Morgunblaðið - 11.02.1988, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.02.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1988 25 Loðnanað grynnaásér LOÐNAN er nú að grynna á sér og færa sig nær landi í Beru- fjarðaráli. Skipin eru því óðum að skipta yfir á grunnnætur til að geta betur átt við veiðina. Aflinn á þriðjudag varð alls 6.440 tonn og siðdegis í gær var hann orðinn 8.320. Auk þeirra skipa, sem fengu afla á þriðjudag og áður er getið, fór Rauðsey AK með 610 tonn til Akra- ness. Síðdegis í gær höfðu eftirtalin skip tilkynnt um afla: Eldborg HF 1.200 og Guðrún Þorkelsdóttir SU 600 til Eskifjarðar, Hákon ÞH 900 til Seyðisfjarðar, Huginn VE 510 til Reyðarfjarðar, Beitir NK 700 til Neskaupstaðar, Súlan EA 650 til Krossaness, Albert GK 400 og Galti ÞH 540 til Homafjarðar. Eftirtalin skip höfðu ekki ákveðið löndunar- stað: Höfrungur AK 920, Sjávar- borg GK 700 og Fífill GK 520 tonn. Ráðunautar kynna hrossarækt og tölvuspár Síðasti fundurinn í Félagsheimili Fáks í kvöld HROSSARÆKTIN í landinu og niðurstöður úr tölvuútreikningi á kynbótagildi hrossa eru helstu umræðuefni á fundum ráðunaut- anna Þorkels Bjarnasonar og Kristins Hugasonar sem þeir halda með hestamönnum og öðr- um áhugamönnum um hrossa- rækt þessa dagana. Ráðunaut- amir hafa þegar haldið fundi í Borgarnesi og á Selfossi, en þriðji og siðasti fundurinn verð- ur haldinn í Fáksheimilinu í Reykjavík í kvöld. Þorkell Bjamason hrossaræktar- ráðunautur sagði í samtali við Morgunblaðið að tilgangur með þessum fundum væri að ræða við hestamenn um það sem helst er á döfínni í hrossaræktinni, enda væru ýmis mál sem brenna á hestamönn- um í sambandi við rekstur þessa starfs. Rætt er um það sem helst gerðist í hrossaræktinni á síðasta sumri og einnig er rætt um framtíð- ina, til dæmis Fjórðungsmótið sem haldið verður á Vesturlandi í vor. Þá er fjallað um starf hrossa- ræktarsambandanna átta sem starfa í landinu, fjármögnun á starf- semi þeirra, stóðhestakaup og fleira. Kristinn Hugason kynnir síðan nýjar niðurstöður úr tölvuspá um hrossarækt og útskýrir kynbóta- einkunnir og spár. í erindi sínu kemur hann einnig inn á ræktunar- mál og kynbætur. Fundurinn sem haldinn verður í Félagsheimili Fáks í Víðidal í kvöld er öllum opinn. Hann hefst klukkan 20.30. Elli- og örorkulífeyrisþegar í Reykjavík: Fasteignaskattur miðast við tekjur frá Tryggingastofnun BORGARRÁÐ hefur samþykkt að viðmiðunartölur vegna lækkunar á fasteignarskatti elli- og örorkulífeyrisþega, skuli miðast við tekjur frá Tryggingastofnun rikisins. Samkvæmt þeim skal fella niður álagðan fasteignaskatt hjá þeim, sem aðeins hafa tekjur frá Trygg- ingastofnun ríkisins, það er elli- og örorkulífeyrir, tekjutryggingu og heimilisuppbót. Einstaklingar með tekjur allt að 320.000 krónum á ári og hjón með allt að 480.000 krónum á ári, fá 80% lækkun á fasteigna- skatti. Einstaklingar með tekjur á bilinu 320.000 til 380.000 krónur á ári og hjón með tekjur á bilinu 480.000 krónum til 570.000 krón- um, fá 50% lækkun á fasteigna- gjöídum árisns 1988. meirí háttar 0STV TIIfiOÐ stendur tíl 12. febrúar á ca. 450 g stykkjum af brauðostinum góða. Verð áður: kr. 5(Kf/kílóið Tilboðsverð: kr.39 1 • X kílóið Rúmlega 20% lækkun!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.