Morgunblaðið - 11.02.1988, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 11.02.1988, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1988 31 Jóhannes Nordal er kominn inn á markaðinn hefur átt verulegan þátt í að hamla spennu og jafnvægisleysi sem ann- ars hefði orðið mun meiri. Reyndar hefur útlánaaukning bankanna orð- ið hlutfallslega meiri en aukning innlána en sé aðeins tekinn sá hluti lánanna sem er fjármagnaður með innlánsfé þá lætur nærri að í krónu- tölu hafi staðist á aukning útlána og innlána í bankakerfmu á síðasta ári. “ Það að háir vextir hafi ekki einir sér nægt til 'að draga úr þenslunni sem hér hefur ríkt stafar ekki af því að vextir séu áhrifalausir heldur af því að margt annað skortir , að sögn seðlabankastjóra - aðrar ráð- stafanir eru jafnframt nauðsynleg- ar til að jafnvægi skapist í efna- hagslífínu. „Stórt skref var stigið í þá átt þegar afgreidd voru hallalaus Qárlög en þó er enn of mikil láns- .ijáreftirspum hjá opinberum aðilum í heild. Úr henni verður að draga samans 29.083 krónur. Orkuverð í janúar 1987 var 1,02 krónur hver kflówattstund en er orðin 1,54 krón- ur í janúar 1988. Hækkunin nemur því 50,98%. Orkuverðið er skilgreint þannig að í janúar 1987 kostaði seld orka til húsahitunar 1,65 krón- ur og niðurgreiðslur námu 0,63 krónum. í janúar 1988 var verðið komið upp í 2,17 krónur en niður- greiðslan var enn sú sama. Hún er háð því að notkunin fari ekki yfir 40.000 kflówattstundir á ári. Ef miðað er við að venjulegt heimili noti 40.000 þúsund kflów- attstundir á ári, þá er rafmagns- kostnaður vegna upphitunar á Hofsósi um 60.000 krónur á ári. Það er um 30.000 til 40.000 krónum hærra en á Sauðárkróki sem er í næsta nágrenni. Þar er orkureikn- ingurinn um það bil 22.500 krónur á ári. „Nú spyrja menn á Hofsósi sig að því hvort það sé eðlilegt að upphitunarkostnaður þeirra sé þref- alt hærri en í nágrannabyggðum þar sem orkan er ódýr. Hvers vegna þeir megi ekki sitja við sama borð í orkukaupum og þegar þeir kaupa afnotagjöld sjónvarps, mjólk, bensín og brennivín," segir Ofeigur Gests- son. „Þetta er mjög áleitin spum- ing, því ef heldur fram sem horfir verður fólk að velja milli þess að búa á stöðum þar senm orkan er svona dýr og hinna þar sem hún er ódýrari. Hér verða menn verða nú að vinna um 200 dagvinnutímum meira á ári en þarf á Sauðárkróki til að greiða orkureikninginn. Með öðrum orðum, þetta er spuming um fólksflótta." Ofan á þetta bætist, að um nok- kurra missera skeið hefur sérstakt orkuspamaðarátak Iðnaðarráðu- neytisins' staðið yfír og hefur fólk verið hvatt til að taka upp raf- magnshitun í stað olíuhitunar á þeim svæðum þar sem ekki er ódýr hitaveita. Olían hefur hækkað um 24,64% á sama tíma og rafmagn hefur hækkað um 50,98%. Líter af olíu kostaði í janúar 1987 6,90 en er orðinn 8,60 krónur. „Á sínum tíma fengu menn sérstök lán til að og það er enginn vafi að æskileg- ast væri, miðað við núverandi efna- hagsaðstæður, að hafa verulegan afgang á ríkisbúskapnum til að mæta fjárfestingaþörf opinberra aðila í stað þess að jafna hana með lántökum. Állar niðurgreiðslur líkt og er á íbúðalánum skapa einnig jafnvægisleysi á markaði og auka óeðlilega eftirspum. Mikilvæg að- gerð til að draga úr misvægi á lána- markaðinum væri að jafna lánskjör á ijármagnsmarkaðinum með því að breyta kjörum húsnæðislána og hækka vexti á íbúðarlánum, þannig að þeir yrðu raunhæfír miðað við aðra vexti. Mikilvægasta skrefið í átt að lækkandi vöxtum er þó að draga úr óvissu manna um þróun verðbólgunnar með hóflegum kjara- samningum til s em lengst tíma, að minnsta kosti til eins árs. Takist það ætti þróunin að geta farið að snúast við þó auðvitað komi fleiri atriði þar inn í, svo sem aðhald í opinberum fjármálum og peninga- málum. Miðað við skilyrðin í dag sagðist Jóhannes sjá lítlar líkur til þess að raunvextir lækki hratt á næstunni. Meginatriðið sé að háir vextir stafa af því efnahagsástandi