Morgunblaðið - 14.01.1988, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988
59
HANDKNATTLEIKUR/HEIMSBIKARKEPPNIN I SVIÞJOÐ
Ekkert stöðvar Islend
inga í slíkum ham
Gerðu út um leikinn gegn Júgóslövum á níu mínútum og sigraði sanngjamt með þremur mörkum í frábærum leik
ÞEGAR14 mínútur voru til
leiksloka jafnaði Alfreð Gísla-
son 16:16 f leik íslendinga og
Júgóslava í heimsbikarkeppn-
inni í handknattleik í gœrkvöldi.
Júgóslavar höfðu leitt allan
leikinn, en okkar strákar, sem
höfðu leikið mjög vel, skiptu
yfir í óstöðvandi gír, skoruðu
fimm mörk í röð á nœstu níu
mínútum án þess að Júgóslöv-
um tækist að svara fyrir sig og
gerðu út um leikinn. I slíkum
ham er íslemska liðið óstöðv-
andi og þriggja marka sigur var
sanngjam. Viðureignin var
mjög skemmtileg og minnti f
mörgu á leik liðanna í Prilep i
Júgóslavíu í fyrrasumar. Liðin
léku frábæran handknattleik,
hraðan og harðan, en íslenska
liðið var betra á flestum ef
ekki öllum sviðum.
Leikurinn fór fram í Örebro og
eins og gegn Austur-Þjóðverj-
um var íslenska liðið vel stutt af
fjölmörgum löndum búsettum í
Svíþjóð. Og þó langt
hafi verið fyrir suma
að fara hafa þeir
örugglega ekki séð
eftir þvi.
“Ekki aftur" sagði einn, þegar við-
ureignin hafði staðið yfir í rúmar
fimm mínútur og staðan 3:0 fyrir
Júgóslava — sama byijun og gegn
Austur-Þjóðveijum. Einar hafði
varið eitt skot giæsilega á þessum
tíma og nú sagði hann hingað og
Steinþór
Guðbjartsson
skrifar
fráSviþjóð
ekki lengra og varði víti frá Portn-
er. Innan tveggja mínútna náði
íslenska liðið loks að jafna og eftir
það var nær jafnt á öllum tölum
út hálfleikinn. Einar varði eins og
hetja, vamarleikurinn var góður,
en Júgóslavar léku mest upp á að
skapa færi hægra megin í vöm ís-
lendinga og skomðu ýmist þaðan
eða eftir hraðaupphlaup. Sóknar-
leikur íslenska liðsins var eins og
hann gerist bestur, ef undanskildar
em fyrstu fimm mínútumar, en það
ísland—Júgóslavía
23 : 20
Heimsbikarkeppnin f Svfþjóð. Mið-
vikudaginn 13. janúar 1988 f Örebro.
Gangur leiksins: 0:3, 3:3, 6:8, 8:8,
9:9, 10:10, 11:13, 12:14, 13:15,
15:15, 15:16, 21:16, 21:19, 22:19,
22:20,23:20.
Mörk Islands: Alfreð Gfslason 6,
Þorgils Óttar Mathiesen 4, Páll
Ólafsson 3, Kristján Arason 3, Sig-
urður Gunnarsson 3/1, Karl Þráins-
son 2, Guðmundur Guðmundsson og
Valdimar Grfmsson 1 mark hvor.
Varin skot: Einar Þorvarðarson
11/1.
Utan vallar: 10 mfnútur.
Mörk Júgósiava: Mile Isakovic 7/1,
Vesí'lin Vujovic 5/1, Zlatan
Saracevic 3, Portner 3 og Memic
Muhamed 2 mörk.
Varin skot: Pasic 11/2.
Utan vallar: 16 mfnútur.
Áhorfendur: 1100 (40 f slendingar).
Dómarar: Kent Blademo og Axel
Wester frá Svfþjóð og dæmdu vel.
Menn leiksins: Alfreð Gfslason, ís-
landi og Isakovic, Júgóslavfu.
var samt alltaf seinna til að skora.
Okkar menn fengu mörg tækifæri
til að ná forystunni í fyrri hálfleik
og sama má segja um fyrri helming
þess seinni. En forystan var í aug-
sýn og þegar Alfreð jafnaði 16:16
með þrumuskoti, var ekki aftur
snúið. í kjölfarið fylgdu fimm glæsi-
leg íslensk mörk og fímm mínútur
til leiksloka. Þetta voru frábærar
íslenskar míriútur — Júgóslavar
höfðu mætt oflörium sínum.
