Morgunblaðið - 14.01.1988, Qupperneq 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988
FOLK
I BEN Johnson, heimsmethaf-
inn í 60 og 100 metra hlaupi mun
taka þátt í sterkum innanhúsmótum
í vetur. Hann mun hlaupa á fimm
mótum í Kanada, tveimur í Vest-
ur-Þýskalandi og einu móti á
Spáni. Hvorki Johnson, né Carl
Lewis, sem er helsti keppinautur
hans, munu taka þátt í mótum í
Bandaríkjunum. Carl Lewis ætlar
aðeins að taka þátt í einu móti, í
Stuttgart, en þar mun hann keppa
í 200 metra hlaupi.
■ FATLAÐIR í þróttamenn eru
á leið til Svíþjóðar til keppni. Til
að afla fjár var efnt til maraþon
boccia í Sjálfsbjargarhúsinu í Hát-
úni. Þar var leikið boccia í 24
klukkustundir, alls 687 lotur sem
gerir 114 og hálfan leik, en sex
lotur eru í hveijum leik. Maraþonið
hófst kl. 14 á laugardag og lauk á
sma ttma á sunnudag. Alls fara 24
einstaklingar til Svíþjóðar, 10 kepp-
endur í sundi, 6 í boccia og 3 í
bogfími.
■ BRIAN Laudrup, bróðir
landsliðsmannsins Michael, hefur
ákveðið að leik eitt ár til viðbótar
með danska félaginu Bröndby. „Ég
veit það að ég mun feta í fótspor
Michaels og leika með félagi utan
Danmerkur. Það verður þó ekki
i ár,“ segir Brian.
■ BA YER Leverkusen í v-
þýsku bundesligunni hefur farið
þess á leit við Rinus Michels að
taka við liðinu næsta keppnistíma-
bil. Michels sem þjálfaði landslið
Hollands lýsti yfir áhuga, en PSV
Eindhoven hefur einnig lýst yfir
áhuga á að fá hann sem þjálfara
fyrir næsta ár. Erich Ribbeck nú-
verandi þjálfari Leverkusen hefur
sagt að hann mun hætta að keppn-
istimabilinu loknu.
■ UNGIR áhorfendur í v-þýsku
Bundesligunni virðast hneigjast ti!
nýnazisma ef marka má könnum
sem Háskólinn í Bielefeld stóð
fyrir nú fyrir skömmu. Úrtakið var
300 unglingar í níu borgum sem
allir studdu lið úr Bundesligunni
í knattspyrnu. í svörum þeirra kom
m.a. í ljós að 68% vildu banna út-
lendinga úr v-þýskum skólum og
43% töldu slæmt hve útlendingum
fjölgaði í landinu. Mikil meirihluti
aðspurðra vildi að dauðarefsing yrði
tekin upp, 20% sögðust styðja
nýnazista og 52% sögðustu styðja
hugmyndina „Þýskaland fyrir
Þióðveija.“
■ ÞRÍR knattspymumenn hafa
ákveðið að ganga í 2. deildarlið
Tindastóls fyrir komandi vertíð.
Það eru þeir Árni Ólason, sem
kemur frá Einheija, Eysteinn
Kristinsson úr Þrótti Neskaup-
stað, og Ólafur Adolfsson sem
leikið hefur með Víkingi frá ÓI-
afsvik. Arni lék einnig með liðinu
1984 þegar það var í 2. deild. Hann
er miðvallarleikmaður, og lék mjög
vel á síðasta sumri með Eihheija.
Hann var m.a. valinn í lið 2. deildar
af Morgvnblaðinu í haust.
HANDKNATTLEIKUR / HEIMSBIKARKEPPNIN
„Eigum enga mögu-
leika hér í Svíþjód“
-segir Anders Dahl-Nielsen, þjálfari Dana
„ÞAÐ er ávallt gaman að taka
þátt í stórmóti, en að þessu
sinni eigum við ekki mikla sam-
leið með hinum liðunum. í
sannleika sagt erum við ekki
með eins sterkt lið og eigum
enga möguleika á þessu móti,“
sagði Anders Dahl-Nielsen,
þjálfari Dana, í samtali við
Morgunblaðið í gær - áður en
hann hélt með leikmenn sína
til Uppsala, þar sem þeir léku
gegn A-Þjóðverjum.
Anders er íslendingum að góðu
kunnur og hann fylgist vel
með íslenskum handknattleiksmál-
um, en eins og flestir vita þjálfaði
hann KR fyrir
nokkrum árum og
lék með liðinu.
