bamber bæði mörk Swindon
með skalla. Liðin gerðu markalaust
jafntefli í fyrri leiknum. Swindon
mætir Newcastle á útivelli í 4.
umferð keppninnar.
Graeme Sharp jafnaði fyrir Ever-
ton þegar 15 mínútur voru til leiks-
loka.
KNATTSPYRNA
Theódór
þjálfar ÍR
Theódór Guðmundsson var ráð-
inn þjálfari 2. deildarliðs ÍR í
knattspyrnu í gærkvöldi. Theódór
er fyrrum þjálfari unglingalands-
liðsins. Gylfí Gfslason frá Selfossi
hætti við að taka að sér ÍR-liðið.
HANDBOLTI
Eyjamenn
taplausir
rír leikir fóru fram í 2. deild
karla í handknattleik í gær-
kvöldi. ÍBV hélt áfram sigurgöngu
sinni er liðið vann Reyni frá Sand-
gerði í Eyjum, 28:23. IBV er í efsta
sæti með 19 stig og hefur ekki tap-
að leik til þessa, gert eitt jafntefli.
UMFN sigraði Selfoss í Njarðvík,
26:24, í gær og er í þriðja sæti.
Loks sigraði Fylkir Hauka nokkuð
örugglega, 30:19, í Seljaskóla.
Porto lagðS Ajax
Real Madrid tapaði á Spáni
Porto frá Portugal tryggði sér sigur í meistarakeppni meistarana
I Evrópu í gærkvöldi - ( Porto. Antonio Sousa skoraði sigurmark-
ið, 1:0. Porto vann einnig sigur, 1:0, í Amsterdam. 45.000 áhorfebndur
sáu leikinn.
iReal Madrid tapadi óvænt, 2:3, fyrir litla félaginu Sabadella I fyrri lelk liðanna I spánsku
bikarkeppninni I gaerkvöldi. Hugo Sancbez og Rafæl Martin Vaaquez íkoruðu mörk Real,
en leikmenn Sabadella skoniðu þrjú mörk i afðustu 11 mln. leiksins.
Atletico Madrid vann aigur, 2:1, yfir bikarmeisturum Real Sociedad og Barcelona gerði
jafntefli, 1:1, við Castcllon.
HANDBOLTI / AKUREYRARMOT
Oruggt hjð KA-Höinu
Erlingur Kristjánsson skoraði
7/3 mörk fyrir KA í gærkvöldi
- þegar félagið vann stórsigur,
23:16, yfír Þór í fyrri leik félaganna
í Akureyrarmótinu. Yfírburðir KA
voru miklir í leiknum.
Þeir sem skoruðu mörkin í leiknum,
voru:
KA: Erlingur 7/3, Axel Bjömsson 6, Friðjón
Jónsson 3, Guðmundur Guðmundsson 2, Eg-
gert Tryggvason 2, Svanur Valgeirsson 2 og
Pétur Bjömsson 1.
ÞÓR: Kristján Kristjánsson 5/4, Sævar Áma-
son 3, Gunnar Gunnarsson 3, Ingólfur
Samúelsson 2, Ami Stefánsson 1 og Sigur-
páll Aðalsteinsson 1.
BADMINTON / MEISTARAMOTTBR
t Morgunblaöiö/RAX
Broddl Krlstjánsson sigraði í einliðaleik og tvíliðaleik.
Þórdís vann þrefalt
Morgublaðið/RAX
Þórdfs Edwald er einbeitt á svip er hún slær fjaðraboltann í gólfið hjá and-
stæðing sínum. Hún sigraði í þremur greinum.
ÞÓRDÍS Edwald TBR vann sig-
ur f öllum þremur greinunum í
meistaraflokki kvenna á meist-
armóti TBR sem haldiö var f
húsi TBR um helgina. Broddi
Kristjánsson TBR kom næstur,
en hann sigraði í tveimur grein-
um af þremur.
órdís hafði mikla yfírburði í
kvennaflokki þurfti t.a.m. aldr-
ei að leika úrslitalotu. Hún sigraði
Elísabetu Þórðardóttir TBR í úrslit-
um í einliðaleik, 11:7 og 11:7. Þær
stöllumar sameinuðust svo í tvíliða-
ieik og sigruðu þar Bimu Petersen
og Kristínu Berglind Magnúsdóttir
TBR í úrslitaleik, 15:8 og 15:6.
Loks sigraði Þórdís í tvenndarleik.
Þar lék hún ásamt Brodda Kristj-
ánssyni og þau sigruðu Guðmund
Adolfsson og Guðrúnu Júlíusdóttir
TBR í úrslitum, 15:12 og 15:10.
Broddi Krístjánsson sigraði í ein-
liðaleik karla. Hann mætti Áma
Þór Hallgrímssyni TBR í úrslitum.
Árni sigraði í fyrstu lotu 10-15, en
Broddi vann tvær næstu 18-15 og
15-6.
Broddi lék í tvíliðaleik ásamt Þor-
steini Páli Hængssyni TBR, en þeir
félagar töpuðu óvænt fyrir Guð-
mundi Adolfssyni og Huang Wei
Cheng TBR. Broddi og Þorsteinn
sigruðu í fyrstu lotunni, 13-18, en
Guðmundur og Huang sigmðu i
tveimur næstu 15-8 og 15-13.
í A-flokki sigraði Frímann Ferdin-
andsson Víking í einliðaieik karla.
Hann lagði Ola Bjöm Zimsen TBR
I úrslitaleik. Óli komst í úrslit í öll-
um greinum en sigraði aðeins í
tvíliðaleik. Hafdís Böðvarsdóttir ÍA
sjgraði Sigríði M. Jonsdóttir TBR í
úrslitum í einliðaleik kvenna.
í tvíliðaleik karla sigruðu óli Björn
Zimsen og Skúli Þórðarson TBR.
Berta Finnbogadóttir TBR og
Hafdfís Böðvarsdótir ÍA sigruðu 1
tvíliðaleik kvenna. í tvenndarleik
sigruðu Hannes Ríkarðsson og Elín
Agnarsdóttir TBR.
Þórdís í Hollandi
órdís Edwald, þrefaldur Is-
landsmeistarí í badminton,
hélt út til Hollands á mánudag,
en þar mun hún æfa með einu
sterkasta félagsliði landsins.
Þórdís fór til Hollands strax að
loknu meistarmóti TBR, en þar
sigraði hún í þremur greinum.
Hun mun dvelja í Hollandi í sjö
vikur við æfíngar og keppni.
Þórdís endar svo Hollandsdvöl
sína með þátttöku í Tomas/
Uber-Cup með landsliðinu.
Keppnin er óopinber Heims-
meistanakepni landsliða í
badminton.