Nokkurt fum og fát greip íslenska
liðið í þessari stöðu, Júgóslavar
nýttu sér mistök mótheijanna,
minnkuðu muninn f tvö mörk og
þijár mínútur til leiksloka. Leikur-
inn æstist utan vallar, en íslenska
liðið hélt ró sinni, Sigurður skoraði
sitt §órða þrumumark og rúm
mínúta eftir. Júgóslavar svöruðu
strax, íslendingar misstu knöttinn
og mótheijamir brunuðu upp með
markvörðinn Velic fremstan í
flokki. En kapp er best með forsjá,
íslendingar náðu knettinum, fram
á Guðmund, sem rak knöttinn á
undan sér að auðu markinu, stökk
inn f teiginn og skoraði af öryggi!
Bæði liðin léku mjög vel og besta
dómarapar Svíþjóðar stóð sig með
prýði. Okkar menn léku allir vel í
vöm og sókn, en Alfreð var kosinn
besti maður liðsins.
Júgóslavar þurfa ekki að skammast
sín fyrir leikinn, þeir voru góðir,
en mættu ofjörium sínum. Isokovic
og Vujovic vom bestir, en Einar
átti erfitt með skotin frá Saracevic.
Það er stórkostlegt að sigra Júgó-
Hvað sögðu þeir?
Steinþór
Guðbjartsson
skrifar
fráSviþjóð
Bogdan Kowalczyk
„Þetta var mjög góður leikur hjá
báðum liðum, en við vomm betri
og sigmðum sanngjamt. Sóknar-
leikurinn var nú eðlilegur, vömin
góð eins og gegn
Austur-Þjóðveijum
og Einar enn einu
sinni frábær í mark-
inu. Einbeitingin var
í lagi, en með eðlilegum leik síðustu
mínútumar hefðum við haldið fimm
marka forskotinu og jafnvel sigrað
með meiri mun.
Sigurinn var sætur, en það erfið-
asta er eftir og nú er hvorki staður
né stund til að fagna. Liðið hefur
oft átt slæman leik, síðan góðan
og þá slæman. Ég er hræddur við
leikinn gegn Dönum og ef við höld-
um ekki einbeitingunni allan leikinn
getur farið illa.“
Þorgils Óttar Mathiesen
„Þetta var allt annað en gegn Aust-
ur-Þjóðveijum — leikimir vom eins
og svart og hvitt. Við lékum af
eðlilegri getu og hana réðu Júgósla-
var hreinlega ekki við. Sigurinn
hefur samt enga þýðingu ef illa fer
gegn Dönum og því verðum við að
leika okkar leik, halda áfram á
sömu braut“
Guðmundur Guðmundsson
„Síðasta mark leiksins er það
skemmtilegasta sem ég hef skorað
á ævinni. Mér leið dásamlega í loft-
inu og naut þess að sjá boltann
þenja út netið — og markvörðurinn
víðs §arri. Ég er rosalega ánægður
með leikinn og sigurínn, en ég spáði
þessu reyndar í Morgunblaðinu fyr-
ir leikinn. En Danir em næstir og
sá leikur skiptir öllu nú.“
Alfreð Gísiason
„Við tókum mistökin frá leiknum
gegn Austur-Þjóðveijum alvarlega,
lærðum af þeim og einsettum okkur
að láta þau ekki koma fyrir í þess-
um leik. Sóknarleikurinn var enda
markvissari og beittari."
Péll Ólafsson
„Ég fékk sparkið í mig á réttum
tfma, Siggi Gunn fór inná í staðinn,
var óstöðvandi og sýndi stórleik.
Það skiptast á skin og skúrir í þessu
eins og öðm, en nú vomm við sólar-
rnegin."
Slgurður Gunnarsson
„Við getum verið mjög ánægðir
með leikinn og stigin. Þetta var
leikur í betri kantinum og morgu-
næfingin skilaði sér augljóslega.
Hlutimir gengu núna upp, en við
megum ekki gleyma leiknum gegn
Dönum og f raun getum við enn
hafriað í hvaða sæti sem er.“
Einar Þorvarðarson
„Svona eiga leikir að vera. Það er
mikið auðveldara að standa sig vel
í markinu, þegar vömin er traust
og þegar sóknin gengur upp á sama
tíma, er gaman að lifa. Við verðum
að ná okkur niður á jörðina, því
leikurinn við Dani verður erfiður."
Kristjén Arason
„Við settumst niður eftir leikinn
gegn Austur-Þjóðveijum og fómm
yfír mistökin. Allir vom óánægðir
með sóknina og við ætluðum að
gera betur gegn Júgóslövum. En
leikurinn við Dani verður erfiður,
því þeir em til alls líklegir. Við
stefnum að sigri og vonum að við
leikum um fyrsta eða þriðja sætið."
Valdimar Grfmsson
„Það er mjög erfitt að eiga við
Isokovic, sem er besti homamaður
í heimi, en ég missti hann aðeins
einu sinni innfyrir og er því sæmi-
lega ánægður með minn hlut.