„Einu sinni KR-
ingur, alltaf KR-
Steinþór
Guðbjartsson
skrífar
frá Sviþjóó
ingur," sagði hann brosandi á
íslensku og fannst miður að sitt
gamla félag væri ekki í toppbar-
áttunni, „en það kemur næsta ár.
Segja þeir það ekki á hveiju ári?“
bætti hann við og var greinilega
skemmt, þegar hann rifjaði upp
fyrri tíma.
Júgóslavar bestir
Anders var ekki í nokkrum vafa
um hveijir sigruðu á mótinu. „Júgó-
slavar eru bestir í heimi og ég sé
ekkert lið stöðva þá hér. Þeirra stíll
er líka skemmtilegur og önnur lið
reyna að feta í fótsporið - og eiga
að reyna að spila eins og þeir. Við
vorum þó klaufar að ná ekki að
leggja þá að velli - hefðum getað
það. Strákamir mínir höfðu hrein-
lega ekki trú á sjálfum sér og að
þeir gætu lagt heimsmeistarana.
Við fengum tækifæri til þess -
tækifæri sem kemur ekki aftur á
næstunni. í staðinn fyrir sigur -
máttum við þola tap, 19:21.“
Gaman aö sigra
Anders sagði að danskir handknatt-
leiksmenn æfðu ekki nóg og því
væru þeir ekki betri. „Ef menn
ætla að ná árangri nægir ekki að
æfa tvisvar til þrisvar á viku.
Við sigruðum íslenska liðið þrisvar
á síðasta ári, en eftir því sem nær
dregur Ólympíuleikunum verður
alltaf erfiðara að eiga við liðið.
Þeim mun sætari yrði sigur gegn
þeim í Motala á föstudaginn, en ég
held að það sé borin von. íslenska
liðið er mun sterkara og auk þess
verður Morten Stig Christensen
ekki með okkur og munar um
minna," sagði Anders Dahl-Nielsen.
Þorborgur Aöalstolnsson. Honum hefur verið boðið í sænska hand-
knattleiksskólann, fyrstum útlendinga.
Þorbergur
í sænska
handbolta-
skólann
- lyrstur útlendinga
Þorbergur Aðalsteinsson,
landsliðsmaður í handknatt-
leik, sem leikur með Saab hér í
Svíþjóð, hefur fengið boð um að
gerast nemandi í sænska hand-
knattleiksþjálfaraskólanum.
Þorbergur er fyrsti útlendingur-
inn sem fær boð um að setjast á
bekk í skólanum.
„Þetta er boð sem ég mun ekki
sleppa," sagði Þorbergur. Skólinn
tók til starfa í fyrra og eru tutt-
ugu nemendur í honum hveiju
sinni. Námið, sem er í námskeiða-
formi - verklegt og bóklegt, er
metinn sem ákveðinn fjöldi náms-
eininga við háskóla. Skólinn, sem
er starfræktur um helgar, hefst í
apríl.
WORLD
CUP
12-17 Jan. 1988
UrslH
ogstaðan
Úrslit í A-riðli:
Svíþjóð—Spánn.............19:16
V-Þýskaland—Ungveijaland...23:21
í gærkvtfldi:
Svíþjód—Ungveijaland......17:22
V-Þýskaland—Spánn.........22:19
Staðan
V-Þýskaland 2 2 0 0 45:40 4
Ungveijaland 2 1 0 1 43:40 2
Svíþjóð 2 1 0 1 36:38 2
Spánn 2 0 0 2 35:41 0
I kvöld: Svíþjóð—V-Þýskaland og Ung-
veijaland—Spánn.
Úrslit í B-riðli:
A-Þýskaland—ísland........18:16
Júgóslavía—Danmörk........21:19
Úrslit í gær:
ísland—Júgóslavía.........23:20
A-Þýskaland—Danmörk.......25:23
Staðan
A-Þýskaland 2 2 0 0 43:39 4
ísland 2 1 0 1 39:38 2
Júgóslavía 2 1 0 1 41:42 2
Danmörk 2 0 0 2 42:46 0
f kvöld: ísland—Danmörk og A-Þýska-
land—Júgóslavía.
Jochen Fraatz var
hetja V-Þjódvevja
Jochen Fraatz, leikmaður með
Essen, átti stórleik með V-
Þjóðveijum gegn Spánveijum í
gærkvöldi Kristianstad. Fraatz
skoraði níu mörk í leiknum, sem
V-Þjóðveijar unnu, 22:19.
Leikurinn var mjög spennandi, en
V-Þjóðvéijar höfðu alltaf undirtök-
in. Staðan var, 11:11, í leikhléi.