sem er hér núna og það hljóti að taka nokkum tíma þar til menn eru sannfærðir um að verðbólguþróunin hafí snúist við. „Ég tel óvarlegt að knýja fram vaxtabreytingar fyrr en öruggt er að þetta traust hafi verið endur- heimt og viðunandi jafnvægi hafí náðst. Seðlabankinn hefur verið og er enn þeirrar skoðunar að það sé ekki skynsamlegt að grípa inn í markaðsþróun vaxta meðan fyrir henni eru eðlileg rök eins og verið hefur. Sé hins vegar ljóst að efna- hagsþróun sé að snúast við og skil- yrði fyrir vaxtalækkunar séii að myndast getur verið réttlætanlegt að bankinn reyni að hafa áhrif til vaxtalækkunar. En þessi skilyrði er ekki enn fyrir hendi og það er erfítt að spá um hvenær þau verða það “, sagði seðlabankastjóri að lokum. ( Ófeigur Gestsson sveitarstjóri á Hofsósi. breyta kyndibúnaðinum, svonefnd orkuspanaðarlán. Sem dæmi má nefna að þau lán sem voru í kring- um 50.000 við lántöku, eru orðin 150.000. Að því var unnið með oddi og egg að fá fólk til að nota innlenda orku í stað erlendrar og nú standa menn frammi fyrir þessum hækk- unum auk þess að þurfa að greiða af orkuspamaðarlánum sem tekin voru hjá Húsnæðisstofnun. Þessi hái rafmagnskostnaður skapar einnig misræmi milli sveitar- félaga. Sem dæmi má nefna að sveitarfélög sem hafa sína eigin rafveitu og hitaveitu, svo sem Sauð- árkrókur, fá niðurgreiddan um helming kostnaðar við götulýsingu. Einnig borgar rafveitan ljósastaur- ana. Við sem kaupum okkar orku frá Rafínagnsveitunni, greiðum fullt verð fyrir hvorutveggja. Vegna þessa misræmis vaknar sú spuming hvort ekki sé rétt að Jöfnunarsjóður ráðstafí einhveiju fé til að jafna þennan mun. Einnig spyija menn sjálfa sig hvort ástæðan sé sú að Landsvirkjun ætii að greiða Blöndu- virkjun upp á einum áratug" sagði Ófeigur Gestsson. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR Norður-Kórea; Kim Jong* II að verða valtur í arftakasessinum SJATNAÐ hefur fréttastreymi vestrænna fjölmiðla um hryðju- verkið á suður-kóresku flugvélinni yfir Burma fyrir rúmum tveimur mánuðum. Þá létust 115 manns. Eftir að annar ódæðis- mannanna, norður-kóreska stúlkan Kim Hyon Hui, játaði sök sína og útskýrði hvernig að því hefði verið staðið hafa blöð á Vesturlöndum að mestu látið málið lönd og leið. Sama er ekki upp á teningnum í löndum Suðaustur-Asíu og í nýjasta hefti blaðsins Far Eastern Economic Review er fjall- að ítarlega um málið og bent á, að þetta atvik kunni að draga dilk á eftir sér i tvennum skilningi, það kunni að veikja stöðu arftakans Kim Jong II og það geti haft áhrif á samskipti Norð- ur-Kóreu annars vegar við aðalvinina í Peking og Moskvu. í greininni segir að tilræðið hafi vakið gremju og stjórnir Kína og Sovétríkjanna viyi fyrir hvern mun ekki að þetta hafi sömu áhrif og stjórnin í Pyongyang stefndi að með verknaðin- um. Sem var að fá þjóðir til að hugsa sig tvisvar um og jafn- vel hætta við þátttöku í Ólympíuleikunum í Seoul á þessu ári. Eða það kom fram í máli stúlkunnar Kim Hyon Hui. Eins og sagt hefur verið frá í fréttum fyrir nokkru til- kynntu Sovétmenn og Kínveijar þátttöku í leikunum. Það vakti ekki beinlínis undrun, en ýmsir höfðu álitið, að þessi vinaríki Norður-Kóreu myndu setja skil- yrði fyrir þátttöku sinni. Marg- sinnis hefur það komið fram, að Norður-Kóreumenn vildu fá hluta leikanna yfír til sín, en sættu sig ekki við tilboð það sem þeir fengu og því fer keppni í öllum greinum fram í Seoul. Stjómmálafréttamður Far Eastem Economic telur að þessir atburðir, — þ.e. skemmdarverkið á flugvélinni og svo hitt að Sovét- menn og Kínveijar ætla ekki að hætta við að senda ólympíulið hljóti að hafa í för með sér, að Norður-Kórea muni einangrast enn meira á alþjóðavettvangi og staðhæfír að ráðamenn hafí þungar áhyggjur af því hvemig framvinda mála hefur verið. Þrátt fyrir stuðning frá Sovétríkjunum og Kínveijum sé óhjákvæmilegt að svo fari, meðal annars vegna þess að Kim II Sung, hæstráð- andi, hefur verið að