Morgunblaðið - 11.02.1988, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.02.1988, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1988 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Rltstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Askriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 55 kr. eintakiö. Aðhald almenn- ingsálitsins Hóflegir kjara- samningar forsenda fyrir lækkun vaxta - segir Jóhannes Nordal seðlabankastjóri JÓHANNES Nordal seðlabanka- Hagsmunaátökin í sam- félagi okkar taka stund- um á sig undarlegar myndir. Þessa dagana er unnið að því að koma á nýjum kjarasamn- ingum. Enn einu sinni er lögð mest áherzla á það af hálfu verkalýðsforingja og stjórn- málamanna, að kjör hinna lægst launuðu verði bætt. Kjör fólks er hægt að bæta með margvíslegum hætti. Ein að- ferðin er sú að hækka kaup, önnur að útvega vöru og þjón- ustu á lægra verði en áður. Um helgina bárust fréttir um það, að forráðamenn Verzl- unarmannafélags Reykjavíkur ættu í viðræðum við erlent flugfélag um leiguflug milli íslands og annarra landa í sumar með félagsmenn VR. Ástæðan fyrir því, að þessar viðræður fara fram er váentan- lega sú, að félagið hefur ekki náð samningum við íslenzku flugfélögin, sem það telur við- unandi. Þá bregður svo við, að forráðamenn Starfsmannafé- lags Flugleiða lýsa því yfir, að ef VR semji við hið erlenda félag muni starfsmenn Flug- Ieiða segja sig úr VR, þar sem atvinnuöryggi starfsmanna Flugleiða sé stefnt í hættu! Nú vill svo til, að rekstur Flugleiða gekk illa á sl. ári m.a. vegna þess, að félagið tapaði miklu fé á flutningi út- lendinga milli Bandaríkjanna og Evrópu. Það er því engan veginn útilokað, að VR fái ekki viðunandi tilboð frá félaginu vegna þess, að það þarf að vinna upp tapið á Ámeríkuflug- inu. Er við hæfí, að félagsmenn VR greiði það tap? Þá má líka spyija, hvort eðlilegt sé, að allir hinir félagsmenn VR greiði hærri fargjöld milli landa til þess að atvinnuöryggi starfsmanna Flugleiða sé tryggt. Nú stefnir í það, að eggja- og kjúklingaframleiðsla verði tekin inn í það framleiðslukerfí landbúnaðarins, sem hefur gefízt illa og kostað neytendur mikla fjármuni án þess að það hafí tryggt bændum lífvænleg kjör. í umræðum um þau mál hefur komið fram, að hugsan- legt sé, að egg og kjúklingar kosti jafnvel fjórum sinnum meira hér en í Evrópu. Er eitt- hvert vit í því, að íslenzkir neytendur haldi uppi atvinnu- starfsemi, sem kostar þá svo mikið umfram það,-sem fólk þarf að borga í nálægum lönd- um? Er ekki nóg komið í þeim efnum? Eigum við að bæta við atvinnustarfsemi, sem þrífst ekki nema með margföldum kostnaði á við það, sem tíðkast annars staðar? Morgunblaðið hefur á undanfömum árum tekið undir þau sjónarmið, sem margir í hópi eggja- og kjúkl- ingaframleiðenda hafa sett fram um nauðsyn frjálsrar samkeppni á þessu sviði. Þótt þeir sýnist nú hafa skipt um skoðun er afstaða Morgun- blaðsins óbreytt. Það má auð- vitað spyrja, hvort minni fram- leiðendur á þessu sviði hafí markvisst haldið verði niðri lengur en eðlilegt gat talizt í því skyni að knýja stærri fram- leiðendur inn í einokunarkerfí. En hver sem hin raunverulega ástæða er, hefur það nú tekizt að því er virðist. Það gengur ekki lengur, að annars vegar standi hér árleg- ar deilur um kaup og kjör fólks og ítrekaðar kröfur um bætt kjör fyrir þá lægst launuðu og hins vegar rísi hagsmunaaðilar upp, hvort sem um er að ræða eggja- og kjúklingaframleið- endur eða starfsmenn Flug- leiða, og krefjist þess, að hags- munir þeirra verði tryggðir á kostnað almennings í landinu, þegar leitað er leiða til þess að bæta kjör fólks með því að lækka verð á eftirsóttri vöru eða þjónustu. Þótt hér séu nýleg og nær- tæk dæmi tekin til umfjöllunar eru fjölmörg önnur af svipuðu