Sigurinn var glæsilegur og sann-
gjam, en þrátt fyrir það getum við
háfnað f hvaða sæti sem er.“
Milan Isakovic
„Þetta var mjög góður leikur, en
við gerðum of mörg mistök, bæði
sem lið og sem einstaklingar. Okkar
helsta vandamál núna er það sama
og hjá íslenska liðinu — samæfíng-
una vantar. Eiiis held ég að sumir
séu ekki í nægjanlegri leikæfingu.
Eins og hjá Islendingum skiptast
of oft á sigrar og töp, góðir leikir
og slæmir. Við áttum ekki slæman
dag, en gerðum of mörg mistök og
því fór svona, en íslenska liðið var
lfka betra og sigur þess sanngjam.
En við stefnum að sigri gegn aust-
ur-þjóðveijum og vonum að við
verðum efstir í riðlinum á marka-
hlutfalli."
Abas Arsianaglc
„Ég sagði við þig fyrir leikinn að
hann yrði erfíður og sú varð á raun-
in. Baráttan var mikil, íslenska liðið
gafst aldrei upp og var betra að
þessu sinni. Við gerðum of mörg
mistök, en hvers vegna veit ég ekki.
Kannski þreyta, kannski vantar
samæfingu eða eitthvað annað. En
styrkleiki fslenska liðsins felst í frá-
bærri vöm og góðri markvörslu og
þegar sóknin gengur einnig upp er
ekki að sökum að spyija." ■
slava, ekki síst á stórmóti sem
þessu. En úrslitin sýna enn einu
sinni að allir geta sigrað alla í
keppni þeirra bestu og því ber að
varast sigurvímu. Menn mega ekki
ofmetnast, heldur vera jarðbundnir,
þvi Danir era sýnd veiði en ekki*f
gefin og eftir leikinn gegn þeim í
kvöld skýrist fyrst um hvaða sæti
fslenska liðið leikur í keppninni.
JUfrcA Qluson átti stórleik gegn Júgóslövum, sem áttu erfitt með að hemja
hann. Alfreð skoraði sex mörk.
W0RLD
CUP
12-17 Jan.1988
■ FORRÁÐAMENN íslenska
landsliðsins era ekki ánægðir með
það að þurfa að ferðast til og frá
keppnisstöðum f langferðabifreið
með andstæðingum sínum. Óþol-
andi loft var f bifteiðinni í gær, þar
sem leikmenn Júgóslavíu reykja
mikið. Var fnykurinn óþolandi. í
dag veiður farið 160 km - til Mot-
ala. Forráðamenn landsliðsins hafa
óskað eftir að fá sérstaka bifreið
fyrir islenska landsliðið, þannig að
það verði ekki í sömu bifreið og
Danir.
Ungverjar hafa
Svíar hafa ekki unnið Ungveija
í 15 ár og það var engin brejd-
ing þar á í gærkvöldi. Ungveijar
sigraðu 22:17 eftir að staðan í leik-
hléi hafði verið 9:6.
Ungveijar léku nyög harúan vamarieik og
markvöröur þeirra, Laszlo Hoffmann, varði
frábœrlega, alls 19 skot þar af 3 vftaköst.
Svíar áttu aldrei möguleika eftir að Ungj-
veijar komust f 12:6 f upphafi seinni hálfleiks.
Til marks um hve Ungveijar léku fast voru
þcir utanvallar í 16 mfnútur en Svfar f fjórar.
Magnus Wislander var markahæstur Svía með
6 mörk. Peter Jerpar kom nastur með
mörk. Stórskytta þeirra, Björn Jilsen, skoraði
aðeins 1 mark og það úr vftakastí. Casjla
Marosi var markahæstur Ungvcija með 7
mörk. Janos Gyurka kom næstur með 5 mörk
og Cjasol Lehel gerði 4 mörk.
Stallone gaf tóninn
Sylvester Stallone leikur í
myndinni Over the Top vöru-
bílsstjóra, sem fer til Las Vegas
til að taka þátt í heimsmeistara-
keppninni 1 sjómanni. Hann
leggur hvern keppandann á eftir
öðram að velli og keppir til úrslita
við ram nokkum, sem hefúr ekki
tapað i þessari vinsælu íþrótt í
fiinm ár. En' Stallone tekst það
og hann fagnar innilega með syni
sínum í lok myndarinnar.
Frá Eskilstuna til Örebro er rúm-
lega klukkustundar akstur. ís-
lenska landsliðið og það
júgóslavneska fóra saman í rútu
og horfðu á fyrmefnda mynd á
leiðinni. Allir virtust mjög spennt-
ir og enginn fór úr rútunni í
Örebro fyrr en myndin var búin.
Þá varð ónefhdum manni að orði
að hún væri fyrirboði þess sem
koma skyldi, heimsmeistaramir
yrðu lagðir að velli — og það
reyndust orð að sönnu!