láta æ meira af ákvörðunum í hendur sonarins Kim Jong II, sem nýtur ekki álits á við föður sinn hvorki í Peking né Moskvu. Það er líka heldur betur óheppi- legt að hann nýtur heldur ekki trausts og vinsælda heima fyrir. Margir þeir sem hafa gagnrýnt persónudýrkunina á föður hans, Kim II Sun, segja að hún sé rétt- lætanleg í hæsta máta séu þeir feðgar bomir saman hvað snertir hæfni og persónutöfra, þar sem yngri Kim skorti þessa eiginleika átakanlega. Vestrænn stjómarerindreki í Pyongyang sagði í viðtali við John McBeth, greinarhöfund hjá Far Eastem Economic Review, að Kim Jong II, sem nú er 45 ára að aldri, væri hrokafullur dekur- drengur og derringslegur í fram- komu. Hann þykir hégómagjam með afbrigðum og munaðarsegg- ur hinn mesti. Eftir því sem faðir hans hefði fengið honum fleiri verk að vinna, kæmi svo náttúr- lega æ betur í ljós, að hann hafí engan veginn hæfni til að leysa þau sómasamlega af hendi. Að því er stúlkan Kim Hyon sagði var hún að hlýða skipunum frá Kim Jong II sjálfum með því að sprengja KAL-vélina í loft upp og sagðist hún hafa verið látin Kim II Sung- efast hann um hæfni sonar síns. sveija eið við mynd af Kim Jong II. Bæði fréttamenn og stjómar- erindrekar hafa vitanlega bent á að ógemingur sé að sanna að Kim Jong hafí verið potturinn og pannan í málinu, en óhætt er að segja að flestir utan Norður- Kóreu hallast að því að frásögn stúlkunnar sé rétt. Um skoðun manna í Norður-Kóreu fer ekki sögum af, en pískur um hroka- gikkshátt og valdníðslu Kim yngri hefur hækkað að því er Far East- em segir. Kim Jong II var einnig sá sem að flestra dómi skipulagði „morð- in við minnismerkið" eins og at- burðurinn í Rangoon í Burma hefur verið nefndur, þegar Norð- ur-Kóreumenn komu fyrir sprengju þar 1983. Sprengjunni var ætlað að gera út af við Chun Doo Hwan, forseta Suður-Kóreu, sem var þar í opinberri heimsókn. Forsetinn var örfáum mínútum á eftir áætlun og varð það honum til lífs. Nokkrir suður-kóreskir ráðherrar létust í tilræðinu. Indó- nesiskur blaðamaður skrifaði síðar bók um þennan atburð og færði óyggjandi rök að þætti Kim Jong II f þessum verknaði. Stjóm- in í Burma handtók nokkra Norð- ur-Kóreumenn og sakaði þá um morðin, en treysti sér þó ekki til að kalla stjómina í Pyongyang til ábyrgðar. Sumir spá því, að Kim Jong II sé svo illa þokkaður í Norður- Kóreu, að það sé ekki sjálfgert, að hann taki við af föður sínum, þegar Kim II Sung fellur frá. Þá kunni að bijótast út valdabarátta með ófyrirsjáanlegum afleiðing- um. Fyrir þessu eru að svo stöddu engar áþreifanlegar vísbending- ar, en nokkrir menn hafa verið nefndir, sem vitað er að Kim II Sung hefur traust á. Það er einn- ig haft fyrir satt, að þeir hinir sömu séu ekki par ánægðir með Kim Jong H, hrokafullt dekur- barn á fimmtugsaldri. yngra Kim og gætu því lagt á ráðin um að rísa gegn honum. Þar eru oftast nefndir til sög- unnar Oh Gyuk Ryol, yfírmaður herráðs landsins, og Kim Gwang, aðsópsmikill félági í stjómmála- ráðinu. Tekið er fram að báðir þessir menn séu skólafélagar Kim II Sung og ætla megi að þeir séu hans nánustu samstarfsmenn, að frátöldum syninum. Stjómmálaf- réttaritarar spá því að mennimir tveir og væntanlega fleiri innan ’ innsta hringsins muni notfæra sér að staða Kims Jongs hefur veikzt. Það sé svo ekki gott að átta sig á, hvaða pól sá fullorðni muni taka í hæðina. Sennilegt sé að hann reyni að halda til streitu að hann taki við völdunum, en hann sé að öllum líkindum sárgramur yfir því, hversu áætlanir yngra Kims hafa verið illa skipulagðar og þó sérstaklega að Suður-Kórea hefur nú betur í áróðursstríðinu. Sumir segja, að Kim II sé farinn að bila á heilsu og líkja honum við Mao fyrrverandi Kínaform- ann. Dómgreind hans sé í molum og raunveruleikaskyn hans þverr- andi. En það gegnir sama með þessar bollaleggingar sem og aðr- ar varðandi Norður-Kóreu — svör fást engin að sinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.