tagi, sem koma upp á ári hverju. Við hofum um langt árabil verið að vinna okkur út úr því landbúnaðarkerfí, sem hefur reynzt neytendum dýr- keypt. Þetta þjóðfélag getur ekki staðið undir fleiri atvinnu- greinum, sem byggja á því að þær njóti sérstakrar verndar, sem íslenzkir neytendur borga að lokum. Samt er það svo, að stöðugt eru hafðar uppi kröfur á hendur ríkisvaldinu eða öðrum aðilum um einhvers konar vemdunar- eða björg- unaraðgerðir, sem kosta mikla flármuni. Tíðarandinn er breyttur. Hinn mikli fjöldi fólks í þétt- býli sættir sig ekki lengur við að greiða mikla skatta til þess að standa undir atvinnustarf- semi, sem ekki er hægt að reka á eðlilegum grundvelli. Þess vegna er aðhald almennings- álitsins harðara og gagnrýnna en nokkru sinni áður. stjóri telur hóflega kjarasamn- inga tii sem lengst tíma forsendu þess að jafnvægi náist á lána- markaðnum og skilyrði skapist fyrir því að að vextir lækki. „Sú óvissa sem nú ríkir um kjara- samninga og verðbólguþróun eykur eftirspum eftir lánsfé og hækkar raunvexti. Til þess að raunvextir geti lækkað hér á landi þarf að koma á betra jafn- vægi í efnahagsmálum í heild, draga úr lánsfjáreftirspurn ríkisins og að jafna lánskjör á mismunandi lánum á f jármagns- markaðnum. “ Að baki núverandi ástands í vaxtamálum liggja fjórar megin- ástæður, að mati seðlabankastjóra. í fyrsta lagi hafí vaxtafrelsið frá nóvember 1986 haft sín áhrif með því að jafna bilið milli vaxta inn- og útlána í bankakerfínu og þeirra va xta sem ríktu á verðbréfamark- aðinum. Jafnframt því sem vextir bankanna hafa hækkað til sam- ræmis því sem gerist annars staðar hafa raunvextir á frjálsa markaðn- um farið heldur niður á við. Þessi nálgun bendi eindregið til þess að náðst hafí verulega betra jafnvægi á milli framboðs og eftirspumar á lánsfé á fjármagnsmarkaðnum heldur en áður var, eða hefði orðið Rafmagnskostnaður vegna upp- hitunar á Hofsósi er nú orðinn þrisvar sinnum hærri en i ná- grannabænum Sauðárkróki og hefur hækkað helmingi meira á einu ári en olía til húsahitunar. Að sögn Ófeigs Gestssonar, sveit- arstjóra, er engin regla á hvenær rafmagnsreikningarnir eiga að greiðast. Þvi komi reikningar sem falli í gjalddaga i byijun „ÞAÐ er í sjálfu sér ekkert við það að athuga að sett sé fyllri löggjöf um þessa starfsemi," sagði Gunnar Helgi Hálfdánar- son framkvæmdastjóri Fjárfest- ingafélagsins, inn fréttir af fyr- irhuguðu frumvarpi viðskipta- ráðherra um starfsemi á fjár- magnsmarkaði utan banka og fjárfestingalánakerfis. Þar eru meðal annars boðuð ákvæði um láusafjárstöðu verðbréfasjóða og bindiskyldu gagnvart Seðla- banka. „Þó tel ég að rökréttara hefði verið að endurbæta gildandi lög um verðbréfamiðlun og verðbréfasjóði," sagði Gunnar Helgi. „Með því móti hefði hætta á misræmi orðið minni. Hins vegar hefði mátt semja sérstök ef vextir hefðu ekki verið gefnir frjálsir. í annan stað hafí halli á ríkis- sjóði og aukin áhersla á fjármögnun hallabúskapar ríkisins á innlendum lánsfjármarkaði hækkað vexti. í þriðrja lagi eigi vaxandi verðbólga og aukin óvissa um þróun hennar sinn þátt . Samkvæmt reglulegri úrtakskönnun Seðlabankans hefur ótti mánna við verðbólgu og óvissa um þróun gengis og launa vaxið verulega undanfarið. í upphafi þessa árs býst almenningur þannig við helmingi hærri verðbólgu næstu tólf mánuði, en hann gerð i í byrjun árs 1987. Við aðstæður sem þessar er tilhneigingin ætíð sú að eftir- spum eftir lánsfé vex og vextir leita upp. Þessu til viðbótar hefur mikið framboð á niðurgreiddu lánsfé, eins og nú er í gegnum húsnæðislána- kerfíð, þau áhrif að hvetja til meiri framkvæmda, auka heildareftir- spum lánsfjár og þar með hækka vexti af öðmm lánum á markaðin- um. „Af öllu þessu leiðir að háir raunvextir innanlands eru ekki or- sök erfiðleikanna heldur afleiðing ' þess óstöðugleika sem nú ríkir í efnahagslífinu .