Spánveijar komust aðeins einu sinni
yfir - 11:12, í upphafi seinni hálf-
leiks. Varnarleikur v-þýska liðsins
var mjög góður og þá vörðu þeir
Andreas Thiel og Stefan Hecker
mjög vel. Uli Roth skoraði næst
flest mörk V-Þýskalands, eða 6.
Vinstrihandarskytttan Cerano skor-
aði 8 mörk fyrir Spán.
ÍSLAND-JÚGÓSLAVÍA
Nafn Shot Mórk Varín Yfir*éa framhjá i atong Fangin Vfti Utaf i 2 mín Knatti glatað Unuaand.aam gafur mark Skot- nýtlng
Einar ÞorvarAarson 11/1
Guömundur Hrafnkelsson
Þorgils Óttar Mathiesen 4 4 2 100%
Geir Sveinsson
Valdimar Grímsson 2 1 1 1 50%
Karl Þráinsson 3 2 1 2 1 67%
Sigurður Gunnarsson 4/2 3/1 1/1 75%
Alfreð Gislason 10/1 6 4/1 2 1 60%
Páll ólafsson 5 3 2 60%
Guðmundur Guðmundsson 3 1 2 1 33%
Kristján Arason 7 3 2 2 1 5 42%
AtliHilmarsson
Július Jónasson
12-17 Jan.1988
Anders Dahl-Nlelsen
■ DANIR hafa einir Vestur-
Evrópuþjóða leikið til úrslita í
heimsbikarkeppninni í handknatt-
leik. Þeir töpuðu 27:24 fyrir
Sovétmönnum í síðustu keppni,
1984, og þá höfnuðu Júgóslavar í
þriðja sæti. 1979 unnu Sovétmenn
Pólveija, 25:17 í úrslitum og Aust-
ur-Þjóðveijar unnu Ungveija
24:19 í keppni um þriðja sætið.
1974 unnu Júgóslavar Pólveija
17:16 eftir framlengingu í úrslitum
og Austur-Þjóðveijar urðu í 3.
sæti eftir 23:19 sigur gegn Sovét-
mönnum. Júgóslavar sigruðu
einnig í fyrstu keppninni, sem hald-
in var 1971. Þá unnu þeir Rúmena
17:15 í tvíframlengdum úrslitaleik.
Sovétmenn náðu þriðja sæti, unnu
Tékka 15:12. Sigurvegarar í
keppninni hafa til þessa aldrei tapað
stigi, en tvisvar hefur lið, sem leik-
ið hefur til úrslita, tapað leik í
riðlakeppninni, Pólland fyrir Rúm-
eníu 1974 og Danir fyrir Júgóslöv-
um 1984.
■ FJÓRTÁN leikmenn mega
leika hvetju sinni fyrir þjóð sína í
heimsbikarkeppninni, en venjulega
er hvert lið aðeins skipað 12 mönn-
um. Þetta styrkir að sjálfsögðu
veikari liðin og er Bogdan, lands-
liðsþjálfari ídlands, mjög á móti
þessu fyrirkomulagi og telur að það
komi Svíum, Dönum og Vestur-
Þjóðveijum til góða.
■ BESTI leikmaður hvers liðs í
hveijum leik fær rafmagnsskrúf-
jám í verðlaun. í fyrstu umferð
fengu tækið þeir Guðmundur Guð-
mundsson, íslandi, Holger
Winselmann, Austur-Þýskalandi,
Veselin Vujovic, Júgóslavíu,
Harsten Holm, Danmörku, Mart-
in Schwalb, Vestur-Þýskalandi,
Juan Melo, Spáni og Mats Olsson,
Svíþjóð.
■ BOGDAN er mjög hrifinn af
handknattleik Suður-Kóreu-
manna og tók þjálfara þeirra sér
til fyrirmyndar í leiknum gegn
Austur-Þjóðveijum. Eitt sinn í
fyrri hálfleik, eftir að Austur-
Þjóðveijar höfðu skorað, kallaði
hann allt íslenska liðið að bekknum
í mótmælaskyni við dómarana. Þeir
höfðu greinilega aldrei séð svona
fyrr og vissu ekki hvemig þeir ættu
að bregðast við, en sýndu Bogdan
síðan gula spjaldið og var hann
ánægður með það. Dómaramir
dæmdu betur í seinni hálfleik og
sá var augljóslega tilgangur lands-
liðsþjálfarans með tiltækinu.
■ ERIK Hajas hjá Hellas er eini
leikmaðurinn í sænska landsliðinu,
sem leikur með liði í 2. deild.