“ „Vissulega eru raunvextir háir hér á landi þótt þeir séu ekki hærri en vlða annars staðar þar sem ríkja svipaðar aðstæður og hér“, sagði Jóhannes enn fremur. „En ég tel mars ákaflega ílla niður á heimil- unum en þeir berist á þeim tima sem vitað er að greiðslugeta heimilana sé minnst, eftir jól og áramót. Ástæðu þess að Hofsós sé ekki með eigin hitaveitu segir hann þá að Orkustofnun hafi ekki enn fundið heitt vatn á þeim stað þar sem hagkvæmt sé talið að virkja það og of dýrt sé talið að leggja hitaveitu utan úr Fljót- lög um þá þætti sem ekki gæti rúmast innan þeirra laga. Ég sé ekki að það þurfí tvenn lög um verðbréfamiðlun og verðbréfasjóði, það býður heim hættu á ósam- ræmi.“ „Spurningin um bindiskyldu er út í hött og þekkist hvergi meðal siðmenntaðra þjóða, vegna þess að þessir sjóðir eru hvergi taldir til innlánsstofnana. En með þessu eru stjómmalamenn auðvitað að gera kröfu um að fá að ráðskast með fé þessara sjóða og stýra því í enn eina vitleysuna. Það er einnig rætt um að lög- binda lausafjárhlutfall. Það er auð- vitað kappsmál þessara sjóða að hafa iausafjárhlutfall sitt f lagi. Það er vopn í samkeppninni að hafa góða Iausafíárstöðu en ef menn vilja það fjarri öllu lagi að vextir hafi ekki áhrif á lánsfjáreftirspurn hér á landi eins og haldið hefur verið fram eða að háir vextir dragi ekki úr þenslu og eftirspum eftir lánsfé. Hér gildir sama lögmál og á öllum öðrum mörkuðum og öðrum löndum að hærra verð dregur úr eftirspum en lágt verð eykur hana. Eitt dæmi um áhrif vaxta á fjárráðstafanir manna er hin gífurlega eftirspum eftir lánum í húsnæðislánakerfinu þar sem vextir hafa verið lækkaðir langt niður fyrir markaðssvexti. Það sama má segja um ásókn í erlend lán sem stafar að sjálfsögðu af því að þau eru hagstæðari en þau innlendu vegna vaxtanna. í öðm lagi er það vel þekkt að áhrif- in af hækkun vaxta koma ekki að fullu fram fyrr en að nokkrum tíma liðnum. Vextir hafa fyrst og fremst áhrif á fjárfestingaákvarðanir s em eru teknar til lengri tíma og eru tiltölulega ósveigjanlegar. Onnur hlið á hinum háu raun- vöxtum er sú gífurlega aukning á framboði fjármagns í formi spari- fjár og verðbréfasölu sem þeir hafa leitt af sér. Þótt ekki séu til tæm- andi tölur um markaðinn frá síðasta ári þá lætur nærri að aukning á framboði á innlendu flármagni til útlána hafi aukist um nálægt 50% 1987, eða um 20% umfram verð- bólgu. Þessi aukni spamaður sem um. Reikningar fyrir áætlaða notkun rafmagns í tvo og hálfan -mánuð, bámst íbúum Hofsósshrepps í byij- un vikunnar. Sem dæmi má nefna reikning upp á 14.061 krónu fyrir hitun hússins og 6.312 í lýsingar- kostnað, sem til samans gera 20.373 krónur. Annar hljóðaði upp á 22.138 krónu hitunarkostnað og 6.945 króna lýsingarkostnað, til binda það í lög, verður að gera þá kröfu að menn geti uppfyllt laga- skilyrðin með kaupum á bréfum á Verðbréfaþingi íslands. Ef hanna á einhveija sérpappíra, sem Seðlabanki hefur einkaleyfi á þá er það úr öllu samræmi við eðli- lega framþróun á fíármagnsmark- aði og ólíkt öllu sem þekkist erlend- is. Þama er tviskinnungur á ferð. Þessi ríkisstjóm vill leyfa íslending- um að fjárfesta erlendis í framtíð- inni. Þá verða þessir sjóðir og íslensk verðbréfafyrirtæki komin í beina samkeppni við erlenda aðila og ef búa á okkur þrengri og verri starfsskilyrði en erlend fyrirtæki búa við, er verið að draga úr sam- keppnishæfni íslenskra þjónustuað- ila á fíármagnsmarkarði." Upphitun þrefalt dýrari á Hof sósi en á Sauðárkróki Rökréttara að endurbæta lög um verðbréfasjóði - segir framkvæmdastjóri Fjárfestingafélagsins um frumvarp viðskiptaráðherra um fjármagnsmarkaðinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.